Morgunblaðið - 08.03.1985, Síða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. MARZ 1985
Enn tapar HK
FRAMARAR fengu tvö dýrmœt
stig í botnbaráttunni í 1. deildinni
í blaki á miövikudagskvöldiö
þegar þeir sigruöu HK og eru
Fram og Víkingur nú jöfn aö stig-
um í neösta sœti deildarinnar.
ÍS-stúlkur eru nú svo gott sem
búnar aö gulltryggja sigur sinn í
kvennaflokki eftir aö þœr sigruöu
liö Víkings, 3—0, en Breiöablik á
enn frasöilegan möguleika á aö
ná þeim aö stigum. Einn leikur
var í 2. deild karla, Þróttur 2 sigr-
aöi UBK 3—1.
Leikur Fram og HK var ekki sá
besti sem sést hefur í vetur. Liö
Fram var nokkuö jafnt en góðir
skellir Sigurjóns Magnússonar
komu hvað mest á óvart. Hjá HK
má segja aö ekki hafi staöið steinn
yfir steini, eins og reyndar í síöustu
ieikjum liösins. Móttakan er alveg í
Enskir punktan
Varadi
vill betri
samning
Frá Bob Henno»»y, fréttamanni Morg-
unbtaösins í Englandi.
IMRE Varadi, framherjinn
snjalli hjá Sheffieid Wednes-
day, hefur hótaö því aö hann
fari frá félaginu ef þaö bjóöi
honum ekki góöan samning.
Varadi er 25 ára aö aldri og
kom til liösins áriö 1983 frá
Newcastle þar sem hann skor-
aöi 40 mörk á tveimur keppn-
istímabilum. Áöur var hann um
tíma hjá Everton.
Móöir Varadi er itölsk og
sagöist hann ekkert hafa á móti
þvi aö leika i ítölsku knatt-
spyrnunni ef honum stæöi þaö
til boöa.
• David Speedic, framherji
hjá Chelsea, hefur gert nýjan
samning viö félagiö til næstu
fimm ára.
• Petar Borota, Júgoslavinn
sem varöi mark Chelsea á
timabili, er nú farinn aö æfa
með Fulham og vonast til aö
liðiö bjóöi honum samning þar
sem þaö hefur ekki varamann
fyrir Gerry Payton. Borota er 31
árs og lék í vetur um tíma meö
Porto í Portúgal, en fluttist siö-
an aftur til Englands.
• Markvöröur Wolves, Tim
Flowers, hefur staöiö sig mjög
vel í vetur. Hann er enn innan
viö tvitugt og þykir mikiö efni,
og hafa Manchester United,
Everton og West Ham nú öll
sýnt áhuga á aö næla i hann.
Iran úti-
lokað f rá
HM-keppni
ÍRAN hefur verió útilokað frá
þátttöku í undankeppni heims-
meistarakeppninnar í knatt-
spyrnu. Ástæðan er aú að for-
ráöamenn íranska knattspyrnu-
sambandsins hafa neitaö þeirri
kröfu FIFA, alþjóða knattspyrnu-
sambandsins, aö leikir liös þeirra
færu fram á hlutlauaum velli.
FIFA haföi ákveöiö aö þrjú lönd
yröu aö leika heimaleiki sína á
hlutlausum völlum, irak og Líban-
on auk írans og sættust tvö fyrr-
nefndu löndin á þessa ákvöröun.
Þar sem íran veröur ekki meö
eru aöeins tvö liö í 2. riöli Asíu-
svæöisins, Bahrein og Suöur Jem-
en.
molum og sóknin þar af leiöandi
bitlaus. Hávörnin var þaö eina sem
eitthvert vit var í á köflum. Úrslitin
uröu 15:11, 15:6 og 15:7.
Stúdínur áttu í hinu mesta basli
meö Víkinga, þó svo þeim síöar-
nefndu tækist ekki aö vinna hrinu.
Víkingsstúlkunum hefur fariö mjög
mikiö fram í íþróttinni á undan-
förnum mánuöum og ef svo heldur
fram sem horfir eiga þær eftir aö
vera í baráttunni um Islandsmeist-
aratitilinn á næstu árum. Úrslit í
leiknum uröu 7:15, 9:15 og 8:15 en
hver hrina um sig tók um 20 mínút-
ur.
í 2. deild sigraöi liö Þróttar liö
HK með þremur hrinum gegn
einni. Leikurinn var nokkuö fjörug-
ur og á tíöum sáumst skemmtileg
tilþrif. Þróttur vann fyrstu hrinuna,
15:13, og voru yfir í þeirri næstu,
14:10, en Breiöabliksmenn náöu
aö hriöa næstu sex stig og vinna
hrinuna, 14:16. I næstu tveimur
hrinum var staöan jöfn upp í 7:7,
en þá var eins og allur vindur væri
úr UBK og Þróttur sigraði, 15:7, í
þeim báöum. __
Bordeaux
og Everton
stigahæst
BORDEAUX og Everton eru nú
efst í keppni Adidas um titilinn
besta lið Evrópu, hafa bæði 13
stig.
Everton, Tottenham og Man-
chester United hafa öll ellefu stig,
Celtic, Verona og Anderlect hafa
10 og Bayern Munchen og Porto 9.
Portúgalinn Gomes er marka-
hæstur í Evrópu um þessar mundir
meö 27 mörk og írinn McGaughey
frá Linfield er næstur meö 26.
Morgunblaöiö/Svavar
• ísfirsku tvíburasysturnar, Auöur og Ósk Ebeneserdætur, uröu hnífjafnar í fyrsta sæti á Kristinsmótinu í
skíðagöngu sem fram fór í Ólafsfirði um síðustu helgi.
Tvíburasysturnar urðu
hnífjafnar í fyrsta sæti
KRISTINSMÓTIÐ fór
Ólafsfiröi um síðustu helgi, i
li SKÍ í i
fram í
mótiö
er liöur í bikarkeppni SKÍ í skíða-
göngu. 38 keppendur voru skráð-
ir til leiks og keppt var í flokki 13
ára og eldri.
Einar Ólafsson, Isafiröi, sigraöi
meö nokkrum yfirburöum í karla-
flokki 20 ára og eldri, var tæpum
þremur mínútum á undan Gottlieb
Konráössyni.
í flokki stúlkna 13—15 ára var
þaö skemmtilegt aö tvíburasyst-
urnar frá ísafiröi, þær Ósk og Auö-
ur Ebeneserdætur voru alveg hníf-
jafnar í mark og mátti ekki á miili
sjá hvor þeirra væri á undan, voru
þær því báöar dæmdar í fyrsta
sæti.
Bjarni Gunnarsson hefur komiö
mikiö á óvart í flokki 17—19 ára
drengja í vetur, hefur unniö allar
göngurnar í þessum flokki. Bjarni
er sonur þekkts skíöagöngumanns
frá Isafiröi, Gunnars Péturssonar,
sem hefur veriö meö á meira en 25
landsmótum á skiöum.
Magnús Erlingsson og Söivi
Sölvason frá Siglufiröi eru mjög
efnilegir göngumenn og eiga þeir
framtíðina fyrir sér aöeins 13 ára
gamlir.
Stella Hjaltadóttir, 18 ára frá
Isafiröi, hefur ekki tapaö í göngu-
keppni frá því hún byrjaöi aö
keppa fyrir fimm árum. Stella fékk
enga keppni i göngunni aö þessu
sinni, var eini keppandinn í þess-
um flokki og sömu sögu má segja
Morgunblaöiö/Svavar
• Einar Ólafsson frá isafiröi er hér í göngubrautinni á Ólafsfiröi og beitir hann nýju aðferðinni, „Skautatak".
um stöllu hennar, Guörúnu Páls-
dóttur, frá Siglufiröi sem keppti í
flokki kvenna 19 ára og eldri.
Ólafsfiröingar eiga marga efni-
lega unglinga í skíöagöngu, eins
og t.d. Friörik Einarsson, Ingva
Óskarsson, Sigurgeir Svavarsson
og Ólaf Björnsson.
Urslit í Kristinsmótinu voru
þessi:
13—15 éra stúlkur (2,5 km) mín.
1.—2. Ósk Ebeneserdóttir í 10,21
1.—2. Auöur Ebeneserdóttir í 10,21
3. Magnea Guöbjörnsdóttir Ó 11,23
4. Eyrún Ingólfsdóttir I 12,26
13—14 ára drangir (5 km)
1. Magnús Erlingsson S 20.53
2. Sölvi Sölvason S 21,13
3. Óskar Einarsson S 22,03
4. Grétar Björnsson Ó 23,57
5. Óskar Jakobsson i 26,48
1ö—18 ára stúlkur (5 km)
1. Stella Hjaltadóttir i 23,46
15—16 ára drengir (7,5 km)
1. Friörik Einarsson Ó 25,01
2. Ingvi óskarsson Ó 25,37
3. Baldur Hermannsson S 25,40
4. Rögnvaldur Ingþórsson í 26,26
5. Heimir Hansson í 28,17
Konur 19 ára og eldrt (7,5 km)
1. Guörún Pálsdóttir S
17—19 ára piltar (15 km)
1. Bjarni Gunnarsson í 48,49
2. Ólafur Valsson S 50,52
3. Ðaldvin Kárason S 52,30
4. Sigurgeir Svavarsson Ó 53,01
5. Brynjar Guöbjartsson í 55,34
Kartar 20 ára og eldri (30 km)
1. Einar Ólafsson i 90,57
2. Gottlieb Konráösson Ó 93,45
3. Haukur Eiríksson A 96,32
4. Haukur Sigurösson Ó 101,19
5. Ingþór Eiríksson A 103,20
6. Einar Yngvason I 103,51
— VJ.