Morgunblaðið - 22.05.1986, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 1986
Sérkjarasamningar BHMR-félaga:
Kjaradómur fær
fresttil 15. júlí
— samkvæmt bráðabirgðalögum
SAMKVÆMT bráðabirg-ðalög-
um, sem gefín voru út í gær,
hefur Kjaradómur fengið frest
til 15. júlí næstkomandi til að
ijúka við að dæma í málum um
sérkjarasamninga 22 aðildarfé-
laga Launamálaráðs Bandalags
háskólamanna (BHMR). í ráðinu
eru háskólamenntaðir BHM-fé-
lagar í þjónustu ríkisins.
Kjaradómur var kominn í tíma-
hrak með þessi mál, sem átti að
vera búið að dæma í um miðja þessa
viku. Tímaskorturinn stafaði eink-
um af því, að félögin voru óvenju
sein að skila endanlegum kröfum
sínum í málunum gegn ríkinu og
greinargerðum með þeim.
Kjaradómur óskaði bréflega eftir
6-8 vikna fresti í síðustu viku en
áður hafði dómurinn tekið sér þann
mánaðar viðbótarfrest, sem lögin
um Kjaradóm heimila. Málflutningi
félaganna og samninganefndar rík-
isins er lokið fyrir nokkru. Væntan-
legir sérkjarasamningar munu gilda
frá 1. mars, eins og áskilið er í
lögum.
Sendingar gervihnattarins nást með diskaloftneti.
í fyrsta sinn á íslandi:
Sjónvarpað frá gervihnetti
með íslenskum texta
Sunnudaginn 25. maí klukk-
an 7.30 f.h. verður í fyrsta sinn
sjónvarpað frá gervihnetti
sjónvarpsefni með íslenskum
texta. Að sendingunni standa
samtökin Frjáls kristileg fjöl-
miðlun í samvinnu við New
World Channel. Framkvæmda-
stjóri starfsins hér á landi er
Eiríkur Sigurbjörnsson.
Sjónvarpsrásin New World
Channel sendir út með aðstoð
gervihnattar um alla Evrópu, og
nást sendingamar vel um allt
landið með diskaloftneti sem
samtökin FKF útvega, en þau
hafa aðsetur að Auðbrekku 2 í
Kópavogi. Áformað er að senda
að jafnaði á rás NWC á fimmtu-
dögum, og síðar daglega en NWC
sendir að jafnaði út 14 klukku-
stundir á viku, aðalútsendingar-
tíminn er frá 6 til klukkan 12 á
hádegi á sunnudögum.
Starfsfólk við heimilishjálp í Kópavogi:
Fær sömu laun og
aðstoðarfólk á dag-
vistarstofnunum
NÝR samningur milli Kópavogs-
kaupstaðar og Sóknarfólks, sem
starfar við heimilisþjálp á vegum
bæjarins, var kynntur í bæjarráði
Kópavogs í fyrradag. Meginat-
riði samningsins er það, að
starfsfólk heimilisþjálparinnar
fær lágmarkslaun eins og aðstoð-
arfólk á dagvistarheimilum og
starfsfólk á leikvöllum eftir 57.
launaflokki, en getur flust upp
um allt að tvo flokka með því
að fara á ákveðin námskeið.
Bæjarstjórn á enn eftir að sam-
þykkja samninginn.
Mánaðarlaun samkvæmt fyrsta
þrepi 57. launaflokks eru 21.410
krónur, en að sögn Bjöms Ólafsson-
ar, formanns samninganefndar
Kópavogsbæjar, byijar varla nokk-
ur manneskja á þeim launum, þar
sem þau eru einungis miðuð við fólk
yngra en 25 ára. 8. og efsta þrepið
gefur hins vegar 29.135 krónur á
mánuði. í 58. flokki em launin 3%
hærri og em hámarkslaun þar því
30.010 krónur og í 59. launaflokki,
en þar lendir fólk sem hefur farið
á tvö námskeið, em hámarkslaunin
30.910 krónur á mánuði.
„Það er augljóst, að þetta er
vandasamt starf og óeðlilegt, að
fólk, sem það vinnur, sé lægra
launað en t.d. aðstoðarfólk á bama-
heimilum, þótt það sé í öðm stéttar-
félagi," sagði Bjöm Ólafsson.
fflWUDfcKQKUfl
tlýtt frá HagkauP'
GLÓfiVOLG
tiYJUtlG
.
yr.
'iM
#
tsþ
>'V
llmandi glóðvolg brauð
beint úr ofninum,
allan daginn.
HAGKAUP
SKEIFUNNI 15