Morgunblaðið - 06.06.1987, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 06.06.1987, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1987 5 Y erkfræðingar í verkfalli Krefjast 32% hækkun á launalið VERKFALL tæplega 80 verk- störf og getur því verkfallið haft fræðinga, sem vinna á verk- fræðistofum sem eiga aðild að Félagi ráðgjafarverkfræðinga, hófst á miðnætti aðfaranótt föstudags. Nýr sáttafundur hefur ekki verið boðaður í deil- unni. Verkfræðingar þeir sem nú eru í verkfalli sjá aðallega um eftirlits- í för með sér seinkun á fram- kvæmdum vegna tafa á útboðs- gögnum. Egill Harðarson formaður samninganefndar verkfræðing- anna sagði að aðalágreiningsefnið i samningaviðræðunum væri launaliðurinn. Verkfræðingar krefðust 31-32% hækkunar á launalið í samningi til eins árs og væru þeir með þessu að vinna upp að þeir hefðu fengið minni hækk- anir en aðrar stéttir á síðasta ári. Vinnuveitendur hefðu boðið um 24% á móti. Að auki væru kröfur um að launabil milli aldursþrepa í launatöflu haldi sér, en vinnu- veitendur vilja stokka upp launa- töfluna. Einnig er krafa um endurmenntunarréttindi. Lágmarkslaun samkvæmt samningi þessara verkfræðinga voru samkvæmt upplýsingum Egils 49.755 í janúar á þessu ári. Samkvæmt kröfu verkfræinga um 32% launahækkun myndu þessi laun hækka upp í rúmlega 65 þúsund krónur en tilboð vinnuveit- enda um 24% hækkun þýddi rúmlega 61 þúsund króna lág- markslaun. V^terkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiðill! Atvinnuleysi 0,7% af mannafla: Mikil atvinna á höfuðborg- arsvæðinu SAMKVÆMT Hagtiðindum hefur skráð atvinnuleysi siðustu 12 mán- uði (frá aprilmánuði sl. talið) dregizt saman um 27% frá sama tima árið áður — og atvinnulaus- um fækkað úr 0,9% i 0,7% sem hlutfall af mannafla (fólki á vinnu- aldri). Á timabilinu janúar- marz 1987 vóru að meðaltali 1.192 manns á atvinnuleysisskrá hér- lendis en 1.431 á sama tíma 1986. „Langmestan hluta þessarar fækkunar á atvinnulausum má rekja til mikillar eftispumar eftir vinnuafli á höfuðborgarsvæðinu," segir í Hagtíðindum. Aætlaður mannafli í marz 1987 er 118.600 einstaklingar. Samkvæmt reiknireglu Hagtiðinda (samanlagður flöldi atvinnuleysisdaga hvers mán- aðar deilt með meðalfjölda vinnudaga í mánuði) var meðalfjöldi atvinnu- lausra í marz sl. 570, þar af 303 karlar og 267 konur. Af þessum 570 vóru 158 á höfuðborgarsvæðinu (Reykjavík, Seltjamames, Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði og Mosfells- hreppi), en 412 utan höfuðborgar- svaeðisins. Ungverskur ráð- herra í heimsókn: Lýstí áhuga á samstarfi um jarðvarma IMRE Dunai, aðstoðarutanríki- sviðskiptaráðherra Ungveija- lands hefur undanfama daga dvalið hér á landi til viðræðna við íslenska ráðamenn um viðskipti landanna. Hefur ungverski ráð- herrann lýst áhuga Ungveija á að skiptast á upplýsingum við ís- lendinga um nýtingu jarðhita, svo og á samstarfi þjóðanna á þessu sviði. Viðskipti íslands og Ungveija- lands hafa ekki verið mikil að vöxtum á undanfömum árum. Segja má að nærri láti að hlutdeild viðskiptanna sé innan við 0,1% af heildarútflutn- ingi og innflutningi. Helstu útflutn- ingsvörur íslendinga til Ungverja- lands hafa verið þorskalýsi, lagmeti og kísilgúr. Þar að auki var eitthvað flutt út af fískimjöli á áram áður en ekkert framhald hefur orðið þar á. Uppistaðan í vörakaupum íslendinga frá Ungveijalandi hefíir verið ávext- ir, vín, veftiaðarvara, rafmagnstæki og fatnaður. Á dagskrá ungverska ráðherrans í íslandsheimsókninni vora m.a. við- ræður við Matthías Bjamason viðskiptaráðherra, iðnaðarráðu- ney- tið, Orkustofnun og Virki h.f., Verslunarráð íslands, Útflutningsráð íslands og einstaka viðskiptaaðila, m.a. SÍS og Álafoss hf. Efþig hefur dreymt um að eignast einkaþotu, kemstu næst því að láta drauminn rætast með Knáasta smátröllið á götunni, sem nær flug- takshraða, (á svo fáum sekúndum) að segjum ekki frá því. , iiœstss __ Æm . Konfektmoli fyrir bílasælkera, sem vilja gera meira en keyra. FRUMSÝNiNG KL. 13-17 DAIHATSUUMBOÐIÐ Ármúla 23, s. 685870 - 681733.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.