Morgunblaðið - 16.09.1986, Síða 2

Morgunblaðið - 16.09.1986, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. SEFTEMBER 1986 Rafmagn komið í Viðey RAFMAGNSVEITA Reykjavíkur hefur lagt sæstreng frá Sunda- höfn út í Viðey og verður lokið við að tengja strenginn í dag. „Við reiknum með að ljós kvikni í eynni í dag," sagði Aðalsteinn Guðjonsen rafmagnsstjóri. Búið er að leggja rafmagn í kirkjuna og í Viðeyjarstofu og er ráðgert að hita húsin upp með rafmagni. Spennu- stöð hefur þegar verið reist og er stefnt að því að fella hana betur inn í iandslagið að sögn Aðalsteins. Hann sagði að rafmagn hefði verið á austurhluta eyjunnar þar sem Milljónafélagið hafði aðstöðu en eftir að starfsemin lagðist niður hefur ekkert rafmagn verið í eynni. „Við vonumst til að rafmagnið auð- veldi aila uppbyggingu í eynni og þá starfsemi sem fyrirhugað er að fari þar fram," sagði Aðalsteinn. Utvarps- mali afrýjaö ÁKVEÐIÐ hefur verið af hálfu ákæruvaldsins að sýknudómi Sakadóms Reykjavikur i „út- varpsmálinu“ svokallaða verði áfrýjað til Hæstaréttar. Ríkissaksóknari tók þessa ákvörðun í gær, en í dag eru liðnar tvær vikur síðan Sakadómur Reykjavíkur sýknaði tíumenning- ana, sem ákærðir voru í málinu. Var þeim gefið að sök að hafa haft forgöngu um að starfsmenn Ríkisútvarpsins stöðvuðu með ólög- mætum hætti útsendingar hljóð- varps mánudaginn 1. október 1984 og hófu ekki útsendingar sjónvarps sama kvöld. Ekið á flugvél EKIÐ var á eina af vélum Flug- leiða á Heathrow-flugvelli í London í gær. Tafðist vélin um sjö tíma vegna viðgerða. Flugvéljn, sem er af gerðinni Boeing 727, var nýlent á vellinum þegar óhappið varð. Bifreið, sem flytur mat út í flugvélarnar, ók á annan vængbrodd vélarinnar og skemmdi hann lítillega, m.a. brotn- aði ljós á vængenda. Um 120 farþegar, sem biðu eftir að vélin færi til íslands, fengu hótelherbergi og fæði á meðan á biðinni stóð. 3,31% lækkun dollara frá áramótum GENGI Bandaríkjadals gagnvart íslenskri krónu hefur lækkað um 3,31% frá áramótum. Á sama tíma hefur krónan hækkað um 3,42% gagnvart dalnum, skv. upplýsingum Seðlabanka Is- lands. Um áramót kostaði hver Banda- ríkjadalur 42 krónur en í gærmorg- un var hann skráður á 40,61 krónu. Frá áramótum hefur kanadískur dalur lækkað um 2,5% og sterlings- pundið um 0,2%. Aðrar myntir hafa hækkað gagnvart íslenskri krónu. Mest hækkun hefur verið á jap- önsku yeni, 25% frá áramótum. Aflaverðmætið 20 milljónir eftir 28 daga Siglufirði. SIGLFIRÐINGUR SI 150 kom úr sinni fyrstu veiðiferð í gær með 190 tonn af físki. Af þeim eru 150 tonn flök og 40 tonn heilfryst. Aflaverð- mætið er 20 milljónir en skipið var að veiðum í 28 daga. Fréttaritari Morgunblaðið/Svavar Magnússon Fyrstu loðnunni var landað á Ólafsfirði á sunnudag er Guðmundur ÓF kom með 620 lestir. Sett hefur verið upp ný loðnudæla við höfnina sem auðveldar mjög löndun til verksmiðjunnar. Mokveiði á loðmimiðunum: Verksmiðjur greiða yfir- leitt 1750 kr. átonnið LOÐNUVERKSMIÐJUR hafa til- kynnt loðnunefnd um þá ákvörð- un að greiða 1.750 krónur fyrir tonnið af loðnu. Gildir það verð um allar verksmiðjur á landinu að undanskilinni ríkisverksmiðj- unni á Reyðarfirði, sem er tilbúin til að greiða 1.850 krónur fyrir tonnið og verksmiðjunni á Krossanesi, sem boðið hefur 1.600 krónur á tonnið. Ráðamenn í Krossanesi greiða 10% hærra verð standist loðnan sérstakar ferskleikamælingar. Ákvörðun um loðnuverð gildir í sjö daga í senn og verður að þeim tíma liðnum tekin til endurskoðun- Guðjón Petersen um hugsanlegan Suðurlandsskjáifta: Ekki nóg gert til að fyrirbyggja Ijón „ÞAÐ ER ails ekki nóg gert til að fyrirbyggja tjón af völdum Suðurlandsskjálfta. Áætlað er að þróun fyrirhugaðs jarðskjálfta- mælinganets taki sex ár, en ég hef alls ekkert á móti því að það yrði gert á skemmri tima ef fjár- magn og tækniaðstoð væri ekki fyrirstaða. Verið var að ganga frá fjármagnsbeiðni til norrænu ráðherranefndarinnar í gær, en gert er ráð fyrir að í verkið þurfi um 35 milljónir króna,“ sagði Guðjón Petersen, framkvæmda- stjóri Almannavarna rikisins, í samtali við Morgunblaðið. Guðmundur E. Sigvaldason, for- stöðumaður Norrænu eldíjalla- stöðvarinnar, benti á í grein sinni í Morgunblaðinu sl. laugardag að sex ár væru of langur tími til að þróa mælinganetið. Verkinu þyrfti að ljúka eigi síðar en að tveimur árum liðnum, 1988. Þá spyr Guð- mundur í grein sinni: „Hvers vegna sækja íslenskir jarðskjálftafræðing- ar um fé í erlenda sjóði til að framkvæma verk, sem er Islending- um skylda og metnaðarmál að gera á eigin kostnað." Guðjón sagði að Almannavamir ríkisins hefðu verið með tillögur um fyrirbyggjandi aðgerðir í átta sl. ár, en íslenska þjóðin virtist of fá- tæk til að vinna fyrirbyggjandi ráðstafanir. Síðan 1978 hefur stofnunin farið fram á fé úr ríkis- sjóði til verkefnisins, en það hefur, í öll þessi ár, verið skorið niður. „Það liggur mjög á því að kanna þol bygginga m.t.t. jarðskjálfta, allt upp að 7,5 á Richterkvarða, sér- staklega stærri bygginga þar sem fólki er safnað saman, t.d. skólahús- næði, heilsugæslustöðvar, sjúkra- hús og félagsheimili." Guðjón sagði að það ætti eftir að þróa mælinganetið þannig að tímabilið ylti ekki einungis á fjár- magni heldur hvað vísindamenn væri klókir að koma því saman. „Æskilegt er að þróunin taki sem minnstan tíma, en við erum upp á hinar Norðurlandaþjóðimar komin, bæði viðvíkjandi fjárhagsaðstoð og eins tækniaðstoð. Suðurlandsundir- lendið er eitt af fimm svokölluðum rannsóknarsvæðum Evrópu sam- kvæmt samþykkt Evrópuráðsins og því er áhugi á meðal Evrópuþjóða um að vel megi til takast hér á landi. Mælinganetinu er ætlað að samtengja alla jarðskjálftamæla inn á boðveitukerfi fyrir tölvur þannig að mælamir sendi upplýsingar inn á móðurtölvu, sem ynni úr þeim upplýsingum. Hinsvegar vonast ég til að sjá megi fyrir endann á þolkönnun bygginga á Suðurlandi á næsta ári. Það er skylda ríkisins að sjá til þess að stærri byggingar a.m.k. verði athugaðar. Herða þarf bygg- ingareglur til muna enda ekkert tillit tekið til þeirra umbrota er kynnu að koma upp hér. Landsvirkj- un og Vegagerð ríkisins eiga þó heiður skilið hvað varðar þeirra framtak á sl. ári þegar mannvirki á þeirra vegum voru þolprófuð og þau styrkt sem á þurftu að halda. Þá bætti Landsvirkjun um betur með því að setja upp svokallaða hröðunarmæla, sem hjálpa til að meta hvernig jörðin hagar sér með tilliti til staðsetningar mælanna. Ahrif á jarðveg og byggingar geta verið mismunandi eftir undirlagi jarðarinnar. Mælarnir koma okkur einnig að gagni í framtíðinni varð- andi þróun byggingaaðferða," sagði Guðjón. ar. Ríkisverksmiðjurnar á Siglu- firði, Raufarhöfn og Seyðisfirði em tilbúnar til að greiða 1.750 krónur fyrir tonnið, og verksmiðjan á Reyð- arfirði býður 100 krónum betur, vegna meiri fjarlægðar frá miðun- um. Verksmiðjur í einkaeign á Eskifirði, Neskaupstað, Seyðisfirði, Bolungarvík, Reykjavík og Grindavík bjóða hins vegar allar 1.750 þótt þær séu misjafnlega vel staðsettar gagnvarf loðnumiðunum. Mokveiði hefur verið á loðnumið- unum norður af landinu undanfama daga. Frá því á föstudag og þar til á sunnudag tilkynntu 30 skip um afla, samtals 22.500 tonn. Sjö skip tilkynntu um afla á föstudag, sam- tals 5.200 tonn. Sjö skip fengu á laugardag 4.800 tonn og 16 skip tilkynntu um afla á sunnudag, sam- tals 12.500 tonn. Um 30 skip eru nú að loðnuveiðum og er veiðisvæð- ið aðallega við miðlínu norður af Kolbeinsey. t. ^ ' ■O* □ * | l 1,. ? 1 | Morgunblaðið/Öm Arason Mikinn reyk lagði út um glugga barnaherbergisins, þar sem eldur- inn kom upp. Eldur í barnaherbergi ELDUR kom upp í húsi við Hjallabraut í Hafnarfirði um klukkan 16:30 á laugardag. Urðu nokkrar skemmdir í húsinu af völdum þessa, en engan sakaði. Slökkviliðinu í Hafnarfírði barst tilkynning um að eld legði út um glugga á annarri hæð hússins. Þeg- ar komið var á vettvang voru reykkafarar sendir inn í íbúðina þar sem grunur lék á að barn hefði orðið eftir inni. Það reyndist þó ekki vera rétt og gekk greiðlega að ráða niðurlögum eldsins, sem mun hafa komið upp í barnaher- bergi- Orsök þessa eru þó enn ókunn. Töluverðar skemmdir urðu í íbúðinni, svo og íbúð á næstu hæð fyrir ofan, sem skemmdist af reyk.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.