Morgunblaðið - 16.09.1986, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1986
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN
Næstu námskeið
Baldýring 18. sept.
Myndvefnaður 23. sept.
Fatasaumstaekni 1. okt.
Leöursmiði 4. okt.
Vefnaöarfræöi 6. okt.
Tauþrykk 7. okt.
Brugöin bönd 8. okt.
Vefnaður f. börn 11. okt.
Knipl 11. okt.
Innritun fer fram aö Laufásvegi
2. Upplýsingar i síma 17800.
Hilmar Foss
lögg, skjalaþýö. og dómt.,
Hafnarstræti 11,
simar 14824 og 621464.
Listmálunarhönnun
Myndræn skilta- og plakathönn-
un. Uppl. í síma 77164 á kvöldin.
Karvel Gránz, listmálari.
National olíuofnar
Viögeröa- og varahlutaþjónusta.
Rafborg sf.,
Rauðarárst. 1, s. 11141.
Athugið!
Tek aö mér fatasaum fyrir fólk.
Einnig handprjóna ég peysur.
Er ódýr. Hafiö samband i síma
17137. Geymiö auglýsinguna.
Dyrasímaþjónusta
Gestur rafvirkjam. — S. 19637.
Innanhússkallkerfi
2ja, 3ja og 4ra stööva.
Rafborg sf„
Rauöarárst. 1, s. 11141.
Aðstoða námsfólk
í islensku og erlendum málum.
Siguröur Skúlason magisler,
Hrannarstíg 3, simi 12526.
Raflagnir — Viðgerðir
S.: 687199 og 75299
Vanish-undrasápan.
Ótrúlegt en satt. Tekur burtu
óhreinindi og bletti sem hvers
kyns þvottaefni og sápur eöa
blettaeyðar ráöa ekki viö. Fáein
dæmi: Olíur, blóð, gras, fitu, lim,
gosdrykkja- kaffi- vin- te- og
eggjabletti og fjölmargt fleira.
Nothæft alls staöar t.d. á fatn-
aö, gólfteppi, málaða veggi, gler,
bólstruö húsgögn, bilinn utan
sem innan o.fl. Orvals handsápa
algerlega óskaöleg hörundinu.
Notiö einungis kalt eöa volgt
vatn. Nú einnig í fljótandi formi.
Fæst í flestum matvöruverslun-
um um land allt. Heildsölubirgö-
ir, Logaland, heildverslun, simi
12804.
I.O.O.F. R6. 4 = 1359168V2
S.P.K.Ú.
I.O.O.F.= Ob. 1,P. = 1689168'/2=
Fíladelfía Hátúni 2
Almenn samkoma i kvöld kl.
20.30. Ræöumaöur Einar J.
Gislason.
UTIVISTARFERÐIR
Helgarferð 19.-21. sept.
Haustlrtaferð og grlllveisla f
Þórsmörk.
Árleg ferð sem enginn vill missa
af. Margir möguleikar til göngu-
feröa. Gist i Útivistarskálunum í
Básum meðan pláss leyfir, ann-
ars tjöldum. Góö fararstjórn.
Uppl. og farm. á skrifst. Grófinni
1, simar 14606 og 23732.
Sjáumst.
raöauglýsingar — radauglýsingar — raðauglýsingar |
Deild SÍBS Hafnarfirði
Boðað er til fundar í veitingahúsinu Gafl Inn
á Dalshrauni 13, miðvikudaginn 17. sept-
ember 1986 kl. 20.30.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Björn Magnússon læknir á Reykjalundi
flytur erindi.
3. Stjórn SÍBS segir frá starfsemi sam-
bandsins.
4. Önnur mál.
Þess er vænst að sem flestir berkla- og
brjóstholssjúklingar mæti á fundinn.
Stjórnin.
Byrjið strax að hugsa
Fyrsti fundur skólanefndar Heimdallar á þessum vetri verður haldinn
nk. þriðjudag, hinn 16. september, kl. 20.00. Fundarstaður er neöri
deild Valhallar, Háaleitisbraut 1.
Dagskrá:
1. Nýir embættismenn skólanefndar kynntir og samþykktir.
2. Starfiö í vetur.
3. Nýr skóli — hugmyndaflóð.
4. Önnur tilfallandi mál.
Skólafólk er vinsamlegast beöiö um aö byrja strax (raunar ekki siöar
en í gær) að hugsa upp nýjar hugmyndir um starfiö og efni NS og
fjölmenna svo á fundinn. Nýir félagar eru sérstaklega hvattir til aö
mæta, allir fá kók og prins til að örva hugmyndaflugiö.
Skólanefnd Heimdallar.
Sjálfstæðisfólk Húsavík
Félagsfundur verður haldinn i sjálfstæöisfélagi Húsavíkur þriöjudag-
inn 16. september kl. 20.30 á Árgötu 14 (kosningaskrifstofu).
Þingmennirnir Halldór Blöndal og Björn Dagbjartsson mæta.
Mæ,um ÖIL Stjórnin.
Sjálfstæðisflokkurinn
— prófkjör
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins i Norðurlandskjördæmi eystra
samþykkti á aöalfundi þann 6. september aö viðhafa prófkjör viö
val frambjóöenda á lista Sjálfstæöisflokksins fyrir næstu alþingis-
kosningar. Auglýst er eftir frambjóöendum í prófkjör sem fram fer
laugardaginn 18. október nk. Skilafrestur þátttakenda i prófkjörinu
rennur út á miðnætti 20. september 1986. Framboöum veröi skilaö
til formanns kjördæmisráðs, Sigurðar Hannessonar, Austurbyggö
12, 600 Akureyri, fyrir kl. 24.00 laugardaginn 20. september 1986.
Nánari upplýsingar gefur formaður kjördæmisráös, Sigurður Hannes-
son, í sima 96-23076.
Stjórn kjördæmisráös.
Borgnesingar
Sjálfstæðiskvennafélag
Borgarfjarðar
heldur fund þriöjudaginn 16. september kl. 21.00 í Sjálfstæðishúsinu
Borgarnesi. Konur mætiö vel og takiö þátt i vetrarstarfinu. Nýir félag-
ar velkomnir.
Stjórnin.
Tálknafj ör ður:
Ungur athafnamaður tek-
inn við af kaupfélaginu
BJARNABÚÐ heitir nú fyrrum
útibú Kaupfélags Vestur-Barð-
• strendinga á Tálknafirði, en
ungur athafnamaður, Bjarni
Kjartansson keypti það nú í sum-
ar.
Bjami leit fyrst dagsins ljós í
Reykjavík 1951, sonur Kjartans
kaupmanns Jónssonar og Margrét-
ár Thorberg Magnúdóttur konu
hans. Til Tálknafjarðar kom hann
fyrst fyrir átta árum sem barna-
kennari, en fyrir þremur árum hóf
hann rekstur verslunar sem hann
kallaði Bjamabúð, í 55 fermetra
skúr.
Þar fengust bækur, ritföng,
gjafavörur og fleira smávegis.
„Vegna smæðar húsnæðisins var
, þar þröngt, ekki síst í jólaösinni og
v höfðum við þá á orði í Bjamabúð,
að ef þú finnur ekki það sem þú
leitar að í fyrstu tveimur umferðun-
um fínnur þú það kannski í þeirri
þríðju, ef þú skríður," sagði Bjami.
Hvað lesa menn helst á Tálkna-
fírði? „Menn lesa nú aðallega
afþreyingarbækur," sagði Bjami,
„en það eru alltaf nokkrir góðir
viðskiptavinir sem kaupa góðar
bækur. Mér þykir verst hvað ég get
boðið upp á lítið af góðbókmennt-
um, en markaðurinn er svo smár
hérna.“
Það er stórt stökk að fara úr
smákompu í nýbyggt glæsilegt 360
fermetra verslunarhúsnæði. „Ég
ætla að vera með alhliða verslun.
Góðir menn hafa hjálpað mér af
stað með þetta. Verslunarsjóður og
Verslunarbankinn hafa verið liðleg-
ir við mig. Ég kaupi þetta á 11,2
milljónir auk lítilsháttar lagers sem
eftir er að rneta." sagði Bjarni.
Nú hefur verslun gengið erfið-
lega á Tálknafírði, fyrst gefst
Kaupfélag Tálknafjarðar upp á að
reka þarna verslun og síðan Kaup-
félag Vestur-Barðstrendinga.
Hvemig lýst Bjama á rekstrarskil-
yrðin?
„Það á að ganga. Mín skoðun
er sú að ef þjónusta við fólk á stað
eins og Tálknafirði er góð, þá gangi
þetta. Hér eru verðmæti þjóðfélags-
ins sköpuð. Þessi staður er víðkunn-
ur fyrir einstaka gæðaframleiðslu
og Tálknafjörður er í stöðugri upp-
byggingu, þar sem meðaltekjur eru
með því hæsta á landinu. Ef verslun
gengur ekki á svona stað, þá er
eitthvað stórt að í okkar þjóðfélagi.
Þá verðum við að reikna þjóðfélags-
dæmið og forsendur þess, alveg upp
á nýtt,“ sagði Bjarni með þungri
áherslu.
„Það fínnst varla staður með
meiri verðmætasköpun á mann.
Skipin hérna koma með einstaklega
gott hráefni að landi, svo að slíkt
þekkist varla annars staðar á
landinu, og afurðir héðan em þekkt-
ar á erlendum mörkuðum fyrir
gæði sín.“ Þar eygir Bjarni mögu-
leika á að færa enn meira út
kvíamar í framtíðinni, að setja upp
matvælavinnslu sem vinni úr þessu
góða hráefni, fyrst fyrir innanlands-
markað, en seinna meir kannski til
útflutnings.
Bjarni er formaður Sjálfstæðis-
félags Tálknaíjarðar, en það var
stofnað 1983 og bauð fyrst fram
nú í vor og vann hreinan meiri-
hluta, 3 af 5 hreppsnefndarmönn-
um. „Ég efa að D-listinn hafí
nokkurs staðar á Vestfjörðum unn-
ið glæsilegri sigur nema kannski
hjá vinum mínum á fsafírði. Brott-
flutningur fólks frá ísafírði varð til
að sá sigur virðist mun minni en
hann var í raun.“ sagði Bjami þeg-
ar það áhugamá! hans bar á góma.
Bjarni Kjartansson í Bjarnabúð ásamt konu sinni Vilborgu írisi Vil-
bergsdóttur.
Eigendur heildverslunarinnar Ison, Ingólfur A. Steindórsson og Inga
Þyri Kjartansdóttir.
20 þúsund fyrir gamla greiðu
ÞÝSKU Hercules greiðuverk-
smiðjurnar leita nú að elstu
gúmmígreiðunni á Islandi.
Allar gúmmígreiður frá Hercules
eru stimplaðar með framleiðsluár-
tali sínu svo að auðvelt á að vera
að sjá hvenær hver greiða er fram-
leidd. Sá sem framvísar elstu
Hercules-gúmmígreiðunni fær
greitt andvirði þyngdar hennar í
gulli.
Gullverð er nú 414 dollarar únsan
eða um 540 krónur grammið. Ekki
er gott að segja hve þung elsta
greiðan er en andvirði hennar er
áætlað á bilinu 5-20 þúsund krónur
í gulli.
Heildverzlunin Ison hefur einka-
umboð fyrir Hercules-vömr á
íslandi. Fyrirtækið er flutt í nýtt
húsnæði í Hamraborg 14a í Kópa-
vogi. Greiðueigendur em beðnir að
snúa sér þangað eigi þeir gamlar
Hercules-greiður.
Selkórinn hefur vetrarstarf sitt
Selkórinn á Seltjarnarnesi er nú
senn að hefja starfsemi sína. Kórínn
er blandaður og nú vantar nokkra
nýja meðlimi til að taka þátt í starf-
seminni í vetur. Fyrirhugað er að
æfa einu sinni til tvisvar í viku
undir stjóm Helga R. Einarssonar.
Æfingar fara fram í Tónlistarskóla
Seltjamarness. Formaður kórsins
er Stefán Hermannsson.