Morgunblaðið - 22.05.1986, Side 50

Morgunblaðið - 22.05.1986, Side 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. MAl 1986 Sænskur lagaprófessor heldur fyrirlestur FIMMTUDAGINN 22. maí kl. 20.30 heldur Aleksander Pec- zenik prófessor við lagadeild háskólans í Lundi fyrirlestur í Norræna húsinu og nefnir „Motstándstrátt mot förtryck". Aleksander Peczenik var þátttak- andi á málþingi á vegum Hins ísl. félags um heimspekirétt og menn- ingu, sem haldið var á Hótel Loft- leiðum 18.—21. maí. Hann er forseti samsvarandi fé- lags á Norðurlöndum og er þekktur réttarheimspekingur. Fyrirlesturinn verður fluttur á sænsku og er öllum heimill aðgang- ur. (Fréttatilkynning.) Morgunblaðið/Guðmundur Auðunsson Bergþóra Áraadóttir og sonur hennar, Jón Tryggvi Jónsson. Bergþóra Árnadóttir í söngför um Norðurlönd Jónshúsi, Kaupmannahöfn. BERGÞÓRA Árnadóttir vísna- söngkona er nú á söngferðalagi um Norðurlönd og voru fyrstu tónleikarnir haldnir hér i Jóns- hús sl. föstudagskvöld. Var það skemmtileg kvöldstund í för með söngkonunni og syni hennar, Jóni Tryggva Jónssyni, og voru fjölmörg laga hennar frá undan- förnum áratug sungin og ieikin, falleg lög og lipurlega flutt. Lög Bergþóru eru samin við ljóð margra þekktra skálda, svo sem Páls Ólafssonar, Davíðs, Tómasar, Jóhannesar úr Kötlum, Hannesar Péturssonar og síðast en ekki sízt Steins Steinars, sem eru langflest. Þá verða ljóð yngri höfunda henni tilefni til lagasmíða og má þar einkum neftia hugljúf ljóð Sigurðar Antons Friðþjófssonar, og svo þeirra Aðalsteins Ásberg Sigurðs- sonar og Grahams Smith. Bergþóra er fædd og uppalin í Hveragerði og byijaði söngferil sinn á samkomum fyrir austan fjall, en kom fyrst fram á höfuðborgarsvæð- inu, er Ámi Johnsen „dreif hana upp á svið“ á vísnatónleikum í Kópavogi 1973. Síðan 1981 hefur hún að mestu leyti helgað sig list sinni. — í vetur hefur Bergþóra Ámadóttir spilað í skólum og dvalið um nokkurra mánaða skeið í Noregi og víðar á Norðurlöndum. Hún er nú á leið til 20 ára afmælishátíðar vísnavina í Ábo í Finnlandi. Mun söngkonan einnig koma við og syngja á Musebakke í Stokkhólmi, en í júní tekur hún þátt í vísnahá- tíð á Skagen á Jótlandi. Plötur Bergþóm em orðnar fjór- ar, sú fyrsta, Eintak, kom á mark- aðinn 1977, Bergmál 1982, þá Afturhvarf 1983 og svo sú nýjasta með Graham Smith 1985 og heitir hún Það vorar. Á henni vekur at- hygli lag við ljóð Laufeyjar Jakobs- dóttur, ömmunnar í Gijótaþorpinu eins og hún hefur verið nefnd, sem heitir Lífsbókin, en það söng Berg- þóra hér á tónleikunum og lék undir á sérkennilegt verkfæri, svonefnd omnichord. Plötunum fylgja textar og umsagnir um lög og ljóð í heftum og eykur það mjög á gildi þeirra. Kassettur söngkonunnar em þijár talsins, tvær gefnar út 1984 og svo ein alveg ný með lögum, sem allir þekkja, við kvæði úr Skólaljóðum. Er aðeins heimingur iaganna sung- inn og er spólan ljómandi góð til að syngja með. Með Bergþóm í söngförinni er sonur hennar, Jón Tryggvi Jónsson, og lék hann á gítar með móður sinni, m.a. íslenzka lagið úr Evr- ópusöngvakeppninni, Gleðibank- ann. G.L.Ásg. XENIX NAMSKEIÐ FYRIR KERFISFRÆÐINGA Haldiðdagana 26.5.—30.5.1986 Staðnr: Grensásvegur 10, Reykjavík. Leiðbeinandi: Hans Komeder. 1. dagur: — Introduction (History, Litterature, . . .) 2. dagur: — Text Editing (ED, VI, SED, GREP, AWK) —• Command Interpreters (SH, CSP, AOM, . . .) 3. dagur: — Process manaagement — Development tools (LEX, YACC. MAKE, SCCS) 4. dagur: — System start-up configuration — Administrative tools (UA, PCONFIG, FIND, FILE) 5. dagur: Communication (WRITE,, MAIL, CU, UUCP, 3780, 3270, WORKNET) — Backup (DD, TAR, CPIO, DUMP, ARCHIVE, . . .) Námskeiðið fer fram á Altos 2086-tölvu, ein útstöð fyrir hvem þátt- takanda. AUar nánari upplýsingar veitir Öm Andrésson ísíma 686933. Þátttaka tilkynnisteigisiðarenföstudaginn23.5.1986. Xenix er skrásett vörumerki Microsoft Corporation. Einar J. Skúlason hf. Grensásvegi 10 - 128 Reykjavík - 2? 686933 HELGARDAGSKRA NAUSTSINS Fimmtudagur Hrönn og Jónas Þórir leika á píanó og fiðlu. Föstudagur Hrönn og Jónas Þórir leika ljúfa tónlist. Gestur kvöldsins: Helgi Hermannsson. Glaumur, dans oggleði. Hugljúf tónlist, góður matur, skemmtilegt um- hverfi. Sunnudagur Hrönn og Jónas Þórir leika á fiðlu og píanó. NAÚST R E S T A U R A N T ' s í M I 1 7 7 5 9 1S 2 þættir á spólu Þættir 57/58 koma á bensínstöðvar OLÍS á Stór- Reykjavíkursvæðinu — Kelfavík og Akureyri í dag. Einnig á útvaldar myndbandaleigur á landsbyggðinni. Dreifing á landsbyggðinni, Tefli hf., Síðumúla 23, sími 686250.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.