Morgunblaðið - 16.09.1986, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1986
Frá sérsýningu: List og vísindi.
F eneyjabíennall III
Á Italíu eru listamenn taldir vera ungir fram að fertugsaldri.
„Opna sýningin“ á bíennalnum er nokkurs konar ungmennadeild
þar sem alþjóðleg dómnefnd valdi 49 unga listamenn til þátt-
töku. Tilskilið var að þeir hefðu aldrei verið með áður. Þennan
þátt bíennalsins er að finna í „Kaðlagerðinni" (Corderie dell’Ars-
enaie; sjóhershúsakynnum). Fljótt frá er að segja að ungu lista-
mennimir björguðu engu andliti. Kannski var dómnefndin of
rugluð til að valda hlutverki sínu; dómnefndir hafa gjarnan til-
hneigingu til að vera úti að aka.
Nunzio, sá er hlaut ungmenna-
styrkinn að þessu sinni, (jafnvirði
ca. 40 þús. DM) gerir myndir sem
eru á mörkum skúlptúrs og mál-
verks. Hann málar ávallt í
dökkum litum. Það er svo mikið
af birtu á Ítalíu allan ársins hring,
að það felst talsverður munaður
í því að mála dökkt.
En ...
Meiningin var að minnast að-
eins lítilsháttar á temasýninguna
„List og vísindi". Þessi sérsýning
innan ramma bíennalsins ein-
kenndist talsvert af glappaskot-
um. Ekki er þó ætlunin hér að
fara að segja ítalska glappaskota-
brandara.
„Listum og vísindum“ er skipt
niður í sjö einstakar heildir sem
bera yfirskriftimar „Rúmið",
„Liturinn", „Tækni og upplýsing",
„Líffræði og list“, „List og al-
kemía“, „Furðuherbergið" og
„Vísindi í þágu listar". Vísast er
þessari sýningu ætlað að trekkja
að mannfjölda. Fýrir þá sem ekki
eru mikið inni í listum gefur þama
á að líta ýmsan þann misskilning
sem almenningur telur vera list,
en er það ekki í ströngum skiln-
ingi. Eins konar rússíban.
Það þarf að laða fólk að bíenn-
alnum. Hann er kostnaðarsamt
fyrirtæki, sem eilíflega berst í
bökkum Qárhagslega; 1974 féll
hann t.d. niður vegna fjárskorts.
Vonast er eftir rúmlega tvöhundr-
uð þúsund borgandi gestum á
bíennalinn í sumar. Eru þetta
mest ferðamenn sem skilja eftir
sig vænar fúlgur í Feneyjum. Að
öðru leyti eru það ýmis stóriðnað-
arfyrirtæki sem borga brúsann.
Áður íyrr var það kirkjan og aðall-
inn sem studdi við bakið á
menningunni. Nú eru þessir aðilar
blankir en iðnaðarfyrirtæki hafa
tekið við hlutverki, sem er að reisa
í samtímanum þá minnisvarða er
seinna meir verða kallaðir glæst
afrek fortíðarinnar.
Er ekki nær fyrir Seðlabankann
að fara að gera út á list? Og önn-
ur ámóta fyrirtæki? Stolt þjóð-
anna er nú einu sinni menningin
sem þau hafa upp á að bjóða.
Þýzka sjónvarpið sendi út 45
mínútna þátt um Feneyjabíenn-
alinn. Eftir gondólainngang
byijaði það á íslandi Errós og
endaði á Polke, sjálfu sér; pró-
grammið var í dúr þessara greina,
tónarnir áþekkir og kurteisin látin
sitja í fyrirrúmi; mörgu sleppt af
ásettu ráði!
Myndlistarpáfinn í Róm heitir
Achille Bonito Oliva; eða hann
gegndi þessu óopinbera embætti
a.m.k. til skamms tíma. Hann
setti fram hugtakið „transavant-
gardia" yfir það málunaræði sem
ýmist var kallað „nýja málverkið"
eða „villta málverkið". Nú er þetta
víkjandi fyrirbæri í myndlistar-
heiminum og því er hann krítískur
í blaðadómi um bíennalinn í ár.
En ekki alveg óréttilega.
„Stóra svarta holan afskrifar
Beuys." Þannig hljóðar fyrirsögn
á grein Oliva. Svarta holrúmið er
að hans áliti sá partur bíennalsins
er kallast „List og akademía".
Erró hélt líka vatni af hrifningar-
leysi yfir þessu tilleggi til bíenn-
alsins, og talaði um að mestan
part væri þarna að finna þriðja
klassa listaverk. Hann sagðist
hafa þekkt Arturo Schwarz, er
skipulagði þetta framlag, en væri
feginn núna að hafa ekki séð
hann í fimmtán ár. Sjálfur þykist
ég vita, jafn hallærislegt og það
er kannski að segja það, að þama
er túristabeitan. En svo var það
ekki ætlun mín að fara að segja
ítalska glappaskotsbrandara.
Hvemig í ósköpunum hinir ítölsku
skipuleggjendur fóm að því að
yfirsjá Joseph Beuys, minnir mig
óhjákvæmilega á íslenzkan
kmmmaskuðshátt, sem ég er allt-
af að vona að fari nú bráðum að
líða undir lok. Beuys var á alkem-
istalínunni og þótt ég hafi aldrei
verið persónulega aðdáandi hans,
tekst mér ekki að líta fram hjá
þeirri staðreynd, hver áhrif hann
hefur haft í þessum heimi sem
kallaður er myndlistarheimur, á
þessari öld; hann var þýzkur áður
en hann hvarf til jarðarinnar í
janúar síðastliðnum. Jarðneskur
heitir það að vera dáinn.
Alkemistalínan. Hvernig á að
útskýra hana í sem allra stystu
máli? Stundum held ég að íslensk-
an sé jafn blönk og ríkiskassinn,
og jafn mikið á hvínandi kúp-
unni. Það góða, hins vegar við
íslenzkuna er þó það, hversu tak-
markað svigrúm hún hefur til að
fara út í verðbólguorðaleiki. Eða
er mér að skjátlast?
Hugtök í myndlist em, eins og
í lífínu sjálfu, ákaflega mikið á
reiki. Allir láta samt sem þeir séu
með á nótunum. Orðið gullgerðar-
list kemur hér ekki fyllilega að
notum nema höfð sé í huga þráin
eftir hinu óræða og næstum því
óhöndlanlega í mannssálinni. List-
in er ólík vísindunum að því leyti
að hún reynir að gera leyndum
mannsins skil, þegar henni tekst
best upp. Vísindin í dag virðast
hins vegar blunda yfir lítt dulbú-
inni mannkynssjálfsmorðshneigð.
Sú miðaldahugmynd að umbreyta
mætti óæðri málmum í gull,
heppnaðist reyndar aldrei í önd-
verðunni, þótt mikið væri reynt
af alkemistum. Þeir reyndust
flestir vera loddarar á sinni samtíð
þótt gullgerðarlistin hafi aftur á
móti lagt grundvöllinn að nútíma
efnafræði. í dag er vitað með vissu
að eitt frumefni getur breyst í
annað. Sólin sem skín á okkur
annast t.d. slíka starfsemi. Hvað
snertir listamenn í dag og al-
kemíu þá er eftirsóknin ekki eftir
gulli, kannski fremur eftir breyttu
vitundarástandi mannsins, þar
sem skilningur situr í fyrirrúmi
og maðurinn verður frjáls: þjóð-
félagslegi skúlptúrinn vaknar til
vitundar um sjálfan sig. Listin
þráir nýtt endurreisnartímabil.
I heildina tekið þá sýnir sú list
sem bíennallinn í Feneyjum hefur
upp á að bjóða í ár, að vandamál
líðandi stundar eiga ekki mikið
upp á pallborðið. Hinar þungu
vafir fyrirtækisins valda því. Engu
að síður er ástæða til þess að
óska eftir a.m.k. þijátíu svona
bíennölum til viðbótar, þrátt fyrir
allt. Heimurinn stendur þá í það
minnsta á meðan.
TEXTI OG MYNDIR:
Einar Guðmundsson
BORNIN VEUA
pkiumobil
JLívesrpnai t
LAUGAVEGI 18A - 101 REYKJAVlK - SlMAR 11135, 14201