Morgunblaðið - 16.09.1986, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1986
Óskabyrjun Jusupov í úr-
slitaeinvíginu við Sokolov
Skák
Margeir Pétursson
ATHYGLI skákáhugamanna
víða um heim beinist nú að
heimsmeistaraeinvígi þeirra
Kasparovs og Karpovs þar sem
hinn fyrrnefndi er langt kominn
með að hafa betur. Þeir tveir
hafa nú teflt þijú heimsmeistara-
einvígi á þremur árum og það
mætti halda að þeir hafi einka-
rétt á að tefla um heimsmeistara-
titilinn. Svo er þó auðvitað ekki,
annað hvert ár hefst ný heims-
meistarakeppni sem endar í því
að sá sem kemst ósigraður í
gegnum svæðamót, millisvæða-
mót, áskorendamót og loks
áskorendaeinvígi mætir heims-
meistaranum. Keppnin sem hófst
1985 er nú að komast á lokastig
og tveir ungir Sovétmenn, Artur
Jusupov, 26 ára og Andrei Sok-
olov, 23ja ára, heyja nú úrslita-
einvígi um áskorunarréttinn á
þann sem tapar í einvígi þeirra
Kasparovs og Karpovs.
Þetta allt virðist nokkuð rugl-
ingslegt og því er ekki að neita að
heimsmeistarakeppnin í skák hefur
verið í mikilli óreiðu síðan Campo-
manes frestaði fyrsta einvígi
Kasparovs og Karpovs í febrúar
1985. Það þýddi það að hvorugur
þeirra hafði tíma til að taka þátt í
næstu lotu heimsmeistarkeppninn-
ar. Það að lotumar höfðu verið
styttar í tvö ár bætti ekki úr skák
og steininn tók úr þegar Karpov
fékk að nýta sér ákvæði um hefnd-
areinvígi, en það einvígi stendur
einmitt yfir núna.
Það þarf því að tefla mörg ein-
vígi á stuttum tíma og þeir
Kasparov og Karpov njóta að vissu
leyti báðir góðs af ringulreiðinni.
Áður þurfti sá sem tapaði heims-
meistaraeinvígi að byrja í átta
manna úrslitum áskorendaeinvígj-
anna, en vegna tímaskortsins mun
sá þeirra sem tapar tefla við sigur-
vegarann í yfírstandandi áskor-
endakeppni. Með öðrum orðum, tapi
Karpov, eins og allt útlit er fyrir,
þarf hann aðeins að sigra í einu
einvígi (gegn Jusupov eða Sokolov)
og þá hefur hann unnið sér rétt til
að skora á Kasparov á næsta ári.
Sá möguleiki er sem sagt raun-
hæfur að þeir Kasparov og Karpov
tefli fjórða einvígi sitt á næsta ári
og það skyldi enginn halda að
Karpov gefist upp, ef hann fær
áskorunarréttinn í fjórða sinn mun
hann örugglega nýta sér hann. Enn
er sagan ekki öll sögð, eftir áramót-
in hefst heimsmeistarakeppnin
1987—88 með svæðamótum og
henni lýkur með heimsmeistaraein-
vígi árið 1988, nema þá að þing
alþjóðaskáksambandsins í Dubai
grípi í taumana.
Það skal engan undra þó sumir
beztu skákmenn heims uppnefni
Campomanes, forseta FIDE, og
kalli hann ýmist „Karpovmanes"
eða „Campomadness".
Þessi þéttu einvígi og tveggja ára
lota þýða gifurlegt álag á beztu
skákmenn heims, sem geta vart
sinnt öðrum verkefnum en þátttöku
í heimsmeistarakeppninni og undir-
búningi fyrir næstu einvígi.
Skákáhugamenn og meistarar
fagna hins vegar þessum tíðu við-
burðum, rétt eins og lýðurinn í
Rómaveldi þekkti þá skemmtan
bezta að horfa á örmagna skylm-
ingaþræla beijast til síðasta blóð-
dropa.
Sú tíð er liðin að nýbakaðir
heimsmeistarar gátu slappað af í
þijú ár fyrir næsta einvígi. Vinur
vor Boris Spassky fór reyndar flatt
á því, hann gætti þess ekki að halda
sér í nægilegri æfingu og varð frem-
ur auðveld bráð fyrir Bobby Fischer.
Það var vafalaust rétt ákvörðun hjá
FIDE að hafa heimsmeistarakeppn-
ina á tveggja ára fresti í stað
þriggja áður, en hin umdeilda febrú-
ar-ffestun Campomanesar í fyrra
setur svo stórt strik í reikninginn
að nýja kerfið verður ekki farið að
ganga eðlilega fyrir sig fyrr en í
þeirri lotu heimsmeistarakeppninn-
ar sem hefst í ársbyijun 1989.
Ég vona að flestum sé nú ljóst
af hveiju það er alltaf verið að tefla
um heimsmeistaratitilinn og vík nú
sögunni til Riga í Sovétlýðveldinu
Lettlandi þar sem þeir Jusupov og
Sokolov tefla um það hvor þeirra
fái að ógna veldi Kasparovs og
Karpovs.
Þar er nú lokið þremur skákum
af ijórtán og hefur Jusupov unnið
fyrstu og þriðju skákina, en ann-
arri skákinni lauk með jafntefli.
Hann hefur því tekið tveggja vinn-
inga forystu og það bil verður
vafalaust erfítt að brúa í svo stuttu
einvígi, sérstaklega þar sem Jus-
upov er afskaplega traustur
skákmaður. Hann teflir þungan
stöðustíl, en Sokolov er hins vegar
fulltrúi alveg gagnstæðrar stefnu.
Hann teflir afskaplega hvasst og
er ófeiminn við að taka áhættu,
enda taugasterkur með afbrigðum.
Það kom geysilega mikið á óvart
að þessir tveir skákmenn skyldu
komast alla leið í úrslit áskorenda-
einvígjanna og fáir veðjuðu á þá í
undanúrslitunum. En andstæðingar
þeirra þar áttu ekkert svar við sig-
urvilja og taugastyrk ungu mann-
anna og biðu algjört afhroð.
Jusupov vann Timman 6—3 og Sok-
olov burstaði Vaganjan 6—2.
Það er athyglisvert að báða sigra
sína hefur Jusupov unnið á svart.
Strax í fyrstu skákinni náði hannn
að beina skákinni í farveg þungrar
stöðubaráttu. Hann náði frum-
kvæðinu með skiptamunsfóm í 29.
leik og stóð betur þegar skákin fór
í bið. I framhaldinu missti Sokolov
þolinmæðina og varð að gefast upp
eftir 72 leiki:
Artur Jusupov
Hvitt: Andrei Sokolov
Svart: Artur Jusupov
Frönsk vörn
1. e4 - e6, 2. d4 - d5, 3. Rc3 -
Bb4, 4. e5 — c5, 5. a3 — Bxc3+
Vaganjan tapaði tveimur skákúm
fyrir Sokolov í 5. — Ba5 afbrigð-
inu, svo það kemur vart til með að
sjást mikið á næstunni.
6. bxc3 - Re7, 7. Rf3 - b6!?, 8.
Bb5+ - Bd7, 9. Bd3 - Ba4!
Að negla niður hvíta a peðið á
þennan hátt þótti gott á dögum
Botvinniks og í gamla daga lék t.d.
Fischer strax 7. a4 til að útiloka
þetta.
10. h4 - h6, 11. h5 - Rbc6, 12.
Hh4 - c4, 13. Be2 - Kd7!
Jusupov finnur fljótvirkustu leið-
ina til að koma kóngnum í öruggt
skjól á drottningarvængnum og
drottningunni í spilið á kóngsvæng.
14. Be3 - Dg8, 15. Dd2 - Dh7,
16. Hcl - Kc7, 17. Hf4 - Haf8,
18. Rh4 - Rd8, 19. Bg4 - Kb7,
Samnorrænt þing um
verslunarskólamenntun:
Samstarf fyrir-
tækja o g skóla
einkenna nám
næstu 10 árin
DAGANA 2. til 7. september var
haldið samnorrænt þing verslun-
arskólakennara á Hótel Loftieið-
um. Þátttakendur voru 30 frá
Norðurlöndunum og var meðal
annars fjallað um tengsl verslun-
arskólamenntunar og atvinnu-
lífsins. Helge Sindal var einn af
þátttakendum, en hann er form-
aður nefndar sem vinnur að
auknu samstarfi milli verslunar-
skólanna á Norðurlöndunum.
Helge var spurður hvað helst
hefði verið til umræðu á þessu
þingi. „Að þessu sinni fjölluðum við
mest um hvemig þróunin yrði í
verslunarskólamenntun næstu 10
árin. Undanfarin ár hafa miklar
breytingar átt sér stað í atvinnulíf-
inu og við verðum að hafa þær í
huga þegar við skipuleggjum versl-
unarskólanámið næstu 10 árin. Við
höfum komist að þeirri niðurstöðu
að áherslu þurfi að leggja á víðtæk-
ara nám í framtíðinni, fólk kemur
til með að skipta oftar um störf og
þar sem tölvuvæðingin hefur haldið
innreið sína kallar hún á starfs-
krafta sem þurfa að búa yfir
víðtækari menntun, þurfa m.a. að
geta sótt upplýsingar til ýmissa
upplýsingabanka. Því er nauðsyn-
legt að nemendur tileinki sér sjálf-
stæð vinnubrögð, en jafnframt er
mikilvægt að þeir geti unnið með
öðrum."
—' Er menntun kennara í sam-
ræmi við þær breytingar sem orðið
hafa í atvinnulífinu?
„Kennarar eru óðum að tileinka
sér þessa nýju tækni, en það geng-
ur ílla að fá kennara að skólunum.
Launin eru lág víðast hvar og þeir
Morgunblaðið/Þorkell
„Höfum breytingar í atvinnulíf-
inu í huga er við skipuleggjum
verslunarskólamenntun næstu 10
árin.“ Helge Sindal formaður
nefndarinnar.
sem eru útsjónasamir fá sér vinnu
við eitthvað annað en kennslu, því
launin eru mun hærri annars stað-
ar. Menn þurfa að vera mjög elskir
að kennslu til að fást til starfa.“
— Einhveijar nýjungar sem þið
sjáið fyrir í framtíðinni?
„Við teljum að verslunarskóla-
menntun verði í framtíðinni að hluta
til numin í skólum og að hluta til
hjá fyrirtækjunum. Það hafa verið
gerðar tilraunir með þetta form í
nokkrum löndum og gefist mjög
vel, bóklegt nám fer fram í skólun-
um og starfsreynsla í fyrirtækjun-
um. Þetta kallar á nána samvinnu
milli fyrirtækja og skólanna en er
líklegt til að verða árangursríkt á
næstu árum.“
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Lubbar og
geimleigu-
morðingjar
Lepparnir (Critters). Sýnd í
Laugarásbíói. Stjörnugjöf
★ ★ ‘/2 Bandarísk. Leikstjóri:
Stephen Herek. Handrit: Steph-
en Herek og Domonic Muir
eftir sögu Domonic Muir.
Framleiðandi: Rupert Harvey.
Kvikmyndataka: Tim Suhr-
stedt. Tónlist: David Newman.
Aðalhlutverk: M. Emmet
Walsh, Dee Wallace Stone, Billy
Green Bush, Scott Grimes og
Nadine van der Velde.
Við eigum ekkert orð yfir svona
myndir en í Bandaríkjunum eru
þær kallaðar „sleepers". Það
merkir, ef hér er farið rétt með,
myndir sem koma á óvart; sem
haldið var að væru hvorki fugl
né fiskur en svo kemur í ljós að
þær vekja athygli og fá góða að-
sókn eins og uppúr þurru. Þannig
mynd er Lubbamir (Critters), sem
sýnd er í Laugarásbíói. Hún kem-
ur skemmtilega á óvart.
Hún sver sig óneitanlega í ætt
við Gremlinmyndina hans Spiel-
bergs (hvar gætir ekki áhrifa frá
Spielberg þessa dagana?) þvi hún
er um furðudýr, viðbjóðsleg lítil
kvikyndi sem vel væri hægt að
rugla saman við gæludýr ef þau
hefðu ekki tannaraðir á við mann-
ætuhákarla og ætu allt nema
rafmagnstöflur. Hljóðið sem þau
gefa frá sér er smjatthljóð og þau
koma utan úr geimnum. Ólíkt
Gremlinpúkunum er ekkert ævin-
týralegt við Lubbana. Þeir borða
fómarlömb sín. Og nú eru þeir
lentir á jörðinni hjá bóndanum
Brown og hans ijölskyldu.
En þótt kvikmyndin sé ansi
blóðþyrst er það húmorinn sem
ræður ferðinni í þessari mjmd.
Það eru margar góðar týpur í
henni, sumar kunnuglegar en aðr-
ar ekki. Jay Brown (M. Emmet
Walsh) er bóndinn sem verður
fyrir árás Lubbanna, Brad (Scott
Grimes) og April (Nadine van der
Velde) eru krakkamir hans, hann
er prakkari með sprengjudellu,
hún er skotin í nýja gæjanum í
skólanum sem er frá New York
og Helen (Dee Wallace Stone) er
mamman. Að auki koma nokkrar
persónur úr smábænum í grennd-
inni við sögu. Lögreglustjórinn er
feitur og tyggur skro og er pirrað-
ur á bæjarbúum og enginn er
meira þreytandi en bæjarbyttan
Charlie (Billy Green Bush), sem
heldur að hann fái radíósendingar
utan úr geimnum í tennumar á
sér. Daman á lögreglustöðinni er
eins og málverk í framan og hún
veit allt um Travolta og aðstoðar-
lögreglustjórinn er sífellt að Ieika
sér í talstöðinni. „Þetta er dýra-
garður," stynur stjórinn.
En undarlegastar af öllum eru
persónumar sem koma utan úr
geimnum til að eyða Lubbunum.
Það eru tveir geimleigumorðingj-
ar með litlar fallbyssur sér við
hlið og þeir geta breytt andliti
sínu í hvað sem er. Annar þeirra
er eins og fræg rokkstjama og
hinn getur ekki ákveðið hvemig
hann vill vera svo hann er alltaf
að breyta sér, fólki til mikillar
undrunar.
Með þessum liðsöfnuði og
Lubbunum að auki getur leikstjór-
anum og handritshöfundinum,
Stephen Herek, ekki mistekist.
Handritið er oft bráðskemmtilegt;
aulalegar tilraunir geimleigu-
morðingjanna til að aka bifreið
eru jafnfyndnar og Lubbamir eru
hræðilegir. En meira að segja
Lubbamir geta verið fyndnir með
stuttum athugasemdum um lífíð
á jörðinni. Leikaramir eru allir
vel stilltir inn á þessa blöndu af
gamni og alvöru og blandan er
vel hrærð og skaðlaus og gerir
Lubbana að fyrirtaksskemmtun.
Poltergeist II:
Hin hliðin
Poltergeist II. Hin hliðin (Polt-
ergeist II: The Other Side).
Sýnd í Bíóhöllinni. Stjörnugjöf:
★ ★
Bandarísk. Leikstjóri: Brian
Gibson. Handritshöfundar og
framleiðendur: Michael GraJs
og Mark Victor. Tónlist: Jerry
Goldsmith. Kvikmyndataka:
Andrew Laszlo. Helstu hlut-
verk: Jobeth Williams, Craig
T. Nelson, Heather O’Rourke,
Oliver Robins og Julian Beck.
Þá er okkur enn boðið á heim-
ili hinnar hijáðu Freelingfjöl-
skyldu nokkrum árum eftir að
Steven Spielberg bauð okkur að
líta inn til þeirra í myndinni Polt-
ergeist. Fjölskyldan hefur lítið
breyst síðan við sáum hana síðast
nema hvað hún er hætt að horfa
á sjónvarp. Þið munið. Það var í
gegnum sjónvarpið sem hinir illu