Morgunblaðið - 16.09.1986, Qupperneq 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1986
fólk f
fréttum
Syípmyndir frá tískusýningu Paiásartískunnar.
Ljóam.: Emilía
„Hæstánægð“
— segir Rúna Guðmundsdóttir um verslun sína,
Parísartískuna, sem flutt er í nýtt húsnæði
Ein af okkar elstu og glæsileg-
ustu verslunum, Parísartískan,
opnaði í nýju húsnæði á Laugavegi
71, þann 22. ágúst síðastliðinn.
Hafði verslunin verið til húsa í
Hafnarstræti 8_ eða í 24 ár. En
Búnaðarbanki íslands keypti hús-
næðið og ætlar það undir starfsemi
sína og þurfti því að rýma hús-
næðið.
„Mér fannst mikið mál að þurfa
að flytja verslunina eftir þennan
langa tíma á sama stað,“ sagði
Rúna Guðmundsdóttir eigandi
verslunarinnar, er við ræddum við
hana í tilefni af flutningunum. „En
nú er ég hæstánægð. Þetta nýja
húsnæði, sem ég keypti, er 140 ftn
á annarri hæð, en verslunin sjálf
er um 100 fm. Ég fékk þýskan
arkitekt, mr. Siugul, til að innrétta
verslunina, en hann hefur hlotið
viðurkenningu fyrir verslunarinn-
réttingar sínar.
Innréttingar hinnar nýju verslun-
ar eru allar í ljósum litum. Aðallitur-
inn er ljósgrátt.
í tilefni af opnuninni bauð eig-
andinn nokkrum viðskiptavinum
sínum til tískusýningar, þar sem
hún kynnti vörur sínar en París-
artískan hefur umboð meðal annars
fyrir fatnað frá Escada, Fink, Frank
Usher og Alexander. Það voru
tískusýningarstúlkur frá Model 79,
sem sýndu fatnaðinn.
Rúna Guðmundsdóttir (t.v.) virðir fyrir sér glæsilegan kvöldkjól.