Morgunblaðið - 22.05.1986, Page 16

Morgunblaðið - 22.05.1986, Page 16
MORGUNBLAf)IЫ FIMMflTUBAGUR 22j MAI 1986 n IZUMI STÝRIROFAR SNERLAR LYKILROFAR HNAPPAROFAR GAUMUÓS Hagstætt verð > vönduð vara = HÉÐINN = VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260 LAGER-SÉRRANTANIR-WÓNUSTA Bjóðum nánast allar stærðir rafmótora frá EOF í Danmörku. EOF rafmótorar eru í háum gæðaflokki og á hagkvæmu verði. Ræðið við okkur um rafmótora. = HEÐINN = SELJAVEGI 2, SIMI 24260 X-Xöfðar til X X fólks í öllum starfsgreinum! 5 JltorgiiitiMi&tfc Heilsugæsla í góðu horfi Loforð okkar — efndir þeirra eftirKatrínu Fjeldsted Fyrir borgarstjómarkosningamar 1982 settu sjálfstæðismenn sér það markmið að setja á laggimar eina heilsugæslustöð á ári, eins og það var kallað. Á kjörtímabilinu 1978- 1982 þegar þrír vinstri flokkar fóru með stjóm borgarinnar var aðeins ein heilsugæslustöð tekin í notkun, heilsugæslustöðin í Fossvogi, sem sjálfstæðismenn höfðu átt fmm- kvæði að. Að öðm leyti fór tíminn í það að reyna að ná samkomulagi um framkvæmd svokallaðrar kerf- isbreytingar, en það samkomulag reyndist síðan haldlítið. Þó átti Alþýðubandalagið ráðherra heil- brigðismála 1979-1982. Það er því svolítið tómahljóð í áróðri vinstri manna þegar þeir reyna að gera lítið úr framkvæmdum í heilbrigðis- málum á þessu kjörtímabili. + Atakgert Á þessu kjörtímabili hefur átak verið gert í uppbyggingu heilsu- gæslunnar, meira en nokkm sinni fyrr. 1. Heilsugæslustöð miðbæjar var opnuð 1983 í húsnæði Heilsu- vemdarstöðvar Reykjavíkur. 2. Hafíst var handa um forsögn og teikningu að heilsugæslustöð fyrir Breiðholt UI sem reisa á við Hraunberg 6 og á þessu ári verða gerðir sökklar, plata, kjallari og plata. 3. Upptökusvæði heilsugæslu- stöðvarinnar á Seltjamamesi hefur verið stækkað og nær nú yfír allan vesturbæ sunnan Hringbrautar. Reykjavík og Seltjamames standa saman að rekstri þeirrar stöðvar. 4. Nýlega var gerður samningur við heilsugæsluna að Álftamýri 5. Þannig var tryggt að íbúar í Háa- leitis- og Laugameshverfum gætu notið heilsuvemdar og heimahjúkr- unar í tengslum við starf fímm lækna sem allir em sérmenntaðir heimilistæknar. 6. Loks má nefna heilsugæslu- stöðina við Drápuhlíð, sem þjóna á Hlíðahverfi fyrir sunnan Miklu- braut. Stöðin er í húsi því sem Hitaveita Reykjavíkur hafði áður aðsetur sitt. Það er ljóst að miklu hefur verið áorkað í heilsugæslumálum Reyk- víkinga síðustu 4 árin. Á þessu kjörtímabili hefur meirihluti Sjálf- stæðismanna beitt sér fyrir eflingu á fyrirbyggjandi starfí, t.d. hvað varðar tannvemd, en eins og flest- um er ljóst hefur algjört ófremdar- ástand ríkt f tannheilbrigðismálum hérlendis. Dregið hefur verið úr notkun sterkustu eiturefna við úðun garða í borginni, með þeim árangri að þrestir sjást nú aftur í görðum. Heimahjúkmn hefur verið efld, ekki síst með tilkomu kvöldþjónustu 1983 og næturþjónustu nú í vor. Er það mikilsvert framlag til þess að gera sjúklingum kleift að dvelja utan stofnana. Hvað svo? Framundan em ný verkeftii, s.s. heilsugæslustöð Vesturbæjar, sem reisa á ásamt félagsmiðstöð og íbúðum aldraðra á homi Garða- strætis og Vesturgötu. Afmarkaðar hafa verið lóðir í öðmm borgar- hlutum og hverfaskipting verið staðfest. Gert er ráð fyrir að heilsu- gæslustöðvar í borginni verði í framtíðinni 10-14 talsins og að áfram verði stefnt að því að setja eina á laggimar á ári. Lög um heilbirgðis- þjónustu Eins og margir vita hafa lög um heilbrigðisþjónustu ekki tekið gildi hvað varðar Reykjavík og nokkur önnur sveitarfélög. Lögin em eins og lög yfírleitt sniðin að þörfum dreifbýlisins. þannig hefur upp- bygging heilsugæslustöðva úti á Katrín Fjeldsted „Mikið hefur áunnist í heilbrigðismálum á þessu kjörtímabili. Meirihluti sjálfstæðis- manna í borgarstjórn Reykjavíkur þetta kjör- tímabil hefur gert átak í heilbrigðismálum borgarbúa. Framundan eru spennandi verk- efni, áframhaldandi efling heilsuverndar, heimahjúkrunar og annarrar heilsugæslu.“ landi lengi vel gengið fyrir upp- byggingu hér í Reykjavík. Ymis konar starfsemi sem lögin gera ráð fyrir að sé á heilsugæslustöðvum er þegar veitt á annan hátt í borginni. Sveitarfélögin hér á höfuðborg- arsvæðinu hafa þó komið sér saman um breytingartillögur við heilbrigðisþjónustulögin. Nái slíkar breytingar fram að ganga er ekkert því til fyrirstöðu að lögin taki gildi hér sem annars staðar. Er það von mín að svo megi verða um næstu áramót. Heilsugæsla í góðu horfi Mikið hefur áunnist í heilbrigðis- málum á þessu kjörtímabili. Meiri- hluti sjálfstæðismanna í borgar- stjóm Reykjavíkur þetta kjörtímabil hefur gert átak í heilbrigðismálum borgarbúa. Framundan eru spenn- andi verkefni, áframhaldandi efling heilsuvemdar, heimahjúkmnar og annarrar heilsugæslu. Ég hvet Reykvíkinga til þess að veita okkur stuðning sinn í kjörklef- unum 31. maí næstkomandi. Höfundur er læknir og borgarfull- trúi. Hún situr íþriðja sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavík. Fyrir helgina var heilsugæslustöð tekin i notkun í Drápuhlíð, sem þjónar Hlíðahverfi sunnan Miklubrautar. 1 \ • jUjlí gl i" Gáfu aspir í afmælisgjöf VISTMENN á Sólheimum í Grímsnesi komu færandi hendi tíl Reykjavíkur á þriðjudaginn. Afhentu þeir höfuðborginni 50 aspir í afmælisgjöf og gróðursettu þær við Skeiðarvoginn. Davíð Oddsson borgarstjóri veittí gjöfinni viðtöku. Setning brenglaðist SETNING brengiaðist í grein Vil- hjálms Þ. Vilhjálmssonar í Morgun- blaðinu í gær, en greinin bar fyrir- sögnina: „Atlaga Alþýðubandalags- ins að Hitaveitu Reykjavíkur.“ Setningin, sem brenglaðist átti að vera svona: „Borgarskipulag Reykjavíkur spáir því, að byggðar verði um 450 til 500 íbúðir árlega í Reykjavík fram yfir aldamót, þannig að á svæði Hitaveitu Reykjavíkur benda líkur til að byggðar verði u.þ.b. 700 íbúðir ár- lega.“ Sá hluti setningarinnar sem er skáletraður féll niður og em hlutaðeigendur beðnir velvirðingar áþví. V^terkurog kJ hagkvæmur augjýsingamiðill!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.