Morgunblaðið - 22.05.1986, Page 38

Morgunblaðið - 22.05.1986, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. MAÍ1986 raöauglýsingar raöauglýsingar raöauglýsingar kennsla Frá Tónlistarskólanum í Reykjavík Inntökupróf fyrir skólaárið 1986-87 verða mánudaginn 26. maí í skólanum, Skipholti 33. Nemendur komi sem hér segi: Söngdeild kl. 13.00. Píanódeild kl. 14.00. Strengja- og blásaradeild kl. 15.15. Umsóknareyðublöð og allar nánari upplýs- ingar fást á skrifstofu skólans frá kl. 09.00- 17.00 alla virka daga. Skólastjóri. Reiðnámskeið Bændaskólinn á Hólum auglýsir Reiðnámskeið og fjölskyldudvöl 11 .-18. júlí. Leiðbeinandi: Ingimar Ingimarsson. Gisting og fæði á staðnum. Sundlaug — sauna — fagurt umhverfi. Upplýsingar veittar í síma 95-5962 virka daga frá kl. 9.00-12.00. Þátttaka tilkynnist fyrir 15. júní. Hestasveit Börn og unglingar athugið í sumar bjóðum við upp á 13 daga dvöl í Skagafirðinum. Farið á hestbak einu sinni á dag. Sund, skoðunarferðir og fleira til gamans gert. Upplýsingar í síma 95-5530 eftir kl. 18.00 á daginn. M.A. stúdentar 1966 Höldum upp á 20 ára afmælið á Laugarvatni 13.-15. júní. Gist í Húsmæðraskólanum. Hafið samband við Hönnu Maju (73311), Birgi (666113), Kristján (83209). Kvennaskólinn í Reykjavík Skólanum verður slitið laugardaginn 24. maí kl. 14.00 síðdegis. Prófsýning og afhending einkunna verður föstudaginn 23. maí kl. 9.00 árdegis. Innritun fyrir næsta vetur lýkur 6. júní. Skólastjóri. Styrkir úr sjóði Ludvigs Storr Styrkir til framhaldsnáms og rannsókna fyrir árið 1986 verða veittir úr menningar- og framfarasjóði Ludvigs Storr í samræmi við skipulagsskrá sjóðsins: „Tilgangur sjóðsins er að stuðla að fram- förum á sviði jarðefnafræða, byggingariðnað- ar og skipasmíða með því að styrkja vísinda- menn á sviði jarðefnafræða, verkfræðinga og iðnaðarmenn til framhaldsnáms, svo og að veita styrki til rannsókna á hagnýtum úrlausnarefnum í þessum greinum. Stjórn sjóðsins er ennfremur heimilt að veita lán í sama tilgangi. Við mat á því, hvort umsækjandi skuli hljóta styrk, skal lagt til grundvallar, hvort fram- haldsnám umsækjanda eða rannsóknir geti stuðlað að raunhæfum framförum í þeirri grein, sem um ræðir." Umsóknareyðublöð eru í skrifstofu Háskóla íslands og skal senda umsóknir þangað fyrir l.júlí. Skólaslit Stýrimannaskólans Stýrimannaskólanum í Reykjavík verður slitið á morgun laugardaginn 17. maí kl. 16.00 í hátíðarsal Sjómannaskólans. Eldri nemendur afmælisárganga og aðrir velunnarar skólans eru sérstaklega boðnir velkomnir. Skólastjóri. Frá Menntaskólanum í Kópavogi Skólaslit og brautskráning stúdenta verða föstudaginn 23. maí kl. 14.00 í Kópavogs- kirkju. Skólameistari. Njarðvíkingar Opin fundur um bæjarmálin o.fl. fimmtudaglnn 22. maí kl. 20.30 í Sjálfstæðishúsinu. Njarðvíkingar notið tækifærið og spyrjið frambjóðendur Sjálfstæðis- flokksins i Njarðvík. Frambjóðendur. Garðabær Fundur með ungum kjósendum Fundur með ungum kjósendum í safnaðar- heimilinu Kirkjuhvoli í kvöld fimmtudag 22. mai kl. 20.30. Frummælendur: Erling Ásgeirsson og Andrés B. Sigurðsson. Komið, spyrjið og spjallið um bæjarmálin. Frambjóðendur Sjálfstaaðisflokksins Garðbæ. wm hlómm Eiaum gott úrval blómvanda og fjölbreyttra blómaskreytingatil stúdentagjafa. Til hamindu! h. fflSlSSSiK' Nýr hótel- sljóri á Húsavík Húsavík. HÓTEL Húsavík hefur verið í leigu hjá Samvinnuferðum/ Landsýn og Flugleiðum síðastlið- ið ár og er svo til 1. september næstkomandi. í vetur hefur Sól- borg Steinþórsdóttir veitt hótel- inu forstöðu, en hún var á síðast- liðnu sumri forstjóri Edduhótels- ins að Laugum í Dölum, og tekur nú aftur við því starfi. Við hótelstjóm á Hótel Húsavík hefur tekið Pétur Snæbjömsson frá Reynihlíð við Mývatn, sem segja má að sé alinn upp á hóteli, því allir þekkja Hótel Reynihlíð, þar sem hann sleit bamsskónum. Pétur er vel menntaður í sinni grein, því hann er lærður matreiðslumeistari og hefur stundað framhaldsnám i þeirri grein erlendis, auk þess sem hann hefur verið við nám í öðmm greinum hótelrekstrar undanfarin ár. Húsvíkingar bjóða hann velkom- inn til starfa og vænta mikils af honum þótt við erfiðar aðstæður sé að búa, þar sem full nýting hótelsins hefur undanfarin ár að segja má aðeins verið þrjá mánuði á árinu. Vonandi finnast leiðir til að bæta úr því og ferðamannatímabilið lengist. (Fréttaritari)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.