Morgunblaðið - 06.06.1987, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 06.06.1987, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1987 V erðum orðin vel efnuð í haust Rætt við nokkra unglinga í sumarstörfum Unglingar á íslandi sitja sjaldan auðum höndum yfir sumartímann. Varla finnst sá unglingur sem ekki reynir að nýta sumarið til að ná sér í vasapening fyrir veturinn. Störfin eru margvísleg, garðyrkja, fiskverkun, barnagæsla og svo mætti lengi telja. Einn þessara vinnustaða er félagsmiðstöðin Tónabær. Þar starfa nú fjórða sumarið í röð 16 til 18 ára unglingar á vegum íþrótta- og tómstundar- áðs. Þar hefur aðsetur rúmur tugur ungmenna sem býðst til að taka að sér ýmis verk fyrir borgarbúa gegn vægu gjaldi. Ivar Guðmundsson er annar tveggja flokksstjóra sem hafa umsjón með starfínu. Að hans sögn er nóg að gera en flokks- stjóramir gera tilboð í verk sem fólk vill fá unnin fyrir sig. Mest er beðið um alls kyns tiltekt í görðum en flest kemur til greina. í fyrra voru til dæm- is bakaðar vöfflur fyrir einn viðskiptavininn. Hópurinn verður því ekki í garðvinnu í allt sumar. Næsta verkefni þeirra verður að mála biðskýli SVR. Viðmælendur okkar virtust mjög ánægðir í vinnunni. Það væri ekki bara vinnan sjálf sem skipti máli , félagslega hliðin skipti ekki minnu. Ekki spillir þegar ánægðir viðskiptavinir leysa þau út með kökum og límonaði, eins og komið hefur fyrir. Ætlunin er að starfsemin rétt nái að standa undir sér. Við Yztasel í Breiðholti vom þau Kjartan ísak Guðmundsson, Kjartan Briem og Valdís Björk Friðbjömsdóttir önnum kafín við að snyrta garð. Kjartan Bri- em var sá eini þeirra sem hafði unnið hjá Tónabæ áður. Öll kváðust þau ánægð með vinn- una og gerðu ráð fyrir því að starfa fram á haust nema Kjart- an Briem sem ætlar að skreppa út fyrir landsteinana í sumar og keppa í borðtennis. „Það er mjög skemmtilegt að vinna úti.“ Sagði Kjartan Isak. „Starfíð er fjölbreytt, við emm ekki lengi á sama stað og kynnumst fyölda fólks. Kaupið er ágætt og auk þess er hægt að fá bónus ef við vinnum fljótt og vel.“ „Við verðum orðin vel efnuð í haust ef við eyðum þessu ekki jafnóðum." Sagði Valdís en bætti því síðan við að hún bygg- ist ekki við að eiga mikið afgangs í haust. Kjartan ísak kvaðst hins vegar ætla að láta aurana endast fram eftir vetri. Ekki em þó allir svo heppnir að geta notið sumarblíðunnar við vinnuna. Margir unglingar starfa innandyra, í bönkum, verslunum og á skrifstofum. Enn aðrir sjást á þönum með bréf og böggla allan liðlangan daginn. Thelma Hillers er ein af þeim. Við tókum hana og Dóm Pálmarsdóttur, sem vinn- ur í Pennanum, tali. E.V'T* Þóra Einarsdóttir. Morgunbladið/Júlíus F.v.: Kjartan Briem, Valdís Björk Friðbjörnsdóttir, Kjartan ísak Guðmundsson og ívar Guðmundsson. Dóra Pálmarsdóttir: Erfitt að fá sumarstarf Á bak við búðarkassa í Pennanum rakst blaðamaður á Dóm Pálmarsdóttur, sem átti reyndar sextán ára afmæli þennan sama dag. Hún var að ljúka 9.bekk í Hagaskóla og ætlar í MH næsta vetur. „Það er mjög gaman að vinna héma,“ sagði Dóra, „en það er óneitanlega leiðinlegt að starfa inni þegar sólin skín og viðskiptavinir streyma inn í stuttbuxum og með ís.“ Starf Dóm felst aðallega í því að afgreiða á kassa og fylla í hillur, auk þess sem hún þarf oft að svara fyrirspumum erlendra ferðamanna og reynir þá á enskuogdönsku kunnáttuna. Dóra sagðist mundu vinna í allt sumar utan viku í ágúst, en þá ætlar hún á skíði í Kerlingarfjöllum. Aðspurð sagði hún að erfítt væri fyrir krakka á hennar aldri að fá sumarstarf, en flestir gætu orðið sér úti um vinnu með hjálp vina og ættingja. Þóra Einarsdóttir: Ætlaði að fara í fisk „Þetta er fyrsta sumarið mitt hjá Tónabæ,“ sagði Þóra Einarsdóttir. „Ég ætlaði eiginlega að fara að vinna í físki eins og í fyrra en pabbi lét mig vita af þessu og ég sló til þótt ég hefði aldrei komið inn í Tónabæ. Ég hef aldrei unnið við svona lagað áður, ég vann í físki síðasta sumar og þar áður vann ég við gæslu bama á leikvelli. Vinkonumar em allar í físki en ég vildi frekar vinna úti í sumar þótt kaupið sé ekkijafngott. Mér líkar vinnan ágætlega, þetta er alls ekkert erfítt og verkstjóramir em fínir. Ætli ég verði ekki í þessu í sumar og vinni síðan í físki fram að áramótum. Þá ætla ég að halda áfram í skóla en ég lauk 9. bekk í vor.“ Gunnar Hansson: Frétti af þessu hjá vimimnum Gunnar Hansson, 16 ára í starfshópi Tónabæjar, gaf sér smá hvíld frá garðyrkjustörfum til þess að rabba við blaðamann. Gunnar lauk 9.bekk gmnnskóla í vor og hyggst hefja nám við Verslunarskólann í haust. „Ég var í unglingavinnunni í fyrra en frétti af þessu starfí hjá vini mínum og verð hér í allt sumar. Þessi vinna er frábær, sérstaklega þegar veðrið er gott. Við þurfum að hreinsa beð, kantskera og slá, allt eftir því hvað fólk vill. Það verður skemmtileg tilbreyting að komast í málningarvinnuna, en næsta verkefni okkar verður að mála biðskýli SVR.“ Gunnar Hansson. Jón Geir Gunnarsson. Thelma Hillers: Kemst út af ogtil í kjallara húss Eimskipafélagsins við Pósthússtræti hafa sendlar Eimskipafélagsins aðsetur. Þar hittum við að máli Thelmu Hillers, 17 ára Verslunarskólanema. Henni líkaði starfíð bara ágætlega. „Ég er búin að vera héma í tvær vikur. Við emm fímm sendlamir og skiptumst á að fara með bréf og fleira innanhúss og út í bæ auk þess sem við sjáum um að ljósrita. Við emm að mestu sjálfráða og þetta er ósköp frjálslegtj engin stimpilklukka. Ég var fljót að læra að rata, þær sem fyrir vora fóm með okkur fyrstu dagana og sýndu okkur.“ Thelma kvartaði ekkert undan því að þurfa að vera innandyra í sólskininu. „Ég vann í búð síðasta sumar og þetta er öðruvísi, ég kemst útaf ogtil."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.