Morgunblaðið - 16.09.1986, Side 66
66
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1986
Hluti IBM-starfsmannanna á Þingvöllum.
Morgunblaðið/Ragnar Axelsson
Ráðstefnuland
framtí ðarínnar
„ÍSLAND hefur margt til að bera til að verða vinsæll staður fyrir
margskonar þing og ráðstefnur af minni gerðinni, þ.e. allt að 1.000
manns, ef þið standið jafnvel að verki og nú hefur verið gert, sagði
dr. Schwarzer frá Stuttgart við mig að skilnaði eftir velheppnaða
ferð rúmlega 1.000 starfsmanna IBM f Þýzkalandi,** sagði Ingólfur
Guðbrandsson, forstjóri Útsýnar, í samtali við Morgunblaðið, en
þýzku IBM-starfsmennirnir dvöldust hér á landi dagana 25. ágúst
til 3. september síðastliðinn eins og fram hefur komið í Morgun-
blaðinu.
Starfsmennimir komu í þremur
hópum með leiguflugi frá Frank-
furt, Dusseldorf og Hamborg í
Þýzkalandi og dvaldist hver hópur
hér í þijá daga. Fyrir milligöngu
American Express í Stuttgart og á
íslandi, varð Island fyrir valinu, og
Ferðaskrifstofan Útsýn hf. sá um
allan undirbúning hér á landi, mót-
tökur, framkvæmd kjmnisferða og
fundahalda, tiiheyrandi veizluhöld,
skemmtiatriði og annað, sem að
heimsókninni laut. Innanlandsdeild
Útsýnar undir stjóm Ólafs Amar
Haraldssonar, gekk frá öllum pönt-
unum, dagskrárgerð og fram-
kvæmd hennar. Ingólfur
Guðbrandsson sagði: „Var gerður
hinn bezti rómur að móttökum hér
á landi og höfðu margir Þjóðverj-
anna á orði, að þeir myndu koma
hingað sem fyrst aftur til að sjá
meira af „þessu einstæða landi, sem
ber svip stórbrotinnar náttúm og
sérstæðrar menningar," eins og
einn forystumaður hópsins komst
að orði við mig,“ sagði Ingólfur.
Auk kynnisferðar um Reykjavík,
fór allur hópurinn í dagsferð til
Gullfoss, Geysis og Þingvalla. í leið-
inni var stanzað í Miðdal. „Þar
brugðu þátttakendur sér á hestbak
hjá íshestum og teyguðu hreina
íslenzka fyallaloftið blandað birki-
ilmi. Fannst sumum þetta hápunkt-
ur dagsins eða jafnvel allrar
heimsóknarinnar. Ekki voru gest-
imir jafn hrifnir af íslenzkri
vegagerð og undruðust að þurfa
að aka í rykmekki á Qölfömustu
ferðamannaleið landsins. Nokkrir
af háttsettum IBM-forstjómm
sögðu eftir að hafa litið fegurð
Þingvalla og spegilslétt vatnið í
kvöldskininu, að þetta yrði þeim
ógleymanleg sýn,“ sagð[ Ingólfur
Guðbrandsson, forstjóri Útsýnar.
Að lokum sagði Ingólfur Guð-
brandsson, að í framhaldi þessa
velhéppnaða móts, væm í undirbún-
ingi fleiri fundir og þing IBM-
manna frá fleiri löndum Evrópu,
sem hyggja á íslandsferð á næst-
unni.
Á hestbaki i Biskupstungum.
Fundir IBM-starfsmannanna voru haldnir í hátíðasal Háskóla ís-
lands. Á einn slíkan kom Hamrahliðarkórinn og söng undir stjórn
Þorgerðar Ingólfsdóttur.
„FRÁBÆRT
SAMSTARF
„SKIPULAGSVINNA Útsýnar var mikil, en það er ekki sízt
frábært samstarf margra hæfra aðila, sem leiddi t.il góðs árang-
urs í ferð IBM-manna til íslands," sagði Ólafur Örn Haraldsson
framkvæmdastjóri innanlandsdeildar Útsýnar.
„Útsýn fékk til liðs við sig fólk Geysi og Aratungu. Þá fengum
og fyrirtæki, sem bæði hafa þekk- við einnig til samstarfs afbragðs
ingu og metnað til að leysa vel fólk með tónlist og sýningar.
verkefni af þessu tagi. Ishestar Ýmsir opinberir aðilar, löggæzla,
em gott dæmi. Ég get ekki talið vegagerð og fleiri lögðu einnig
alla, en vil m.a. geta frábærrar sitt af mörkum. Það er ljóst, að
frammistöðu fararstjóra, bílstjóra hér á landi er stór og vaxandi
og starfsmanna hópferða BSÍ, hópur, sem kann til verka í ferða-
hótels Loftleiða, Sögu og Esju, þjónustu".
veitingaaðila hjá Gildi, Broadway,