Morgunblaðið - 06.06.1987, Page 30

Morgunblaðið - 06.06.1987, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1987 Vor- verk keis- ara HIROHITO Japanskeisari gróðursetti í gær hrísplöntu í hrísgijónakur sem er fyrir utan keisara- höllina. Næsta haust mun hann færa helgiskríninu Ise þau að fóm. Reuter Verkamannaflokkurinn á Bretlandi: Vill rannsókn á Koivisto verður áfram í framboði Helsínki, frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins. Kosningabaráttan fyrir næstu forsetakosningar í Finnlandi hófst fyrir alvöru sl. fimmtudagskvöld þegar Mauno Koivisto, forseti, tilkynnti formlega að hann gæfi kost á sér sem forseta- efni jafnaðarmanna. Gaf hann til kynna að hann hefði velt því lengi fyrir sér hvort hann ætti að gefa kost á sér áfram eða draga sig í hlé. Nýtur forsetinn mikillar lýðhylli. Kalevi Sorsa, formaður Jafnað- armannaflokksins, og nokkrir æðstu embættismenn flokksins, hafa tilkynnt að þeir gefi ekki kost á sér til endurkjörs. Ætla þeir að einbeita sér að ráðherrastarfí í ríkisstjóminni, sem flokkurinn myndaði með hægrimönnum í vor. Ráðherrar flokksins hrósuðu stjómarsamstarfínu við hægrimenn og sögðust vonast til þess að stjóm- in sæti út kjörtímabilið. Flokks- menn skiptast þó í tvennt í afstöðunni til stjómarverunnar. Kom það greinilega fram við um- ræður á flokksþinginu, þar sem því var m. a. haldið fram að finnski Jafnaðarmannaflokkurinn væri á góðri leið með að verða borgaraleg- asti sósíalistaflokkurinn í Evrópu. Tveir flokkar aðrir hafa útnefnt frambjóðendur sína við forseta- kosningamar. Miðflokkurinn hefur útnefnt Paavo Vayrynen, flokks- formann og fyirum utanríkisráð- herra, og Harri Holkeri, forsætis- ráðherra, verður frambjóðandi hægrimanna. Finnskir jafn- aðarmenn sitja nú á flokksþingi í Helsinki þar sem mótuð verður ný stefna og ný flokksforysta val- in. Flokkurinn tapaði í þingkosn- ingunum í vor og var þá endir bund- inn á áratugalangt stjómarsamstarf við Miðflokkin. Miklar umræður og harðar deilur um stefnumál urðu á fyrsta degi flokksþingsins, fímmtudag. Telja stjómmálaskýrendur að það hafí verið tilraun af hálfu flokksforys- tunnar að sameina flokkinn með því að tilkynna ákvörðun Koivisto. hvik- Mauno Koivisto sögum í kauphöllinni íhaldsflokkurinn heldur hlut sínum í skoðanakönnunum Lundúnum, Reuter. TALSMENN Verkamannaflokks- ins kröfðust þess að opinber rannsókn færi fram á uppruna sögusagna í kosningabaráttunni, en í fyrradag féllu verðbréf um sex milljarða sterlingspunda á hálftíma eftir að sá orðrómur komst á kreik að íhaldsflokkurinn hefði tapað miklu fylgi samkvæmt óbirtri skoðanakönnun. Það sam- svarar rúmlega 360 milljörðum islenskra króna. George Foulkes, sem er talsmaður Verkamanna- flokksins um utanríkismál, gaf í skyn að einhverjir óprúttnir fjár- málamenn væru að reyna að hagnast á þessum fölsku fregnum og margir verðbréfasalar sögðust telja að einhveijir hefðu af ásettu ráði hrundið þessum sögusögnum af stað. Samkvæmt sögunni átti Verka- mannaflokkurinn að vera að vinna á íhaldsflokkinn og áttu aðeins tvö prósentustig að skilja flokkana að í skoðanakönnuninni, en kosningar fara fram næstkomandi fimmtudag. Sannleikurinn var hins vegar sá að íhaldsflokkurinn hefur enn gott for- skot á keppinauta sína, eða um 10%, en téð könnun, Marplan-könnunin, birtist í dagblaðinu The Guardian í gær. Verðbréfamarkaðurinn náði sér þó að nokkru aftur, þegar þeir sem framkvæmdu könnunina upplýstu í fyrradag að jafnvel þeir væru ekki komnir með niðurstöðuna, hvað þá aðrir. „Aukin áhrif skoðanakannana er vaxandi áhyggjuefni", sagði Foul- kes. „Þær eru svo áhrifamiklar að þær hafa nú ekki einvörðungu áhrif á kosningaúrslit, heldur eru þær nú misnotaðar til þess að komast yfir illan feng.“ Anne Coleman, talsmaður verð- bréfamarkaðarins, sagði að fram- kvæmdastjóm markaðarins teldi hugsanlega rannsókn engum tilgangi þjóna, þar sem ekki væri hægt að amast við orðrómi. „Sögusagnir eru það sem veldur sveiflum á verðbréfa- markaðinum og hvemig í ósköpunum á að rannsaka orðróm?" Samkvæmt nýjustu skoðanakönn- unum er íhaldsflokknum enn sigur vís. í áðumefndri Marplan-könnun var íhaldsflokknum spáð 44% fylgi, Verkamannaflokknum 34% og Bandalaginu 21%. í Harris-skoðana- könnuninni, sem gerð er daglega fyrir óháð morgunverðarsjónvarp ITV, var íhaldsflokknum einnig spáð 44% fylgi, en Verkamannaflokknum 33% og kosningabandalag frjáls- lyndra og Bandalags jafnaðarmanna rak lestina með 21% fylgi þeirra sem svöruðu. Að undanfömu hefur borið á að Verkamannaflokkurinn sé eitthvað að sækja í sig veðrið, og skildu að- eins 4% flokkana að í einni skoðana- könnun. Talið er þó að íhaldsflokkur- inn þurfí lítið að óttast því að samkvæmt báðum skoðanakönnun- um að ofan mun hann bera sigurorð af Verkamannaflokknum með 80 þingsæta meirihluta. Samkvæmt nýjum skoðanakönn- unum fengi Koivisto 60% atkvæða ef kosið yrði nú, en kosningamar fara fram í janúar 1988. Finnska þingið samþykkti á dögunum stjómarskrárbreytingu sem hefur það í för með sér að þjóðin á þess kost að kjósa forsetann beinni kosningu. Hingað til hefur þjóðin einungis kosið kjörmenn, sem síðan hafa valið forseta. Samkvæmt stjómarskrárbreytingunni kjósa menn nú bæði forseta og kjör- menn. Hljóti einn frambjóðenda hreinan meirihluta verður kjöri hans lýst án þess að kalla til kjör- menn. Astralía: Dingo-málið enn óútkljáð Reuter Lindy og Michael Chamberlain, foreldrar barnsins sem hvarf. Sydney, Reuter. í ÁSTRALÍU er mikið rætt um sérkennilegt dómsmál sem oft- ast er kallað Dingo-málið. í ágúst árið 1980 fór Chamber- lain-§ölskyldan 1 tjaldútilegu til Ayers Rock sem er talinn heilagur staður af frumbyggjum Ástralíu. Yngsta bam hjónanna Lindy og Michaels Chamberlain, Azaria, var ekki nema níu vikna gömul þegar hún hvarf að kvöldi 17. ágúst. Móðirin sagðist hafa séð dingo, sem er ástralskur villihund- ur, hrifsa bamið og draga það burt. Málið vakti gífurlega athygli og umræður. Sagan um að dingo hefði tekið bamið þótti ótrúleg og var höfð að háði og spotti. Margir Ástralir halda því fram að villihundar geri einfaldlega ekki svona hluti. Fólk fór að segja ósmekklega dingobrandara og sögusagnir komust á kreik um að baminu hefði verið fómað af djöfladýrkendum. Lögreglan sagðist geta sýnt fram á það að Lindy, sem þá var 31 árs, hefði skorið nýfætt bam sitt á háls, inni í bfinum þeirra, og falið svo líkið sem hefur aldrei fundist. Ekki var þó hægt að finna neina ástæðu fyrir því hvers vegna hún hefði átt að gera þetta. Réttarhöld vom í málinu árið 1982 og þá var Lindy dæmd í lífstíðarfangelsi, m.a. vegna þess að lögreglan gat bent á bletti sem líktust blóði, undir mælaborði bílsins. Síðar kom í ljós að það sem talið var vera blóð, var efni sem hafði verið sprautað á til hljóðein- angrunar. Einnigfannstjakki sem Azaria var í þegar hún hvarf. Hann var rifinn og tættur og allur út í mold. Niðurstöður rannsóknar á jakkanum vom þær að miklu sennilegra væri að bamið hefði verið dregið eftir jörðinni af villtu dýri heldur en að það hefði verið skorið á háls, grafið og jakkanum komið fyrir seinna á þeim stað sem hann fannst. Almenningsálitið fór nú að breytast, enda þótti dómurinn um lífstíðarfangelsi fullharður. Opin- ber rannsóknamefnd var skipuð. Formaður nefndarinnar lýsti því yfír að ef þessi nýju sönnunargögn hefðu verið komin fram í réttar- höldunum þá hefði frú Cham- berlain verið sýknuð. Hún var látin laus í febrúar á síðasta ári og náðuð fyrir stuttu. En náðun er ekki það sama og sýkna. Þess vegna heldur barátta Chamberlain-hjónanna áfram. Michael Chamberlain fékk skil- orðsbundinn dóm fyrir að vera í vitorði með konu sinni. Ekki síst vegna bama þeirra þriggja, ætla þau ekki að gefast upp fyrr en nafn þeirra hefur verið hreinsað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.