Morgunblaðið - 16.09.1986, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1986
• •
011 börn í heiminum
verði bólusett gegn veiru
sjúkdómum fyrir
Aukist ekki fjöldi ónæmisað-
Sársaukinn varir aðeins andartak og kostnaðurinn er ekki mik-
ill. Væru bara öll börn svo heppin að fá slíka ónæmisgjöf myndu
ekki 3 milljónir ungra barna deyja af völdum veirusjúkdóma ár
hvert.
gerða frá því sem nú er, munu
20 mUlljónir barna deyja úr
mislingum á næsta áratug, 10
miUjónir úr stífkrampa, 6 millj-
ónir úr kíghósta og nærri 3
mUIjónir lamast _ ævilangt,
vegna mænuveiki. Ónæmislyf
við öllum þessum sjúkdómum
hefur verið til reiðu undanfarin
20 ár og kostnaðurinn við að
gefa sérhveiju barni, sem fæð-
ist í heiminn á hveiju ári, þessi
lyf, er minni en verð þriggja
nútíma herflugvéla.
Sameinuðu þjóðimar hafa því
sett sér það markmið, að árið
1990 varð þeim áfanga náð, að
öll böm í heiminum eigi kost á
að fá þessar ónæmisaðgerðir og
Bamahjálp Sameinuðu þjóðanna
fer þess á leit við öll aðildarríki
sín, að þau veiti þessu málefni lið.
Framkvæmdastjóri Barna-
hjálparinnr, James Grant, segir
„Nokkur ríki hafa þegar hafið
herferð til að ná þessu takmarki
og ný lyf og aðferðir til að veita
þau ásamt skipulögðum aðgerðum
í baráttunni við að koma þeim á
framfæri, þýðir að allar þjóðir
ættu nú að geta þetta."
Samtals 40 ríki hafa nú aukið
mjög ónæmisaðgerðir, til að ná
hinu fyrirhugaða markmiði 1990,
og á síðastliðnu ári skuldbundu
tvö mannflestu ríki heims, Indland
og Kína, sig opinberlega til að
standa við það fyrirheit.
Forsætisráðherra Indlands,
Rajiv Gandhi, hefur gefið út yfir-
lýsingu þess efnis að ónæmisað-
gerðir á bömum þar í landi eigi
að vera „lifandi minnismerki" um
móður hans, Indiru Gandhi. í Ind-
landi deyja árlega rúmlega milljón
böm úr sjúkdómum, sem lækna
má með ónæmislyíjum. Forseti
Kína, Li Xian-Nian, hefur tilkynnt
að ónæmisaðgerðir verði gerðar á
minnst 85% allra bama þar í landi
þegar árið 1988. Takist að ná
markmiðinu 1990 mun það koma
í veg fyrir dauða rúmlega 3 millj-
ón bama undir 5 ára aldri, ár
hvert.
Að skapa eftirspurn
Eftirspum eftir ónæmisaðgerð-
um hefur þrefaldast á undan-
fömum tveimur árum, og á þetta
við öll þjóðlönd. Fyrir fáum ámm
náðu ónæmisaðgerðir aðeins til
5% barna í vanþróuðu löndunum,
en síðastliðin tvö ár hafa nokkur
ríki eflt baráttuna og hefur böm-
unum fjölgað sumstaðar í 60%,
70% og jafnvel 80%, segir í árs-
skýrslu Bamahjálpar Sameinuðu
þjóðanna, UNICEF, á þessu ári.
Þessa skyndilegu aukningu má
rekja til tveggja stórsigra í barátt-
unni. Sá fyrri er að nú hefur
tekist að framleiða hitaþolin
ónæmislyf. Hinn seinni er að þús-
undir manna hafa hlotið þjálfun
í að gera þessar ónæmisaðgerðir
á undanfömum ámm. Námskeið
á vegum Bamahjálpar Sameinuðu
þjóðanna og Alþjóða-heilbrigðis-
stofnunarinnar, WHO, hafa verið
haldin í rösklega 100 ríkjum og
þar hlutu yfir 17.000 manns þjálf-
un við að gera slíkar ónæmisað-
gerðir.
Helstu umskiptin em þó þau,
að eftirsókn eftir ónæmisaðgerð-
um hefur stóraukist. Grant segin
„Það var ekki óvenjulegt að að-
eins 25% bama væm bólusett þó
ónæmisaðgerðimar stæðu til boða
í löndum þeirra." í skýrslu Bama-
hjálparinnar segir „Að láta
tugmilljónir foreldra vita hvar,
1990
hvenær og hversvegna ónæmisað-
gerir em gerðar, og ná enn meiri
fjölda bama á tilskyldum tíma á
ákveðinn stað, og það oftar en
einu sinni ár hvert, er umfangs-
mikið verk. Það krefst mikillar
skipulagningar og samtakamáttar
sem er heilbrigðisþjónustunni í
þeim ríkjum, sem mest þarfnast
þessarar þjónustu, langt um
megn. Hún hefur hvorki bolmagn
né reynslu á þessu sviði."
Stórkostlegt starf
almenning's
Hugmynd Bamahjálparinnar er
að virkja félagasamtök í barátt-
unni, láta almenning miðla
upplýsingum og veita aðstoð við
ónæmisaðgerðir.
Á síðastliðnu ári fór þetta al-
menningsstarf að bera árangur.
Hann virðist ætla að vera ótrúlega
góður.
Tvisvar á ári manna rúmlega
400.000 sjálfboðaliðar í Brasilíu
90.000 stöðvar, þar sem ónæmis-
aðgerðir fara fram. Stöðvar
þessar em þannig í sveit settar,
að þær em í göngufæri frá næst-
um hverri fjölskyldu. Þessum
„bólusetningardögum" var fylgt
eftir með mikilli auglýsingarher-
ferð. Sjónvarp og útvarp minntu
á aðgerðimar allt að tuttugu sinn-
um daglega og prestar áminna
einnig söfnuðina í stólræðum svo
ekki sé minnst á tilkynningar, sem
útvarpað er í leikhléum á knatt-
spymuleikjum. Árangurinn hefur
orðið sá, að mænuveiki hefur
næstum verið kveðin niður í Bras-
ilíu og 60% bama em orðin ónæm
gegn helstu banvænu veimsjúk-
dómunum.
Einnig hefur verið efnt til slíkra
„bólusetningardaga" í Kólumbíu.
Þar hafa rösklega 120.000 sjálf-
boðaliðar nú þegar bólusett 75%
allra bama í landinu. 200.000
kennarar minntu á bólusetning-
amar í skólum landsins og 2.000
prestar hvöttu söfnuði sína til
þátttöku.
í Tyrklandi er herferðin hafin
og rúmlega 4 milljónir bama hafa
fengið ónæmislyf í fyrstu umferð.
Föstudaginn áður en bólusetning-
in hófst vom tilkynningar um
nauðsyn ónæmisaðgerðanna lesn-
ar upp í 54.000 bænahúsum
múhameðstrúarmanna víðsvegar
um landið.
í skýrslu Bamahjálparinnar
segir, að það sem mest sé um
vert og hafi gert þetta fjöldaátak
alls almennings og svo ólíkra
hagsmunaaðila að vemleika, sé
að leiðtogar viðkomandi ríkja hafi
hvatt þegna sína til þátttöku.
Ríkisstjómimar bera kostnaðinn
af lyfjagjöfunum og ríkisfjölmiðl-
ar koma upplýsingum á framfæri
svo meirihluti bama í þessum fjöl-
mennu þjóðlöndum hljóti ónæmis-
aðgerðir.
Lokaorð skýrslunnar hljóða
svo: „Árangur hefur náðst vegna
þess að þjóðarleiðtogar hafa nú
gert sér Ijóst að markmið sem
þetta er stórkostlega mikilvægt
og í raun afar auðvelt að ná því.“
Nýtt barnaheimili vígt
á lóð Borgarspítalans
Furuborg og tekur 40 börn
- hlýtur nafnið
NÝTT barnaheimili, Furuborg,
var vígt á föstudaginn á lóð
Borgarspítalans og afhenti
Reykjavíkurborg spítalanum
dagheimilið til rekstrar en það
var byggt fyrir tilstuðlan
stjórnar Borgarspítalans. Áætl-
aður byggingarkostnaður með
lóð og búnaði er 17,8 milljónir
króna.
Dagheimilið er 320 fermetrar á
einni hæð. Tvær dagheimilisdeildir
em fyrir um 40 böm á aldrinum
eins til sex ára. Heimilið er steypt
upp á hefðbundinn hátt á stoðum.
Lóðarframkvæmdum mun ljúka
nú í september, en það er Þór
Snorrason garðyrkjumeistari, sem
var lægstbjóðandi í verkið. Út-
veggir em húðaðir að utan með
marmarasalla. Úlfar Linnet, 5 ára,
tók fyrstu skóflustunguna 13.
október 1985. Síðan var grafíð upp
úr gmnni hússins og samhliða
hófst hönnun og gerð útboðsgagna
sem lauk í byijun desember. Verk-
ið var þá boðið út fullfrágengið
en án innréttinga og lóðar. Lægst-
bjóðandi, Sveinbjöm Sigurðsson,
fékk verkið og skilaði byggingunni
í ágúst sl. Trésmiðja Erlendar
Péturssonar sá um innréttingar.
Umsjón með hönnun og bygg-
Furuborg, nýtt dagheímili á lóð
Borgarspítalans.
ingarstjóm hafði byggingadeild
borgarverkfræðings í samvinnu
við Magnús Skúlason, aðstoðar-
framkvæmdastjóra Borgarspítal-
ans. Eftirlit með þessari
framkvæmd höfðu starfsmenn
byggingadeildar, þeir Jóhannes
Benediktsson tæknifræðingur og
Helgi S. Gunnarsson eftirlitsmað-
ur.
Borgarspítalinn rekur nú 100
dagheimilisrými og 23 skóladag-
heimilisrými í Skógarborg og
bætist nú Fumborg við. Samtals
er þá rými fyrir 163 böm. Starfs-
menn á Fumborg hafa verið ráðnir
og verður Hrafnhildur Sigurðar-
dóttir forstöðukona.
Páll Gíslason, læknir og borg-
arfulltrúi, afhenti Furuborg
fyrir hönd Reykjavíkurborgar
í hendur Hrafnhildar Sigurð-
ardóttur forstöðukonu dag-
heimilisins.