Morgunblaðið - 04.07.1985, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 04.07.1985, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JÚLl 1965 7 Laxinn þreyttur í Langasjó ( Langá á Mýrum um mánadamótin. Sogið að lifna Talsvert líf er að færast í ála, hylji og strengi Sogsins, í fyrra- kvöld voru komnir 50 laxar á land og þykir mönnum það vera viðunandi afli, sérstaklega þegar mið er tekið af því að lítið var af laxi í ánni í fyrra og hún byrjaði rólega að þessu sinni. Mest hafði veiðst efst, fyrir landi Syðri- Brúar, eða 22 stykki, 14 í Ás- garðslandi, 4 í Bíldsfellslandi og 8 fyrir landi Alviðru, en á síðast nefnda staðnum hefur ekki veiðst eins mikið og laxamagnið þykir bjóða upp á, en talsvert hefur sést af laxi á þeim slóðum. Stærsti laxinn til þessa var 15 pund, veiddur á Landaklöpp, tveir 14 punda fiskar hafa einnig veiðst. Sæmileg byrjun í Miðá Veiði hófst í Miðá í Dölum 21. júní og þeir sem „opnuðu" ána drógu 4 laxa á þurrt og slatta af vænni bleikju. Um helgina voru 10 laxar komnir á land og þótti mönnum það lofa heldur góðu, því yfirleitt gengur laxinn frem- ur rólega í Miðá svo snemma, en þeim mun meira er á sumarið líður. Elliðaárnar bólgnar af laxi Nú eru komnir rétt tæplega 200 laxar á land úr Elliðaánum og hefur veiðin verið afar góð síðustu daga. Það veiddust 32 laxar á mánudaginn, svipað magn á þriðjudaginn og lítið lát var á veiði í gær þó tölur þar að lútandi hafi ekki legið fyrir í gærdag. Milli 800 og 1000 laxar hafa farið um teljarann og er það stórum meiri gengd en í fyrra þó veiðin hafi verið góð framan af þá eins og nú. 30. júní í fyrra höfðu t.d. aðeins farið 208 laxar um teljarann, það er því miklu mun meiri lax í ánum nú en þá þó veiðimagnið sé eigi ósvipað, 30. júní í fyrra voru 173 komnir á land. Meðalvigtin hef- ur lækkað talsvert að undan- förnu er smálaxagöngurnar hafa runnið upp ána hver af annarri, smálaxinn nú er þrýstinn og vel haldinn, ekki afturmjóir 2—3 punda tittir eins og í fyrra. Stærsti flugulaxinn veiddist í Höfuðhyl fyrir fáum dögum, hann veiddi Þorvaldur Jónsson og var hann 12 pund. Mývatn: Lifnar yfir líf- ríkinu - en ryk- mýið vantar Mývatnssveit, 2. júlí. MARGT bendir til, að ástand Mý- vatns sé nú með eðlilegri hætti en það hefur verið undanfarin ár. Mý- vargurinn er í fullu fjöri en rykmýið hefur ekki náð sér upp að fullu. Fjöldi fugla er meiri á vatninu en áður enda var varpið víða betra að talið er en var á síðasta ári. Ungahópar eru þegar farnir að sjást á Mývatni. Sömu sögu er að segja af silungsveiði. Hún hefur gengið allvel að undanförnu, sil- ungur er líka talinn feitari og betri en hann hefur verið síðustu ár. Vona menn því, að lífríki Mývatns sé að komast upp úr þeim öldudal, sem það hefur verið í um skeið. Sumir hafa að undanförnu viljað halda því fram, að mengun í Mý- vatni sé af völdum Kísiliðjunnar. Jafnvel er talað um að vatnið sé orðið svo eitrað, að í því þrífist vart nokkurt líf lengur. Aðrir telja að það ástand, sem ríkt hefur í Mý- vatni, sé af allt öðrum toga spunn- ið: sem sé veðurfarinu, köldum vor- um og sumrum og að ís hafi legið lengur á vatninu en áður, náttúru- hamförum og fleiru. En hvað sem öllum þessum bollaleggingum líður hefur nú greinilega rofað til. Næstu vikur og mánuðir munu vonandi skera úr um hve varanlegt það verður. — Kristján Flugleiðir. Færri farþegar en áætlað var FJÖLDI farþega hjá Flugleiðum í júní hefur orðið heldur minni, en gert var ráð fyrir í sumaráætlun félagsins. Hefur að þeim sökum verið fækkað ferðum á sumum leiðum og flug sam- einuð. Sæmundur Guðvinsson, frétta- fulltrúi Flugleiða, sagði að sumar- áætlun félagsins hefði gert ráð fyrir meiri aukningu farþega en raun hefur orðið. Hefði af þeim sökum orðið að fækka ferðum, ein- kum til Kaupmannahafnar, þá daga sem sumaráætlunin gerði ráð fyrir tveimur ferðum og þeim fækkað í eina með viðkomu í Glas- gow. Sæmundur sagði að farþega- fjöldinn hefði þó aukist, miðað við sama tíma í fyrra, en ekki eins mikið og gert var ráð fyrir. Óttast skort á karfa á Bandaríkjamarkað of lítið af karfaflökum. Þar sem bæði Rússar og Bandaríkjamenn eru mjög duglegir við að kaupa af okkur karfann, gætu þessir samn- ingar þýtt að við fengjum minna en við kysum af honum." — segir Magnús Gústafsson forstjóri Coldwater „Vid erum áhyggjufullir yfir því aö við fáum ekki nóg af karfanum, en þaö á eftir að koma í Ijós hvað kemur út úr samningum á ársgrundvelli. 1‘essir fimm ára samningar eru fyrst og fremst stefnumarkandi og í því að tiltaka það magn sem gert er, felst aðallega viljayfirlýsing." Þetta sagði Magnús Gústafsson, forstjóri Cold- water Seafood ('orporation í Bandar- íkjunum, þegar blaðamaður Morgun- blaðsins innti eftir áliti hans á nýgerð- um samningum um físksölu fslend- inga til Sovétríkjanna. Magnús kvað jafnframt skort á starfsfólki í frystihúsum á íslandi vera mikið áhyggjuefni þeirra hjá Coldwater. „Ef framleiðendur hafa of fátt fólk f vinnu þá er kannski eini kosturinn að pakka fiskinum í einfaldar pakkningar eins og þær sem fara til Rússanna." Stofnlánadeild landbúnaðarins: Eins og kunnugt er var m.a. sam- ið við Sovétmenn um mikla hækkun á kvóta fyrir freðfisk, 20 til 25 þús- und tonn í stað 12 til 17 þúsund tonna áður. „Eins og ástandið er núna þá eru ekki horfur á að það verði allt of mikið af flökum til skiptanna," sagði Magnús Gústafsson. „Ef við tökum helstu tegundirnar þá litur ekki út fyrir að það verði of mikið af þorskflökum, við hefðum getað selt töluvert meira af ýsu í ár en við höfum fengið og síðan hefur verið Vanskil frá fyrra ári 105 milljónir UM miðjan síðasta mánuð voru 105 milljónir af árgjöldum (afborgunum og vöxtum af lánum deildarinnar) síð- asta árs hjá Stofnlánadeild landbún- aðarins enn í vanskilum, þrátt fyrir að skuldbreyting hafi farið fram á lausa- skuldum margra bænda á árinu. Á sama tíma í fyrra var 71 milljón í vanskilum við deildina. Árgjöldin féllu i gjalddaga 15. nóvember sl. Að sögn Leifs Kr. Jó- hannessonar forstöðumanns Stofn- lánadeildarinnar eru það bæði ein- stakir bændur og vinnslustöðvar sem skulda þessi gjaldföllnu ár- gjöld. Aðspurður um vanskil slátur- húsanna á Patreksfirði og Breið- dalsvík sem verið hafa mikil sagði Leifur að búið væri að semja um vanskil sláturhússins á Patreksfirði en málefni sláturhússins á Breið- dalsvík væru enn í biðstöðu. Skósumarið 1. Leður „töfflur“ Brúnt. St. 39-46 kr. 525.- 2. Leður bandaskor Ljósgr. og drappl. St. 36-41 kr. 685.- 3. Léttir sumarskór „Espadriiiur Hvítt, gult, bleikt, St. 30-41 kr. 149.- 4. Leður bandaskór Hvítt og blátt St. 36-41 kr. 685.- 5. Leður bandaskór Hvítt, blátt og drappl. St. 36-41 kr. 395.- 6. Tréskór Svart. St. 35-39 kr. 395.- St. 40-47 kr. 495.- 7. Barnaskór
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.