Morgunblaðið - 22.05.1986, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 22.05.1986, Qupperneq 46
46 MOKGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. MAÍ1986 + Frænka mín, SIGRÍÐUR EINARSDÓTTIR, Noröurbrún 1, andaðist í Borgarspftalanum þriðjudaginn 20. þ.m. Fyrir hönd aðstandenda, Eygló Viktorsdóttir. + Ástkær faöir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS SCHEVING, Dalbraut 27, Reykjavfk, verður jarðsunginn frá Áskirkju, Reykjavík, föstudaginn 23. maí kl. 15.00. Eyjólfur Magnússon, Þórveig Hjartardóttir, Sigrún Magnúsdóttir, Kári Einarsson, Ragna Sólveig Eyjólfsdóttlr, Sólveig Klara Káradóttir, Magnús Öm Eyjólfsson, Ragnhlldur Þóra Káradóttlr, Hjörtur Már Eyjólfsson, Jón Magnús Jónsson. + Móöir okkar, tengdamóöir og amma, SIGRÚN ÓLAFSDÓTTIR, Suðurgötu 15-17, Keflavík, áöur Hafnargötu 39, verður jarösungin frá Keflavíkurkirkju í dag fimmtudaginn 22. maí kl. 2 e.h. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabba- meinsfélag fslands. Ásgeir Gunnarsson, Alda Guðjónsdóttir, Ásta Gunnarsdóttir, Beinteinn Sigurðsson, Jóna Gunnarsdóttir, Kristinn Guðmundsson, Sólveig Gunnarsdóttir, Anton Kristinsson, Sigurbjörg Gunnarsdóttir, Jón Ólafur Jónsson, og barnabörn. + Minningarathöfn um hjartkæran son okkar og bróður, ÞORBJÖRN EINAR FRIÐRIKSSON, Sunnubraut 10, Keflavfk, sem fórst með Siguröi Þórðarsyni GK-91 20. mars sl. fer fram frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 24. maí kl. 14.00. Þeir sem vildu minnast hans eru beðnir að láta björgunarsveitir njóta þess. Elsa Einarsdóttir, Friðrik Ben Þorbjörnsson og systkini. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaöir og afi, FLOSI SIGURBJÖRNSSON, kennari, Ljósheimum 20, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju föstudaginn 23. maí kl. 10.30. Jóna Kristjánsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. + Þakka af alhug sýnda samúö og vinsemd við andlát og jarðarför móður minnar, HÓLMFRÍÐAR JÓHÖNNU JÓHANNESÓTTUR, Grænumörk 3, Selfossi. Fyrir hönd aðstandenda. Smári Ársælsson. + Innilegar þakkir færum við þeim öllum er sýndu okkur samúð og vinarhug við fráfall SIGRÚNAR STEFÁNSDÓTTUR frá Eyjardalsá. Heiður Vigfúsdóttir og fjölskylda. + Þökkum auðsýnda samúö og vináttu við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGURBORGAR SVEINSDÓTTUR, Austurbrún 4, áður Hjallavegi 34, Sveinn Matthfasson, Marfn Guðveigsdóttir, Rúnar Matthíasson, Ragnheiður Grétarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Sigrún Ólafs- dóttir — Minning Fædd 30. júní 1907 Dáin 16. maí 1986 Sigrún Ólafsdóttir eða Rúna frænka, eins og ég og systkini mín ætíð kölluðum hana, er látin. Orðum mínum hér á eftir, fátæklega bún- um, er ætlað að endurspegla hlýju og vinarþel, verða hinsta kveðja min til þessarar móðursystur minnar, er mér var svo kær. Sigrún Ólafsdóttir fæddist á Flateyri við Önundar^örð, 30. júní 1907. Hún var þriðja í röðinni af 12 bömum þeirra hjóna Ástu Magnúsdóttur og Ólafs Jónssonar skipstjóra er þar bjuggu. Eftirlif- andi systkini eru nú fjögur. Hún fluttist til Keflavíkur árið 1927 og giftist Gunnar Sigurfinns- syni árið 1929. Hann var þá bif- reiðastjóri, en rak um langt árabil húsgagnaverslun hér í Keflavík. Þau reistu sér hús á Hafnargötu 39 og bjuggu þar allan sinn búskap, eða þar til Gunnar lést árið 1966. Sigrún og Gunnar eignuðust fímm böm sem öll lifa. Elstur er Ásgeir, giftur Öldu Guðjónsdóttur, Ásta Óla, gift Beinteini Sigurðssyni, Jónína, gift Kristni Guðmundssyni, Sólveig Guðný, gift Antoni Kristins- syni, og yngst er Sigurbjörg Jóna, gift Jóni Ólafí Jónssyni. Bamaböm- in eru íjórtán. Eg kynntist Rúnu frænku minni sem lítil telpa og kærleikur minn til hennar efldist samfara þroska mínum. Mikill samgangur var alla tíð milli heimilis foreldra minna og Hafnargötu 39 og margar af mínum björtustu æskuminningum eru tengdar þessu frændfólki mínu. Ég sótti mikið í leik með frænkum mínum, sem voru á líkum aldri og ég. „Guðrúnartúnið" með „hólinn" góða, hafði mikið aðdráttarafl fyrir mig, sem var ofan af hæð eins og sagt var, þar sem ekki eins mikið svigrúm var þar til leikja. Einnig var auðvelt að komast í fjöruna fyrir neðan húsið og marga skemmtilega Qöruferðina fórum við Ásta saman. Alltaf gat ég verið viss um að fá eitthvað í lófann hjá Rúnu frænku minni áður en haldið var heimleiðis og fátt smakkaðist eins vel og „dæsumar" hennar góðu. Faðir minn og Gunnar voru báðir miklir tónlistarunnendur og minnist ég margra góðra stunda þar sem Gunnar sat við píanóið eða orgelið og faðir minn söng. Eftir lát Gunnars bjó Rúna ein í íbúð sinni en hafði lengst af leigj- endur í kjallara. í júní á sl. ári fékk hún íbúð í þjónustuhúsnæði fyrir aldraða á Suðurgötu 17. En þegar bömin höfðu hjálpað henni við flutning þangað var hún orðin fár- sjúk og dvaldist þar ekki nema nokkrar vikur alls, og þá með mikilli hjálp dætra og tengdadóttur. Rúna átti ætíð fallegt heimili sem öllum stóð opið og gestrisni var þar einstök. Bamabömin áttu alltaf vís- an griðastað á Hafnargötunni og sóttu þangað mikið. Gjafmildi og gestrisni voru aðalsmerki frænku minnar og þekki ég enga mann- eskju, sem naut þess jafn ríkulega og hún, að gefa og miðla öðmm af því sem hún átti. Frístundir sínar notaði Rúna gjaman til hannyrða allskonar og hafði yndi af þeim. Þessa fallegu hluti gaf hún bömum og vinum og em án efa allir í fjöl- skyldu hennar sem eiga eitthvert fallegt stykki unnið af henni. Veikindi Rúnu nú seinustu mán- uði vom mjög erfíð, en hún tók þeim eins og hún hafði lifað lífínu, róleg og æðmlaus, bíðandi þolinmóð en þó með þá ósk að biðin tæki ekki of langan tíma. Og nú er hún horfín, ein af þess- um ibúum Keflavíkur sem sáu þorp- ið okkar breytast í bæ, en þrátt fyrir árin fannst mér Rúna aldrei verða gömul. Að leiðarlokum sendir móðir mín sína hinstu kveðju og þakkar af alhug hjálpsemi og vináttu systur, sem aldrei brást. Systir mín, dóttir og ungar frænkur í fjarlægð, senda kveðjur og við minnumst hennar öll með söknuði. Lokaorð í minningu um frænku mína langar mig að hafa kvæði Jakobs Jóh. Smára „Kom svefnsins blíða bylgja“. Guð blessi minninguna um góða konu. Kom svefnsins blíða bylgja, og burt mig tak með þér lát fagra drauma fylgja þvífleyi,semmigber. Að jjúfra drauma löndum þinnljósifaðmurber M stormsins bröttu ströndum, og stundum gleymir sér. í Qarskans drauma-dvala skín dýrðlegt, himneskt Ijós. Við loftsins létta svala grær lífsins dýrasta rós. Og horfnar tungur tala þar tryggðum helgað mál. Aðbakidjúpradala þardvelsthineinasál. (JakobJóh. Smári.) Gullý Bergsteins Fagna þú, sál mín. Allt er eitt í Drottni, eilíft og fagurt,—dauðinn sætur blundur. Þótt jarðnesk dýrð og vegsemd visni og þrotni, veit ég, að geymast handan stærri undur. Þótt stórtré vor í byljum jarðar brotni, bíður vor allra um síðir Edenslundur. (J J. Smári) í dag fer fram frá Keflavíkur- kirkju útför Sigrúnar Ólafsdóttur, sem lengst bjó á Hafnargötu 39 þar í bæ. Hún andaðist á Sjúkrahúsi Keflavíkur þ. 16. maí síðastliðinn, eftir langa baráttu við banvænan sjúkdóm. + Útför fööur okkar, tengdaföður afa og langafa, BÖÐVARS BJARNASONAR bygglngarmeistara, Sandholti 34, Ólafsvfk, ferfram frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn 24. maí kl. 14.00. Jarösett verður aö Búðum. Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Ólafsvíkurkirkju. Auður Böðvarsdóttir, Kristófer Jónasson, Sturla Böðvarsson, Hallgerður Gunnarsdóttir, Snorri Böðvarsson, Guðlaug Anna Ámundadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Lokað í dag frá kl. 13.00 vegna jarðarfarar SVEINBJÖRNS B. EIRÍKSSONAR. Parísarbúðin. Hún fæddist á Flateyri við Ön- undarfjörð. Foreldrar hennar voru Ásta Magnúsdóttir og Ólafur Jóns- son skipstjóri. Þau bjuggu lengi á Flateyri og eignuðust 12 böm, var Sigrún 4. í röðinni. Nú eru aðeins 4 lifandi af þessum stóra hópi. Þau eru þessi: Kristjana, ekkja Bergsteins Sigurðssonar, býr 1 Keflavík. Kristín, ekkja Jóns Brynjólfssonar, býr í Reykjavík. Sölvi, kvæntur Sigríði Þorgeirs- dóttur, býr í Keflavík og Jóna, hefír verið sjúklingur á sjúkrahúsi í Reykjavík um margra ára skeið. Ásta móðir Sigrúnar fluttist til Keflavíkur eftir að hún missti mann sinn, og hélt heimili með sonum sínum tveim, þeim Jóni og Sölva, en þriðja soninn, Odd, missti hún umj>etta leyti. Eg man eftir henni í litla húsinu við Klapparstíg. Það var svo nota- legt að koma til hennar, þar angaði allt af hreinlæti og snyrtimennsku. Sigrún fer til Reykjavíkur um tvítugt, fór í vist, þ.e. þjónustu- stúlka á heimili fór til Hlífar Matt- híasdóttur og Olafs Magnússonar, móðurbróður síns, og var þar ein- hvem tíma, en fer síðan til Keflavík- ur og þar kynnist hún manni sínum, Gunnari Sigurfinnssyni bifreiða- stjóra og síðar kaupmanni. Þau vom gefin saman í Keflavíkurkirkju þann 18. maí 1929 fyrir réttum 57 ámm. Það var til þess tekið hvað hún var fogur brúður, grönn og spengi- ieg, með þetta tinnusvarta mikla hár. Gunnar var innfæddur Keflvík- ingur, sonur hjónanna Jónínu Þórð- ardóttur og Sigurfínns Sigurðsson- ar sem vom vel metnir borgarar á sinni tíð í Keflavík. Systkini Gunn- ars vom þijú, sem öll em nú látin. Sigurbjörg bjó í Keflavík. Ásgeir andaðist ungur maður, Sigríður, húsmóðir í Birtingaholti, hennar maður Sigurður Ágústsson. Gunnar stundaði bifreiðaakstur á milli Reykjavíkur og Keflavíkur á fyrstu búskaparárum þeirra hjóna, en þar kom að hann hætti því og gerðist húsgagnabólstrari og síðan kaup- maður. Þau hjón byggðu snemma á bú- skaparárum sínum húsið við Hafn- argötu 39, og þótti það sérlega fallegt og stílhreint, eins og það ber með sér enn í dag. Þama var Sigrúnar rannur, hún helgaði sig heimilinu, manni sínum og bömum. Hún var mikil myndar húsmóðir, bæði í matargerð og handavinnu. Hún hafði unun af að hafa fallega og vel gerða hluti í kringum sig, svo ekki sé talað um snyrtimennskuna, sem alstaðar var fyrir hendi. Sigrún og Gunnar eign- uðust 5 böm, sem eru þessi: Ás- geir, hans kona Alda Guðjónsdóttir, eiga 4 böm, búa í Keflavík. Ásgeir átti 1 dóttur áður en hann kvæntist. Ásta, hennar maður Beinteinn Sig- urðsson, eiga 1 bam, búa í Hafnar- fírði. Jónína, hennar maður Kristinn Guðmundsson, eiga 4 böm, búa í Keflavík. Sólveig, hennar maður Anton Kristinsson, eiga 1 bam, búa í Reykjavík. Sigurbjörg, hennar maður Jón Ólafur Jónsson, eiga 3 böm, búa í Keflavík. Sigrún lét sér annt um hópinn sinn. Hún gerði sér far um að fylgj- ast með bamabömunum og var ein af þeim sem alltaf var veitandi. Hún sagði svo oft: „Það þarf ekki að hugsa um mig, það er allt í lagi með mig.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.