Morgunblaðið - 09.10.1986, Side 43

Morgunblaðið - 09.10.1986, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1986 43 Karpov dreg- ur í lengstu lögaðjáta sig sigraðan Skák Margeir Pétursson JAFNTEFLI blasir við í biðstöð- unni í 24. og síðustu einvígisskák þeirra Karpovs og Kasparovs i Leningrad. Þar með sigrar Kasp- arov í einvíginu 12‘/2— lV/t og eru það nákvæmlega þau úrslit sem spáð var hér í Morgunblað- inu þann 27. júlf í sumar, áður en einvigið hóffjt. Þótt staðan á borðinu sé steindautt jafntefli þráast Karpov við og teflir til vinnings, því þótt ljóst sé að Kasparov haldi heimsmeistara- titlinum á enn eftir að útkljá baráttuna um verðlaunin. Þá má vera að Karpov hafi viljað losna við að þurfa að játa sig sigraðan i einvíginu fyrir framan áhorf- endaskara, en kjósi fremur að Ijúka skákinni með þvi að bjóða jafntefli símleiðis í fyrramálið. Kasparov var tekið með miklu lófaklappi áhorfenda við upphaf síðustu skákarinnar. Skákin bar þess merki að ekki væri sérlega mikið í húfi. Baráttan um titilinn er útkljáð og báðir keppendur höfðu ánafnað verðlaunafé sínu til fómar- lamba Chemobyl-kjamorkuslyss- ins. Kasparov, sem hafði hvítt, komst ekkert áleiðis og eftir mikil uppskipti í 16—22. leik náði Karpov örlítið betra hróksendatafli. Vinn- ingslíkur hans vom þó afskaplega litlar og eftir því sem skiptist upp á fleiri og fleiri peðum nálgaðist jafnteflið. 24. einvígisskákin: Hvftt: Gary Kasparov Svart: Anatoly Karpov Drottningarindversk vörn I. d4 - Rf6, 2. c4 - e6, 3. Rf3 - b6, 4. g3 - Bb7, 5. Bg2 - Bb4+, 6. Bd2 — a5, 7. 0-0 - 0-0, 8. Bg5. Þetta afbrigði drottningarind- versku vamarinnar hefur ekki áður sézt í einvígjum Kasparovs og Karpovs. Nú hótar hvítur 9. c5 og svarti biskupinn á b4 lokast inni. Be7, 9. Dc2 - h6, 10. Bxf6 - Bxf6, 11. Rc3 - g6, 12. Hadl - d6, 13. h4 - h5, 14. e4 - Rd7, 15. e5!? Reynslan hefur sýnt að þó hvítur hafí góð tök á miðborðinu þarf svartur lítið að óttast í slíkum stöð- um. Kasparov sprengir nú upp á miðborðinu, en hefur ekki annað upp úr krafsinu en mikil uppskipti. Bg7, 16. d5!T - Rxe5, 17. Rxe5 - Bxe5, 18. dxe6 — Bxg2, 19. exf7+ — Kxf7, 20. Kxg2 — Bxc3, 21. Dxc3 - Df6,22. Dxf6 - Kxf6 Hér er kominn tími til að semja, en það er orðin hálfgerð hefð hjá þeim félögum að tefla allar stöður út í dautt jafntefli, a.m.k. fram að því að skákin fer í bið. 23. a4 - Hae8, 24. Hfel - Hxel, 25. Hxel - Hd8, 26. Hdl - c6, 27. Kf3 - Ke5, 28. Ke3 - Hf8, 29. f3 - Hh8, 30. Hel - Hb8, 31. Kd3+ - Kf6, 32. He4 - d5, 33. cxd5 — cxd5, 34. He2 — b5, 35. Kd4 - bxa4, 36. Kxd5 - Hb3, 37. Ke4 - Hb4+, 38. Kd5 - Hb5+, 39. Kd4 - Hb4+, 40. Kd5 - Hb3, 41. Ke4 og í þessari stöðu fór skákin í bið. Það er athyglisvert að í 40. leik hafriaði Karpov þrátefli, en það hefur þó vart nokkra þýðingu að halda þessari baráttu áfram. Sjúkraliðahópurinn sem útskrifaðist ásamt Bernharð Haraldssyni skólameistara og Margréti Pétursdóttir hjúkrunarfræðingi og kennslustjóra á heilbrigðissviði, sem eru sitt á hvorum enda aftari raðarinnar. Boðin skólavist - þáði ekki. Þessi litli drengur kom með móður sinni að ná í prófskír- teinið en vildi alls ekki taka i hönd skólameistara, sem bauð hontim skólavist! Útskrift og opið hús - hjá Verkmenntaskólanum á laugardaginn Á LAUGARDAG voru úskrifað- ir 12 sjúkraliðar frá Verk- menntaskólanum - og sama dag var opið hús í skólanum þar sem almenningi gafst kostur að koma og skoða meðal annars hina nýju bóknámsálmu sem tekin var í notkun nú i haust. Margmenni kom í heimsókn í skólann og skoðaði hin glæsilegu húsakynni - þáði kaffisopa og spjallaði við kennara og nemend- ur. Meðfylgjandi myndir voru tekn- ir í skólanum á laugardag. Morgunblaðið/Skapti Hallgrlmsson Aðalgeir Pálsson, rafeindaverkfræðingur og kennari (til vinstri), Tryggvi Ásgrímsson rafvirkjameistari og Þór Þórisson nemandi velta fyrir sér rafmagnsverkefni. Akureyringar greiða sama vatnsverð til aldamóta ef ekkert verður að gert - hafa á tíu árum greitt 230 milljónir á núvirði íjöfnunargjald af orkuverði MÁLEFNl Hitaveitu Akur- eyrar voru mikið rædd á bæjarstjómarfundi í fyrradag, einsog greint var frá í Morgun- blaðnu í gær. Þar var til fyrri umræðu tillaga veitustjórnar um 8,9% hækkun á gjaldskrá veitunnar og var henni vísað til annarrar umræðu. Fram kom á fundinum tillaga um að vísa tillögu veitusijómar frá en sú hlaut ekki samþykki. Bæjarfulltrúar voru allir sam- mála um að tafarlaust yrði leitað eftir viðræðum við stjómvöld um lausn á vandamálum Hitaveitunn- ar - og var raunar samþykkt tillaga Sigurðar J. Sigurðssonar, formanns veitustjómar, þar að lútandi og tillögu veitustjómar vísað til annarrar umræðu. Hátt orkuverð til alda- móta ef ekkert verður gert í máli Sigurðar J. á fundinum kom fram að áætlanir um sölu- magn á vatni, sem gerðar hefðu verið eftir að sölufyrirkomulagi var breytt, hefðu staðist og því væri mun auðveldara að gera nýja áætlun um rekstur veitunn- ar. „Við vitum að bæjarbúar þurfa að búa við það háa vatnsverð sem þeir búa við nú alveg til ársins 2000 - miðað við að gjaldið fylgi framfærslu- eða byggingavísitölu - ef ekkert verður að gert,“ sagði Sigurður. „Það er stórkostlegt hagsmunamál fyrir Akureyringa ef þeir þurfa að greiða svo hátt orkuverð áfram og því verðum við að fá fram vilja yfírvalda - hvort þau ætli að grípa til aðgerða varð- andi vanda orkufyrirtækja." 230 milljónir í jöfnun- argjald á tíu árum Sigurður sagði að á núvirði hefðu Akureyringar greitt 230 milljónir króna í verðjöfnunar- gjald á orku á ámnum 1975-1985, “á sama tíma og menn eru að glíma við þetta fyrirtæki," eins og hann sagði. „Ef Akureyringar hefðu notið þessara peninga til greiðslu á skuldum veitunnar er spuming hver staða fyrirtækisins nú, en það hefur ekki verið reikn- að út,“ sagði formaður veitu- stjómar. Skuldir Hitaveitu Akureyar losa nú 2.000 milljónir króna og hafa þær hækkað nokk- uð í innlendri mynt á árinu - þrátt fyrir að ekki hafi verið tekin er- lend lán á árinu og greitt hafi verið svolítið niður af þeim sem fyrir vom. Þess má geta að fyrir- tækið greiðir í ár 176 milljónir króna í vexti af lánum. Verði hækkun á gjaldskrá HA samþykkt við síðari umræðu í bæjarstjóm, eins og líklegt verður að telja, þýðir það að hvert tonn af heitu vatni hækkar úr 56 krón- um í 61 krónu. 680 rúmmetrar af vatni á ári í_ einbýlishús með fjórum íbúum. Á gamla gjaldinu kostar slíkt 38.080 krónur á ári en á nýja gjaldinu kostar slíkt magn 41.500 á ári. Heimir Ingimarsson, bæjarfull- trúi Alþýðubandalags, sagði á fúndinum í fyrrakvöld að hita- veituverð í bænum jaðraði við að hafa búseturaskandi áhrif. „Ef við bemm saman ástand vinnumark- aðar, ástand í kjaramálum og hitunarkostnað, sem er þrefalt hærri en á höfuðborgarsvæðinu, sjáum við að menn verða að fara að athuga sinn gang varðandi taxtamál," sagði hann. Sigríður Stefánsdóttir, flokks- systir Heimis, benti á að bæjar- stjóm hefði alltaf sýnt mikla ábyrgðartilfinngu í umraeðum um Hitaveitu Akureyrar. Hún benti á að ríkisvaldið hefði í mars skipt sér af rekstri HA með þí að - “með þvf að skipta sér af því hvaða gjald skyldi tekið og stjóm- völd hljóta því að vilja hafa frekari afskipti." Sigríður sagði núver- andi og fyrrverandi iðnaðarráð- herra báða hafa lýst yfir að ríkisvaldið yrði aðkoma orkufyrir- tækjum sem ættu í eins miklum vanda og HA til aðstoðar og við það ættu þeir að standa. Rúður fyr- ir vegfar- endum! RÚÐUR voru brotnar á þremur stöðum f miðbæ Akureyrar f fyrrinótt. Ölvaður maður til- kynnti fyrst um tvær brotnar f húsnæði Landsbankans við Ráðhústorg - og var sá hinn sami sfðar tekinn grunaður um verknaðinn. Eftirtektarsamir lögreglumenn sáu svo sömu nótt brotnar rúður í Borgarsölunni og á hótel Varð- borg. Ekki er vitað hver var þar að verki eða hvort brotin tengjast á einhvem hátt. Ráðsfundur á vegnm H- ráðs Málfreyja á íslandi RÁÐSFUNDUR á vegum H-ráðs Málfreyja á íslandi verður hald- inn að Hótel Reynihlfð Mývatnssveit dagana 11. og 12. október. Gestgjafadeild verður Málfreyjudeildin Fluga. Fundurinn hefst kl. 10.30 á laugardag. Á dagskrá verður m.a. nefndarstörf, fræðsla og kosning í kjömefnd. Ingveldur Ingólfs- dóttir, forseti Landssamtaka málfreyja, flytur erindi frá al- þjóðaþingi. Að kvöldi laugardags verður stofnskrárfundur Mál- freyjudeildar Flugu og hefst með borðhaldi kl. 19.30. Á sunnudag kl. 10.15 verður fundi haldið áfram og mun Ema Indriðadóttir, deildarstjóri RÚ- VAK, flytja fræðsluerindi. Fundurinn er öllum opinn. Nánari upplýsingar veita Halla f sfma 91-52531 og Helga f sfma 96-44166. Ferð verður frá umferðarmið- stöðinni f Reykjavík kl. 18.30 á föstudag. (Fréttatílkynning.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.