Morgunblaðið - 08.03.1985, Side 13
MORGUNBLADIÐ, FÖSTUDAGUR 8. MARZ 1985
13
BÆNDUR
Erlendar
bækur
Siglaugur Brynleifsson
John Berger: Pig Earth. Writers and
Readers ('ooperative 1979.
Á síðustu fimmtíu árum hafa
franskar sveitir tekið miklum
breytingum. Le paysan er orðinn
le agriculteur, og þar með hafa
hugmyndir manna breyst og einn-
ig hugmyndir bændanna sjálfra
um stöðu bóndans i samfélaginu.
Það hefur lengi eimt eftir af skoð-
un Napóleons mikla að bestu her-
mennirnir kæmu úr sveitum og af
annesjum. Frakkar töldu lengi að
styrkur Frakklands byggðist á
„óspilltri" bændastétt og að stétt-
in væri einhvers konar bakhjarl
og styrkur „heilbrigðs" þjóðlífs.
Stjórnmálamenn stuðluðu að því
að hygla stéttinni með ríkisaf-
skiptum og styrkja þá atvinnu-
hætti, sem héldu henni við lýði.
1920 var þeim bændum, sem
gátu sannað að ætt þeirra hefði
búið á sama skikanum í 500 ár,
\ eitt heiðursmerki af landbúnað-
arráðherranum. Ef 1000 ára bú-
seta var sönnuð var bónda boðið
til hádegisverðar af ráðherranum.
Þetta minnir nokkuð á bændadek-
ur meðal nasista, en „Blut und
Erde“-hugmyndirnar skyldu vera
mýta hins eilífa þýska bónda.
Frönsk bændastétt, sem sjálfs-
eignarbændastétt fæðist 1789
(Marx), þetta gerðist með þeim
hætti að jarðeignir aðals og kirkju
voru gerðar upptækar, hluta jarð-
anna skipt milli franskra bænda,
við arfskipti skiptust skikarnir
niður í minni og minni einingar
svo að á 2000 hektara svæði í
Loire-dalnum eru 48.000 býli.
Afstaða franskra stjórnmála-
manna til franskra bænda eftir
stjórnarbyltinguna og fram undir
okkar daga, stafaði m.a. af því að
þeir áttu sér rætur í bændastétt-
inni, atkvæði bænda gátu skipt þá
talsverðu í kosningum. Það varð
að halda atkvæðamagninu lítt
breyttu út um hinar dreifðu
byggðir og meðan engin stór-
kostleg breyting varð í atvinnu- og
tækniháttum í landbúnaði var
framleiðsla þessa mikla bænda-
fjölda undirstaða mannlífs i
Frakklandi.
Með tæknivæðingu landbúnað-
arins hefur orðið róttæk breyting
á viðhorfum manna til bænda.
1931 vann helmingur Frakka við
landbúnaðarstörf, nú vinna 8%
Frakka þessi störf, til samanburð-
ar vinna 25% Grikkja að þessum
störfum en 4% Englendinga.
Kveikjan að tæknivæðingunni var
stóraukinn markaður og því fylgdi
sérhæfing. Þar með var hrunin
hin klassíska hefð, hvernig má
nýta tiltekið landsvæði svo að þar
geti lifað sem allra flestir og
framfleytt sér á landsins gæðum.
Sú kenning, að landbúnaður sé
rekinn á þann hátt að sem fæstir
framleiði sem allra mest magn er
tiltölulega ný af nálinni.
John Berger er Lundúnabúi að
uppruna, fæddur 1926. Hann
stundaði dráttlist og kennslu
framan af, en hefur undanfarið
búið með fjölskyldu sinni meðal
franskra smábænda, sem margir
hverjir stunda landbúnað að hætti
forfeðra sinna og hugsa og skynja
umhverfið á svipaðan hátt. Með-
vitund þeirra er tengd reynslu
bændakynslóðanna langt aftur í
aldir. Inntakið í lífi þeirra var og
er að skrimta, komast af, lífsbar-
áttan var hörð, handverkfæri og
orka eigin líkama og dráttardýra
var undirstaða takmarkaðrar
framleiðslu, en þeir skrimtu og
áttu sér atvinnumenningu, sér-
stæða bændamenningu. Þessi sér-
leiki var forsenda þeirra sem sér-
stakrar stéttar. Berger fjallar um
þessi einkenni í skissu, smásögu
og minningaþáttum.
Hann lýsir franska smábóndan-
um „le paysan" og þeim breyting-
um sem gera hann nú að tækni-
væddum framleiðanda markaðs-
vöru í stórum stíl, magnfram-
leiðslu, þar sem áhersla er lögð á
sérhæfingu.
Með tæknivæðingunni og
magnframleiðslunni, sérhæfing-
unni, hrynja menningarlegar for-
sendur bændamenningarinnar,
sveitamenningin er þar með dauð.
En þó má enn finna dæmi um
horfinn lífsmáta, og þá hefur
Berger fundið í því samfélagi sem
hann lýsir með svo miklum ágæt-
um í þessum sögum og þáttum sín-
um.
Það má fjölyrða um gildi sveita-
menningarinnar sem hluta menn-
ingararfs þjóðanna, og hvort
nokkur skaði sé skeður, þótt hún
lognist út af. Ef menningarleg
fjölbreytni er eftirsóknarverð, þá
er það miður.
Nú á dögum lifir meirihluti
jarðarbúa af landbúnaðarstörfum,
en samdrátturinn hefur orðið
mestur í iðnvæddu ríkjunum og ef
svo heldur fram sem horfir verða
engir eiginlegir bændur til í Evr-
ópu eftir svo sem 25 ár, samkvæmt
kenningum hagfræðinga sem
fjallað hafa um þessi efni. Fram-
leiðslusamsteypur og hlutafélög
munu magnframleiða landbúnað-
arafurðir, eða afurðasölu og dreif-
ingaraðilar ráða framleiðslu-
magni og reka i rauninni landbún-
aðinn, þótt frumframleiðslan sé að
nokkru magni talin í höndum
bænda, sem engu ráða um fram-
leiðsluhætti né verð. Þeir sem eft-
ir skrimta verða einhvers konar
starfskraftar dreifingaraðila og
framkvæðalausir sem stétt, þar
sem verksmiðjubúin geta auð-
veldlega annað því broti fram-
leiðslunnar, sem enn væri í hönd-
um þeirra.
Verksmiðjubúin þarfnast mikils
fjármagns, algjörlega tækni-
væddur landbúnaður er háður
orku og orkuverð hefur farið
fremur hækkandi. Afurðir verk-
smiðjubúanna eru ekki sambæri-
legar hvað gæði snertir og minna
tæknivæddra búa. Brestir í alþjóð-
legu bankakerfi og hækkun orku-
verðs og áburðarverðs getur skap-
að slíka kreppu að þetta búskapar-
form hrynji. Sá tími getur runnið
upp að hin klassíska landbúnað-
arstefna verði aftur ráðandi.
Berger ritar ágætan sögulegan
eftirmála, þar sem hann lýsir
heimsmynd og lífsviðhorfum
smá-bændastéttarinnar og ríkj-
andi framfarahugmyndum og
dregur sínar ályktanir af því.
SUMIR VERSLA DÝRT -
AÐRIR VERSLA
HJÁ OKKUR
Kynnum
I Mjóddinni:
,00
ítalskan Grýtupottrétt
800 gr á AÐEINS
Einstakt Ijúfmeti
Nýlagað Don Pedró kaffi með
kexi frá FRÓN: Café Noir
Mokkakrem — Súkkulaði Marie
Aldin ávaxtagrauta beirit á diskinn.
íananar h.f.j'r„_rrti
kynna Urval avaxi
Kjörís gefur að smakka
Hekla h.f. kynnir bíl ársins
Frátnpartar 1 'IQ&
niðursagaðir
Lambalifur A Q00 “ 4
AÐEINS ■ S
Lambakiöt _ .
í 1/1 skrokkum ■ Æ •00
niðursagað ■ Prk8-
Opið til kl. 19 í Starmýri og Austurstræti,
til kl. 21 í Mióddinni
AUSTURSTRÆT117 STARMYRI 2
Metsölublaó á hverjum degi!
Auðlærð öflug ritvinnsla.
I
I
íslenskt hugvit— (slensk hönnun.
SÖLUAÐILAR.
TÖLVUTÆKI sf
Gránufélagsgótu 4
PÓSthótf 565
602 Aku.
TÖLVUBÚNAÐUR sf
Smiðfuvegi 8
200 Kóp
Sími*. 73111
ÖRTÖLVUTÆKNI sf
Ármúla 38
105 Rvk.
simi: 687220
MlKRÓ hf. BENCO
Siðumúla 6 Bolholti 4
105 Rvk. 105 Rvk.
Simi: 39666 Simi: 21945
KRISTJÁN ó SKAGFJÖRÐ hf. HEIMILISTÆKI hf. SKRIFSTOFUVÉLAR hf GÍSLIJ. JOHNSEN
HóknasJóð 4 Sætum 8 Hverfisgotu 33 Sunnuhlið
101 Rvk 105 Rvk 101 Rvk 600 Aku
Simi 24120 Simr 27500 Simi 20560 Simi 96 25004
l-ft tagbúnaóury
^ EngihjallaS Pósthólf437 202 Kópavogur
Simi: 91 - 4 62 88
cq