Morgunblaðið - 09.10.1986, Síða 26

Morgunblaðið - 09.10.1986, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1986 70 ára afmælisþing Alþýðuflokksins Ræða Gylfa Þ. Gíslasonar Gylfi Þ. Gíslason fékk rauða rós í barminn er hann kom á flokksþingið. EINN af heiðursgestum á þingi Alþýðuflokksins á Hótel Örk um síðustu helgi var Gylfi Þ. Gísla- son, fyrrum formaður flokksins og ráðherra. Ræða, sem hann flutti á þinginu, fer hér á eftir: Mér er það mikil ánægja að sitja þetta flokksþing, ekki aðeins sem kjörinn fulltrúi míns félags, heldur einnig sem heiðursgestur. Af síðari ástæðunni hef ég verið beðinn að ávarpa þetta afmælisþing. Hvað á maður, sem setið hefur í miðstjóm Alþýðuflokksins í 46 ár og var þingmaður flokksins í 32 ár, að segja við slíkt tækifæri? I. Er ekki rétt að láta það verða fyrst orða að segja frá því, hvers vegna ég varð jafnaðarmaður á unga aldri og hvers vegna ég er það enn? Þegar ég var unglingur, yar fá- tækt og atvinnuleysi á íslandi, heimskreppan lagði þungan hramm sinn á efnahagslíf Islendinga. Ég taldi, að á fátækt og atvinnuleysi mætti ráða bót með áætlunarbú- skap og þjóðnýtingu stærstu at- vinnugreina. Jafnframt vaknaði í bijósti mér eldheit andstaða gegn því ranglæti, sem fælist í fátækt og atvinnuleysi, og sterk samúð með þeimt sem yrðu undir í lífsbar- áttunni. Ég aðhylltist hins vegar aldrei þær kenningar, sem raktar voru til Karls Marx og margir félag- ar mínir trúðu á að valdbylting og svo nefnt „alræði öreiganna" væri nauðsynlegt tíl þess að koma á þjóð- félagi jafnaðarstefnunnar. Snar þáttur í skoðunum mínum sem ungs jafnaðarmanns var bjargföst trú a nauðsyn frelsis og lýðræðis í þjóð- félagi, sem ætti að geta kallast gott og réttlátt. Ég er nú þeirrar skoðunar og hef verið lengi, að þjóðarframleiðsla verði þá mest og hagur almennings beztur, þegar efnahagslíf mótast í aðalatriðum af markaðsviðskiptum einkafyrirtækja, samvinnufyrir- tækja og opinberra fyrirtækja, mótuðum af heilbrigðri samkeppni, en ekki einkasöluaðstöðu, jafnframt því sem ríkisvaldi og sveitarstjóm- um sé fengið tvenns konar hlutverk. Annars vegar eigi þessir opinbem aðilar að setja efnahagsstarfsem- inni almennan ramma, sem hafi það að markmiði að tryggja fulla at- vinnu og sem mest afköst atvinnu- vega, jafnframt því sem ríkisvaldið komi í veg fyrir misbeitingu efiia- hagsvalds og vemdi hag neytenda gegn misferli í markaðsviðskiptum. Hins vegar eigi ríkisvald og sveitar- stjómir að jafna telq'ur og eignir að vissu marki frá því, sem siglt gæti í kjölfar markaðsviðskipta, tryggja öllum lágmarkstekjur, ekki sízt öldruðum og þeim, sem verða atvinnulausir um stundarsakir, ann- ast heilsugæzlu, skólahald og þær rannsóknir, sem einstaklingar, fyr- irtæki eða samtök reynast ekki efna til. Ég tel, að í þessum atriðum sé fólginn kjami nútímajafnaðar- stefnu. Séu stigin spor í þessa átt, samhliða hiklausri gæzlu fullkom- ins frelsis og varðveizlu óspillts lýðræðis, tel ég, að þjóðfélagið geti boðið öllum betri hag og orðið rétt- látara. En jafnframt sé ég fyllstu ástæðu til þess að vara við of miklum af- skiptum ríkisvalds og hagsmuna- samtaka af atvinnulffi og of þungri skattheimtu, sem getur dregið úr afköstum og lamað heilbrigða starfslöngun. Slíkt getur orðið var- hugavert, engu síður en taumlaus frjálshyggja. II. En stjómmál fjalla um fleira en skipulag efnahagslífs og skiptingu lífsgæða. Þau flalla einnig um ut- anríkismál, öryggismál þjóðar, vamarmál. Á stríðsámnum hafði ég nýlokið námi. Ég var f fjölmennum hópi þeirra, sem vom uggandi út af er- Iendum áhrifum á íslenzkt þjóðlíf á stríðsámnum. Þessi ótti okkar magnaðist, þegar Bandaríkjastjóm fór fram á varanlegar herstöðvar í landinu. Hannibal Valdimarsson var einnig í þessum hópi. Við vomm báðir kosnir á þing 1946. Þegar tillögur, sem við fluttum til breyt- ingar á Keflavíkursamningnum svo nefnda, vom felldar, greiddum við atkvæði gegn honum. Við vomm ekki andvígir stofnun Atlantshafs- bandalagsins þrem _ ámm síðar, jaftivel ekki aðild íslendinga að því, ef vissum skilyrðum yrði full- nægt. Þegar tillaga okkar um viðurkenningu á sérstöðu íslands og endurskoðun á Keflavíkursamn- ingnum var felld, greiddum við atkvæði gegn aðildinni. Að fenginni reynslu af aðild ís- lands að Atlantshafsbandalaginu breyttist afstaða okkar beggja. Við samþykktum hervemdarsamning- inn 1951. Með ámnum hef égöðlazt æ dýpri sannfæringu fyrir þvf, að vamarsamstarf vestrænna þjóða sé nauðsynlegt, og að íslendingar eigi að taka þátt í því. m. Ég held mér sé óhætt að segja, að skoðanir flestra leiðtoga jafnað- armanna í Evrópu séu í gmndvall- aratriðum þær, sem ég hefi lýst. Mig langar í þessu sambandi til þess að nefna tvo jafnaðarmenn, sem ég met mjög mikils, en sprottn- ir em úr ólíkum jarðvegi. Einar Gerhardsen var verkamað- ur áður en hann gerðist stjóm- málamaður. Hann aðhylltist í fýrstu víðtæka þjóðnýtingu og allsheijará- ætlunarbúskap. En í stjómmála- starfí sínu hefur hann reynzt einn göfugast málsvari þeirrar nútíma- jafnaðarstefnu, sem hefur frelsi og jaftirétti, virðingu fyrir einstakl- ingnum og umhyggju fyrir velferð hinna vanmáttugu að hymingar- steinum. Hann hefur f utanríkismál- um ávallt verið fylgjandi samstarfi vestrænna þjóða í vamarmálum. Helmut Schmidt er hagfræðing- ur. Hann var einn þeirra, sem á flokksþingi þýzkra jafnaðarmanna í Godesberg 1952 beitti sér fyrir því, að áhrif marxisma vom numin á brott úr stefnuskrá þýzka jafnað- armannaflokksins. Hann er traust- ur málsvari þeirrar nútímajafnaðar- stefnu, sem ætlar bæði einkaframtaki og ríkisvaldi ákveðin hlutverk, í því skyni að tryggja sem mest afköst efnahagslífsins, jafn- framt því sem réttlæti f tekjuskipt- ingu sé tryggt, án þess að ríkið hafi lamandi afskipti af einstakling- um eða atvinnurekstri. IV. í kosningum árið 1946 bættust Alþýðuflokknum tveir nýir þing- menn, við Hannibal Valdimarsson. Mér hafði verið skipað í efsta sæti listans í Reykjavfk, þótt ég væri þá við framhaldsnám og ritstörf úti í Kaupmannahöfn, eftir miklar og hatrammar deilur um skipan list- ans. Hannibal kom auðvitað frá ísafírði. Við vorum skoðanabræður, bæði að því er snertir innanlands- mál og utanríkismál, og urðum því samheijar og vinir. Skoðanir okkar féllu ekki í góðan jarðveg hjá ýms- um foiystumönnum flokksins, og ég verð að segja það eins og er, að okkur var ekki vel tekið í þing- flokknum og ekki sýndur þar trúnaður, einkum ekki í utanríkis- málum. Ef flokksfoiystan hefði þá verið umburðarlyndari en hún var, held ég, að ef til vill hefði verið hægt að afstýra ýmissi þeirri ógæfu, sem síðar varð og ég mun víkja að. Oánægja innan flokksins magn- aðist á næstu árum og náði hámarki, þegar Stefán Jóh. Stef- ánsson var felldur frá formennsku 1952 og Hannibal Valdimarsson kosinn formaður í hans stað, en Benedikt Gröndal varaformaður. Ég hafði verið ritari flokksins síðan 1942, óskaði eftir því að vera kjör- inn áfram í það starf og var það. Sundrung S flokknum varð mikil og var líkleg til þess að valda honum miklu tjóni í kosningum, einkum eftir að Þjóðvamarflokkurinn var kominn til skjalanna. Við Hannibal höfðum samstöðu og náið samstarf fram til ipiðs sjötta áratugarins. Sjálfstæðis- flokkurinn og Framsóknarflokkur- inn höfðu farið með völd frá árinu 1950. Báðir aðalforingjar flokksins, Hermann Jónasson og Eysteinn Jónsson, vildu láta þessu samstarfi lokið. Sjálfstæðisflokkurinn hafði fengið 37% atkvæða 1953 og sagð- ist þá raunar stefna að því að fá hreinan meirihluta, en eins og kjör- dæmaskipunin var þá, gátu 40% atkvæða nægt til hreins meiri hluta. Nú kom upp sú hugmynd, sem við Haraldur Guðmundsson urðum að- almálsvarar fyrir í Alþýðuflokkn- um, að Framsóknarflokkurinn og Alþýðuflokkurinn gerðu kosninga- bandalag og freistuðu þess að ná hreinum meirihluta á Alþingi, meiri- hluta, sem stjómaði án áhrifa frá Sjálfstæðisflokknum og Sósíalista- flokknum, — mynda stjóm, hlið- stæða þeirri, sem setið hafði að völdum 1934—37. Kosningabanda- lag Framsóknarflokksins og Al- þýðuflokksins var í rauninni andsvar við fyrirætlunum Sjálf- stæðisflokksins. Það er skoðun mín, að meirihluti hefði unnizt, ef Hannibal Valdi- marsson hefði tekið þátt í þessu kosningabandalagi. Staða Sósíal- istaflokksins var veik. Tengsl hans við Sovétkommúnismann höfðu komið skýrt í ljós við andlát Stalíns. En Hannibal ásamt nokkrum sam- eiginlegum vinum okkar kaus að stofna Alþýðubandalagið ásamt Sósfalistaflokknum. Það hvarflaði aldrei að mér að yfirgefa Alþýðu- flokkinn og taka þátt í stofnun Alþýðubandalagsins, þótt fast væri lagt að mér að gera það. Ég taldi þá og tel enn, að Hannibal hafi bjargað Sósíalistaflokknum frá kosningaósigri. Alþýðubandalagið vann sigur. Og það varð aðili að þeirri ríkisstjóm sem ætlunin hafði verið að mynda eftir kosningamar 1956. Við Hannibal urðum samráð- herrar. Ég tel þessa stjóm hafa gert rétt í að falla frá fyrirhugaðri uppsögn vamarsamningsins. Sömuleiðis tel ég stefnu hennar í landhelgismálinu hafa verið rétta. En ég tel stefnu hennar í efnahagsmálum hafa mis- tekizt. Það var rangt að halda fast við ranga gengisskráningu og halda áfram að stjóma með höftum, leggja á innflutningsgjöld og út- hluta útflutningsbótum. Þessi reynsla mín í stjóm Hermanns Jón- assonar 1956—68 varð til þess, að ég gerðist stuðningsmaður þeirrar skoðunar, að Alþýðuflokkurinn ætti að styðja stefnubreytingu í stjóm eftiahagsmála, það ætti að hverfa frá haftabúskap að markaðsbúskap, sem lyti skynsamlegu eftirliti af hálfu ríkisvaldsins. Þá mundi skap- ast nýtt andrúmsloft í þjóðfélaginu, þjóðartekjur aukast og skilyrði skapast til umbóta í félagsmálum og menningarmálum. Sú varð og raunin á. V. Þegar tvennar kosningar 1959 samfara kjördæmabreytingu leiddu í ljós, að Sjálfstæðisflokkur og Al- þýðuflokkur höfðu meirihluta á Alþingi, varð niðurstaðan sú, að þeir mynduðu þá ríkisstjóm, sem lengst hefur setið að völdum á ís- landi, Viðreisnarstjómina svo- nefrdu. Ég tel það eitt nytsamasta verk, sem ég hef unnið þjóð minni og flokki mínum, að vinna að því, að þetta stjómarsamstarf kæmist á og héldist jafnlengi og raun bar vitni. Allan þennan tíma var Hannibal Valdimarsson í hópi hörðustu and- stæðinga þessarar stjómar. Við Hannibal áttum því ekkert samstarf á þessum árum. En gamall vinskap- ur okkar rofnaði ekki. Styggðaryrði hefur aldrei fallið milli okkar per- sónulega. Og ég minnist þess ekki, að í hörðum deilum okkar á Alþingi hafi nokkm sinni falizt persónulegt hnútukast. Mér hafði alltaf boðið í gmn, að Hannibal mundi ekki til langframa eira í Alþýðubandalaginu. Hann átti í raun og vem aldrei fulla sam- leið með þeim, sem þar réðu ferðum. Þess vegna urðu mér það mikil vonbrigði, þegar hann sagði skilið við þá með því að stofna til nýrra stjómmálasamtaka í stað þess að hverfa með einhveijum hætti til samstarfs við Alþýðuflokkinn. Ég er viss um, að flokkurinn hefði vilj- að mikið til þess vinna að geta aftur talið hann samheija sinn, hvað þá flokksmann. Afstaðan til hans hefði orðið önnur en afstaðan til Héðins Valdimarssonar á sínum tíma, þeg- ar hann sagði skilið við Sósíaiista- flokkinn. Enn urðu örlögin einingu íslenzkrajafnaðarmanna hins vegar grimm. Samtök frjálslyndra og vinstri manna reyndust Alþýðu- flokknum þungur ljár í þúfu. Eg tel þau hafa verið tímaskekkju og þess vegna hafi verið eðlilegt, að þau hyrfu af sjónarsviðinu. Við Hannibal vomm nánir sam- heijar á Alþingi í næstum áratug. Við vomm harðir andstæðingar í meira en tvo áratugi. En það vil ég segja, að þótt ágreiningur hafi verið mikill milli okkar, hefur aldrei hvarflað að mér, að Hannibal hafi ekki gert J>að, sem hann sjálfur taldi rétt. Ég hef aldrei reynt hann að óheilindum eða ódrengskap. Mér hefur ávallt reynzt hann hreinskipt- inn. Og áhrifamikill hefur hann alltaf verið. Þess vegna er mér það sérstök og óblandin ánægja að hitta hann hér, á 70 ára afmælisþingi Alþýðuflokksins, ekki aðeins sem gamlan vin, heldur sem samheija. Mig langar einnig til þess að láta í ljós ánægju yfir því að sjá hér fulltrúa frá Bandalagi jafaaðar- manna, sem gengið hafa til sam- starfs við Alþýðuflokkinn. Þeir era vissulega velkomnir til sameigin- legrar baráttu fyrir betra þjóðfélagi á Islandi. VI. Síðustu orð mín skulu vera þessi. Það hafa orðið og em að verða umtalsverðar breytingar í íslensk- um stjómmálum, á baráttuaðferð- um og stefaumörkun. Á næsta þingi munu eflaust margir nýir menn taka sæti, svo sem vera ber. Flokka- skipun okkar og kjördæmaskipun er þannig háttað, að ekki em líkur á, að nokkur einn flokkur nái meiri- hluta. Stjóm ríkisins hlýtur því að byggjast á samstarfi tveggja eða fleiri flokka. Þeir, sem takast stjóm á hendur, hljóta auðvitað að stefaa að því, að sem mest af því, sem um er samið, komist í framkvæmd. Reynsla mín af stjómarstörfum er sú, að þá beri samstarf flokka og manna beztan árangur, ef það mót- ast af heiðarleika og gagnkvæmum trúnaði. Ég er þeirrar skoðunar, að skýring þess, hversu Viðreisnar- stjómin sat lengi við völd, hafi ekki aðeins byggzt á stefau hennar, heldur á samstarfi flokkanna og mannanna, sem hana mynduðu. Vinni einn flokkur með öðmm, á hann ekki aðeins að hugsa um að koma fram sínum áhugamálum, hann verður líka að setja sig í spor samstarfsflokksins og reyna að skilja sjónarmið hans. Vinni einn stjómmálamaður með öðmm, verð- ur að ríkja traust milli þeirra, þá mega ekki vera brögð í tafli. Og milli stjómar og stjómarandstöðu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.