Morgunblaðið - 22.05.1986, Page 21

Morgunblaðið - 22.05.1986, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 1986 21 Davíð Oddsson borgarstjóri svarar spurningum lesenda Hallgrímskirkja Marta Guðbrandsdóttir, Skeggjagötu 10, spyr: Mér er spurn hvort borgar- stjórinn okkar vOl ekki beita sér fyrir því að setja upp bekki víðar í borginni til þess að eldra fólk geti hvílst á milli áfanga- staða. Það sem að mér snýr og fleiri eldri íbúum Norðurmýrar er ekki síst leiðin úr húsum okkar upp í Hallgrímskirkju. Svar: A þessu ári verða settir út 59 bekkir auk 10 samstæðna með borðum og bekkjum. E'.tki hefur öllum þessum götugögnum verið valinn staður enn, og væri gott að fá ábendingar, t.d. frá eldra fólki, hvar það telur helst þörf fyrir þau. Þegar þessi nýja viðbót er komin í gagnið verða nálægt 400 bekkir á almannafæri í borg- inni. Kringlumýrarbraut Ingibjörg Helgadóttir, Mið- túni 40, spyr: Við hér í hverfinu viljum gjarnan vita hvort ekki verði staðsettur gangbrautarvörður við þá miklu umferðargötu Kringlumýrarbraut, svo börnin okkar geti komist í og úr skóla nokkurn veginn óhult. Við þurfum að fylgja börnum okk- ar í skóla og sækja þau þangað Fundur í borgarstjóm Reykjavíkur. Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 1986 á dagskrá. Magnús L. Sveinsson borgarfulltrúi stýrir fundi. Davíð Oddsson borgarstjóri situr við hlið hans en aðrir borgarfulltrúar gegnt. Reykvíkingar ákveða 31. maí næstkomandi, hveijir sitja í þessum sætum næsta kjörtímabil, 1986—1990. dag hvem. Ég veit dæmi þess að barnafólk hefur flutt úr hverfinu af þessum sökum. Hins vegar er barnafólk hvatt til þess að setjast að í gömlum og grónum borgarhlutum. Svar: Umferðaröryggi gangandi veg- farenda er forgangsverkefni og fyrsta forgang hefur öiyggi bama í umferðinni á leið í og úr skóla. Þess vegna hefur það verið ákveðið að setja gangbrautarljós fyrir vegfarendur yfir Kringlu- mýrarbraut gegnt Sigtúni nú í sumar. Breiðholtsbraut — Seljabraut Edda Ottadóttir, Seljabraut 42, spyr: Hóll sá, sem aðskilur Breið- holtsbraut og Seljabraut við verslunina Kjöt og fisk, og er forarsvað í regni en ryksendir yfir nágrennið í þurra, veldur okkur angri hér í hverfinu. Er ekki hægt að gera eitthvað til úrbóta? Má t.d. ekki leggja göngustíg yfir hólinn sem hvort er að er alltaf genginn meira og minna? Svar: í sumar er fyrirhugað að rækta um hljóðmönina þama svo ekki §úki úr henni ryk eða forað myndist í leysingu. Ekki er í ráði að leggja göngustíga þama yfir, því austan við er Breiðholtsbraut með mikilli umferð og þarf að beina gangandi fólki frá brautinni á þessum kafla. Miðsvæði Seljahverfis Hallfríður Kristinsdóttir, Hálsaseli 34, spyr: 1. Hvenær á að ganga frá umhverfi tjarnarinnar sem er milli elliheimilisins Seljahlíð- ar og kaþólsku kirkjunnar í Breiðholti? 2. Er ekki hægt að gera eitt- hvað til að minnka umferð eða hægja á umferð um HjaUasel? Svar: 1. Miðsvæði Seljahverfis er ennþá í byggingu, þ. á m. er eftir að byggja þau hús sem eiga að standa næsttjöminni. Ekki verður hægt að ganga endanlega frá umhverfí tjamarinnar fyrr en þyggingaffamkvæmdum er lokið. I sumar á hins vegar að ganga frá gangstígum á svæðinu frá tjöminni upp fyrri Seljaskóla, auk þess sem gengið verður frá lóðinni kringum Seljahlíð. 2. Erfítt hefur reynst að leysa vandamál umferðarinnar á þessu svæði eins og skipulaginu er hátt- að. Hjallaseli var í vetur lokað sunnan Heiðarsels til þess að minnka gegnumumferð. Lokunin mætti mikilli andstöðu íbúa í hverfinu, einkum íbúa í suður- hluta Seljahverfis, sem þurfa að fara með böm sín á bamaheimili við Hálsasel. Því var ákveðið að opna götuna aftur. Tvær hraða- hindranir hafa verið settar á Hjallasel og í athugun er hvað hægt er að gera frekar til þess að minnka ökuhraðann. Uppi hafa verið hugmyndir um að breyta akstursleiðum strætisvagna í hverfínu. LESENDAÞJÓNUSTA MORGUNBLAÐSINS Davíð Oddsson, borgarstjóri í Reykjavík og efsti maður á framboðslista sjálfstæðisfólks í borgarstjórnarkosningum, sem fram fara 31. maí næstkom- andi, svarar spurningum í Morgunblaðinu um borgarmál í tilefni kosninganna. Lesendur Morgunblaðsins geta hringt til ritstjórnar blaðsins í síma 10100 á milli kl. 11 og 12 árdegis, frá mánudegi til föstudags, og lagt spurningar fyrir borgarstjóra, sem blaðið kemur á framfæri við hann. Svörin birtast síðan í þættinum Spurt og svarað um borgarmál. Einnig má senda spurningar í bréfi til blaðsins. Utan á bréf skal rita: Spurt og svarað um borgarmál, rit- stjórn Morgunblaðsins, pósthólf 1555, 121 Reykjavík. Nauðsynlegt er, að nafn og heimilisfang spyrjenda komi fram. Sunnudagur 25. maí: Fjölskyldu- kaffi Sigl- firðinga- félagsins ÁRLEGT afmæliskaffi Siglfirð- ingafélagsins í Reykjavík og ná- grenni, í tilefni kaupstaðaraf- mælis Siglufjarðar, fer fram í Kirkjuhvoli við Kirkjulund í Garðabæ (nýja safnaðarheimU- inu) sunnudaginn 25. maí nk. frá kl. 3. miðdegis. Móttaka á kökum og meðlæti á sama stað frá kl. 11 árdegis. Siglfirðingar í Reykjavík og ná- grenni, ungir sem aldnir eru hvattir til að mæta. (Fréttatilkynning frá Siglfirðingafélaginu). Fundur um ferðamál suður- landskj ör dæmis Seifossi. Ferðamálasamtök Suðurlands og Samtök sunnlenskra sveitar- félaga boða til fundar I dag, fimmtudag, kl. 14.00 í Hótel Ljós- brá í Hveragerði. Ferðamála- stjóri og stjórn Ferðamálaráðs íslands munu mæta á fundinn. Til fundarins eru einnig boðaðir þingmenn kjördæmisins, sveitar- stjórnarmenn og fleiri. Aðalfundarefnið er málefni suð- urlandskjördæmis í ferðamálum og er allt áhugafólk velkomið á fund- inn. Eftir hinn boðaða fund er fyrir- hugaður fundur stjómarmanna ferðamálasamtaka Suðurlands með stjóm Ferðamálaráðs og sveitar- stjómarmönnum. Sig. Jóns. Vanir menn Thermopane menn hafa staðíð. lengst allra í sölu eínangrunarglers á Islandi. Og hin frábæra reynsla af glerínu er orðin meira en 30 ára löng. —u Thermopane máttu treysta. Lhenmoiiane Glerverksmiðjan Esja hf. * Völuteigi 3 270 Mosfellssveit, Sími 666160.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.