Morgunblaðið - 06.06.1987, Page 17

Morgunblaðið - 06.06.1987, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1987 17 Jón Baldvin var spurður hvort það væri hans mat að umræðumar um atvinnumálin, sem fram fóru í gær, réðu úrslitum um það hvort tækist að mynda ríkisstjóm:„Það fer ekkert á milli mála að land- búnaðarmálin em trúlega með þeim erfíðari sem við fjöllum um. Þar em sjónarmið flokkanna, annars vegar okkar og hins vegar fráfarandi stjómarflokka það ólík og eftir þessar yfirlitsumræður þá setjum við undimefnd í þetta mál og leggj- um fyrir hana þær hugmyndir um breytingar sem hér hafa verið reif- aðar.“ Að síðari viðræðufundinum lokn- um sídegis í gær, sagði Jón Baldvin á fundi með fréttamönnum: „Það er búið að vera rífandi gangur á þessum viðræðum." Hann sagði hann hefði frestað umræðunni um sjávarútvegsmál, að ósk Steingríms Hermannssonar, sem er á fömm til Portúgals í dag. Þau verða því rædd í dag, en í gær var í stað sjávarút- vegs rætt um tillögur um endur- skipulagningu ríkisútgjalda, húsnæðismál, umhverfismál og ut- anríkismál. „Það miðaði vemlega í sam- komulagsátt," sagði Jón Baldvin og nefndi hugmyndir sem settar vom fram um endurskipulagningu ríkisútgjalda. Það hefði ekki verið umtalsverður ágreiningur um ný- skipan umhverfisvemdarmála og utanríkismál. „í stómm dráttum var samkomulag um þetta,“ sagði Jón Baldvin. Hann sagði að þyngra hefði verið undir fæti í húsnæðis- málunum og niðurstaðan hefði orðið sú að skipa þriggja manna nefnd úr þessum 9 manna viðræðuhópi til þess að fjalla um húsnæðismálin og kaupleiguíbúðir nú yfir helgina. „Þessar umræður em ekkert í strand. Það dettur engum í hug að þrír flokkar setjist við samninga- borðið og semji á nokkmm klukku- tímum," sagði Jón Baldvin. að vísa kröfu vamaraðila, þeirri sem um er dæmt í þespu máli, frá hér- aðsdómi. Meirihluti dómara hefur komsit að gagnstæðri niðurstöðu, og mun ég því samkvæmt 1. mgr. 53. gr. laga nr. 75/1973, taka þátt í efnis- úrlausn málsins. Hvorki hefur verið sýnt fram á að ríkissaksóknari sé í neinum tengslum við vamaraðila máls þessa er mundu gera hann van- hæfan til þess að vera dómari í máli á hendur þeim, né heldur að hann mundi vera það af öðmm ástæðum. Það er eigi í verkahring dómstólanna að meta eða segja fyrir um hvemig haga hefði átt ákæm í þessu máli, svo sem hvort rétt hefði verið að saksækja aðra menn en gert hefur verið. Sam- kvæmt því tel ég að staðfesta ætti hinn kærða úrskurð. færðar hafa verið fram af hálfu kærenda fyrir kröfum þeirra um að ríkissaksóknari víki sæti, gefa ekki tilefni til frekari gagnaöflunar um það atriði. Samkvæmt því verða kröfur kærenda í máli þessu ekki teknar til greina, og er hinn kærði úrskurður staðfestur. Kærumálskostnaður fellur niður. Dómsorð: Hinn kærði úrskurður er staðfestur. Kæmmálskostnaður fellur niður. Sératkvæði Halldórs Þorbjörns- sonar hæstaréttardómara. Vamaraðilar sýnast styðja kröf- ur sínar um öflun gagna þeim rökum að þeim sé þörf á gögnum þessum til styrktar kröfu sem þeir hafa gert í sakadómi Reykjavíkur um frávísun málsins, en krafa þessi bíður úrlausnar. Ég tel að eigi verði leitað dómsúr- lausnar um það að máli verði vísað frá dómi af þeim ástæðum að ríkis- saksóknari mundi vera vanhæfur til þess að vera dómari í því. Með þessum rökum er ég sammála nið- urstöðu meirihluta dómara um það að kröfur vamaraðila verði ekki teknar til greina. Morgunblaðið/Emilía Hin nýja stjóm Arkitektafélagsins. F.v. Málfríður Klara Kristiansen, Guðmundur Gunnarsson, Egill Guðmundsson og Guðlaugur Gauti Jónsson. Ar kitektaf élagið: Guðlaugur Gauti Jóns- son kjörinn formaður NÝ STJÓRN var kjörin á aðal- fundi Arkitektafélagsins fyrir skömmu. Formaður er Guðlaugur Gauti Jónsson, ritari Málfríður Klara Kristiansen, gjaldkeri Egill Guðmundsson og meðstjómandi Guðmundur Gunnarsson. Félagar í Arkitektafélaginu eru nú 227 og í fréttatilkynningu frá því kemur fram að starfsemin hefur ver- ið lífleg á síðasta starfsári. íslenskir og erlendir arkitektar hafa haldið fyrirlestra um byggingarlist og haldnar hafa verið ráðstefnur og sýn- ingar á verkum starfandi arkitekta og nýútskrifaðra arkitektanema. í fréttatilkynningunni segir að menntamál hadfi töluvert verið rædd innan félagsins og séu uppi ýmsar hugmyndir um kennslu í arkitektúr hérlendis. Vonir standi til að þau mál skýrist á þessu ári. Bleiki pardusinn hugsar vel um n eru frábær fyrir smáfólkið Allt í einu boxi, heil máltíð og margskonar leikir og gátur. Einnig einhver óvæntur glaðningur í hverju boxi. p, f-"'* \ 'Xþfr. x HIÐ VEITINGASTAÐUR FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA SKYNDIBITASTAÐURINN GNOÐARVOGI 44, sími 32005 HRINGBRAUT119, sími 19280

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.