Morgunblaðið - 08.03.1985, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. MARZ 1985
Á réttum
, tíma
Utaf punktinum sem skolaðist
til í þriðjudagsgreininni um
Stiklur Ómars, er vert að taka
fram, að ég var ekki þar að ásaka
einn aðila sérstaklega, allra síst
handritalesarana, aðeins að benda
á hve ritaður texti er viðkvæmur,
merkingarlega séð, fyrir hinu
minnsta hnjaski. En ekki fleiri orð
um þennan fjandans punkt, sem
velti svo stóru hlassi í fyrrnefndu
greinarkorni, snúum okkur þess í
stað að nýjum breskum heimildar-
þætti er nefnist Lifandi heimur, en
þáttur þessi kemur fyrir augu
sjónvarpsgesta, á miðvikudags-
kvöldum klukkan 20:40. Ég hefði
nú frekar kosið að þáttur sem
þessi kæmi ekki á skjáinn fyrr en
síðar um kveldið, á eftir Herstjór-
anum, en sá þáttur hefst ekki fyrr
en klukkan 21:50. Ég byggi þessa
skoðun mína á því, að þegar hafa
verið sýndir hliðstæðir þættir og
þessi nýi náttúrulífsþáttur Davids
Attenborough og félaga hjá BBC.
Má raunar gera ráð fyrir að marg-
ir hafi þegar fengið sig fullsadda
af „lífinu á jörðinni" einsog það
blasir við Attenborough. Hins
vegar er alltaf spennandi að fylgj-
ast með nýjum leiknum fram-
haldsþáttum á borð við Herstjór-
ann.
Tímasetningin
mikilvœga
Hjá stóru bandarísku sjón-
varpsstöðvunum ABC, CBS og
NBC er mönnum ljóst mikilvægi
tímasetningarinnar, einfaldlega
vegna þess að á þeim bæjum stíla
menn uppá auglýsingar og auglýs-
endur borga hæst verð fyrir vin-
sælt efni sem sent er út á réttum
tíma, það er þeim tíma er flestir
sitja fyrir framan sjónvarpstækið.
Hér hjá okkur virðist hins vegar
ríkjandi hið göfuga viðhorf að
troða hverskyns fræðsluefni á
skjáinn á þeim dýrmæta tíma er
fjölskyldan sest mett í sjón-
varpsskotið að loknum kvöldverði.
Ég held að þetta gæti allt saman
breyst til betri vegar þegar einka-
sjónvarpsstöðvar rísa hér til mót-
vægis við ríkissjónvarpið. Þá er ég
viss um að auglýsendur veiti hið
nauðsynlega aðhald. Við skulum
svo bara vona að hér rísi sem fyrst
sjálfstæðar sjónvarpsstöðvar til
mótvægis við Ríkissjónvarpið og
ekki síður til mótvægis við
myndbandafarganið.
Þá er þess óskandi, að hinar
nýju sjónvarpsstöðvar hafi mögu-
leika á vandaðri dagskrárgerð í
krafti auglýsingatekna. Þó mætti
gjarnan slá þann varnagla í sam-
bandi við auglýsingaumboð hinna
nýju stöðva, að þeim verði alls
ekki leyft að rjúfa dagskráratriði
með auglýsingaefni. Slíkt gæti
raunar með tímanum veikt mjög
stöðu þessara stöðva, því einsog
komið hefir í ljós í Bandaríkjun-
um sækir almenningur þar nú
mjög í myndböndin vegna þreytu
á sírofinni dagskrá stóru sjón-
varpsstöðvanna.
Útvarpsleikritin
En svo ég skilji ekki dagskrá
Ríkisútvarpsins okkar alveg út-
undan í þessari umræðu, þá vil ég
þar sérstaklega víkja að rangri
tímasetningu fimmtudagsleikrit-
anna, en þau eru gjarnan send út
klukkan 20:00. Nú er það svo að
sumir eru með grenjandi barna-
hóp, í öllum skúmaskotum, á
þessu andartaki sólarhringsins og
þurfa því að grípa til sérstakra
ráðstafana hyggist þeir njóta
fimmtudagsleikritanna. Ég veit aö
þetta er einnig mikið vandamál
fyrir margt barnafólk, sem vill
komast á sýningar Þjóðleikhúss-
ins og jafnvel í Iðnó. Væri ekki
mögulegt, Jón Viðar, að flytja
fimmtudagsleikritin aftur i dag-
skránni um svo sem klukkustund?
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP / S JÓN VARP
Mezzoforte f Montreux
■I í kvöld kl. 21.15
15 verða sýndir
rúmlega
klukkustundar langir
hljómleikar hljómsveitar-
innar Mezzoforte sem hún
hélt á hinni aðþjóðlegu
djasshátíð í Montreux í
Sviss árið 1984. Djasshá-
tíð þessi er sem kunnugt
er haldin ár hvert og vek-
ur ætíð mikla athygl.
Hljómsveitin Mezzo-
forte skipa Gunnlaugur
Briem, trommuleikari,
Eyþór Gunnarsson,
hljómborðsleikari, Jó-
hann Ásmundsson, bassa-
leikari, og Friðrik Karls-
son, gítarleikari. Auk
þeirra lék Kristinn Svav-
arsson, saxafónleikari,
með þeim á hátíðinni en
hann er ú hættur í
hljómsveitinni og Hol-
iendingurinn Jerome De
Rjik lék á ásláttarhijóð-
færi.
Ráðgátan í Oberwald
— ítölsk mynd
■i Föstudags-
35 mynd sjón-
“ varpsins er ít-
ölsk. gerð eftir leikritinu
Þríhöfða erninum eftir
Jean Cocteau, og nefnist
Ráðgátan í Oberwald (II
mistro di Oberwald).
Myndin gerist í Evrópu
á öldinni sem leið. Kon-
ungshjónin þar bera
svipmót af Elísabetu keis-
aradrottningu Austurrfk-
is og Lúðvík II Bæjara-
konungi. Myndin hefst á
því að drottningin unga
verður vitni að því að kon-
ungurinn eiginmaður
hennar er myrtur. Ekkjan
verður óttaslegin og flýr
því hirðina og ferðast á
milli halla sinna.
Fjendur krúnunnar
senda ungt skáld til höf-
uðs drottningu og ber
fundum þeirra saman í
Oberwald-höll eina óveð-
ursnótt. Drottningin held-
ur í fyrstu að þar sé
draugur konungsins kom-
inn þar sem skáldið líkist
honum furðanlega mikið.
Hún áttar sig þó fljótlega
og verða samskipti
skáldsins og drottningar-
innar ungu ólíkt vinsam-
legri en til var ætlast.
Leikstjóri er Michel-
angelo Ántonioni en með
aðalhlutverk fara Monica
Vitti og Paolo Boancelli.
Drottningin og skáldið.
Halldór Laxness les
Passíusálmana
■i Halldór Lax-
00 ness les nú
““ Passíusálmana
í útvarpið. Um þá hefur
skáldið m.a. sagt í { tún-
inu heima:
„Þegar ég var níu ára
var ég settur til að lesa
húslestra á Helga postillu
Thordarsen á sunnudög-
um og Passíusálma á
föstukvöldum, og ég
reyndi að hafa eftir þenn-
an tón, eða réttara sagt,
mér hugskotnaðist aldrei
að hægt væri að lesa guðs-
orð öðruvísi. Nú þykja
Passíusálmarnir hlægi-
legir ef þeir eru lesnir í
réttum tón. Á únglíngsár-
um mínum sumarpart í
Barðastrandarsýslu 1921
heyrði ég enn sama hús-
lestrarlag og í bemsku.
Annars er einsog þetta
lestrarlag á guðsorði hafi
verið bannað af yfirvöld-
um að viðlögðum kárínum
um alt land í kríngum
1920 — en hver bannaði?
Gamalt fólk úr sveitum
hefur sagt mér að það
ætlaði ekki að trúa sínum
eigin eyrum, eftir að það
kom híngað suður uppúr
1920, og heyrði Passíu-
sálmana lesna upphátt
einsog hver önnur ljóð-
mæli. Var fólk að guðlasta
viljandi? Undarlegt
hvernig eldforn lögmál
geta þurkast út á nokkr-
um misserum. Allir pass-
íusálmalesarar útvarpsins
híngaðtil hafa lesiö þessa
föstusálma í tón sem hefði
þótt óviðeigandi og ver-
aldlegur, jafnvel synd-
samlegur, þegar ég var að
alast upp fyrir 1920. Jón
Helgason hefur bent mér
á að íslendíngar hafi
skrifað klassískt meðan
þeir lifðu á sauðfjárbú-
skap. Eftir að sauðkindin
var ekki leingur lífsnauð-
syn frumstæðra manna
einsog torfkofarnir sem
þeir hírðust í, heldur orð-
in úrelt búskaparvenja og
leiður ávani, féll í gildi sú
menníng sem hafði mótað
málið. Um svipað leyti og
fráfærur leggjast niður er
ekki aðeins húslestrum
hætt á íslandi, heldur
missa menn hæfileikann
til að lesa Passíusálmana
upphátt, en fara að lesa
þá einsog um væri að
ræða eitthvert afbrigði af
ljóðrænum kveðskap eftir
Davíð Stefánsson eða
mig.“
Hallgrímur Pétursson
Halldór Laxness
ÚTVARP
FÖSTUDAGUR
8. mars
7.00 Veöurlregnir. Fréttir.
Bæn.
A virkum degi. 7.25. Leik-
fimi. 7.55. Daglegt mál.
Endurt. páttur Sigurðar G.
Tómassonar frá kvöldinu áö-
ur.
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregn-
ir.
Morgunorð: — Sigurbjörn
Sveinsson talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
.Agnarögn" eftir Pál H.
Jónsson. Flytjendur: Páll H.
Pálsson. Heimir Pálsson og
Hildur Heimisdóttir (3).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 Þing-
fréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.).
10.45 „Mér eru fornu minnin
kær". Einar Kristjánsson frá
Hermundarfelli sér um þátt-
inn. (RÚVAK)
11.15 Morguntónleikar.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
1220 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar
14.00 „Blessuð skepnan" eftir
James Herriot. Bryndls Vlg-
lundsdóttir les pýðingu sina
(22).
14.30 A léttu nótunum. Tónlist
úr ýmsum áttum.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Slödegistónleikar
a. Öbókonsertlna I F-dúr op.
110 eftir Johann Kalliwoda.
Han de Vries og Fllharmón-
lusveitin i Amsterdam leika;
Anton Kersjes stjórnar.
b. Fiðlukonsert I D-dúr eftir
Hubert Léonard. Charles
Jongen og Sinfónluhljóm-
sveitin i Liége leika; Gérard
Cartigny stjórnar.
19.15 A döfinni.
Umsjónarmaöur Karl Sig-
tryggsson. Kynnir Birna
Hrólfsdóttir.
19.25 Krakkarnir I hverfinu.
12. Benjamln viðrar hundinn.
Kanadlskur myndaflokkkur
um hversdagsleg atvik I llfi
nokkurra borgarbarna. Þýð-
andi Kristrún Þóröardóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Kastljós.
Þáttur um innlend málefni.
Umsjónarmaður Sigurveig
Jónsdóttir.
c. Fagottkonsert I e-moll eftir
Antonio Vivaldi. Karel Bidlo
og Ars Rediviva-hljómsveitin
leika; Milan Munchlinger
stjórnar.
17.10 Slðdegisútvarp
Tilkynningar
18A5 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.55 Daglegt mál. Valdimar
Gunnarsson flytur þáttinn.
20.00 Lög unga fólksins. Þóra
Björg Thoroddsen kynnir.
20.40 Kvöldvaka
a. Frá safnamönnum. Þáttur
SJÓNVARP
FÖSTUDAGUR
8. mars
21.15 Mezzoforte.
Hljómsveitin Mezzoforle leik-
ur á alþjóölegri djasshátlö I
Montreux I Sviss árið 1984.
22.35 Ráögátan I Oberwald.
(II mistero di Oberwald.) It-
ölsk sjónvarpsmynd gerð
eftir leikritinu „Þrlhöföa ern-
inum" eftir Jean Cocteau.
Leikstjóri Michelangelo Ant-
onioni. Aöalhlutverk: Monica
Vitti og Paolo Bonacelli.
Myndin gerist I Evrópu á öld-
inni sem leið. Konungshjónin
þar bera svipmót af Ellsa-
betu keisaradrottningu Aust-
um þjóðleg efni.
b. Vor I Vatnadal. Þorsteinn
Matthlasson flytur þátt er
hann hefur tekið saman eftir
æskuminningum Helgu Vet-
urliöadóttur.
c. Mannahvörf og morðgrun-
ur. Úlfar K. Þorsteinsson les
þriðja þátt. Umsjón: Helga
Agústsdóttir.
21.30 Kvöldtónleikar frá þýska
útvarpinu. Sinfónluhljómsveit
útvarpsins I Baden-Baden
leikur. Stjórnandi: Nikolaus
Harnoncourt. Sinfónla nr.
100 i G-dúr eftir Joseph
Haydn.
urrlkis og Lúövlk II. Bæjara-
kóngi. Er sagan hefst hefur
konungur verið myrtur en
ekkjan hefur flúiö hiröina og
feröast milli halla sinna.
Fjendur krúnunnar senda
ungt skáld til höfuös drottn-
ingu og ber fundum þeirra
saman I Oberwaldhöll. Sam-
skipti þeirra veröa þó óllkt
vinsamlegri en til var ætlast.
Þýðandi Þurlður Magnús-
dóttir.
00.45 Fréttir I dagskrárlok.
22.00 Lestur Passlusálma (29)
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.35 Ur blöndukútnum. —
Sverrir Páll Erlendsson
(RÚVAK).
23.15 A sveitallnunni. Umsjón:
Hilda Torfadóttir (RÚVAK).
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp frá rás 2 til kl.
3.00.
FÖSTUDAGUR
8. mars
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnendur: Páll Þorsteins-
son og Siguröur Sverrisson.
14.00—16.00 Pósthólfið
Stjórnandi: Valdls Gunnars-
dóttir.
16.00—18.00 Léttir sprettir
Stjórnandi: Jón Ölafsson.
Hlé
23.15—03.00 Næturvaktin
Stjórnendur: Vignir Sveins-
son og Þorgeir Astvaldsson.
(Rásirnar samtengdar að
lokinni dagskrá rásar 1.)