Morgunblaðið - 06.06.1987, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1987
15
Ellefu listamemj
í Listasafni ASI
SUMARSÝNING Listasafns ASÍ
verður opnuð í salarkynnum
safnsins laugardaginn 6. júní kl.
14.00. Sýningin, sem hefur hlotið
heitið ÁNING, er samsýning ell-
efu listamanna á glerlist, leirlist,
textíl, málmsmíði og textíl.
Markmið sýningarinnar er að
gefa gestum safnsins tækifæri til
að kynnast listgreinum og lista-
mönnum, sem ekki eru aðgengileg
í söfnum í sama mæli og hefð-
bundnari listgreinar, svo sem
málaralist og höggmyndalist.
Ása Ólafsdóttir sýnir mynd-
vefnað og notast m.a. við svo ólík
efni sem bast og dúnfjaðrir.
Gestur Þorgrímsson sýnir
syrpu af leirvösum undir nafninu
„Rhapsody in Blue“, þar sem titill-
inn gefur til kynna þær tilraunir,
sem Gestur gerir með glerung í
ýmsum tilbrigðum við blátt.
Guðný Magnúsdóttir er með
massífa leirskúlptúra. Flestir muna
eftir skemmtilegum sjónvarpsþætti
um listsköpun Guðnýjar, sem
fínnska sjónvarpið gerði, og var
sýndur hérlendis.
Guðrún Gunnarsdóttir lætur
hugann reika í myndvefnaði, sem
allur er í léttum sumartón. Hún
notar ull, hör og bambus í verk sín.
Halla Haraldsdóttir sýnir gler-
glugga. Halla hefur um árabil
starfað með hinu virta fyrirtæki
Oidtmann-bræðra í Linnich í
V-Þýskalandi, sem er eitt hinna
virtustu á sviði listglers.
Jens Guðjónsson er öllum kunn-
ur sem sérstæður gullsmiður. Hér
sýnir hann ekki skartgripi, heldur
slær á létta strengi í málmskúlptúr-
um.
Ófeigur Björnsson er einn af
okkar yngri gullsmiðum. Hann sýn-
ir heldur ekki gull eða silfur í þetta
sinn, heldur jámskúlptúra á gólfí,
vegg og hangandi í loftinu.
Sigrún Einarsdóttir rekur
ásamt manni sinum, Sören Lar-
sen glerverkstæðið Gler í Bergvík.
BIDUR GARDURINN
ÞINN ENN EFTIR
VORSNYRTINGUNNI?
Á öllum bensínstöövum Esso
höfum við flest til aö þú getir strax
hafist handa: garðáburð, mosaeyði, garð-
skeljakalk og ruslapoka. Mundu aö þú
getur einnig litiö inn eftir kvöldmat,
við erum alls staðar á
næstu grösum.
Áburður 10 kg 250 kr.
Mosaeyðir á 50 m2 708 kr.
Garðskeljakalk 4 kg 117 kr.
Ruslapokar 5 stk. 118 kr.
Olíufélagið hf
Þau hjón eru líklega best þekkt
fyrir nytjalistmuni, en sýna hér
skúlptúra úr handunnu gleri.
Rúna (Sigrún Guðjónsdóttir)
er ein af okkar þekktustu leirlista-
mönnum. Hún hefur m.a. hannað
flísar fyrri Villeroy & Boch, og sýn-
ir hér veggmyndir úr steinleir og
skálar.
Sigrún Guðmundsdóttir (Sifa)
hefur haldið margar sýningar á list-
rænum fatnaði, en er líklega flest-
um kunn af bókum sínum „Föt fyrir
alla“ og „Föt fyrir böm 0—6 ára“.
Hún sýnir hér föt, sem eins vel
gætu staðið sem veggskreytingar.
Ellefumenningamir em allir verð-
ugir fulltrúar sinna listgreina og
tekst áreiðanlega að mynda spenn-
andi heild, sem markast af samspili
andstæðna og hliðstæðna, segir í
frétt frá ASÍ.
Sýningin í Listasafni ASÍ verður
opin alla virka daga kl. 16—20 en
um helgar kl. 14—22. Sýningunni
lýkur 19. maí.
Þessir listamenn eru meðal þeirra sem sýna í Listasafni ASÍ, talið
frá vinstri: Guðrún Gunnarsdóttir, Sigrún Guðjónsdóttir, Guðný
Magnúsdóttir, Ása Ólafsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir, Gestur
Þorgrimsson og Ófeigur Björnsson.
Hugljúfir
dagdraumar
ökumanns...
meö hiœöilegri martröó!
ela hœaleaa endaó
VAKNAÐU MADUR!
Sofandaháttur við stýrið, almennt gáleysi og kæruleysi öku-
manna eru langalgengustu orsakir umferðarslysa. Flest slysin,
verstu óhöppin, mestu meiðslin og flest dauðsföllin verða þegar
skilyrði til aksturs eru best, bjart, þurrt, auðir vegir o.s.frv. Þá
slaka ökumenn á - og stefna sjálfum sér og öðrum vegfarend-
um í stórkostlega hættu. Breytum þessu strax!
(Niðurstaða úr könnun Samvinnutrygginga á orsökum og afleiðingum umferðarslysa).
SAMVINNU
TRYGGINGAR
-gegngáleysi