Morgunblaðið - 17.05.1986, Side 42

Morgunblaðið - 17.05.1986, Side 42
42______ Hólmavík MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR17. MAÍ1986 Ahugasamir unglingar Hólmavík. BÖRN í Barnaskólanurn á > Dranganesi hafa á nýliðnum vetri, kappkostað að safna í ferðasjóð. Þau voru með allar klær úti og beyttu ýmsum brögð- um til að létta á pyngju foreldra og nágranna. Fyrir áramótin héldu þau hluta- veltu og gengu í hús til að selja merki Rauða kross íslands. Síðan hugkvæmdist krökkunum að halda uppboð á kökum. Til að bjóða upp kökumar var fenginn kennari sem þar kenndi í forföllum. Honum tókst með dyggri aðstoð bamanna að , hleypa miklu kappi í fólk. Þar seld- ust m.a. pönnukökur fyrir Jjallháar upphæðir og var ekki laust við að menn svitnuðu þegar heim var komið og tekið til við að sporðrenna vamingnum dýra. Þegar ákveðið var að veiða gjafa- rækju óskuðu krakkamir eftir því að fá að taka þátt í vinnslu hennar. Við þeirri ósk var orðið og stofnuðu þau þá gjafarækjunefnd. Hún samþykkti síðan að af þeim 15000 krónum sem þau fengju fyrir sína vinnu skildu 8000 krónur renna til Hjálparstofnunar kirkjunnar en það sem eftir yrði skildi renna í ferða- sjóðinn þeirra. Baldur Rafn. Morgunblaðið/Baldur Rafh Sigurðsson. Gjafarækjunefnd: Efri röð frá vinstri, Ingibjörg Anna og Sigur- munda. Neðri röð frá vinstri, Magnús og Svava. Stórkostlegir og vandaðir p———- jogging-, trimm- og æf- 'ri Rpi ingagallar frá Golden (jr J Cup. Stærðir: XS - XL Útsölustaðir: Reykjavík: Sportval. Utilíf. Mikligarð- ur. Bikarinn. Garðabær: Vöruval. Keflavík: Sport- búðÓskars. ísafjörður: Sporthlaðan. Bolungarvík: Versl. Einars Guðfinnssonar. Frá Golden Cup færðu einnig fallegan og vandað- an sundfatnað á börn og fullorðna, leikfimifatnað og skíðagöngufatnaö. flguoAsoopt Borgartúni 36, R.vík., sími: 688085. Kröfuganga á Austurvegi. Morgunblaðið/Magnús Reynir Jónaaon Seyðisfjörður: Hátíðahöld 1. maí í blíðskaparveðri Seyðisfjörður. HALDINN VAR útifundur hér á Seyðisfirði 1. maí, hátíðisdegi verkafólks. Ræðumaður var Sig- urður Guðmundsson formaður féiags starfsfólks á veitingahús- um. Aður hafði verið farin kröfu- ganga um Austurveg, aðalgötu bæjarins. Veður var einstaklega gott og gerðu menn sér ýmislegt til skemmtunar. Meðal annars var víðavangshlaup fyrir böm og ungl- inga, og gaf útgerðarfyrirtækið Gullberg hf. verðlaunagripi fyrir alla aldurshópa. Verkakonur sáu um kaffíveitingar í félagsheimilinu Herðubreið af miklum myndarskap og böm af leikskólanum sungu. Um kvöldið var Leikfélag Seyðisfjarðar ÁKVEÐIÐ hefur verið að efna til danslagakeppni á Hótel Borg nú í sumar. Fer keppnin fram á Hótel Borg á sunnudagskvöldum og verða leikin 5 lög hvert kvöld, en alls verða valin 25 lög til flutnings og er skilafrestur til 10. júli næstkomandi. í fréttatilkynningu frá Hótel Borg kemur meðal annars fram, að allt frá því danslagakeppni SKT lagðist niður hafi höfundar, sem samið hafí lög við gömlu dansana, haft lítil tækifæri til að koma lögum sínum á framfæri og sé tilgangur keppninnar að ráða bót á því. Þrenn verðlaun verða veitt, 50 þúsund krónur í fyrstu verðlaun, 25 þúsund krónur í önnur verðlaun og 10 þús- und krónur í þriðju verðlaun. Stefnt er að því að 10 efstu lögin verði gefin út á hljómplötu. Þátttakendur senda lögin til keppninnar á nótum, útsett fyrir eitt hljóðfæri eða laglínu með bók- stafahljómum. Einnig er gott að VERSLUNIN Vatnsvirkinn, Ár- múla 21, sem undanfarin ár hefur séð Reykvíkingum og ná- grönnum fyrir pípulagnavörum og hreinlætistækjum, hefur nú breytt húsnæði sínu og bætt þjón- ustuna. Formleg opnun verður laugar- Sigurður Guðmundsson ræðu- maður dagsins. láta hljómsnældu með upptöku lagsins fylgja, til þess að útsetjarar fái betri hugmynd um hvemig höf- undamir hugsa sér flutning lag- anna (hraða, áherslu o.fl.). Lögum þeim sem í er söngur þarf að fylgja sönghæfur texti á góðu máli. Senda má tii keppninnar lög sem hæfa við alla hefðbundna dansa, vals, tangó, ræl, polka, vien- arkms, skottís o.s.frv. Lögin skulu merkt með dulnefni tónskálds og textahöfundar, en fylgja skal rétt nafn og heimilisfang í lokuðu umslagi. Sérstök dómnefnd skipuð þremur tónlistarmönnum velur lögin til keppninnar. Valin verða allt að 25 lög til flutnings. Keppnin fer fram á Hótel Borg á sunnudagskvöldum og verða leikin 5 lög hvert kvöld. Af þeim komast 2 lög í undanúrslit þar sem valin verða 5 bestu lögin sem keppa síðar til úrslita. Gestir greiða atkvæði um lögin og þeirra atkvæði ræður algjörlega vali laganna, sem fá verðlaun. daginn 17. maí og verður verslunin opin frá 9—16. Ýmislegt verður gert til hátíðarbrigða í tilefni dags- ins. Viðskiptavinum verður boðið upp á kaffí, svala og ávexti, einnig kemur Tóti trúður og skemmtir viðstöddum. (Fréttatilkynning) með sýningu á Týndu teskeiðinni eftir Kjartan Ragnarsson. — GarðarRúnar Aðalfundur Kaup- félags Árnesinga: 13milljónkr. halli vegna aukins fjár- magnskostn- aðar AÐALFUNDUR Kaupfélags Ár- nesinga var haldinn 6. maí sl. á Selfossi. Fundinn sóttu um 120 manns víðs vegar úr Árnessýslu. í ræðum formanns kaupfélags- ins, Þórarins Siguijónssonar og Sigurðar Kristjánssonar kaupfélag- stjóra, kom fram að reksturinn hafði gengið all vel á árinu 1985 en fjármagnskostnaður þó aukist umfram verðlagsþróun og valdið um 13 milljóna króna halla. Afskriftir námu 19,8 milljónum. Fjárfestingar voru á árinu að upp- hæð 18,4 milljónir og tekin voru ný lán vegna þeirra, samtals um 13 milljónir. Eigin ljármagnsmynd- un frá rekstri var um 11,4 millj. Heildarvelta með söluskatti nam 820,2 milljónum og hafði aukist um tæp 37% frá árinu áður. Heildar- vörusalan var 640,9 millj. og var aukningin um 36% en sala fyrir- tækja 161,9 milljónir og hafði aukist um 41,5%. Mest var sala í Vöruhúsi KÁ, 391,8 milljónir og hagnaður Vöruhússins fyrir sam- eiginlegan kostnað og vexti 11,6 millj. Heildarlaunagreiðslur Kaup- félags Ámesinga voru á árinu 1985 um 95,6 millj. Fjöldi tillagna kom fram á fund- inum. Samþykktar voru m.a. tiilög- ur um launamál, vaxtamál, málefni Sambandsins og Laugardælajörð- ina. Á fundinum skilaði laganefnd tillögum að breytingum á sam- þykktum félagsins og var breyting- unum vel tekið og þær staðfestar á fundinum. Var þama um að ræða nýjar reglur um deildafundi, um seturétt varamanns og starfs- mannafulltrúa á stjómarfundum ásamt fleiru. Við stjómarkjör átti Þórarinn Sigurjónsson alþm. að ganga úr stjóm en var endurkjörinn. Jóhann- es Helgason aðalendurskoðandi baðst undan endurkosningu og var kjörinn Garðar Hannesson í Hvera- gerði í hans stað. Þá var varaendurskoðandi kosinn Amór Karlsson, Amarholti, í stað Stefáns Guðmundssonar, Túni, sem ekki gaf kost á sér til endurkjörs. Danslagakeppni á Hótel Borg Uppákomur hjá Vatns- virkjanum vegna breytinga

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.