Morgunblaðið - 14.11.1986, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1986
29
Rómaborg:
Mengun vekur
harðar deilur
Róm, Reuter.
RÍKISSTJÓRN Ítalíu mun gefa út tilskipun um mengunarvamir í
Róm en að undanförnu hafa borgarstjórn og umhverfisvemdar-
sinnar deilt harkalega um ástand mengunarmála þar. Fyrr í vikunni
hótaði dómari í Rómaborg að banna alla umferð í miðborginni ef
yfirvöld gripu ekki þegar til viðhlítandi aðgerða.
Francesco de Lprenzo, umhverf- sinnar telja að loka beri götum
ismálaráðherra Italíu, sagði í
fyrrakvöld að ríkisstjómin muni
gefa út tilskipun um að hávaði og
mengun megi ekki fara yfir tilskilin
mörk í miðborginni.
Lögreglumenn hafa kvartað yfír
andþrengslum vegna mengunar og
hafa þeir gripið til þess ráð að bera
grímur þegar þeir sinna skyldu-
störfum sínum. Umhverfisvemdar-
borgarinnar þar eð loftmengun sé
langt yfír þeim mörkum sem viður-
kennd em í öðmm Evrópuríkjum.
Borgarstjóm er þessu andvíg og
hyggst bíða eftir niðurstöðum
skýrslu, sem nú er verið að vinna
um loftmengun í „borginni eilífu"
áður en gripið verður til umferðar-
takmarkana.
Varnarmálaráðherra Austurríkis
Flugslys rann-
sakað í Svíþjóð
Stokkhólmi, AP.
HELMUT Krune, varnarmála-
ráðherra Austurríkis, er nú
kominn til Svíþjóðar í þvi skyni
að fá upplýsingar um flugslys,
sem austurriskur flugmaður
fórst í.
Orrustuþota af gerðinni Draken
J 35 fórst undan ströndum Svíþjoð-
ar á þriðjudagskvöld og flaug
austurrískur flugmaður vélinni.
Austurríkismenn hafa samið við
Svía um að kaupa 24 þotur af þess-
ari gerð og ákvað ráðherrann því
að koma til Svíþjóðar og rannsaka
nánar hvemig slysið hefði borið að.
Kmnes fer í dag til sænska her-
flugvallarins F-10 við Angelholm.
Flugslysið á þriðjudag hefur
hleypt af stað umræðum í Aust-
urríki um það hvort skynsamlegt
sé að kaupa notaðar sænskar orr-
ustuþotur.
Austurríkismenn gerðu samning
við fyrirtækið Saab-Scania í maí í
fyrra og er talið að hann hafí num-
ið einum milljarði sænskra króna
(um sex milljörðum ísl.kr.). Þessi
samningur var mikið gagnrýndur
þegar hann var undirritaður.
Reyndar er í samningnum ákvæði
um að Svíar skuli kaupa vömr af
Austurríkismönnum fyrir sömu
upphæð, en því hefur verið haldið
fram að hinar notuðu þotur væm
bæði úreltar og fokdýrar.
Fangauppreisnin í Skotlandi:
91 klukkustund-
ar umsátri lokið
Peterhead, Skotlandi, AP.
FANGAR í Peterhead-fang-
elsi slepptu I gær verði sem
þeir höfðu haft í gíslingu í
tæpa fjóra sólarhringa. Eld-
ur kom upp í einni áhnu
fangelsisins en engin slys
urðu á mönnmum.
Eldur kom upp í A-álmu bygg-
ingarinnar en þar vom staddir 50
fangar sem sloppið höfðu út úr
klefum sínum á sunnudag.
Slökkviliðsbfla dreif að og reyk-
kafarar björguðu mönnunum út
úr eldhafínu. Ókunnugt er um
eldsupptök en í fréttum breska
útvarpsins, BBC, sagði að fang-
amir hefðu kveikt elda á göngum
byggingarinnar til að halda á sér
hita.
í þann mund sem eldurinn kom
upp var fangaverðinum John
Curran sleppt en umsátursástand
hafði ríkt frá því á sunnudag er
þrír fanganna réðust á hann og
tóku af honum lykla að 50 fanga-
klefum. Fangamir, sem margir
hveijir vom vopnaðir hnífum og
bareflum, mfu þá þekju hússins
og tóku sér stöðu á þakinu ásamt
gísli sínum. Spjöld vom höfð á
lofti þar sem m.a. var krafíst betri
aðbúnaðar.
189 glæpamenn em í Peter-
head-fangelsinu og afplána flestir
þeirra þunga dóma fyrir ýmis
misindisverk og líkamsmeiðingar.
Leiðtog-i Líberíu:
Utlagar
sakaðir
um andóf
Monroviu, AP.
SAMUEL Doe, forseti Líberíu,
sakaði andstæðinga sina í Banda-
ríkjunum um launráð. Doe sagði
í ræðu, sem hann flutti i gær,
að Líberíumenn þar vestra hefðu
lagt á ráðin um valdarán.
Að sögn forsetans hafa stuðn-
ingsmenn stjómarandstöðunnar
árangurslaust reynt að fá Banda-
ríkjastjóm til að láta af efnahags-
legum stuðningi við Líberíu.
AF ERLENDUM /A
VETTVANGI {MhJ
eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR
„Rauði prinsinn“ afsalar
sér völdum og Laos virðist
opna dyrnar í hálfa gátt.
SKYNDILEGA hafa stjómmálasérfæðingar um málefni SA-Asíu
beint sjónum sínum að Laos. Þetta land hefur ekki verið títtnefnt
i fréttum um langar tíðir, svo að það þykir tiðindum sæta, þegar
fregnir berast þaðan. Stundum er tekið svo til orða, að nágranna-
löndin Víetnam og Kambodia skyggi á Laos í orðsins fyllstu
merkingu. En nú berast sem sagt fréttir um að breytingar séu
i vændum á afstöðu landsins gagnvart Thailandi og Vesturlönd-
um. Og yfirlýsing, sem var gefin út rétt áður en þing kommún-
istaflokks Laos var að hefjast, hefur orðið til að stjómmálaskýr-
endur og diplómatar bijóta heilann um, hvað kunni að vera í
vændum.
Menn greinir ekki á, að ein-
hver geijun sé, en eru ekki
á eitt sáttir, hvað hún muni boða.
Alténd vakti tilkynning sú, sem
var birt kvöldið áður en flokks-
þingið hófst óskipta athygli:
„Rauði prinsinn" Souphanouvong
forseti, tæplega hálfáttræður
hafði ákveðið að láta af störfum.
Souphanouvong hefur verið þjóð-
höfðingi landsins síðan flokkur
hans, Pathet Lao, tók við völdum
í desember 1975.
Nú er ekki svo að skilja, að
menn hafí samstundis dregið þá
ályktun, að forsetanum hefði ver-
ið ýtt úr valdastólnum, heldur var
það skoðun flestra, að hann vildi
draga sig i hlé af heilsufarsástæð-
um. A hinn bóginn var ekkert
greint frá því að sinni, hver tæki
nú við. En tveimur dögum síðar
sagði svo ríkisútvarpið í landinu
frá því, að eftirmaðurinn hefði
verið ákveðinn, Phoumi Vongvic-
hit aðstoðarforsætisráðherra
síðan 1974. Hann er tveimur árum
eldri en Souphanouvong og sagð-
ur vinsæll maður. Hann var meðal
nánustu samstarfsmanna Soup-
hanouvong, þegar Pathet Lao
flokkurinn var stofnaður á árun-
um upp úr 1950.
Samkvæmt orðanna hljóðan í
þessari yfírlýsingu, virtist skipun
Vongvichits þó aðeins vera um
stundarsakir. En þótt þessar
mannabreytingar væru vitanlega
fréttaefni í sjálfu sér, fannst sér-
fræðingum þó meira um vert, að
ýms teikn eru á lofti um breyting-
ar á stefnu Laosa í utanríkismál-
um: þeir væru sem sé að opna
dymar, að minnsta kosti í hálfa
gátt, eftir langa einangrun. Thai-
lendingar sem líta á Laosa sem
minni bræður sína, vegna sameig-
inlegra hefða og tungumálsins,
'tóku fréttunum gætilega, en aug-
ljóslega af gleði.Þótt skyldleiki
Thailendinga og Laosa sé óum-
deilanlegur hefur þó gerólík
hugmyndafræði aðskilið þjóðimar
lengi og því að vonum, að Thai-
lendingar vilji ekki fara of geyst
í sakimar.
Opinberlega hafa Thailending-
ar, að minnsta kosti stjómvöldin,
litið svo á síðustu áratugina, að
Laos væri í sama bás og Víetnam
og Kambodia. Enda skal því ekki
gleymt, að í Laos eru milli 40-60
þúsund víetnamskir hermenn, og
áhrifamenn frá Víetnam sitja í
mikilvægum ráðgjafastöðum í
Víentiane. Stjómin í Bangkok
hefur að sönnu aldrei sagt bemm
orðum, að hún liti á Laos sem
leppríki Víetnams, en það hefur
ekki dulizt neinum, hve mikil ítök
Víetnama væra um stjóm lands-
ins.Því er þá heldur ekki að neita,
að Thailendingar era tortryggnir
nú, eftir að stjómin í Víentiane
tók að gefa frá sér þessi breyt-
ingamerki. Sumir sérfæðingar
hafa sagt, að þetta gæti verið
bending um ákveðinn brest innan
stjómarinnar í Víetnam og að hún
hafí misst þau afdráttarlausu tök,
sem hún hafði í Laos. En fæstum
þykir þetta þó trúleg kenning.
Sönnu nær sé að álykta, að það
henti mætavel stjómendunum í
Hanoi, sem era diplómatiskt séð,
ósköp einangraðir, að nota Laos
sem eins konar giugga út í heim-
inn.
Hvað svo sem býr að baki, segj-
ast Thailendingar reiðubúnir að
vera jákvæðir og taka þátt í þess-
um leik. Frá því Laosar tóku að
sýna tilburði í þessa átt gagnvart
Thailendingum era nú nokkrir
Souphanouvong:
„Rauði Laos-prinsinn.“
mánuðir. Þeir tilburðir komu flatt
upp.á marga, vegna þess að mikl-
ar deilur og hatrammar höfðu
staðið yfír við Thailendinga út af
þremur landamærabæjum. En svo
skipuðust ailt í einu veður í lofti.
Forsætisráðherra Thailands Prem
Tinsulanond frá forsætisráðherra
Laos, Phomivihan. Og nokkru
síðar kom skeyti frá utanríkisráð-
herranum í Laos til starfsbróður
síns í Bangkok. Báðir ráðherram-
ir í Víentiane óskuðu hinum
thailenzku kollegum sínum inni-
lega til hamingju mep kosningam-
ar, sem þá vora rétt um garð
gengnar í Thailandi. Þetta var
snemma í ágúst og leið nú ekki
á löngu, unz leynilegar viðræður
fulltrúa þjóðanna hófust. í áliðn-
um október efndu Thailendingar
og Laosar til kappsiglingar í ós-
hólmum Mekong, en sú keppni
hafði legið niðri lengi. Þetta þótti
greinilega tákn um, að stefnt
væri að stórbættum samskiptum.
Afram héldu fundahöld og nú
hefur stjómin í Bangkok kunn-
gert, að hún ætli að senda nefnd,
skipaða háttsettum aðilum, og
undir forystu utanríkisráðherra
landsins Aran Panupong, til
Víentíane þann 27. nóvember til
að fylgjast með þingi kommún-
istaflokksins. Síðan hefjast
viðræður um viðskipti, flóttamenn
frá Laos í Thailandi „ og hvað
það sem við teljum uppbyggilegt
og geti eflt samskipti okkar," eins
og thailenzki utanríkisráðherrann
hefur komizt að orði.
Laos er eitt snauðasta land
Asíu. Þar búa 3,5 milljónir. Þeim
er mikil nauðsyn að ýta undir lög-
leg viðskipti og bætt samskipti
við Thailand. Þó að Thailendingar
séu á báðum áttum um, hvað búi
að baki þessari breyttu afstöðu
Laos, er þó sennilegt að þeir gefí
Laosum tækifæri. Thailendingum
er ljóst líka, að þjóðin í Laos er
þjóðemissinnaðri og stoltari en
útlendingar ætla, vegna takmark-
aðrar þekkingar á þeim. Það
gengur þvert á þjóðareðli Laosa
aðp sýna undirferli og þeir láta
ekki stjómina í Hanoi nota sig,
nema í þeim tilgangi einum, að
geta á ný tengzt Thailendingum
bræðraböndum.
Sé það undirrótin era Laosar
kannski að búa sig undir að feta
sig á ný inn í samfélag þjóða
heims.
Heimild: Rodney Tasker í Far East-
ern Economic Review.
Laos er nánast klemmt inn á milli yfirgangssamra nágranna.