Morgunblaðið - 06.06.1987, Side 28

Morgunblaðið - 06.06.1987, Side 28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1987 28 Ræðst á garðinn þar sem hann er hæstur Askhenazy tekur við Konunglegn Lundúnafílharmóníunni KAFLASKIL urðu nýlega lýá píanósnillingnum Vladimir Askhenazy þegar hann tók við stöðu tónlistarstjóra hjá Kon- unglegu fílharmóniuhljóm- sveitinni í Lundúnum . Hann hyggst brydda upp á ýmsum nýjungum í starfi sinu. Hvers vegna langar einn af dáðustu og hæstlaunuðu píanólei- kurum heims til að stjóma hljómsveit? „Eg veit ekkert gott svar við þeirri spumingu", segir Ask- henazy sem verður fímmtugur á þessu ári. Hljómsveitarstjóm var aldrei nein þráhyggja hjá mér. Þetta bara gerðist! En nú, þegar ég er fær um að standa á pallinum og lifa mig inn í þetta, veitir það mér ótrúlega fullnægingu. Fullnægingu sem frábær píanó- leikur getur ekki veitt? „Þetta er af sama toga spunnið og samt ekki.Þetta veitir meiri fullnægju af því að ég gef meira af sjálfum mér“. Askhenazy sveiflaði sprotanum fyrst fyrir um l7 árum og var svo hygginn að læra starfíð Ij'arri sviðsljósi heimsins (oft með Sin- fóníuhljómsveit Islands). „Eg hef ekki stjómað stórum hljómsveitum fyrr en allra síðustu ár“, segir hann.„Aður var þetta nánast tómstundagaman". „Tómstundagamanið" verður stundað í fyllstu alvöru á næst- unni því að hin nýja staða Askhenazys í Lundúnum flytur hann inn í miðju ólgandi hljóm- sveitarlífs áem nú stendur á tímamótum. Hann veit þetta en heldur samt fullkomlega ró sinni og yfírvegun. „Ef til vill eru erfiðleikar hjá hljómsveitum Lundúna en þannig er ástandið alltaf“. Samt sem áður endurspeglar ráðning hans óbeint þá jámhörðu samkeppni sem ríkir milli sjálf- stæðu hljómsveitanna. Þar til fyrir skömmu stjómaði Askhenazy öðm hverju Fflharmóníunni, en ekki Konunglegu fflharmóníu- hljómsveitinni. Hann var reyndar helsti gesta-hljómsveitarstjóri Fflharmóníunnar snemma á þess- um áratug og fór með hljómsveit- ina í mikla ferð til Ameríku. Það er opinbert leyndarmál að hann hefði tekið við hlutverki aðal- stjómanda hljómsveitarinnar ef hann hefði fengið slíkt tilboð. En Sinopoli fékk stöðuna og fáleikar urðu með Askhenazy og Fflharm- óníunni. Þetta er ástæðan fyrir því að fyrir nokkrum mánuðum urðu fáheyrðar, opinberar deilur út af 6000 punda þóknun sem Ask- henazy fór fram á fyrir að leika Paganini-tilbrigðin eftir Rach- maninov með Fílharmoníunni. A meðan þetta gerðist vofðu annars konar hættur yfír Konung- legu fílharmóníuhljómsveitinni. Tveim árum fyrr hafði André Pre- vin verið lokkaður aftur til Lundúna til að verða tónlistar- stjóri og aðalstjómandi hljóm- sveitarinnar. Síðastliðið haust sagði hann upp fyrmefndu stöð- unni og gaf þá í skyn að hann teldi útilokað að gegna stöðu af þessu tagi við ríkjandi aðstæður í tónlistarlífí Lundúna.Fram- kvæmdastjóm hljómsveitarinnar bauð (ef til vill með nokkurri ánægju) Askhenazy þegar í stað starfið en hann er einn af nán- ustu vinum Previns. Hvemig líst Askhenazy á að inna af hendi starf sem sumir segja að sé illframkvæmanlegt? „Eg var hrifínn af yfírlýsingu Andrés; hún var eðlileg og skil- merkileg. Gleymum ekki að hann þarf einnig að gegna óhemju viða- miklu starfí í Los Angeles", - Previn varð aðalstjómandi Fflharmoníuhljómsveitar Los Angeles fljótlega eftir að hann tók við þeirri Konunglegu -„Það er óskapleg vinna að stjóma tveim hljómsveitum án þess að slá af neinum kröfum, sérstaklega þeg- ar fjarlægðin á milli þeirra er svo mikil. Hvað mér viðkemur þá er ég ekki bundinn annarri hljómsveit og þegar ég fékk þetta tilboð hugsaði ég með mér að ef ég gæti veitt starfí þeirra og lífí eitt- hvað jákvætt myndi ég gera það með ánægju. Tónlistarstjóri hljómsveitar verður að stunda starf sitt af lífi og sál.“ Askhenazy fer ekki með fleipur þegar hann talar um bætt lífskil- yrði hljóðfæraleikaranna. Hann upplýsir að Konunglega sé í þann veginn að taka fyrstu skref í átt til nokkurs sem rætt hefur verið um í Lundúnum í 30 ár. „Framkvæmdastjómin og ég erum alveg sammála; við viljum gera fastan starfssamning við hljóðfæraleikarana.Við viljum gera þetta sjálfír en ekki bíða eftir því að einhveijir aðrir komi færandi hendi." Askhenazy bætir við:„I hrein- skilni sagt þá var fjárhagslegt öryggi hljómsveitarinnar tryggt síðastliðinn áratug( að loknu miklu erfíðleikatímabili) með því að hún var látin leika ýmis verk sem hún var ekki öfundsverð af. Þessu fylgja kostir: Það tókst að bjarga hljómsveitinni og hún er nú sæmilega efnum búin. Oko- stimir eru einnig miklir: Þegar fólk sættir sig við að leika tón- list, sem ekki er af hæsta gæðaflokki, hættir það að gæta fyllstu vandvirkni. Hljóðfæraleikaramir segjast ekki sætta sig við ástandið eins og það er; tvennir eða þrennir tónleikar á dag, vikum saman. Gæðum hrakar og helstu hljóð- færaleikarar annaðhvort þjást af ofþreytu eða verða hreinlega að hætta um stundarsakir og það kemur líka niður á gæðunum!" Ekki er ráðgert að samningar verði gerðir strax og þeir verða aðeins um hluta starfsins. Þetta mun he^'ast á næsta ári og að sögn Askhenazys munu þeir gilda „einn og einn mánuð í senn, hugs- anlega í tengslum við störf Andrés og mín. Þann tíma fá þeir greitt jafn mikið og þeir fá venjulega eftir gamla furðu-fyrirkomulag- inu en þurfa nú aðeins að inna af hendi takmarkaðan fjölda æf- inga og tónleika." Hvað hindrar hljóðfæraleikar- ana í að vinna á frídögum sínum og hvemig á að fjármagna áætl- unina? Askhenazy telur að þetta muni krefjast „ mikillar vinnu af öllum, þ.á.m. André og mér sjálfum. Hvað fjármagn snertir verðum við að ganga á sjóði hljómsveitarinnar og þar að auki beita okkur af meira kappi fyrir því að einkaaðil- ar styrki okkur." Askhenazy hefur lagt mikla vinnu í að fullkomna tækni sína við stjómun og stórkostlegir tón- listarhæfíleikar hans ásamt því að hann kemur fram við hljóð- færaleikarana eins og félaga vekur ávallt velvild þeirra í hans garð.Þessi nýja samvinna lofar því góðu. En hvað með píanóleik Ask- henazys? Hversu lítið sem gæði hans rýma yrði það ófyrirgefan- legt. Askhenazy álítur þetta ekkert vandamál. „Jafnvel þótt um verði að ræða tvenna tónleika með hljómsveit- inni sama daginn get ég samt sest niður á kvöldin og æft mig í tvær eða þijár stundir. Ekki stundað erfíðar æfíngar, aðeins nóg til að missa ekki allt samband við nótnaborðið." (Byggt á The Times) Washington: Nýja-Sjáland sett skör lægra Washington, Reuter. REAGAN-stjórnin ákvað í gær að styðja frumvarp á Bandaríkja- þingi þess efnis að Nýsjálending- ar skyldu ekki lengur skilgreind- ir sem bandamenn Banda- ríkjanna. Var ákvörðun þessi svar Bandaríkjastjórnar við laga- samþykkt á Nýja-Sjálandi í gær, en þá var allt kjamorku viðkom- andi bannað á eyjunum. Deilur hafa nú verið með ríkjunum um afstöðu Nýja-Sjálands til kjarn- orkumála í tvö ár. Charles Redman, talsmaður ut- anríkisráðuneytisins, sagði að þrátt fyrir þetta væri alls ekki loku fyrir það skotið að Nýja-Sjáland gengi á ný í ANZUS,_ vamarbandalag Bandaríkjanna, Ástralíu og Nýja- Sjálands, en Nýja-Sjáland hefur verið óvirkt í því allt frá því að laga- frumvarp þetta var lagt fram af stjóminni. Redman lagði enn á það áherslu að Nýsjálendingar hefðu „glatað þeim sérstöku tengslum og áhrifum, sem bandamaður nýtur vanalega“, og lýsti yfír stuðningi stjómarinnar við fmmvarp þingmannsins William Broomfíeld, þar gert er ráð fyrir að vinslit ríkjanna séu lögfest. Embættismenn segja að lögin muni hafa þau áhrif að minna tillit verði tekið til stefnu og hagsmuna Nýja-Sjálands, samband ríkistjóm- anna verði mun minna, erfíðara verði fyrir landið að kaupa hergögn frá Bandaríkjunum, leynilegum upplýsingum verði ekki komið á framfæri við Nýsjálendinga nema þess brýnni ástæða sé til og Nýsjá- lendingar geta ekki vænst þess að liðkað verði til fyrir þá á viðskipta- sviðinu. Deilur ríkjanna hófust fyrir tveimur árum þegar stjóm Verka- mannaflokksins undir stjóm Davids Lange meinaði bandaríska tundur- spillinum Buchanan um landtöku þar sem Bandaríkjastjóm vildi hvorki neita því né játa að um borð væm kjamorkuvopn. „Við teljum að stefna [Nýja-Sjálands], eins og kveðið er á um í lögunum, sé ands- núin vamarkerfí vestrænna ríkja“, sgaði Redman meðal annars. Bandaríkjastjóm gafst upp á til- raunum til sátta milli ríkjanna í fyrra, en þá hittust þeir George Shultz, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, og David Lange, forsætis- ráðherra Nýja-Sjálands. Þeim fundi lauk með því að Shultz sagði: „Við skiljum sem vinir, en við skiljum." ERLENT Airbus ákveður smíði tveggja þotutegunda París, Reuter. AIRBU S-flugvélaframleiðend- urnir ákváðu í gær að ráðast í smíði tveggja fullkominna þotutegunda, sem þær vona að verði til að rjúfa einræði banda- rískra flugvélaframleiðenda á markaði fyrir langdrægar far- þegaþotur. Þotumar tvær verða af tegund- unum A-340 og A-330. Sú fyrri verður tilbúin til farþegaflugs í maí 1992 og A-330 ári síðar. Með Airbus A-340 verður hægt að fljúga 260 farþegum 8.900 mflna leið án millilendingar og mun flug- vélin því keppa við þotur af gerðinni Boeing-747 og McDonn- ell Douglas MD-11. A-330 svipar mjög til A-340, er meðal annars með sömu vængi. Verður drægni hennar 5.750 mílur og er henni ætlað að keppa við Boeing-767. Pantanir hafa nú þegar borizt í 130 þotur af nýju tegundunum, þar af 89 þotur af gerðinni Airbus A-340. Að þessari ákvörðun te- kinni framleiðir Airbus-fyrirtækið farþegaþotur til notkunar á öllum flugleiðum. Upphaflega stóð til að taka ákvörðun um smíði flug- vélanna í marz sl., en það'tafðist þar sem ríkisstjóm Vestur-Þýzka- lands, eins af fjögurra ríkja sem eiga Airbus-fyrirtækið, dró á langinn að leggja smíðinni til fjár- magn. Flug Mathias Rust: Átti að koma af stað milliríkjadeilu? Moskvu, Bonn, Reuter. MÁLGAGN sovézka kommúni- staflokksins, Pravda, hélt því fram i gær, að Vestur-Þjóðveij- inn Mathias Rust hefði flogið inn yfir Sovétríkin að undirlagi manna, sem vonuðust til að hann yrði skotinn niður með þeim af- leiðingum að meiriháttar milliríkjadeila hlytist af. í grein í Pravda, sem bar yfír- skriftina „Gálaus ævintýramennska eða þaulskipulagður glæpur?“, er því haldið fram að Rust hafí haft meðferðis nákvæm siglingakort af flugleiðinni frá Helsinki til Moskvu. Segir blaðið það til marks um að fleiri aðilar hafí verið viðriðnir flug- ið. Einnig heldur Pravda því fram að brezkur ferðamaður, sem kvik- myndaði aðflug og lendingu Rust á Rauða torginu, hafí ekki verið þar fyrir tilviljun. „Þessi ferðalangur myndaði komu flugvélarinnar að Rauða torginu, hringflug hennar yfír torginu, aðflug og lendingu," sagði blaðið. Ferðalangurinn seldi bandarískri sjónvarpsstöð fílmuna og hefur kvikmyndin verið sýnt í sjónvarpsstöðvum á Vesturlöndum en ekki í Sovétríkjunum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.