Morgunblaðið - 22.05.1986, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 22.05.1986, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. MAÍ1986 t Aðalfundur Mjólkurbús Flóamanna Aðalfundur MBF: Stjórnvöld komi til móts við bændur Selfossi. Á AÐALFUNDI Mjólkurbús Flóamanna var samþykkt tillaga þess efnis að taka til athugunar rétt bændakvenna til setu á aðalfundum. Kosin var 5 manna nefnd til að gera breytingar á samþykkt mjólkurbúsins fyrir næsta fund. Einnig var samþykkt á fundinum tillaga þess efnis að stjómvöld komi til móts við bændur við greiðslur fyrir innlagða mjólk vegna þess hversu seint þeir fengu að vita um rétt sinn til framleiðslu. Bent var á að margir bændur verða tekjulausir 2—3 mánuði á verðlagsárinu og að þessi vandi smjúgi um allt við- skiptalíf dreifbýlisins. Samþykkt var ályktun þar sem vakin var athygli á þörf á því að Gæði innlagðrar mjólk- ur hafa aukist verulega — 98,7% í fyrsta gæðaflokki. 44 framleiðendur verðlaunaðir fyrir framleiðslu úrvalsmjólkur Selfossi. BÆNDUR á Suðurlandi fram- leiða nær eingöngu mjólk í hæsta gæðaflokki. Af innlagðri mjólk sl. ár fóru 98,7% í fyrsta gæða- flokk. Þetta kom fram á aðal- fundi Mjólkurbús Flóamanna í Aratungu 25. apríl sl., þar sem 44 mjólkurframleiðendur voru verðlaunaðir fyrir framleiðslu úrvalsmjólkur að staðaldri. Birg- ir Guðmundsson framleiðslu- stjóri sagði aðalástæðuna fyrir þessum árangri vandaða vinnu bænda f mjólkurframleiðslu. Aðalfundurinn var mjög vel sótt- ur og augljóst að bændur eru vakandi fyrir framleiðslumálum sínum. í ársskýrslu Mjólkurbúsins er sýnt hvemig meðaltal gerlafjölda úr teknum mjólkursýnum hefur farið stiglækkandi síðan 1974 sem þýðir mun betri mjólk frá innleggjendum. Innlögð mjólk á sl. ári hjá MBF nam 42.787.139 lítrum en var 1984 39.071.112 lítrar. Mjólkurframleið- endur á svæði búsins eru 718 og hafði fækkað um 20 frá 1984. Kúnum hefur aftur á móti fjöigað úr 12.361 1984 í 12.656 1985, sem er að meðaltali 17,63 kýr á hvem innleggjanda. Mjólkurmagn á hvem innleggjanda mjólkur er 59.592 lítr- ar sem er 6.650 lítmm hærra en árið áður og mjólkurmagn á hveija kú hefur aukist um 226 lítra frá 1984 ogernú 3.381 lítri. Um ráðstöfun mjólkur segir í ársskýrslu MBF að sala á neyslu- mjólk hafí dregist saman um 6% og ijómasala um 9,8%. Söluaukning varð á léttmjólk um 32,8%, á jógúrt um 2,7%, G-mjólk um 9,8% og á kókómjólk um 16,1%. Skyrsala jókst um 1,2%, sala á ijómaosti um 19,2% og á Camembert um 5,6%. Sala á U- og N-mjöli jókst verulega en sala á T-mjöli minnkaði. í máli Birgis Guðmundssonar framleíðslustjóra kom fram að í undirbúningi er framleiðsla á nýrri smjörtegund með minna fítuinni- haldi, sem vænst er til að geti orðið ódýrari en það smjör sem er á markaðnum. Guðlaugur Bjömsson forstjóri Mjólkursamsölunnar flutti ávarp á Engin tækjasala á aðalfundi MBF Solf0881* AÐALFUNDUR Mjólkurbús Flóamanna 25. aprU sl. var mjög vel sóttur og höfðu sumir fundar- manna það á orði að þetta væri bara eins og í gamla daga. Salur- inn í Aratungu var þétt setinn og auðséð að bændur fylgdust vel með. Á fundinum kom fram að 14 bændur hafa lokið við að framleiða upp í framleiðslurétt sinn á þessu verðlagsári og margir ljúka því í maí og júní. Áhrif framleiðsluskerðingarinnar kemur m.a. fram í því að bændur halda að sér höndum varðandi véla- kaup og framkvæmdir. Á hlaðinu fyrir framan Aratungu sýndu sölu- aðilar vélar og tæki til landbúnaðar en ekki eitt einasta tæki var keypt. „Það er af sem áður var, þegar menn keyptu heilu útgerðimar," sagði einn sölumaðurinn. Annað atriði sem hefur breytt mjókurbúsfundunum að þessu leyti er að nú fá bændur mjólkina greidda út en áður sóttu þeir upp- bætur á mjólkina á aðalfund Mjólk- urbúsins. Sig. Jóns. taka upp stjórnun á framleiðslu í fleiri greinum landbúnaðar en kindakjöts- og mjólkurframleiðslu eins og lög leyfa. Tekin verði upp alhliða framleiðslustjórnun sem fyrst. Á fundinum áttu tveir að ganga úr stjórn, Magnús Sigurðsson, Birt- ingaholti og Eggert Ólafsson, Þor- valdseyri, en þeir voru báðir endur- kjömir. Stjórnina skipa auk þeirra Hörður Sigurgrímsson, Holti, Ölvir Karlsson, Þjórsártúni og Páll Lýðs- son, Litlu-Sandvík. Mjólkurbús- stjóri er Grétar Símonarson og framleiðslustjóri Birgir Guðmunds- son. Sig. Jóns. fundinum. í máli hans kom m.a. fram að aukin áhersla yrði lögð á markaðs- og sölumál mjólkurinnar. Hann benti á að mjólkuriðnaðurinn ætti í samkeppni við annan drykkj- arvöruiðnað, sem sprytti upp sam- fara breyttum neysluvenjum í þjóð- félaginu. Áróður væri nokkur gegn mjólkumeyslu og hringl með niður- greiðslur bætti ekki samkeppnis- stöðu mjólkurinnar. Ennfremur hefði það áhrif á söluna að kaup- menn fengju hærri söluþóknun fyrir að selja aðrar drykkjarvörur en mjólk. Hákon Sigurgrímsson fram- kvæmdastjóri Stéttarsambands bænda ávarpaði fundinn og fór nokkmm orðum um offramleiðslu og nýjar tillögur um framleiðslu- kvóta bænda. Hann lagði áherslu á að mikil þörf væri á því að stjóm- völd mörkuðu ákveðna neyslustefnu í landinu og tók í því sambandi til umfjöllunar niðurgreiðslur land- búnaðarvara. Hann sagði að hringl með niðurgreiðslur mglaði verð- skyn neytenda en auknar niður- greiðslur héldust í hendur við aukna sölu s.s. á smjöri. Nýjar tillögur um framleiðslurétt bænda á mjólk, sem nú era til- kynningar hjá ráðherra, gefa kost á nánast sama framleiðslumagni á næsta verðlagsári og nú er. Sig. Jóns. Nýja mjólk- urstöðin í Reykjavík í gagnið Selfossi. HIN nýja pökkunar- og dreif- ingarstöð Mjólkursamsölunn- ar í Reykjavík var að hluta til tekin i notkun um hvita- sunnuna. Frágangi er að mestu iokið og smám saman er verið að flytja tæki i stöð- ina frá gömlu mjólkurstöðinni við Laugaveg. Pökkun á mjólk mun hefjast í nýju stöð- inni innan fárra daga og fara vaxandi þar til alflutt er í stöðina. Gert er ráð fyrir að nýja stöðin kosti 754 milljónir sem er 34 milljónum umfram það sem áætlað var. Þetta kom m.a. fram í ávarpi Guð- laugs Bjömssonar forstjóra Mjólkursamsölunnar á aðal- fundi Mjólkurbús Flóamanna. Á þessu árí verður varið 100 milljónum til að fullkiára stöð- ina. Um sl. áramót nam bygg- ingarkostnaður 654 milljónum króna og af þeim era 119 millj- ónir framreiknaðar til núverandi verðlags. Byggingin er íjármögnuð með sölu á fasteignum, erlendum og innlendum lánum, hagnaði und- irfyrirtækja og fjármagnsmynd- un í rekstri. Fé er einnig tekið úr rekstrinum og samstarfsfyr- irtæki hafa hjálpað til. Sem dæmi um hagnað undir- fyrirtækja Mjólkursamsölunnar nefndi Guðlaugur að ísgerð hefði skilað 13 milljónum og brauð- gerð tæpum 17 milljónum í hagnað á sl. ári. Sig. Jóns. Fundarmenn á aðalfundi Mjólkurbús Flóamanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.