Morgunblaðið - 06.06.1987, Page 22

Morgunblaðið - 06.06.1987, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1987 Kistufell séð frá Leirvogstungumelum. Eyjatjöm. Sandfell í baksýn. SVÍNASKARÐSLEIÐ eftirÞórunni Lárusdóttur Ferðafélag íslands verður sextíu ára á þessu ári, nánar tiltekið 27. nóvember. Þessara tímamóta hyggst félagið minnast með ýmsum hætti. Félagið var stofnað fyrst og fremst til að kynna Islendingum eigið land. Arið 1927 voru skemmtiferðalög nánast óþekkt hér á landi. Einn þátturinn í að kynna landið er að fara gangandi fomar þjóðleiðir og feta þannig í fótspor feðranna. Akveðið hefur verið að fara fótgangandi frá Reylq'avík og upp í Borgarfjörð að Reykholti. Leiðin verður gengin í sex áföngum á sex sunnudögum. Að vísu verður ekki öll leiðin gengin heldur farið í bflum hluta leiðarinnar. Hér á eftir verður reynt að lýsa svonefndri Svínaskarðsleið, fomri þjóðleið, sem lá af Kjalamesi yfir Svínaskarð og áfram yfir Reyni- vallaháls, fyrir Hvalfjörð og áfram upp í Borgarfjörð, vestur eða norð- ur í land. Þetta var alfaraleið meðan ferðast var fótgangandi eða á hestum. Þessi leið var mikið styttri heldur en að fara fram fyrir. Ferðin hefst með því að ekið er sem leið liggur upp úr Reykjavík. Brátt er komið að rótum Ulfars- fells eða Hamrahlíðarinnar eins og flallið kallast næst veginum. Neðan vegar, nær sjónum, blasir við stór- býlið Korpúlfsstaðir sem nú má muna sinn fífil fegri. í stað stórbón- dans Thórs Jensen, sem byggði þar upp í herragarðsstíl, hýsa bæjar- húsin nú listamenn að starfí og í stað þess að áður fyrr var heyjað handa yfir hundrað kúm eða meir, er túnið nú notað sem golfvöllur og er hvort tveggja nauðsynlegt í nútímaþjóðfélagi. Þegar komið er upp fyrir Leirvogsá er sveigt af þjóðvegi nr. 1 og ekið um melana fyrir ofan Varmadal, fram hjá bæjunum Völlum og Norður-Gröf. Skammt innan við Norður-Gröf er Grafará, sem venjulega er lítill og meinlaus lækur, en getur orðið á skömmum tíma hið mesta forað. Síðast drukknaði maður í ánni 1954, bóndinn í Þverárkoti, Oddur Einarsson, er hann var einn á ferð með kerruhest. Grafardalurinn er stuttur en djúpur dalur sem gengur inn í Esjuna austan við Kistufellið. Þverárkotsháls gengur fram úr Esjunni miili Grafardals og Þverár- kotsdals og gengur langt fram á Leirvogsáreyrar. Iðulega er gengið á Esju upp Þverárkotsháls og er þá komið beint upp á Hátind, 909 m. Þegar komið er inn fyrir hálsinn tekur við all mikið undirlendi og flatar áreyrar, sem Þveráin hefur myndað með framburði sínum, en nú hefur verið breytt í ræktað land. Þverárkot var áður fyrr all góð jörð, en hefur nú verið í eyði um árabil. Þegar komið er inn fyrir Þverá hefst hin eiginlega Svínaskarðsleið, sem lá yfir Svínaskarð niður Svínadal, yfir Laxá og áfram yfir Reynivallaháls upp frá Vindáshlíð um Seljadal og kom niður í Hval- fjörð hjá Fossá. Svínaskarðið liggur á milli Móskarðshnjúka og Skála- fells. Þetta er auðveld leið að sumarlagi þegar veðrið er gott og bjartur dagur, en að vetri til er öðru máli að gegna. Þarna er mik- ið vetrarríki og snjóþungt, sérstak- lega norðan í skarðinu og allra veðra von. Ekki er oft getið um mannskaða á þessari leið, þó var það snemma á þessari öld að ungur maður frá Hækingsdal í Kjós varð úti í skarð- inu. Var það rétt fyrir jól að hann var á leið upp í Kjós ásamt nokkr- um öðrum ferðamönnum en kenndi lasleika á leiðinni og varð eftir í Fitjakoti þegar samferðamennimir héldu áfram. Hann gisti í Fitjakoti og hélt svo áfram einn síns liðs daginn eftir, en þá var kominn aðfangadagur. Heimilisfólkið í Hækingsdal átti von á honum þá um kvöldið en þegar hann kom ekki var sent suður daginn eftir og kom þá hið sanna í ljós. Fannst lík hans ekki fyrr en nokkrum vik- um seinna. Þegar komið er upp í háskarðið opnast mikið útsýni. Til vesturs sér yfir Álfsnesið, eyjamar og til Reykjavíkur. í norðri blasa við Kjöl- urinn, Hádegisflallið og írafellið. í Skarðinu er all stór varða eins og víða á gömlum alfaraleiðum. Slíkum vörðum eru yfirleitt tengdar ein eða fleiri þjóðsögur. Hér áttu tveir smalar frá bænum sitt hvoru megin við skarðið að hafa drepið hvom annan og verið dysjaðir þama, enda slíkar sögur miklu áhrifameiri en sú skýring að ferða- menn hafi stansað þar sem vegur- inn Iá hæst, hvflst þar um stund og kastað steinum í vörðu til að merkja leiðina. Segja má að í háskarðinu sé leið- in um Svínaskarð hálfnuð. Héðan er stutt að ganga á Móskarðs- hnjúkana en milli skarðsins og Skálafells er all mikið gil eða gljúf- ur. Tvær ár eiga upptök sín í skarðinu, til suðurs rennur Skarðsá og til norðurs rennur Svínadalsá. Svínadalurinn er langur og nokkuð brattur efst. Þegar neðar dregur er hann breiður og grösug- ur. Aldrei hefur verið búið í dalnum. Þegar haldið er niður í dalinn verð- ur fyrst fyrir all djúpt gil á vinstri hönd og nefnist það Móskarðsgil og skilur á milli Móskarðshnúks og Trönu. Trana er all mikið fjall, sem gengur út úr Esjunni til norð- urs og tranar sér þar fram. Svínadalsáin kemur úr Svína- skarði eins og áður segir og rennur niður Svínadalinn. Ekki er hún vatnsmikil að jafnaði en í leysing- um getur hún orðið að all mikilli á. Þegar neðar dregur breikkar dalurinn og landslagið breytist. Framundan blasir Sandfellið við þar sem það situr á Reynivallaháls- inum austast. Austan við dalinn er Hádegisfellið og neðar er svo írafellið, lítið fjall og stendur sam- nefndur bær undir því. Bær sem er frægur fyrir írafellsmóra, draug sem var all magnaður í fyrstu, en er nú að öllum líkindum útdauður. Neðarlega í Svíandalnum er komin þó nokkur sumarbústaðabyggð enda er landið vel fallið til slíkrar búsetu. Þegar komið er niður úr Svína- dalnum er komið á Kjósarskarðs- veg og skammt frá veginum er flárskilarétt Kjósaringa, Möðru- vallarétt. Áður var skilaréttin í landi Eyja við endann á Meðalfells- vatni og hét þá Eyjarétt. Meðan að sauðfjárbúskapur var stundaður að marki í Kjósinni var líf og fjör á réttardaginn í Eyjarétt, en nú er öldin önnur og lítið um að vera á þeim degi. Svínaskarðsleið lá áður fyrr þvert yfir Laxá, fram hjá Vindáshlíð og upp á Reynivalla- háls. Nú er farinn vegurinn til austurs, yfir Svínadalsá á brú og síðan yfir Laxá, sem líka er brúuð. Skammt frá brúnni er sveigt af leið til hægri og er þá komið aftur á hina fomu leið yfir Reynivalla- háls, sem kallaðist þjóðvegur. Svínadalsáin og Laxáin renna hér í dálitlum gljúfrum, sem þær hafa grafið í gegnum holtin í áranna rás. Hér er snoturt um að litast og sjálfsagt að gefa sér góðan tíma til að litast um. Hér sér niður að Möðruvöllum og út á Meðalfellið, sem skiptir Kjósinni. Að sunnan er Krókurinn og að norðan er Lax- árdalurinn. Mál er að linni lýsingunni að sinni. I næstu grein verður haldið áfram göngunni upp í Hvalfjörð. MOBALPA* mmmmmmmmmmmm mrtms Hverfisgata 37 Simi 91-21490 91-21846 Pósthólf 761 101 Reykjavík JS F Vlkurbraut 13 Simi 92-2121 Pósthólf 32 230 Keflavik STÓRKOSTLEG HÖNNUN í SÉRSTÖKUM GÆÐAFLOKKI Lions- félagar á þingi ÞING Lionshreyfingarinnar á íslandi verður sett að Hótel Sögu í Reykjavík laugardaginn 6. júní kl. 10.00. Allt að 500 Lionsfélagar víðsvegar að af landinu munu sækja þingið. Heiðursgestir á þinginu verða Svíinn Sten A. Akestam og Martha kona hans, en Sten A. Akestam er alþjóðaforseti Lionshreyfingarinnar þetta starfsár. Lionsfélagar eru 1.400.000 í heiminum í 160 löndum. Á ís- landi er að finna 3.500 Lions- félaga karla og konur í 102 klúbbum. Í7

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.