Morgunblaðið - 06.06.1987, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1987
fclk í
fréttum
Sarah að framan og aftan.
Reuter
Stórtíðindi!
au tíðindi breiddust eins og eldur í sinu út yfir
heimsbyggðina að Sarah Ferguson, hertogaynja
af Jórvík, hefði breytt um hárgreiðslu. Mun það vafa-
laust valda tímamót í greiðslu breskra yngismeyja og
hver veit nema þessi tíska teygi sig til íslands? Anað
eins hefur víst gerst.
Það sem helst þykir eftirtektarvert er hnúturinn, sem
Sarah bindur hár sitt í að aftan. Þykir hann mest líkjast
slaufu eða einhveiju í þá veruna. Sarah sýndi þessa
hárgreiðslu fyrst við tónleika i höll sankti Jakobs.
Gertútá
harðfisk
Litið inn hjá Guðmundu Guðmunds-
dóttur og Jóni Oddssyni
Reuter
Hér er Maryam d’Abo í hefð-
bundinni stellingu sem
Bond-stúlka.
Ný Bond
skvísa
Nú líður senn að því að nýj-
asta Bond-myndin líti
dagsins ljós, en hún ber heitið
„The Living Daylights". Það sem
mesta athygli hefur vakið er hinn
nýi Bond, en það er leikarinn
Timothy Dalton, sem til þessa
hefur verið best þekktur fyrir að
vera ástmaður Vanessu
Redgrave.
Hann er þó ekki eini leikari
myndarinnar og á móti honum
leikur leikkonan Maryam D’Abo.
Hún er frönsk að uppruna og
hefur getið sér gott orð á heima-
slóðum fyrir frammistöðu sína á
leiksviði í klassískum stykkjum
svo sem Spartakusi og Cyrano
de Bergerac.
Þingeyri.
æt
AGerðhömrum í Mýrahreppi í
Dýrafirði búa hjónin Guð-
munda Guðmundsdóttir og Jón
Oddsson og „gera út á harðfisk".
Jón hefur reist stórt og mikið íbúð-
arhús og gert upp gamlan hjall og
byggt við hann þar sem fiskverkun-
in fer fram.
Við flökun og verkun harðfisks-
ins vinna 6-10 manns en síðastliðinn
vetur unnu allt upp í 13 manns.
Víða var leitað fanga um hráefni,
til Þingeyrar, Flateyrar og ísaQarð-
ar.
Sonur þeirra hjóna, Einar, á bát
sem gerður er út frá Þingeyri og
landar hann á Gemlufelli í Mýra-
hreppi. Þeir feðgar, Jón og Einar,
hafa byggt hjall mikinn, ef hægt
er að kalla slíkan geim hjall. Gamli
bærinn er svo notaður til að valsa,
vigta og pakka fiskinum sem síðan
er sendur vítt og breytt um landið
og seldur harðfískunnendum. Harð-
fiskurinn er ekki einungis seldur
innanlands því á síðustu árum hafa
þau selt fisk til Grænlands.
Vestfirðingar gefa lítið fyrir vals-
aðan og loftþétt-pakkaðan harðfisk,
þeir kjósa hann óbarinn með smjöri
að ógleymdum reyktum rauðmaga
svona til bragðbætis.
- Hulda
Örlitill hluti af hjallanum, troðfullum af harðfiski, alveg upp i ijáf-
ur, á mismunandi stigi.
„Þurfti aldrei
að sækja lækni
- segir Soffía Pálsdóttir á Höfða
Stykkishólmi.
§offía Pálsdóttir býr í húsi sínu
úti á Höfða, lífsreynd og sterk.
r ekki bugast þrátt fyrir storm-
asama og misjafna ævi. Fædd í
Ögri 7.7.07 eins og hún segir og
verður áttræð á þessu ári. Þar
bjuggu þá foreldrar hennar Helga
og Páll Guðmundsson, seinna
kenndur við Höskuldsey.
Soffía var flögurra ára þegar hún
fluttist með foreldrum sínum út í
Höskuldsey. Þar átti hún heima í
20 ár. Þar voru húsakynni mjög
léleg þegar hún kom þangað og fór
Morgunblaðið/Hulda
Stórbýlið Mýrar, gamla húsið og þinghúsið áfast, fjárhúsin og hlaða
sér.
Hluti af fiskverkunarstððinni ásamt íbúðarhúsinu.