Morgunblaðið - 08.03.1985, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. MARZ 1985
Líbería:
Innheimta í
hers höndum
Monroviu, Líberíu, 7. mars. AP.
SAMUEL Doe, rádamaður í Líberíu,
tilkynnti í gær, að hann hefði skipað
sérstakri sveit hermanna og lög-
reglumanna að sjá um innheimtu
fyrir tvö ríkisfyrirtæki sem eiga út-
Lstandandi margar milljónir dollara.
Sagði Doe í tilkynningunni, að
lagt yrði hald á eignir einstakl-
inga og fyrirtækja sem ekki borg-
uðu refjalaust skuldir sínar við
ríkisfyrirtækin, en þar er annars
vegar um að ræða stofnun, sem
greiðir fyrir viðskiptum innan-
lands, og hins vegar ríkisolíufélag-
ið. Á fyrrnefnda fyrirtækið 15
milljónir dollara hjá skuldunaut-
um sínum, en hið síðarnefnda
eitthvað minna. Kom ennfremur
fram hjá Doe, að ekki yrði tekið
mark á bréfum frá fyrri valdhöf-
um þar sem kveðið væri á um af-
slátt eða betri kjör.
Sprengingar
í Managua
Managua, 7. mare. AP.
NOKKRAR sprengingar í herbúðum
í miðborg Managua í dag ollu gífur-
legum eldsvoða, sem breiddist út til
hersjúkrahúss.
Daniel Ortega forseti sagði að
sprengingarnar og eldsvoðinn
hefðu valdið gífurlegu tjóni, en
engan hefði sakað.
Ríkisútvarpið hafði áður greint
frá því að sprengingar hefðu
heyrzt í borginni, m.a. sprenging
nálægt olíuhreinsunarstöð í vest-
urhluta höfuðborgarinnar. Út-
varpið skýrði einnig frá eldsvoða
nálægt olíuhreinsunarstöðinni.
En fréttaritari AP, sem fór til
olíumannvirkisins, skýrði frá því
að þar væri allt með kyrrum kjör-
um og tilkynnti að fréttin um
eldsvoðann væri röng.
Sprengingarnar virtust tak-
markast við E1 Chipote-herbúð-
irnar. Þar var sagt að heyrzt
hefðu að minnsta kosti fimm
sprengingar og það hefði leitt til
þess að útvarpið hefði sagt frá
ýmsum sprengingum víðs vegar
um borgina.
EI Chipote er við hliðina á víg-
girtu byrgi Somoza einræðisherra,
sem Sandinistar steyptu af stóli í
júlí 1979. Ekki er vitað um orsakir
sprenginganna, en rannsókn er
hafin.
IRA-MAÐUR GRAFINN
AP/Símamynd
Charles Breslin, félagi í IRA, var borinn til grafar fyrir nokkrum dögum, en hann féll fyrir breskum hermönnum
ásamt tveimur félaga sinna. /Etluðu þeir þremenningarnir að veita hermönnunum fyrirsát. Fjöldi manns fylgdi
Breslin til grafar og var kistan sveipuð írska fánanum.
24 biðu
bana í um-
ferðarslysi
(■uadmlajara, Mexfkó, 7. febrúar.
í G/ER rakst bensínflutningabfll á
áætlunarbifreið með þeim afleiðing-
um að 24 biðu bana og 10 slösuðust
alvarlega, að sögn embættismanna.
Vegalögreglunni tókst að stöðva
leka úr bensíngeymi flutningabíls-
ins, en fyrst var gripið til þess
ráðs að flytja fólk á brott úr ná-
grenni slysstaðarins.
Áreksturinn átti sér stað ná-
lægt borginni Tequila, um 56 km
fyrir vestan Guadalajara, aðra
stærstu borg í Mexíkó.
Rannsóknarmenn hafa reynt að
geta sér til um tildrög árekstrar-
ins, þar sem bílstjóri áætlunar-
bifreiðarinnar fórst, en bílstjóri
flutningabílsins flúði af vettvangi.
Kongressflokkurinn
tryggir sér stórsigur
Nýju Delhi, 7.m»ra. AP.
KONGRESSFLOKKUR Rajiv Gandhis forsætisráðherra hélt áfram sigur-
göngu sinni á Norður-Indlandi í dag og hann tryggði sér meirihlutann í
tveimur fjölmennustu fylkjum Indlands.
Þegar úrslit voru ókunn í aðeins
örfáum kjördæmum hafði Kon-
gressflokkurinn sigrað í átta
fylkjum af 11 og í einu alrikisum-
dæmi, þar sem kosið var til fylkis-
þinga á laugardaginn og þriðju-
daginn.
Hins vegar galt Kongressflokk-
urinn mikið afhroð í fylkjunum
Andrah Pradesh og Karnataka á
Suður-Indlandi og í smáríkinu
Sikkim i Himalayafjöllum þar
sem andstæðingar Kongress-
flokksins hafa farið með völdin.
Samkvæmt síðustu tölum hefur
Kongressflokkurinn sigrað í 183
kjördæmum af 289 þar sem úrslit
eru kunn í Bihar (alls er fylkis-
þingið þar skipað 324 fulltrúum)
og í 236 kjördæmum af 371 þar
sem úrslit eru kunn í Uttar Prad-
esh. Þar er kosið um 425 sæti í
neðri deild fylkisþingsins.
Kongressfíokkurinn fékk einnig
þrjá fjórðu hluta atkvæða í fylk-
inu Himachal Pradesh á Norður-
Indlandi. Þar er fylkisþingið skip-
að 68 fulltrúum og sigur Kon-
gressflokksins á sér enga hlið-
stæðu.
Kongressflokkurinn hefur hald-
ið velli og aukið fylgi sitt í fimm
öðrum fylkjum: Gujarart, Madhya
Pradesh, Maharaashtra, Rajasth-
an og Orissa. Bandalag við annan
flokk tryggði Kongressflokknum
sigur í Pondicherry, fyrrverandi
nýlendu Frakka.
Kosningarnar voru fyrsti
prófsteinninn á fylgi Gandhis síð-
an hann tryggði sér 80% þingsæta
í þingkosningunum fyrir tveimur
og hálfum mánuði.
Norður-Indland er gamalt vígi
Kongressflokksins og hann hlaut
jafnmikið fylgi þar, eða jók fylgi
sitt, miðað við úrslit fylkisþing-
kosninganna 1980. Hins vegar hef-
ur fylgi flokksins minnkað nokkuð
síðan í þingkosningunum í des-
ember.
Sænskir fjölmidlar fjalla um yfirlýsingar Jóns Baldvins:
Segja Jón Baldvin hafa
komið af stað slagsmálum
Lumái, 7. marz_ Frá Pétrí Péturwyni
frétUriUra Morgunbladsins.
FJÖLMIÐLAR hér í Svíþjóó hafa
gert grein fyrir yflrlýsingum Jóns
Baldvins Hannibalssonar, for-
manns Alþýðuflokksins, varðandi
hin ýmsu mál er snerta bræðra-
þjóðirnar á hinum Norðurlöndun-
um og jafnaðarmenn sérstaklega.
Útvarp og sjónvarp sögðu í gær frá
viðbrögðunum á þingi Norður-
landaráðs í Reykjavík. Talað er
um hneyksli í sambandi við um-
mæli Jóns um utanríkismál Finna.
Greint er frá viðbrögðum Kalevi
Sorsa og því að hann mætti ekki í
kvöldverðarboð jafnaðarmanna í
mótmælaskyni.
Flest stærstu dagblöðin greina
frá þessum atburðum í dag.
Svenska Dagbladet segir frá inn-
leggi Jóns í leiðara. Blaðið segir
hann hafa komið mikilli ólgu af
stað í röðum sósíaldemókrata.
Dagens Nyheter segir í fyrirsögn
að Jón Baldvin hafi komið af
stað slagsmálum í röðum nor-
rænna jafnaðarmanna. Hafi
Islándsk s-ledare
orsakar kalabalik
Frán DWm utxttruU
íl'S/'SVE'V.M'OA
B*miAVlK.oawU*
8verl£* har eo atrtkee-
mlslatw tom varken bOr
•fter nr ■evjodmkm abAtar
lOctervjða.
D«fi Miv«c tr ioswmr IkUaás
MMUltimnnkrtiiik* parUUdtur
Jon E**rf''LD Hmuútuáljurtn. Gt-
ocns olikj MÍkKOiiurtsptúitáikM «U
tmJkm pk júixm bmdctA*
b*r fL»nnIb»lgJcm or»»
m
t» I ett cnðl* 1 iflfldlft úkr
tvk/pnbtljdc grvpp ■ÞnUa Hpdæf
tTcr arWbvt aír mo kknvmpaitTi
tan. HjtanitwúMcn pmtMtjrmdtr
oct JLrgmtumac ts*dv*rfcfl£ ctsp*
pmáML.
I «n TV Ántmrvji; uppgtKX Hjld -
nibnloctfl hA «|t *o b&rnv*
pnnW mn i Nvrd#c Laoeb&r vn
ta) tadiottriaf «v beU Hurdvn.
Fmlkfliií wcbjteukUif i Efj V, -
|*vtk h«r ka)l*t drH»
oeb «ra «e rtittrhvtBpoIituá
mtáJ+st'Sing utnbirv cUásmin^mr
mUm
r%tt styrktc Am flockti taiiœiaj-
•e.
-Vár utniUMftol.bá kr aíBr-
ándrmi, uodmrtWiy. BMnnibmlo-
•cb ft’ir jCTurrmiirtam*. Lcldnó &r
rrrUn ac kkrri' apncM ron, lik-
kfltE Ktardtto I gtn hiúh«L Lnf«s
vUl kodnt pk Lúándt kim-apmj-
trtlnrt ftlJar modútolngmr. tiU Kvta.
Rdtvt Juunmtrr trko Scvjvt-
unlOQin. urdkrctWik dec
dtuatkxtttuk* pKrtiU>d4ria. I Ott-
tfcrfjdfi fijuu' dd mkflf»
km ub&tmr mad kMnvtpm, mdm
Jóni Baldvin tekist að komast
upp á kant við formann danskra
jafnaðarmanna út af friðarmál-
um og kjarnorkuvopnalausum
svæðum. Þá er sagt frá því að
hinn nýi íslenzki flokksforingi
hafi ekki gert það endasleppt
þegar að Svíum kom. Hann hafi
ásakað þá fyrir tvískinnungshátt
i utanríkismálum og linkind
gagnvart Rússum.
Blöð jafnaðarmanna segja
ekkert um þessar yfirlýsingar
Jóns enn sem komið er, en ekki
er vafi á þvi að Jón Baldvin
Hannibalsson er nú þekkt nafn í
Skandinavíu, ekki sízt meðal
jafnaðarmanna.
George Shultz:
Örtölvan
ógnar
komm-
únismanum
Washington, 7. mars. AP.
GEORGE Shultz, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sagði í gær,
að kommúnistaríkin óttuðust ekk-
ert meira en örtölvu- og fjar-
skiptabyltinguna, vegna þess að í
henni sæju þeir endalok skoðana-
kúgunarinnnar sem kommúnism-
inn byggðist á.
I ræðu, sem Shultz hefur birt
og ætlar að flytja í bandarísku
vísindaakademíunni, segir
hann, að kommúnistaríkin
„óttist upplýsingabyltinguna
jafnvel meira en hernaðarlegan
styrk Vesturlanda".
„Ef þekking er vald, þá er
fjarskiptabyltingin beint til-
ræði við kommúnismann, þá
einokun hans á upplýsinga-
streyminu og skoðanamyndun,
þar sem hann ríkir,“ sagði
Shultz.
Shultz sagði, að kommúnista-
ríkin ættu nú um það tvennt að
velja að dragast enn frekar af-
tur úr Vesturveldunum með því
að halda aftur af nýrri tækni
eða sjá alræðisvaldið gufa upp
fyrir þessari sömu tækni.
„Raunar má segja, að þau eigi
ekki nema annan kostinn, þann
síðari, því að það er ógjörningur
að stöðva tímans rás og tækn-
AP/Slmamynd
KRÖFUGANGA íKAUPMANNAHÖFN
Fyrir nokkrum dögum var efnt til fjölmennrar kröfugöngu í Kaupmannahöfn
til stuðnings kröfum verkalýðsfélaganna um styttingu vinnuvikunnar í 35
stundir. Var göngunni stefnt til aðalstöðva vinnuveitendasambandsins og var
myndin tekin við það tækifæri.