Morgunblaðið - 06.06.1987, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1987
25
Gagnrýni þarf að rökstyðja
eftirBjörn
Hermannsson
í Morgunblaðinu — þætti
Víkveija — 30. maí sl. getur að líta
eftirfarandi: „Á vegum fjárlega- og
hagsýslustofnunar stendur nú yfír
átak í að bæta gæði í opinberri þjón-
ustu og munu vafalaust einhverjir
segja að það sé tímabært framtak.
Þessa stundina er kröftunum m.a.
beint að tollstjóraskrifstofunni sem
hefur um langan tíma verið um-
deildasta stofnunin hér á landi hvað
alla þjónustu snertir."
Hér er mikið sagt, ýmislegt^gefið
í skyn, en þó flest ósagt. Ut úr
þessum orðum má lesa þetta:
1. Það er að frumkvæði fjárlaga-
og hagsýslustofnunarinnar verið að
kanna þjónustu tollstjóraskrifstof-
unnar. Þetta er rangt.
2. Tilefni þessarar könnunar er lé-
leg þjónusta. Þetta er líka rangt.
Tilefnið er allt annað.
Ekki er mér kunnugt um hvaðan
greinarhöfundi, sem ekki skrifar
undir nafni, kemur sú vitneskja, að
tollstjóraskrifstofan hafí um langan
tíma verið umdeildasta stofnunin
hér á landi hvað alla þjónustu snert-
ir. Ég hef að visu orðið var við
kvartanir öðru hveiju, einmitt í
Víkveija, um lélega „þjónustu" við
afgreiðslu, einkum bóka, hjá Toll-
póststofunni. Hefur verið sett út á
það að innheimtur skuli söluskattur
af innfluttum bókum. Kanna þarf
hvort þessi gagnrýni er réttmæt,
eða öllu heldur er henni beint að
réttum aðila?
Ekki á ég heldur von á að þessar
getsakir séu komnar frá þeim
ágætu mönnum, sem með mér eru
að störfum nú frá fjárlaga- og hag-
sýslunni. Þeir eru að vísu fastir
dálkahöfundar í Morgunblaðinu og
skrifa um opinbera þjónustu. Þama
er því að þeim vegið um trúnaðar-
brest. Ég er þess þó fullviss, að
þaðan er þetta ekki komið. Greinar-
höfundur, hver svo sem hann er,
segir að vísu annars staðar og í
öðru samhengi í sama pistli, að
hann hafí um einhvem tíma verið
viðriðinn innflutning. Sennilega er
þessi reynsla hans þaðan. En þá
skiptir líka höfuðmáli hvaða kröftir
gerði hann til sjálfs sín sem innflytj-
andi, hvaða þekkingu hafði hann á
þeirri vöm, sem hann var að flytja
„Ég- fullyrði að vilji
er fyrir hendi til að
bæta þjónustu toil-
stjóraembættisins, en
að því tilskyldu að ör-
yggissjónarmiða sé
gætt. Orökstuddar
dylgjur í aðrar áttir
bæta ekkert.“
inn? Hvaða væntingar hafði hann
í þessu sambandi til þjónustu toll-
stjóraskrifstofunnar? Kannski þær,
að hún gerði allt verkið fyrir hann
eins og ekki er óalgengt með óvana
innflytjendur? Til þess konar þjón-
ustu ætlast þó hvorki lÖggjafínn,
framkvæmdavaldið né fjárveitinga-
valdið.
En meðal annarra orða, hvað er
átt við með orðinu þjónusta? Við
þessa stofnun er að vísu veitt marg-
háttuð þjónusta, en það er fengist
við ýmislegt annað hér. Megin-
verkefnið er innheimta, oft þvinguð
innheimta. Annað meginverkefnið
er löggæsla, stundum einnig þving-
uð. Til þess að varpa nokkm ljósi
á hvað við er átt, ætla ég að endur-
segja kafla úr norskri skýrslu, sem
ég hefi nýfengið inn á borð hjá
mér, og fjallar um nýja reynslu
Norðmanna á vettvangi fjármála-
legra afbrota, einkum á tollasvið-
inu. Þar segir: „Reynslan af
eftirlits- og endurskoðunarstarfí
sýnir að orðin er breyting í sam-
félaginu, sem lýsir sér í því, að
jafnvel dæmigerð alvömatvinnufyr-
irtæki víla ekki lengur fyrir sér að
ganga á snið við þau lagaákvæði
og reglugerðir, sem okkur (þ.e. toll-
stjóminni) er uppálagt að fram-
kvæma. Allt til þessa höfum við
getað byggt á trausti til þessara
fyrirtækja, en verðum nú að búa
okkur undir að næstum hvert ein-
asta atvinnufyrirtæki geti lent undir
smásjánni. Þetta gerir eftirlitið afar
þungt, sérstaklega þar sem flest
atvinnufyrirtæki nota nú tölvuvætt
bókhald, stjómað af sérfræðingum,
sem hafa aðstöðu og þekkingu til
að fela hinar ólöglegu aðfarir undir
löglegu yfirskyni. Tollstjómin verð-
ur því að byggja í auknum mæli á
upplýsingaöflun svo að unnt verði
að taka þau atvinnufyrirtæki til
sérstakrar skoðunar, sem líta má á
Björn Hermannsson
sem hættuleg öðmm fremur.. .
Aðeins með því að ráða til starfa
færa tollendurskoðendur, sérfræð-
inga, verðum við þess megnug að
fást við fjármálaleg glæpaverk
(ökonomiske kriminalitet)." Tilvitn-
un lýkur.
Hvað vilja menn kalla starfsemi
af þessum toga? Þjónustu? Nei. Á
þessum vettvangi em ýmis störf
unnin, sem ekki verða flokkuð und-
ir þjónustu, þó erfiðlega gangi að
koma því sjónarmiði til skila.
Ég vona að okkar reynsla verði
ekki sú, að við hættum að geta
treyst „alvöru" atvinnuinnflytjend-
um, því einmitt gagnvart þeim
höfum við reynt að hraða vinnu við
að losa vöm úr tollviðjum. Þar höf-
um við einmitt eygt möguleikann
til bættrar „þjónustu", gegn því
aftur á móti að innflytjendur gerðu
sér ljósa ábyrgð sína og sættu raun-
vemlegum viðurlögum við ítrekuð-
um brotum á settum reglum með
því að missa um tíma eða þá alfar-
ið heimild til fljótvirkari tollmeð-
ferðar.
Ég fullyrði að vilji er fyrir hendi
til að bæta þjónustu tollstjóraemb-
ættisins, en að því tilskyldu að
öryggissjónarmiða sé gætt. Órök-
studdar dylgjur í aðrar áttir bæta
ekkert. Mér er heldur ekki sama
um þegar starfsfólk embættisins,
sem flest allt er af vilja gert að
leysa störf sín vel af hendi við mik-
ið álag, en léleg kjör, verður fyrir
aðkasti úr launsátri. Það er ekki
beðist undan gagnrýni, en þess
krafist að hún sé rökstudd og heið-
arleg.
Höfundur er tollstjóri.
r&'
. u?
Er með beina innspýtingu.
Er 105 hestöfl.
Er 5 gíra „Overdrive".
Er með vökvastýri.
Er vestur*þýskur.
sf
LIMAfíl
ÍT
Sýningarsalurinn er opinn mánudaga — föstudaga kl. 9-6 og laugardaga kl. 1-5.
Sveinn Egilsson hf.;
Nýr sýn-
ingarsal-
urtekinn
í notkun
SVEINN Egilsson hf. tekur i
notkun nýjan sýningarsal fyrir
nýja bíla í dag, laugardaginn 6.
júní. Sýningarsalurinn er í ný-
byggingu fyrirtækisins við
Skeifuna og hefur húsinu verið
gefið nafnið Framtið.
Á götuhæð hússins em u.þ.b.
1300 fm sýningarsalur fyrir nýja
bíla auk 700 fm rýmis fyrir notaða
bíla.
Öll sölustarfsemi Ford, Suzuki
og Fiat umboðanna flyst nú í þetta
nýja hús, en varahluta- og viðgerð-
arþjónusta og skrifstofur verða
áfram í Skeifunni 17.
Gæði og öryggi í akstri eru forsenda góðra bílakaupa.
Þess vegna kaupir þú BMW.
Sýningarbílar í sýningarsal.
*Miðað við júní gengi DEM 21,3996.
Fróóleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
KRISTINN GUÐNASON HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 686633.