Morgunblaðið - 22.05.1986, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. MAÍ1986
at\/inrm — — ni i/i # in ofll — nt — íj t\/i nrnz - íj t\/inn - ÍJ i x/inna
d t vu u /d VII II li ct dt vii ii id ciivn n id dlVU II1 d d l Vnlfid
Setjari —
pappírsumbrot
Vanur setjari óskast til pappírsumbrots nú
þegar eða fljótlega. Um er að ræða vakta-
vinnu. Upplýsingar um starfið gefur
Guðbrandur Magnússon verkstjóri tækni-
deildar (ekki í síma).
Jfö0t$instMgiMfr
Mötuneyti
Iðnaðarbankinn hf. óskar eftir að ráða starfs-
kraft í mötuneyti bankans Lækjargötu 12.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf
fljótlega.
Iðnaðarbankinn.
Rekstrarstjóri
Félagasamtök í Reykjavík óska eftir að ráða
rekstrarstjóra til að annast rekstur skrifstofu
í Reykjavík og ýmsa þjónustu fyrir stofnun
sem er staðsett utan Reykjavíkursvæðisins.
Auk þess skal rekstrarstjórinn sinna margvís-
legum félagsmálum og rekstri húseignar í
Reykjavík. Góð laun eru í boði fyrir hæfan
starfskraft.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, óskast sendar augld. Mbl. merkt-
ar: „Rekstrarstjóri — 5717“ fyrir 4. júní. Með
allar umsónir verður farið sem trúnaðarmál.
Hjúkrunarfræðingar
Sjúkrahús Vestmannaeyja vill ráða hjúkr-
unarfræðinga til starfa nú þegar eða eftir
samkomulagi.
Staða deildarstjóra
við handlækningadeild er laus til umsóknar
frá 16. júní.
Ennfremur óskast hjúkrunarfræðingar til
sumarafleysinga. Upplýsingar gefur hjúkr-
unarforstjóri í síma 98-1955
Sjúkrahús Vestmannaeyja.
Saumakona
óskast til að annast breytingar á karlmanna-
fatnaði. Hlustastarf. Góð laun í boði. Uppl.
ísíma 14519 og 36741.
Framkvæmdastjóri
Herjólfur hf. í Vestmannaeyjum óskar að ráða
framkvæmdastjóra.
Umsóknir um starfið sendist stjórn Herjólfs
hf., Básaskersbryggju 10, Vestmannaeyjum,
fyrir 16. júní nk.
Smiðir
Okkur vantar reynda smiði strax. Mikil vinna
fyrirsjáanleg í sumar. M.a. við byggingu
gangna undir Miklubraut. Upplýsingar í síma
687787.
S.H. Verktakar hf.
Glerísetningar
Óskum eftir smiðum til viðhalds og viðgerð-
arvinnu.
Uppl. í símum 43571 og 641050.
Hellissandur
Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu
og innheimtu fyrir Morgunblaðið.
Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma
93-6616 og hjá afgreiðslunni í Reykjavík í
síma 83033.
Siglufjörður
Blaðburðarfólk vantar í Brekkuna.
Upplýsingar í síma 71489.
íslenzkt þjónustufyrirtæki í Danmörku
óskar að ráða
6-8 málara og
2 dúklagningamenn
til framtíðarstarfa í Danmörku.
Við útvegum húsnæði, m.a. frítt húsnæði á
Norður-Sjálandi ef menn vilja.
Viðkomendur þurfa að vera hörkuduglegir
og tilbúnir til að vinna mikla vinnu.
Mjög góð laun fyrir góða menn.
Umsóknir með upplýsingum um aldur, fyrri
störf og annað er máli kann að skipta, sendist
augld. Mbl. fyrir 28. maí merktar:
„Góðir menn — 3135".
Fulltrúi frá fyrirtækinu mun verða staddur
hér dagana 29., 30. og 31. maí og mun hann
hafa samband við væntanlega umsækjendur.
Forritari
Karlmaður 28 ára leitar að framtíðarstarfi.
Hef lokið námi í Tölvuskóla Stjórnunarfélags
íslands.
Hef þekkingu á stýrikerfi IBM s/36, forritun-
armálinu RPG II og kerfisfræði.
Auk þess margvísleg reynsla við kennslu og
afgreiðslustörf.
Tilboð sendist augldeild Mbl. merkt: „Forrit-
ari — framtíð" fyrir 27. maí nk.
Sjúkraliðar
Sjúkrahús Vestmannaeyja vill ráða sjúkraliða
í fastar stöður og til sumarafleysinga í júlí
og ágúst. Upplýsingar gefur hjúkrunarfor-
stjóri í síma 98-1955.
Sjúkrahús Vestmannaeyja.
Aðstoðarmaður á
bifreiðaverkstæði
Flugleiðir óska eftir að ráða aðstoðarmann
á bifreiðaverkstæði sem fyrst.
Uppl. veitir verkstæðisformaður í síma
690574.
FLUGLEIDIR ^
Verslunarstjóri
Viljum ráða verslunarstjóra við útibú félags-
ins á Eyrarbakka frá og með 1. júli nk.
Upplýsingar gefur Sigurður Kristjánsson,
kaupfélagsstjóri, í síma 99-1208.
Kaupfélag Árnesinga, Selfossi.
Grundarfjörður
Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu
og innheimtu fyrir Morgunblaðið í Grundarfirði.
Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma 8757
og hjá afgreiðslunni í Reykjavík, sími 83033.
Snyrtifræðingur
Afgreiðsla/innkaup
Óskum að ráða sem fyrst snyrtifræðing til
framtíðarstarfa við snyrtideild í verslun okk-
ar, Skeifunni 15.
Starfið felur einkum f sér:
— Umsjón með daglegum rekstri deildarinnar,
— öll innkaup á snyrtivörum,
— afgreiðslu og kynningar.
Kröfurtil umsækjenda:
— vera snyrtifræðingur eða hafa góða
reynslu í samskonar starfi.
— getaunniðsjálfstættogskipulega.
— vera lipur í framkomu og eiga auðvelt
með að umgangast fólk.
— vera á aldrinum 30-40 ára.
Skriflegar umsóknir, með upplýsingum um
aldur, menntun og fyrri störf, sendist á
augld. Mbl. fyrir kl. 18.00 mánudaginn 26.
maí merktar: „S — 5718“.
Fyrirspurnum ekki svarað í síma.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnað-
armál og öllum svarað.
HAGKAUP
Sölustarf
Fyrirtæki í plastiðnaði sem aðallega framleið-
ir fyrir sjávarútveg óskar eftir röskum manni
til sölustarfa nú þegar.
Umsóknir með helstu uppl. um fyrri störf og
aldur sendist til augldeildar Mbl. merktar:
„S-3496".
Afgreiðslufólk
Fyrirtækið er eitt af stærstu byggingavöru-
fyrirtækjum landsins.
Störfin felast í afgreiðslu í verslun fyrirtækis-
ins.
Hæfniskröfur eru að viðkomandi hafi ein-
hverja reynslu af afgreiðslu- og sölustörfum.
Æskilegt er að umsækjendur hafi þekkingu
eða áhuga á innréttingum og byggingavör-
um, séu röskir og þægilegir í framkomu.
Vinnutími er frá kl. 08.00-18.00 alla virka
daga og laugardaga frá kl. 09.00-13.00. Góð
laun eru í boði fyrir hæfa starfsmenn auk
ýmissa hlunninda.
Umsóknarfrestur er til og með 28. maí nk.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 09.00-15.00.
Skólavördustig 1a - 101 Reykjavik - Simi 621355
Starf
í hönnunardeild
Morgunblaðið óskar að ráða starfskraft í
hönnunardeild blaðsins í sumar.
Um er að ræða starf við útlitshönnun og er
vinnutími óreglulegur. Mjög æskilegt er að
viðkomandi hafi einhverja kunnáttu í hönnun
blaða.
Tilboð sendist augldeild Mbl. merkt:
„J — 05621 “ fyrir 24. maí nk.