Morgunblaðið - 16.09.1986, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1986
51
eitt mesta bridsmót sem haldið hef-
ur verið. Yfir 50 pör (100 manns)
eru þegar skráð til leiks. Tryggt
hefur verið, að allt húsnæðið að
Gerðubergi verður undirlagt spila-
áhugafólki, þannig að enn er hægt
að bæta við nokkrum pörum. Loka-
frestur til að tilkynna þátttöku,
rennur út fimmtudaginn 13. sept-
ember nk. Hægt er að hafa
samband við Ólaf Lárusson á skrif-
stofu Bridssambandsins (13350)
eða heima (16533).
Mjög glæsileg verðlaun eru í
boði, m.a. verða 1. verðlaun flug
fyrir tvo til Kaupmannahafnar eða
Salzborgar (að vali) með Samvinnu-
ferðum/Landsýn.
Keppnisgjaldi er mjög stillt í hófi,
aðeins kr. 600 pr. spilara. Að auki
verður spilað um silfurstig. Keppn-
isstjóri verður Ólafur Lárusson en
Vigfús Pálsson mun annast tölvu-
vinnslu útreiknings.
Sumarbrids 1986
Sumarbrids 1986 lauk í vikunni.
Spiiað var tvisvar í viku alls 29
spilakvöld, á þriðjudögum og fimm-
dögum. Keppni var tvískipt. Á
þriðjudögum mættu um 400 pör til
leiks á 11 spilakvöldum, sem gerir
um 36 pör að meðaltali á kvöld.
Á fimmtudögum mættu um 820
pör til leiks á 13 spilakvöldum, sem
gerir um 46 pör að meðaltali á
kvöld. Alls tóku því um 1.220 pör
þátt í Sumarbrids 1986. Kvöldvinn-
ingar voru veittir til 120 para á
þessum 29 spilakvöldum, þannig
að _ca. 1100 pör standa eftir.
Á þriðjudaginn mættu 28 pör til
leiks og var að venju spilað í tveim-
ur riðlum.
Úrslit urðu:
A)
Alfreð Kristjánsson -
Gunnar Þorkelsson 187
Jónas Ólafsson -
Ómar Ármannsson 179
Dúa Ólafsdóttir -
Véný Viðarsdóttir 166
Halldór Magnússon -
Valdimar Elísson 165
Esther Valdimarsdóttir -
Lovísa Eyþórsdóttir 163
B)
Guðrún Jörgensen -
Sigrún Pétursdóttir 181
Kristján Ólafsson -
Rögnvaldur Möller 177
Edda Thorlacius -
Isak Öm Sigurðsson 174
Eyþór Hauksson -
Lúðvík Wdowiak 171
Hrannar Erlingsson -
Ragnar Hermannsson 163
44 pör mættu svo til leiks á
fimmtudeginum og var spilað í
þremur riðlum. Úrslit urðu þessi
(efstu pör):
A) .
Baldur Amason -
Sveinn Sigurgeirsson 277
Erlendur Sverrisson -
Unnar A. Guðmundsson 266
Ásthildur Sigurgísladóttir -
Lárus Amórsson 220
Óskar Sigurðsson -
Róbert Geirsson 220
Eyjólfur Magnússon -
Gróa Guðnadóttir 219
B)
Vilhjálmur Sigurðsson -
Þráinn Sigurðsson 195
Ragnar Magnússon -
Valgarð Blöndal 186
Hrannar Erlingsson -
Ólafur Týr Guðjónsson 186
Birgir Sigurðsson -
Hjörtur G. Gíslason 185
Ásgeir P. Ásbjömsson -
Aðalsteirin Jörgensen 183
C)
Anton R. Gunnarsson -
Hjálmar S. Pálsson 187
Kristín Pálsdóttir -
Vilhelm Lúðvíksson 183
Guðmundur Thorsteinsson -
Sigurður Ámundason 178
Baldur Ásgeirsson -
Magnús Halldórsson 176
Andrés Þórarinsson -
Halldór Þórólfsson 169
Og þar með lauk síðasta spila-
kvöldi í Sumarbrids 1986. Brids-
samband Reykjavíkur þakkar
spilaáhugafólki fýrir samstarfíð í
sumar.
\
EFÞÚÁTT
SPARISKÍRTEINI
RÍKISSJOÐS SEM
ERINNLE YSANLEGT
15.SEPTEMBER
Á SKALTU
VERJAST
aLLRIASOKN
í ÞAÐ
ÞVÍ RÍKISSJOÐUR
BÝÐUR ÞER NÝ
SKÍRTEINI MEÐ
6.5% ÁRSVÖXTUM
UMFRAM
VERÐTRYGGINGU
OG AÐEINS TIL
TVEGGJA ÁRA
Þú skalt hugsa þig um tvisvar áður
en þú fellur fyrir einhverjum
þeirra tilboða sem nú rignir yfir þig.
Það er þinn hagur að ríkissjóður
ávaxti peningana þína áfram - í
formi nýs skírteinis; ávöxtunin er
góð og skírteinin eru laus eftir rétt
rúmlega tvö ár (gjalddagi er 10.
janúar 1989).
En það segir ekki alla söguna.
Þótt sumir bjóði álitlegri vexti en
ríkissjóður eru spariskírteinin engu
að síður um margt betri kostur. Þau
eru innlent lánsfé og draga því úr
erlendri skuldasöfnun, þau eru eign-
arskattsfrjáls (eignarskattur er nú
1,2% á ári) og þau eru öruggasta
fjárfesting sem völ er á; þeim fylgir
engin áhætta.
RIKISSJOÐUR ISLANDS
G0TT FÓLK / SÍA