Morgunblaðið - 09.10.1986, Side 33

Morgunblaðið - 09.10.1986, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1986 33 Grein og myndir: Sigrún Davíðsdóttir Fréttirnar byggj ast á létt- leika og kumpánlegu viðmóti Fréttamennimir Dorthe Studsgarth og Soren Bach á fréttapallinum eftir útsendingn. í hverri sjónvarpsstöð eru frétt- imar ekki aðeins fréttir, heldur eru þær eiginlega einnig andlit stöðvar- innar. Þar koma starfsmennimir fram og yfirbragð fréttanna segir mikið um það, hvers konar and- rúmsloft ríkir þar. Það þarf ekki að horfa lengi á fréttaþátt Rásar 2, Gott kvöld, til að sjá, að þar er lögð áherzla á léttleika og kumpánlegt viðmót. Fréttastjórinn Seren Bach hefur setið á pallinum síðan stöðin byij- aði og látið fara vel um sig. Við hliðina á honum situr nú 22ja ára stúlka, Dorthe Studsgarth sem byrjaði sem símastúlka við stöðina með arkitektanámi, en er nú frétta- maður þar. Þau sitja þama saman, ekki við borð, heldur er aðeins lítið borð á milli þeirra, gjaman með flösku af Perrier-sódavatni á. Þau lesa svo til skiptis, ekki eina frétt hvort, heldur koma hvort með sína klausuna, rétt eins og þau væm að tala saman. Inn í samræður þeirra er svo skotið fréttaklausum, sem em teknar upp úti eða þá í sjón- varpssal. Stundum standa þau upp og taka á móti gestum. Þá er ekk- ert verið að fela tæknimennina, sem koma kannski hlaupandi inn á myndina, til að festa eða laga hátal- ara gestanna. Allt mjög eðlilegt og afslappað. Framkoma, umhverfi og talsmáti er úthugsaður, líka klæðaburður- inn. Soren Bach fræddi blaðamann á því, að í upphafi hefði átt að gera hann að bezt klædda karl- manni í Danmörku. En hann er nú ekki alveg sú manngerð. Hann féllst að vísu á að vera oftast með háls- bindi og stundum í jakka, en gætir þess líka að þetta fari ekkert. sér- lega vel saman. Og svo leysa Kanal to-bolimir stundum vandann. Stöð- in hefur komið sér upp bolum í mörgum litum, sem starfsfólkið kemur oft fram í. En kvenfólkið, kannski eðli sínu samkvæmt, virðist hugsa mun meira um klæðnað sinn en karlmennimir. En þó yfírborðið virðist afslappað og áreynslulaust, þá var vægast sagt fróðlegt að heyra Soren Bach segja frá þeim hugmyndum, sem Iiggja bak frétta og fréttamennsku rásarinnar. Hvað sem hveijum kann að finnast um þá hugmyndafræði, þá er hún að minnsta kosti ekki tilviljanakennd. Bach er heldur eng- inn nýgræðingur í fjölmiðlun. Hann byijaði sem blaðamaður á 7. ára- tugnum, vann svo hjá Danmarks Radio frá 1971-1982, en fór þá til Grænlands til að byggja upp sjónvarpið þar. Hann kom heim eftir þijú ár og átti þá að taka við sem aðalþingfréttaritari útvarpsins. En áður en hann tæki við stöðunni og hreiðraði um sig í Kristjáns- borgarhöll, sem hýsir þingið, átti hann inni nokkurra mánaða sum- arfrí. Það fór í að koma fótunum undir fréttadeild Kanal to, sem var þá í burðarliðnum. Þegar honum var svo boðið að fylgja þeirri vinnu eftir og veita deildinni forstöðu, lét hann þingið róa og hélt sig við rás- ina. Hugmyndina með að láta tvo fréttamenn tala saman er að áhorf- endum fínnist þeir hlusta á tal þeirra sem þeir megi svo taka þátt í. Hann vill ekki gera eins og rflcis- sjónvarpið, þar sem ábúðarmiklir fréttamenn nánast eins og taka áhorfendur á hné sér og lesa jrfir þeim. Rammi rásarinnar á samt ekki að hrófla við trúverðugleika fréttanna, þær eru ekki neinar hálf- fréttir í samanburði við ríkissjón- varpið. Seren Bach benti einnig á, að fréttir þeirra væru allt öðruvísi byggðar upp. í ríkissjónvarpinu er byijað á því að segja hvað helzt er í fréttum, fyrirsagnimar. Fréttun- um er líka alltaf raðað eins upp, með menningarfréttum síðast. Þannig er búið að flokka fréttimar og um leið er áhrofendum sagt, hvað sé mikilvægt og hvað ekki. Þessi fyrirsagnalestur í upphafi ýti líka undir að fólk líti aðeins á þær og slökkvi svo, ef ekkert vekur áhuga þess, samkvæmt kenningum rásarmannanna. Rásin hefur annan háttinn á. Þar er gert ráð fyrir að áhorfendur horfi á allan fréttatímann, sem er 20—30 mín. Fréttamennimir segja undan og ofan af hvað kemur, en ekki allt. Og svo er fréttaröðin út- hugsuð eftir nokkuð óvenjulegum leiðum. í fyrsta lagi em fréttimar fáar, en hvert atriði getur verið nokkuð langt. Það er byijað á ein- hverri vinalegri frétt, ekki neinum æsing. Síðan koma alvarlegri frétt- ir,en þó aldrei tvær þungar fréttir hver á eftir annarri, t.d. aldrei tvær alvarlegar efnahagsfréttir. Ekki vegna þess að það megi ekki íþyngja fólki, heldur vegna þess að Soren Bach og starfsmenn hans hafa þá kenningu að fréttimar eigi að ýta undir umræðu heima fyrir. „Vel unnar fréttir eiga að ýta undir að fólk myndi sér sjálft skoð- anir og ræði málin sín á milli. Þess vegna sýnum við átakalitlar fréttir á eftir mikilvægum, til að það gef- ist tækifæri til að tala um þær mikilvægu. Umræðumar spretta upp á meðan og strax eftir frétt- ina, en ekki eftir að röð af öðmm fréttum hefur liðið framhjá og frétt- atíminn er búinn. Sjónvarpið er í sjálfu sér hættulegur miðill, vegna þess hve það er áhrifamikið og ýtir undir aðgerðaleysi. Eiginlega ætti að banna sjónvarp," segir Soren Bach og kímir á danska vísu. Og rétt eins og áhorfendur era leiddir mjúklega inn í fréttatímann, þá er aldrei skilið við þá í þungum þönkum. Síðasta fréttin er alltaf jákvæð og glaðleg, eða með falleg- um myndum. En það er ekki svo að skilja að Bach sé á móti gagnrýninni frétta- mennsku, þegar hún á við. Hann vill ganga hart að stjómmálamönn- um, til að fá svör við nákvæmlega því, sem þeir em spurðir að. Hins vegar kærir hann sig ekki um að æsa sig við fólk, sem reynir að gera sitt bezta, jafnvel þó starf þess bjóði upp á gagnrýni. Gagn- rýnar fréttir eiga ekkert skylt við æsifréttir, að hans mati. Fréttamennimir á Rás tvö em tíu. Hjá ríkissjónvarpinu em þeir fimmtíu. Vísast hafa stöðvamar auga hvor á annarri. „Hvað okkur viðvíkur, getur varla verið um samkeppni við ríkis- sjónvarpið að ræða,“ segir Bach. „Þeir em einfaldega svo miklu bet- ur stæðir að öllu leyti. En það er samt gaman að taka eftir því, að þrátt fyrir allt fóikið þar og alla peningana, þá emm við með meira af heimagerðu fréttaefni en þeir. Þeir em með meira af aðsendu efni. En mannfæðin háir okkur. Þegar er mikið um að vera, eins og t.d. í kringum hústökuna og unga fólkið um daginn, þá eram við öll upptek- in í því og höfum ekki tækifæri til að vinna upp annað efni á meðan. Þegar annimar em liðnar hjá stönd- um við uppi nærri efnislaus." Fréttamaður nokkur af ríkissjón- varpinu, sem blaðamaður hitti fyrir, fitjaði bara uppá nefíð, þegar rásin var nefnd. Fannst greinilega lfið til hennar koma. Danskur blaðamaður sagði, að sér fyndist fréttir heima of slúðurkenndar. En hvemig sem á stöðina er litið, þá er Ijóst að ríkis- sjónvarpið tekur nokkurt mið af henni. Eftir áramótin eiga tveir fréttamenn að sjá um fréttimar — og þeir ætla að byija með morgun- sjónvarp. Langar ykkur að horfa á sjónvarp milli kl. 6 og 9? Morgunsjónvarpið byijaði á rás- inni í desember í fyrra, jólagjöf til áhorfenda okkar, sagði Sten And- ersen, einn fjögurra umsjónar- manna þess. Það em tvö pör, sem skiptast á að sjá um það sitt hvora vikuna. Hina vikuna nota þau svo til að safna efni. Morgundagskráin skiptist á þijá klukkustundar langa hluta, í hveij- um hluta em fréttir, teiknimynd, einhver viðtöl og músikmyndbönd. Það er tekið á móti gestum í sjón- varpssal eða sett inn í efni, sem hefur verið tekið upp áður. Einu sinni í viku kemur læknir í heim- sókn og svarar spumingum, líka dýralæknir. Dagskráin heitir Morgenflimmer, morgunblik. Nafnið lýsir henni nokkuð, það er bragðið upp einu og öðra, en ekki gert ráð fyrir að fólk sitji endilega við og horfi stöð- ugt. Umsjónarmennimir sitja í eldhúsi, svo andrúmsloftið er heim- ilislegt og það er dmkkið og borðað í þessu eldhúsi eins og öðmm. Það var fimmtudagsmorgunn, þegar blaðamaður Morgunblaðsins fylgdist með útsendingu. Vegna þess að þetta er síðasti útsendingar- dagur vikunnar, var gestkvæmara en ella. Þama kom kona, sem sagði frá bijóstkrabbameini og stuðnings- samtökum kvenna, sem hafa fengið það. Svo hópur Skota með sekkjapípur og haggis, lifrarpyls- una sína, spiluðu, fóm með ljóð um pylsuna, átu hana og dmkku óspart viskí með, ásamt umsjónarmönnun- um, sem fóm þó hægar í viskí- drykkjuna en gestimir. Svo vora studdar fréttir. Auk þess teikni- myndir og tónlist. Þessa vikuna sá fréttamaðurinn Erik Weir um fréttainnskotin. Hann mætir þá kl. fimm, lítur í blöðin og tekur saman helztu fréttimar úr þeim, fylgist með veðri og sam- göngum og kemur þrisvar fram með fréttimar. Hann segir, að þau reikni með, að um á milli 50 og 100 þús. manns horfi á þáttinn, eða líti á hann, líklega mest böm, ungling- ar og gamalt fólk. Þá morgna sem hann sér um morgunfréttimar tek- ur hann líka að sér hádegisfréttir kl. 12, en hina vikuna er hann með í að útbúa fréttaefni fyrir kvöld- fréttimar. Þátturinn byggist mikið á um- sjónarmönnum, því þau tala tölu- vert, upplýsa áhorfendur um eitt og annað, alltaf jafn létt og bros- andi í stfl við allt yfirbragð rásarinn- ar. Strákurinn, sem sér um þáttinn á móti Sten Andersen er þekktur poppsöngvari hér, heitir Michael Bondesen og söng með hljómsveit- inni Sjúbídúa, nokkurs konar Stuðmönnum Dana. Bondesen veit- ir skemmtideildinni forstöðu, var vísast fenginn vegna vinsælda sinna, sem söngvari. Hvað sem hveijum finnst um rásina, þá tekst þeim þokkalega vel það sem þau ætla sér, tekst að vera hress, lífleg og kumpánleg. En hvort það er svo nægilega há- leitt markmið fyrir sjónvarpsstöð er annað mál. Starfsfólkinu finnst að fólk eigi að hafa vai á milli þess sem þau em með og svo alvarlegs og ábúðarmikils ríkissjónvarps, sem virðist þó ætla að þoka sér nær stíl rásarinnar, þegar fram í sækir. En nú er önnur rás í ríkissjón- varpinu í burðarliðnum. Ef íhalds- mönnum tekst að lafa áfram á stjómartaumunum verður hún að raunvemleika áður en langt um líður. Vísast verður hún að ýmsu leyti lík Kanal to, sem hefur þá fengið gott forskot, hvort sem það dugir honum til eða ekki. Vestfirðingar Tryggjum Guðm. H. Ingólfssyni 3. sæti á framboðslista Sjálfstæðis- flokksins á Vestfjörðum í komandi alþingiskosningum. Guðmund- ur H. Ingólfsson er traustur og sjálfstæður baráttu- og málafylgju- maður og hefur verið í fylkingarbijósti sjálfstæðismanna á ísafirði sl. 15 ár. Við kjósum Guðmund H. Ingólfsson vegna þekkingar hans á málefnum Vestfjarða og við vitum að með kjöri hans eign- ast Vestfirðingar traustan talsmann. Kjósum Guðmund H. Ingólfsson í 3. sæti í prófkjör- inu 11. og 12. október. Stuðningsmenn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.