Morgunblaðið - 06.06.1987, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 06.06.1987, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JUNI 1987 29 Honecker hittir gamla félaga o g skjalafalsara Frakkland: Klaus Barbie á saka mannabekkinn á ný Lyon, Reuter. Erich Honecker, kommúnista- ieiðtogi Austur-Þýskalands, hefur að undanfömu verið í opinberri heimsókn í Hollandi. Þar hitti hann m.a. gamla fé- laga úr hugsjónabaráttunni, m.a. Fake van der Tak, sem skaut yfir Honecker skjólshúsi eftir að hann var útlægur ger frá Þýskalandi eftir valdatöku nazista. Meðal annarra, sem hann hitti var grafiklistamað- urinn Harry van Kruiningen, sem falsaði hollenskt vegabréf fyrir Honecker svo hann gæti ferðast tíl Þýskalands á ný. Á myndinni sjást þeir Honecker og van Kminingen, en þeir hitt- ust á Andspyrauhreyfingar- safninu í Amsterdam í gær. KLAUS Barbie, fyrrum gestapó- foringi, var í gær fluttur nauðugur tii dómshússins í Lyon þar sem réttað er í máli hans. Barbie er sakaður um hina hryllilegustu striðsglæpi á valda- tíma nasista og var hann neyddur til að taka sér sæti á sakamanna- bekknum en hann hafði áður neitað að vera viðstaddur vitna- leiðslur. Fjöldi lögreglumanna gætti Barbie er hann var fluttur frá fang- elsinu í Lyon til dómshússins. Lögreglumenn gráir fyrir jámum stóðu við innganginn er bfllinn sem flutti Barbie renndi í hlað. Barbie, sem er 73 ára að aldri, var fluttur í fangaklefa dómshúss- ins. Hann var síðan leiddur inn í dómsalinn þar sem hann hlýddi á vitnisburð fólks sem hann er sakað- ur um að hafa fangelsað og pyntað. Klukkutíma síðar var hann leiddur út úr dómsalnum. Þetta er í annað skiptið sem Barbie er neyddur til að fylgjast með réttarhöldunum. I fyrra skiptið báru fímm vitni kennsl á Barbie og sögðu hann hafa pynt- að þau. Þann 13. fyrra mánaðar neitaði Barbie að vera viðstaddur frekari vitnaleiðslur í málinu gegn honum. Fullyrti hann að honum hefði verið rænt í Bólívíu og hann verið fluttur nauðugur til Frakk- lands. sagði hann þetta ólöglegt athæfí af hálfu franskra yfírvalda. 4í ' Reuter Klaus Barbie fluttur í járaum í dómshúsið í Lyon í gær. Feneyjafundurinn: Nakasone býst við tíma- mótafundi í Feneyjum London, Tókýó, Washington, Feneyjum, Reuter. Reuter Gondólarnir í Feneyjum verða að vikja fyrir hraðskreiðum bátum, sem flytja munu leiðtoga helztu iðnríkja heims á síkju borgarinar, þegar þeir ferðast milli fundarstaðar síns og náttstaðar. Yasuhiro Nakasone, forsætis- ráðherra Japans, sagði í gær að leiðtogafundur helztu iðnríkja heims i Feneyjum, mundi marka tímamót fyrir hagvöxt í heimin- um. Spáði hann þvi að sam- þykktir fundarins, sem hefst á mánudaginn og lýkur á miðviku- dag, yrðu til að hleypa fjöri í efnahagslíf iðnríkjanna. Kyrr- staða var á gjaldeyrismörkuðum heims í gær þar sem beðið er útkomu fundarins. Feneyjafund- inn sitja ieiðtogar Banda- ríkjanna, Bretlands, Kanada, Frakklands, ftalíu, Japans og Vestur-Þýzkalands. Leiðtogarnir munu ijalla um og glima við efnahagslegt öngþveiti nútímans á fundi sínum í Feneyjum, sem um aldir hefur verið nefnd hin róandi borg. „í fyrra komum við okkur saman um að skjóta stoðum undir efnahagslíf iðnríkjanna og á fundinum í Feneyjum munum við ákveða hvemig við ætlum að efna það loforð," sagði Nakasone. Búist er við að leiðtogamir reyni að komast að samkomulagi um aðgerðir í gengismálum og að þeir taki sameiginlega afstöðu til er- lendrar skuldasöfnunar þróun- arríkja. Þó er ekki síður búist við að fundurinn muni snúast um stjómmál og að þar verði efst á baugi afvopnunarmál, Persafló- astríðið og ástandið í Miðaustur- löndum. Ronald Reagan, Bandaríkjafor- seti, mun reyna að fá leiðtogana til að fallast á einhvers konar sam- ræmingu stefnu ríkjanna í efna- hagsmálum. Bandaríkjastjóm er hins vegar sögð hafa fallið frá fyrri hugmynd sinni um bindandi sam- eiginlegar aðgerðir. Hörð andstaða var við þá hugmynd af hálfu Breta og Vestur-Þjóðveija en Frakkar voru henni fylgjandi. Sú tillaga, sem Reagan mun reyna fá samþykkta gengur út á það að með reglulegu millibili beri ríkin saman efnahagsspár sínar og raunverulegan árangur efnahags- stefnunnar. Komi í ljós frávik frá spánum heiti ríkin að leiðrétta þann mismun með sérstökum ráðstöfun- um. Spámar verði byggðar á efnahagsstefnu viðkomandi ríkis og skal spáð fyrir um hagvöxt, inn- og útflutning, greiðslujöfnuðar, verðbólgu, peninga- og gengismál. Feneyjar voru á sínum helzta miðstöð siglinga og viðskipta í Evr- ópu og heimahöfn mikils kaupskipa- flota. Áhrifa stórkaupmanna í Feneyjum gætti víða um heim. Það- an var efnahagslífí Miðjarðarhafs- landanna stjómað um 700 ára skeið, frá því á níundu öld og fram á þá sextándu, en þá hnignaði Fe- neyjum. Ronald Reagan, Bandaríkjafor- seti, mun gista á glæsilegasta hóteli Feneyja, Cipriani, en þar kostar næturgisting 1.200 dollara, eða 48 þúsund krónur. Ekki lætur forset- inn sér nægja að sofa í rúmi því, sem hótelið leggur til, heldur lét flytja til Feneyja risastórt rúm, sem smíðað var á sínum tíma vegna heimsóknar hans til Portúgals 1985. Þar var rúmið í geymslu unz það var flutt til Feneyja. Helmut Kohl, kanzlari Vestur- Þýzkalands, Nakasone og Brian Mulroney, forsætisráðherra Kanada, munu allir gista á Hotel Danieli, sem byggt var á aðal hafn- arbakka borgarinnar á 15. öld þar sem kaupmenn í Feneyjum þrefuðu um verð á silki og kryddvörum. Margaret Thatcher og Jacques Chirac, forsætisráðherrar Bretlands og Frakklands, munu gista á 16. aldar hótelinu Gritti Palace, en Francois Mitterrand, Frakklands- forseti, mun hafa aðsetur í húsi því, Villa Volpi, sem hann hefur nýlega keypt á Giudecci-eyju, en það stendur skammt frá hóteli Re- agans. Gífurleg öryggisgæzla verður viðhöfð meðan á fundunum stend- ur. Meðal annars verða kafarar á sveimi í sýkjum borgarinnar og hundar verða látnir þefa að ferða- mönnum. Leiðtogamir munu ekki aka til fundarstaðarins á San Gi- orgio-eyju í glæsivögnum heldur skjótast þeir á milli í hraðbátum. Javier Perez de Cuellar, fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur hvatt leiðtogana til að gefa málefnum ríkja þriðja heimsins sér- stakan gaum. Nakasone segist vera með sérstakar tillögur í pokahom- inu um 500 milljóna dollara þriggja ára aðstoð við Afríkuríki sunnan Sahara. Búist er við að þær verði samþykktar. Á þessu stigi er lítið hægt að segja fyrir um hver árangurinn af Feneyjafundi leiðtoganna verður. Sérfræðingar í efnahags- og fjár- málum telja þó að hann verði heldur lítill. Tímin mun leiða í ljós hversu sannspáir þeir eru og hvort Naka- sone reynist hafa rétt fyrir sér. GUNNAR ASGEIRSSON OG VELTIR HF TILKYNNA: P&Ó/SlA -4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.