Morgunblaðið - 22.05.1986, Blaðsíða 55
MORGUNBLABIÐ, FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 1986
55
Þröng- & ölþingi
Raunir í öldurhúsi
Velvakandi góður
Helgi eina íyrir skömmu fórum
við hónin ásamt einum vini okkar,
í veitingahúsið Broadway. Þetta var
á laugardagskvöldi, skömmu eftir
söngvakeppni sjónvarpsins. Það
mátti alveg búast við að mikill
mannfjöldi kæmi á skemmtistaði
borgarinnar og ekkert við því að
segja þó að maður lenti I biðröð við
dymar, klukkan orðin 12 á mið-
nætti. Þegar við komum í röðina
var hún 20 metra löng og um 70
til 80 manns í henni, en er við voram
að fara inn úr dyranum um hálfri
klukkustund seinna var röðin komin
í á að giska 50 metra og mann-
fjöldinn um 200 manns.
Þá var komið inn og aðgangur
keyptur sem skiptist í 150 kr. rúllu-
gjald og 150 kr. aðgangseyrir?
Hver er munurinn?
Auðvitað var ekki um það að
ræða að fá sæti, en ég hafði ætlað
að hægt væri þá að finna einhvem
afkima þar sem hægt væri að
standa og drekka úr einu glasi, en
því fór fjarri. Slíkum mannfjölda
hafði verið hleypt inn og troðning-
urinn var svo mikill að manni datt
í hug stórslysamynd af amerískri
gerð. Áður en hálftími var liðinn
voram við orðin rennandi blaut
vegna þess að fólk var sífellt að
troðast framhjá okkur, voram við
þó ekki í neinun gangvegi þannig
að við væram fyrir. Við tókum það
ráð að ganga ofurlítið um en ekki
tók þá betra við, vinur okkar varð
fyrir því að stúlku var hrint á hann
þannig að úr fullu glasi af Campari
helltist yfir föt hans, sem vora í
ljósum lit. Mælirinn fylltist svo er
brennt var gat með sígarettu á
jakkaermi mína. Þá fór ég að reyna
útgöngu sem tókst eftir nokkrar
skvettur og afsökunarbeiðnir til
viðstaddra, þar sem við þurftum að
komast fram hjá fólki sem stóð
hvar sem var um allt hús. Meira
að segja langar biðraðir á salemum.
Af þessari reynslu minni verður
mér hugsað til öryggis gesta á
staðnum, er það algerlega fyrir
borð borið? Eigandi staðarins vill
að sjálfsögðu fá sem flesta gesti inn
í húsið, lái honum hver sem vill og
yfirvöld era gersamlega máttlaus
við að spyma við fótum. Kæmi upp
mikill eldur f matstofunni á fyrstu
hæð, undir sviðinu, er ég hræddur
um að fáir gætu bjargast út um
þær neyðardyr sem era þar skammt
frá, dyraverðir staddir við útidyr
og þeir kæmust ekki að fyrir
manngrúa til að opna. Nei, það
þyrfti ekki mikið til þess að stórslys
yrði-
Dansgólfíð er svo kapítuli út af
fyrir sig, enda hafa orðið þar slys,
fleiri en eitt. Fólk hefur steypst
yfir handriðið og lent niður á borð-
um og að sjálfsögðu slasast við
það. Þröngin á dansgólfinu er slík
að ekki er hægt að dansa, bara að
fylgjast með þvögunni, fram og
aftur í iðandi kös drakkinna manna
og kvenna. Hugljúf sýn fyrir er-
lenda gesti og er ég ekki hissa á
að erlendir fréttamenn komi hingað
til að sjá og kynnast allri þeirri
skemmtanadýrð sem Reylgavík,
200 ára gömul borgin, hefur upp á
að bjóða, síðan skrifa þeir um okkur
það sem þeir sjá en við neitum og
segjum allt bull og þvætting er við
lesum það.
Þeir, sem ábyrgðina bera á hátt-
arlagi dansgesta eða réttara sagt
þessum endemis skemmtanastíl
manna hér, era eigendur skemmti-
staðanna. Þeir skirrast ekki við að
fylla hús sín eins og kostur er að
koma inn í þau, burt séð frá öllum
öryggisatriðum eða vellíðan gesta,
hljómlistin er svo hátt stillt að ekki
er vegur að tala saman nema með
því einu móti að halda helst í eyra
þess sem maður talar við og öskra
inn í hlustir hans. Það hefur marg-
sinnis verið kvartað við húsráðend-
ur vegna hávaðans en aldrei verið
neitt á þetta hlustað, af tillitssemi
við dansgesti að sjálfsögðu. Það era
eigendur skemmtistaðanna sem
algjörlega ráða ferðinni og hlusta
ekki á eitt einasta orð sem við þá
er sagt, nema það gefí þeim bein-
harða peninga í aðra hönd. Þá ætla
ég að hávaðinn kom því til leiðar
að gestir nenni ekki að tala saman,
fari bara saman á barinn og kaupi
sér einn, tilburðimir hljóta svo að
segja það sem orð hefðu annars
sagt, lyfta glasinu, það hlýtur að
þýða „skál“, hneigja sig, dansa"
o.s.frv.
Ég vil að lokum segja að Broad-
way er ekki einn skemmtistaða um
að vera svona, þeir era það allir
með tölu, peningasjónarmiðið núm-
er 1, 2 og 3, síðan má koma með
eitthvað sniðugt sem fólkið væri til
með að borga sig inn á, síðast á
listanum er svo þjónustan, hún fer
eftir álagi og upplagi hvers og eins
þjóns, því ekki fer húsið fram á að
allt of miklum tíma sé eytt í þess
konar þarflausan hlut sem þjónusta
er, fólk kaupir hvort eð er vfn. Ég
kem til með að sækja skemmtistað-
ina áfram þó þetta hafí komið fyrir,
ég er víst hluti af þessari heild sem
skemmtir sér með þeim glæsibrag
sem lýst hefur verið og reyni eftir
föngum að komast heim sem minnst
meiddur og sæmilega þurr svo ekki
þurfi að koma tii í hvert sinn að ég
þurfí að fata mig upp.
Einn „aðþrengdur og blautur"
Anægð með
Gleðibankann
Kæru Islendingar!
Eins og allir vita, tókum við þátt
í söngvakeppni Évrópustöðva í
fyrsta sinn í ár. Fyrsta framlag
okkar til keppninnar var Gleðibanki
Magnúsar Éirfkssonar og var lagið
flutt með miklum ágætum í Björg-
vin af Helgu Möller, Pálma Gunn-
arssyni og Eiríki Haukssyni, eða Icy
eins og þau kölluðu sig.
Áberandi var, að mikil sigurvissa
ríkti hér á landi fyrir keppnina og
öll stóðum við með Icy-hópnum áður
en úrslit urðu kunn. En hvað gerð-
ist svo þegar í ljós kom, að þau
lentu í einu af neðstu sætunum?
Þá reis sama fólkið, sem staðið
hafði með þeim, upp og byijaði að
gagnrýna. Það er auðvelt að vera
vitur eftirá.
Margt er eflaust hægt að telja
upp, sem betur hefði mátt fara og
hefur það óspart verið gert. En f
þessu bréfi langar mig að þakka
þeim Helgu, Pálma og Eirfki fyrir
mjög góða landkynningu, sem
vissulega hefur komið okkur á blað,
og óska Magnúsi til hamingju með
að eiga fyrsta lagið sem við sendum
í þessa keppni.
Það er þó eitt sem ég ætla að
minnast á og mér hefði fundist mátt
betur fara. Það var valið á dóm-
nefiidinni sem valdi lögin í undan-
keppninni hér heima. Fleiri hefðu
mátt sitja í þeirri nefnd, t.d. 10—20
manns á ýmsum aldri og hvað-
anæva af landinu eins og gert var
lokakvöldið 3. maf sl.
Jæja, þetta bréf verður ekki
lengra, en nú eram við komin á
blað í söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva og með alla þá reynslu
og landkynningu að baki, eftir
þessa keppni í ár, geram við enn
betur næst.
Að iokum, Helga, Eiríkur, Pálmi,
Gunnar og Magnús: Takk fyrir allt,
þið stóðuð ykkur vel.
Vera
PS Hvemig væri að bjóða hljóm-
sveitum að koma með lög sín tilbúin
og flytja í undankeppninni hér
heima næsta ár? Ég nefni t.d.
Stuðmenn.
Utankjörstaða-
skrifstofa
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Valhöll, Háaleitisbraut 1,3. hæð.
Símar 688322,688953 og 688954.
Upplýsingar um kjörskrá o.fl.
Utankjörstaðakosning fer fram í Ármúlaskóla
alla daga kl. 10-12, 14-18 og 20-22 nema sunnu-
dagakl. 14-18.
Sjálfstæðisfólk. Vinsamlegast látið skrifstofuna
vita um alla kjósendur sem verða ekki heima á
kjördegi 31. maí nk.
Siemens-innbygg-
ingartækiíeldhús
Hjá okkur fáið þið öll tæki á sama stað: Eldavél-
ar, uppþvottaválar, kæliskápa, frystiskápa, ör-
bylgjuofna, kaffivélar, hrærivélar, brauðristar og
þannig mætti lengi telja.
SIEMENS er trygging ykkar fyrir góðum tækjum
og samræmdu útliti.
íslenskir leiðarvísar fyigja með.
Smith og Norland
Nóatúni 4,
s. 28300.
BJORNINN HF
Borgartún 28 — sími 621566
Reykjavík
VARA:
U VER
síma 1621566
Og nú erum við í Borgartúni 28