Morgunblaðið - 10.12.1986, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER'1986
43
Hugleiðingar
um eiturlyf
eftir Grím
••
Ogmundsson
í flestum dagblöðum er ég les
og líka í útvarpi er oft skýrt frá
þeim vandamálum er varða inn-
flutning á eiturlyfjum, sem flutt eru
inn til Islands. — Ég hef aldrei séð
birt nöfn þeirra manna sem gera
það. Það er bara skrifað um þetta
vandamál og menn sumir hveijir
settir inn í fangelsi, svo sem réttlæt-
anlegt er. Einnig fá menn sektir
fyrir þennan innflutning. Flestir eru
þetta ungir ævintýramenn. Þetta
getur verið stórgróði, ef þeim tekst
það. Það munu flestir þessara ungl-
inga vera eignalausir og því er það
tilgangslaust að sekta þá. Það eina
sem gildir er að nefna nöfn þessara
manna og birta myndir af þeim.
Þjóðin mundi líta niður á þá.
Það er oft skrifað um það, að
sjómenn séu með smyglað vín og
tóbak. Vínið og tóbakið er gert
upptækt og ríkissjóður íslands hef-
ur tekjur af þeim innflutningi, þegar
í hann næst. Ég lít þennan víninn-
flutning sjómanna allt öðrum
augum. Það eru sjómennimir sem
skapa gjaldeyrinn. Þó svo þeir komi
með eitthvað meira vín til landsins
en er leyfilegt er betra að þeir geri
það en eyði gjaldeyri sínum í
hórukrám utanlands og flytji inn
kynsjúkdóma.
Hvað geta sjómenn gert við sinn
gjaldeyri? Flestir vilja eyða honum
í eitthvað sem þeir geta þénað á.
Þá má geta þess, að margt fullorð-
ið fólk fer utan í innkaupaferðir til
að kaupa föt á sig og meira en leyfi-
legt er. Það mun leyfílegt að flytja
inn fatnað og ýmislegt glingur fyr-
ir kr. 7.000. Flestir gera það og
sumir langtum meira, svo sem skilj-
anlegt er, því að nú fær fólk
gjaldeyri eins og það óskar eftir.
Einnig fæst gjaldeyrir utan banka
í stórum stíl á réttu verði.
Ég lít svo á, að íslenskt ferðafólk
fái alltof mikla ferðapeninga. Það
er óeðlilegt, að skemmtiferðafólk
fái svona mikla ferðapeninga, þegar
gjaldeyrisstaða íslands er neikvæð.
— Fjármálaráðherra og ríkisstjóm
ættu að skammta gjaldeyri meira
en gert er í dag.
Um víninnflutning er það að
segja, að allur fjöldinn gefur sitt
vín vinum sínum, en af því leiðir,
að það er drukkið meira og jafnvel
selt meira vín í Áfengisverslun ríkis-
ins.
Höfundur er bóndi á Syðri-Reykj-
um í Biskupstungum.
Stykkishólmur:
Leikfélagið Grímnir
sýnir 1 Stykkishólmi
Stykkishólmi.
LEIKFÉLAGIÐ Grímnir í Stykk-
ishólmi hefir brátt lokið sinu 19.
starfsári og sýnir nú gamanleik-
ritið „Gripið i tómt“ eftir Derek
Benfield í þýðingu Hauks Sig-
urðssonar. Leikstjórinn hefir
annast Guðjón Ingi Sigurðsson
sem um mörg ár hefir stjórnað
Ieiksýningum viða um land. Leik-
félagið samanstendur af áhuga-
fólki sem vinnur gott starf í þágu
leiklistarinnar. Leikendur ekki
menntaðir sem slíkir og því er
það ángæjuefni að enn má finna,
i þessu hraðfleyga velmegunar-
þjóðfélagi, fólk sem leggur á sig
fyrirhöfn og erfiði til að lífga
upp staði út um land.
Leikritið hefir ekki mikinn boð-
skap, þeim mun meira af misskiln-
ingi og gleði og skal ekki farið út
í efni þess að öðru leyti. Ég sá sein-
ustu sýninguna og þeirri kvöldstund
var vel varið og í leikslok var vel
þakkað fyrir sýninguna með dynj-
andi lófataki.
Þessi sýning hefir kostað margar
tómstundir — og æfingar. Kröfur
dagsins í dag eru meiri en þegar
ég man fyrst eftir í fábreytni dag-
anna. En um meðferð leikenda á
hlutverkum er erfitt að gera upp á
milli, því leikurinn var með
skemmtilegum hraða allan tímann.
Hvergi skeikaði í meitluðum setn-
ingum, og spenningur hélst allan
tímann. Þama voru nýliðar á svið-
inu sem komu mjög á óvart og
sýndu að víða um land er enn hægt
að líta „leikara af guðs náð“ eins
og þar stendur.
En það sem vakti mesta athygli
mína voru leiktjöldin, en þau eru
gerð af góðum Hólmara, Jóni Svani
Péturssyni, sem er einn af okkar
ágætu listamönnum sem um árin
hefír sýnt okkur hvað í honum býr.
Hvort sem hann málar, teiknar,
leikur á hljóðfæri, er listin alltaf
með í ferðum. Ég er þess viss að
ef hans meðfædda lítillæti drægi
ekki aftur af honum og ef hann
hefði fetað listamannabrautina ætt-
um við Hólmarar þar góðan full-
trúa, það sýndi leiksviðið sem var
að mínum dómi hið smekklegasta
og um leið svo hagkvæmt og svar-
aði mestu kröfum okkar tíma. Þökk
sé Jóni Svan. Hann þyrfti að snúa
sér meira að myndlist og halda sýn-
ingu. Það væri gaman.
Ljósin voru bæði smekkleg og
þjónuðu sviðinu piýðilega. Þar var
að verki Birgir Sigurðsson og þykir
mér rétt að nefna nafn hans, því
hann gerði vel.
En það fer ekki á milli mála að
sýningin var leikfélaginu og leik-
endum til mikils sóma.
Arni
Aðventukvöld í Melstaðarkirkju
Staðarbakki.
AÐVENTUKVÖLD var í Mel-
staðarkirkju s.l. sunnudagskvöld.
Lesið var úr ritningunni og
kvæði flutt. Þá söng kirkjukór-
inn og börn 10-11 ára úr
Laugarbakkaskóla sungu við
gítarundirleik. Og lúðrasveit úr
Tónlistarskóla V-Húnavatnssýslu
lék nokkur lög.
Þá sýndu unglingar úr Laugar-
bakkaskóla helgileik. Að endingu
var almennur söngur við kertaljós.
Kirkjan var þéttskipuð og að athöfn
lokinni buðu prestshjónin kirlq'u-
gestum veitingar í gamla prestset-
urshúsinu, en þar hafa þau annast
ferðamannaþjónustu á þessu ári.
Ekki er ástæða til að kvarta yfir
slæmu tíðarfari, undanfarið hefur
að jafnaði verið hægviðri og úrkom-
ulítið, svo til alveg snjólaust hér í
lágsveit og allir vegir í besta lagi.
Benedikt
Grímur Ögmundsson
„Þaö eina sem gildir er
að nefna nöfn þessara
manna og birta myndir
af þeim.“
Ríkisútvarpið:
Auglýsingar
aras 1
RÍKISÚTVARPIÐ hefur lækkað
auglýsingaverð sitt fyrir rás 1
um 12 */2%. Hinsvegar hefur aug-
lýsingaverð í sjónvarpi verið
hækkað um 25%, en auglýsinga-
verð á rás 2 hefur staðið í stað.
Helgi S. Helgason, forstöðumað-
ur auglýsingadeildar RUV, sagði í
samtali við Morgunblaðið að undan-
farin ár hefði átt sér stað hækkun
í nóvember á auglýsingaverði fyrir
jólavertíðina, bæði í sjónvarpi og
útvarpi, en það lækkað síðan aftur
um áramót. „Lækkunin nú á aug-
lækka
lýsingaverði rásar 1 er til komin
vegna þess að auglýsingar á rás 1
hafa ekki skilað sér nógu vel miðað
við þá miklu hlustun sem við virð-
umst hafa samkvæmt könnunum.
Við viijum með þessu auka sölu
auglýsinganna og einnig verðum
við að bregðast við aukinni sam-
keppni á réttan hátt.“
Helgi sagði að auglýsingaverð
sjónvarps myndi lækka aftur um
áramót um 25%, en sú lækkun, sem
orðin er á auglýsingum í hljóðvarpi
héldist áfram.
—
UM SKIÐAPAKKANA
Bjóðum sérstaklega
5 tegundir af skíðapökkum
þar sem veittur er
verulegur afsláttur.
Skiðapakkarnir innihalda
skíði, bindingar, stafi,
skó og ásetningu.
ALLT rtYJAR
OPFVÖRUR
VIÐ SELJUM ATOMIC SKIÐI,
SALÓMON SKÍÐASKÓ
OG BINDINGAR
SPORTBÆR Selfossi SPORTVAL v/Mlemm
SPORTBÚÐ ÓSKARS Kcflavík BiKARIMri Skólavörðustíg
JÓN HALLDÓRSSOn Dalvík SPORTfHISiÐ Akureyri
SPORTBÚÐIM Drafnarfelli MÚSIK & SPORT Mafnarfirði
SKÍÐALEIQAM v/Umferðarmiðstöðina SPORTULAÐAM ísafirði