Morgunblaðið - 22.05.1986, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. MAÍ1986
Jam session í kvöld
JASS-uppákoma verður í Hrafn-
inum Skipholti í kvöld. Þar verð-
ur Friðrik Theodórsson með
kvartett, en margir aðrir hljóð-
færaleikarar og söngvarar koma
í heimsókn.
Nýmæli er að ný söngkona, Sonja
B. Jónsdóttir, kemur fram á sjónar-
sviðið, og syngur nokkur lög.
þeir sem verða á svæðinu eru
Þór Benediktsson, básúnu, Guð-
mundur R. Einarsson trommur og
básúnu, Rúnar Gunnarsson sjón-
varpsmaður á barritónsaxófón,
Hans Jensson tenórsaxófón, Egill
Hreinsson píanó, Tómas R. Einars-
son, bassa, Alfreð Alfreðsson,
trommuleikari, Davíð Guðmunds-
son gítarleikari og Friðrik Theo-
dórsson bassa og takka-básúnu. Án
efa verður mikil sveifla í kjallaran-
um á Hraftiinum í Skipholti í kvöld.
Fiskverð óbreytt?
ÁKVÖRÐUN um fiskverð, sem
gilda á frá næstu mánaðamótum,
hefur nú verið vísað til yfir-
nefndar Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins munu fiskkaup-
endur leggja til að verð hækki
ekki og uppi eru raddir meðal
þeirra, sem vilja lækkun verðs-
ins.
Um 77% sjávarafurða eru seldar
í dollurum, en síðan fískverð var
ákveðið síðast hefur dollar lækkað
Staða útgerðar er nú betri en í
langan tíma vegna lækkandi olíu-
verðs, en fulltrúar hennar telja engu
að síður, að hún verði að halda
þeim ábáta til að geta greitt upp
skuldahala síðustu ára og kosta
vanræktar endurbætur og viðhald.
Útgerðin hafí þörf á hagnaði og
því komi alls ekki til greina að
lækka verðið eða taka á sig auknar
byrðar til að bæta hlut sjómanna.
E g vona að sem flestir
komi og hlnsti á okkur
- segir Haukur Morthens söngvari sem heldur þrenna
tónleika í Jónshúsi í Kaupmannahöfn um helgina
HAUKUR Morthens söngvari,
Karl Möller píanóleikari, Guð-
mundur Steingrímsson
trommuleikari og Gunnar
Bernburg bassaleikari halda
þrenna tónleika í Jónshúsi í
Kaupmannahöfn um næstu
helgi. Tónleikarnir verða á
föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld.
„Það er skemmtilegt að fá
tækifæri til að halda tónleika í
Jónshúsi," sagði Haukur Mort-
hens er blaðamaður Morgunblaðs-
ins ræddi við hann um ferðina.
„Þessir þrír tónleikar hafa verið
ákveðnir, en við verðum í Kaup-
mannahöfn fram á fímmtudaginn
í næstu viku, svo það er aldrei
að vita nema við tökum eitthvað
fleira að okkur. En það er rétt
að geta þess að þó svo að þetta
séu tónleikar getur vel farið svo
að það verði dansað á eftir eitt
kvöldið."
Haukur Morthens hefur ferðast
víða um lönd. Hann hefur m.a.
skemmt á öllum Norðurlöndunum
og í Bretlandi og einnig hefur
hann sungið fyrir íslendinga f
Bandaríkjunum. í fyrra skemmtu
fjórmenningamir í einn mánuð á
hótelinu Holliday Inn f Lúxem-
borg. Hann var spurður hvemig
honum líkaði að syngja fyrir ís-
lendinga erlendis.
„Mér líkar það vel,“ sagði hann.
„Þessar skemmtanir hafa yfírleitt
heppnast mjög vel. Það hefur ríkt
góð stemmning og fólk virðist
skemmta sér vel“.
— Hvemig tónlist verður flutt
í Jónshúsi?
„Ég syng lögin mín, þessi lög
sem ég hef sungið í gegnum tíð-
ina. Þetta eru fslensk og erlend
dægurlög og þjóðlög og svo verður
eitthvað um djass. Eg vona að sem
flestir komi til að hlusta á okkur,"
sagði Haukur Morthens að lokum.
úr 42,30 krónum í 41 krónu. Þannig
hafa telgur fískvinnslu rýmað frá
því, sem ráð var fyrir gert í kjara-
samningum. Lækkun olíu hefur á
hinn bóginn bætt stöðu útgerðar
og telja fískkaupendur því eðlilegt
að verð hækki ekki að minnsta
kosti. Þeir vilja því að staða sjó-
manna verði bætt eingöngu á kostn-
að útgerðar.
Líklegt verður að teljast að sjó-
menn kreflist sömu hækkana á
launum sfnum og koma í hlut land-
verkafólks 1. júní næstkomandi eða
um 3,06%. Á aflaárunum upp úr
1980 var hlutur sjómanna skertur
í ljósi mikillar aukningar afla. Afli
hefur sfðustu ár aukizt að nýju og
tekjur sjómanna jafnframt, þannig
að hugsanlega verður aflaaukingin
og afrakstur hennar látinn mæta
iaunahækkunum landverkafólks.
Neytendafélag Reykjavíkur og nágrennis:
Varúðarmerkingnm á hættuleg
efni til heimilisnota ábótavant
Neytendafélag Reykjavíkur og nágrennis átelur stjóm-
völd harðlega fyrir „slóðahátt við að framfylgja reglum
um merkingu nauðsynjavara, sem innihalda eiturefni.“
Ennfremur „fordæmir félagið þijózku framleiðenda og
innflytjenda, sem ekki fara eftir settum reglum og lítils-
virða þannig líf og heilsu neytenda."
í fréttatilkynningu frá Neytenda-
félagi Reykjavíkur og nágrennis
segir meðal annars, að reglur um
merkingu nauðsynjavara, sem inni-
halda eiturefni, hættuleg efni eða
önnur efni, sem geta verið skaðleg
heilsu manna, hafí verið settar þann
28. febrúar 1985 og nú 15 mánuð-
um síðar séu sáralítil merki þess,
að framleiðendur og innflytjendur
taki tillit til þeirra og merki vörur
sínar samkvæmt þeim. Neytendafé-
lagið hafí fagnað þeim áfanga, sem
falizt hefði í setningu reglnanna og
hefði lagt traust sitt á að þeim yrði
framfylgt. Þeim vonum hafí stjóm-
völd brugðizt. Félagið hafí nýlega
kannað framboð í verzlunum á þeim
vöram, sem falli undir reglumar
og í ljós hafi komið, að þær hafí
verið þverbrotnar. Á undanfömum
áram hafí orðið hörmuleg slys af
völdum hættulegra efna og álíta
Gallerí Gangskör:
Eins og* fimm
börn hvert með
sína eiginleika
- segir Baltasar um
málverkasýningn
sína Fimm þemu
FIMM þemu, nefnír Baltasar
sýningu á 28 teikningum í
svart/hvítu og pastell, sem
hann opnar í Gallerí Gang-
skör í dag en í vor eru liðin
25 ár síðan Baltasar hélt sina
fyrstu sýningu hér á landi.
Mjmdefninu er skipt niður í
flokka sem heita amboð, sprek,
lauf, fákar og ecco homo og segir
í sýningarskrá að þau: „hafí öll
mikla þýðingu fyrir Baltasar. f
þeim er skráð leit hans að formi
og merkingu og eru þau ekki
aðeins heimiid um þróun lista-
manns, með því að kalla fram
tilfinningar allt frá léttlyndi til
önugleika heldur era þau líka safn
breytilegra geðhrifa. “
„Ég get ekki gert upp á milli
myndefnanna,“ sagði Baltasar um
leið og hann kom myndunum
fyrir. „Þau era fyrir mér eins og
fímm böm, hvert með sína eigin-
Morgunblaðið/Einar Falur
Baltasar við eitt verka sinna á sýningunni í Gallerí Gangskðr.
leika sem gefa mér tækifæri til
að reyna mig á mismunandi svið-
um. Éitt einstakt myndefni er of
takmarkað og því era þau hvert
og eitt valin með ákveðið markmið
í huga.“
Sýningin er opin daglega frá
kl. 12:00 til 18:00oglýkur3.júní.
Myndin sýnir nokkrar tegundir
þvottaefna fyrir sjálfvirkar upp-
þvottavélar. Einungis eitt ís-
lensku efnanna, Upp, frá Frigg,
er með varúðarmerkingu og
aðeins eitt erlendu efnanna,
Quick frá Impex, er merkt á ís-
lensku. Fremst á myndinni er
Finish frá Matkaup hf., en í
fréttatilkynningu neytendafé-
lags Reykjavikur og nágrennis
segir, að það efni hafi valdið
hörmulegu slysi á ársgömlum
dreng, hálfu ári eftir að auglýs-
ing heilbrigðisráðherra um var-
úðarmerkingu hafi verið birt.
Myndin er frá Neytendafélagi
Reykjavíkur og nágrennis og
myndatextinn hér að ofan er
byggður á frétt félagsins.
megi, að varúðarmerkingar gætu
hafa komið í veg fyrir stóran hluta
þeirra.
Þá segir að Neytendafélagið
muni fylgjast náið með þróun þess-
ara mála hjá stjómvöldum, fram-
leiðendum og innflytjendum. Verði
ástandið ekki komið í betra horf
innan eins mánaðar, muni félagið
beita öllum tiltækum ráðum til að
vemda hagsmuni neytenda. Loks
fagnar félagið því framtaki Slysa-
vamafélags íslands, að gefa út leið-
beiningarrit fyrir almenning um
viðbrögð vegna slysa, sem stafí af
notkun hættulegra efna.