Morgunblaðið - 22.05.1986, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 22.05.1986, Blaðsíða 60
„Æbókhauw; ffgtUlMflfrtfe %£} nnaoaiDanioiin FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 1986 VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR. Falskir 100 dollaraseðlar í umferð hér 15-20 verslanir hafa fengið slíka seðla að undanfömu og skipt í bönkum TALSVERT magn af fölskum 100 dollara seðlum er nú i um- ferð hér á íslandi og samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hef- ur Rannsóknalögregla rikisins þegar hafið rannsókn á þvi, hvemig seðlar þessir hafi borizt Laxveiði í net í Hvitábyijarvel: Óvenjulega fallegir laxar „ÞETTA hefur gengið vonum framar, 11 laxar vora komnir eftir morgunvitjunina og þetta voru óvenjulega fallegir laxar, 9—17 punda og greini- legt að þeir hafa haft nóg að bita og brenna i hafinu,“ sagði Sigurður Fjeldsted í Feijukoti í samtali við Morgunblaðið í gærdag. Sigurður sagði jafnframt, að afar mikið rok hefði verið síð- ustu daga, áin bæði köld og gruggug og allt annað en árennileg tii veiða. Er samband var haft við Feijukotsmenn í fyrradag, höfðu þeir iagt netin eins og lög gera ráð fyrir, en hljóðið var ekki gott. Annað hljóð var komið í strokkinn í gær sem sjá má. Eftir því sem Sig- urður tjáði Morgunblaðinu, veiddust þessir laxar á víð og dreif í margar lagnir. til landsins. Morgunblaðið leitaði í gær til Rannsóknalögreglunnar um uppiýsingar um mál þetta, en fékk engar. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins mun grunur leika á, að íslendingur hafi komið með talsvert magn af seðlum þessum til.landsins, sem hver er að verðgildi um 4.100 íslenzkar krónur og hafa þegar seðlar borizt til banka, sem sáu að um falsaðan gjaldmiðil var að ræða. Mun m.a. þykkt pappírsins í seðlun- um hafa vakið grun. Dollaraseðlunum mun hafa verið skipt í verzlunum í Reykjavík og hafa a.m.k. 15 til 20 verzlanir fengið slíka seðla og skipt þeim í banka, þannig að Ijóst er, að upp- hæð fölsku seðlanna skiptir þúsund- um dollara. Kristján tóklagiðá Akureyri Akureyri. KRISTJÁN Jóhannsson óperusöngvari frá Akureyri var á ferð í heimabæ sinum i gær og tók þá lagið fyrir starfsfólk og vistmenn Dvalarheimilisins Hlíðar og Fjórðungssjúkrahússins. Kristján söng nokkur íslensk lög og var mjög vel tekið. Þegar hann var klappaður upp í annað sinn á Fjórð- ungssjúkrahúsinu sagði hann glaður i bragði: „Það er ánægjulegt að sjá að þið hljótið að vera við góða heilsu fyrst þið klappið mig tvisvar upp!“ Nokkur fjöldi mætti í setustofu sjúkrahússins til að hlýða á Knstján syngja en einnig gátu sjúklingar hlýtt á söng hans i stofum sinum gegnum hátalarakerfi hússins. Þess má geta að Kristján heldur tónleika í iþróttaskemmunni á Akureyri á laugardagskvöld. KLM og Air Lingus bjóða Arnarflugi skuldbreytingu Álitamál hvort það dugar vegna slæmrar stöðu fyrirtækisins Samningaviðræður ákveðinna hluthafa Araarflugs við stærstu erlendu lánadrottna fyrirtækis- ins hafa staðið yfir að undan- förau, með þeim árangri að flug- félögin Air Lingus og KLM hafa boðið Amarflugi skuldbreytingu á hluta skuldanna til 5 ára, auk þess sem KLM bauð upp á ein- hveija niðurfellingu skulda. Þriðji stóri lánardrottinninn Euro Control hefur ekki svarað málaleitan Arnarflugs enn. Staða Arnarflugs er nú það slæm, að ekki er víst að þetta nægi til þess að tryggja áframhaldandi rekstur fyrirtækisins. Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að afkoma Amarflugs sé mun verri en bráðabirgðayfírlit gaf til kynna. Þar sagði að efnahags- reikningur félagsins fyrir sl. ár sýndi 500 milljón króna tap, á móti 320 milljón króna eignum, þannig Fékk Útvegsbankinn rang- ar upplýsingar um Hafskip? Tveir hinna grunuðu áfrýjuðu þegar til Hæstaréttar SEX forráðamenn og starfsmenn Hafskips hf. voru í gærkvöldi úrskurðaðir í gæsluvarðhald I sakadómi Reykjavíkur, grunaðir um aðild að auðgunarbrotum, rangan framburð og skjalafals. Fimm þeirra voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 25. júní næstkomandi, eins og Rannsóknarlögregla ríkisins hafði gert kröfu um, en sá sjötti til 11. júní. Sjöundi maðurínn, sem átti að handtaka með hinum sex á þríðjudagsmorguninn, hafði í gær samband við Rannsóknarlög- reglu rikisins frá útlöndum og er hann væntanlegur heim á næstu dögum, skv. upplýsingum RLR. Þeir fímm, sem úrskurðaðir voru í gæsluvarðhald til 25. júní, eru Ragnar Kjartansson stjómarformað- ur Hafskips, Björgólfur Guðmunds- son forstjóri fyrirtækisins, Páll Bragi Kristjónsson, fyrrum framkvæmda- stjóri flármálasviðs, Þórður H. Hilm- arsson, forstöðumaður áætlanasviðs og Helgi Magnússon, endurskoðandi fyrirtækisins. Sá sjötti, Sigurþór Guðmundsson, aðalbókari Hafskips, var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 11. júní. Tveir mannanna, þeir Björgólfur og Páll Bragi, kærðu gæsluvarðhaldsúrskurðina þegar til Hæstaréttar. Rannsóknin, sem ríkissaksóknari fyrirskipaði hinn 7. júní, tekur eink- um til þriggja þátta, skv. upplýsing- um, sem Morgunblaðið hefur aflað sér. í fyrsta lagi hvort forráðamenn Hafskips hafi gefið Útvegsbankan- um rangar upplýsingar um stöðu fyrirtækisins þegar það fékk fyrir- greiðslu í bankanum — og þannig fengið lán og þjónustu, sem félagið hefði að öðrum kosti ekki fengið. í fyrirmælum ríkissaksóknara er í þessu sambandi vísað til 15. og 17. kafla almennra hegningarlaga, þar sem flallar m.a. um rangar skýrslu- gjafír og sýningu og framlagningu skjala, sem eru að innihaldi röng. Í öðru lagi beinist rannsóknin að því hvort forráðamenn Hafskips hafí notað fé fyrirtækisins í eigin þágu — hveijir hafí staðið að slíkum aðgerðum og hveijir séð um fram- kvæmdina, sem heimfært er undir 26. kafla almennra hegningarlaga, er flallar um auðgunarbrot og í þriðja lagi beinist rannsóknin að þætti Útvegsbankans: hvort einhver eða einhveijir starfsmenn bankans hafí gerst sekir um vanrækslu í opinberu starfí, til dæmis þannig að eftirlit þeirra með veðum fyrirtækis- ins fyrir skuldum þess hafí verið ófullnægjandi. Hér er helst vísað til 141. greinar laganna, sem hljóðar svo: „Opinber starfsmaður, sem sekur gerist um stórfellda eða ítrek- aða vanrækslu eða hirðuleysi í starfi sínu, skal sæta sektum eða varð- haldi." Skiptameðferð á þrotabúi Haf- skips hf. er að mestu lokið í skipta- rétti í Reykjavík, að sögn Ragnars H. Hall, skiptaráðanda. „Það kunna að koma upp einhveijir fletir á þessu síðar," sagði hann, „en við höfum lokið þeim hluta, oem nú er til lög- reglurannsóknar hjá Rannsóknar- lögreglu ríkisins, enda var sá þáttur til hliðar við sjálfa skiptameðferð- ina.“ Ragnar sagði að enn ætti eftir að innheimta talsvert af útistandandi kröfum Hafskips og greiða upp í kröfur. „Þær kröfur, sem búið er að lýsa, losa milljarð króna en enn hefur ekki verið tekin afstaða til þess hveijar þeirra verða teknar til greina. Við erum þegar með um 100 milljónir króna upp í þessar kröfur og vitað er að enn er talsvert fé ókomið," sagði hann. Sjá ritstjórnargrein Morgun- blaðsins, „Urskurðaðir. i gæzluvarðhald"á bls. 30. að neikvæð eiginQárstaða fyrirtæk- isins um sl. áramót væri'180 millj- ónir króna. Tap félagsins það sem af er þessu ári, mun hafa verið verulegt, þannig að nú gæti litið út fyrir að neikvæð eiginfjárstaða fyrirtækisins sé talsvert á þriðja hundrað milljónir króna. Það var skilyrði af hálfu Al- þingis, þegar heimild fyrir ríkis- ábyrgð var veitt, að eigið fé fyrir- tækisins yrði aukið um 95 milljónir króna. Þegar hafa safnast hluta- fjárloforð fyrir þessari hlutaflár- aukningu samkvæmt heimildum Morgunblaðsins, en þau eru öll skilyrt á þann hátt, að féð verði ekki reitt af hendi, nema samningar takist við erlenda lánardrottna, sem alls eru eitthvað á þriðja hundrað, þó að 10 til 15 aðilar séu þar stærst- ir. Morgunblaðið hefur jafnframt heimildir fyrir þvi Amarflugsmenn muni þurfa að semja frá grunni við fulltrúa §ármálaráðuneytisins, reynist afkoma fyrirtækisins mun verri en bráðabirgðauppgjörið gaf til kynna. Þá muni fjármálaráðu- neytið setja fram þá kröfu að eigið fé fyrirtækisins verði aukið til muna, miðað við 95 milljón króna skilyrðið. Viðræður nýju hluthafanna við erlenda lánadrottna er ekki lokið, en í fyrradag var rætt við fulltrúa Air Lingus, í síðustu viku var rætt við fulltrúa Euro Control og f gær voru viðræður við fulltrúa KLM. Þeir aðilar sem staðið hafa í samn- ingaviðræðunum fyrir Arnarflugs hönd munu á næstu dögum ræða við aðra erlenda lánardrottna, og þegar niðurstöður þeirra viðræðna liggja fyrir, munu þeir bera saman bækur sínar og taka ákvörðun um hvort grundvöllur sé fyrir áfram- haldandi rekstri fyrirtækisins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.