Morgunblaðið - 06.06.1987, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 06.06.1987, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1987 \ . 31 QUARANTINE MANHATTAN ISLAND... 0WB THE CAPITAL OF THE WOPLD! Vopnasala Bandaríkjastjórnar til Iran: Oliver North gert að mæta til yfírheyrslu Reuter Oþekktur mótmælandi bregður kröfuspjöldum á loft í miðdegisverðarboði blaðamanna í Washington, rétt áður en Elizabeth Taylor kom á fundinn til að ávarpa hann. Taylor sagði að útbreiðsla alnæmis og viðbrögð við sjúkdómnum myndi sannreyna hvort samfélagið gæti kallast siðmenntað. Alnæmi: Deilt um skyldu- bundna könnun Washington, Reuter. TILLÖGUM Reagans Bandaríkjaforseta um skyldubundna leit að alnæmissýkingu hjá föngum, innflytjendum og fólki sem sækir um leyfi til hjónavigslu, hefur verið tekið illa af háttsettum manni í bandarisku heilbrigðisþjónustunni, Donald Hopkins. meðhöndlun við geðsveiflum er al- næmisóttinn veldur. Waahington, Reuter. ÞINGNEFND sem rannsakar vopnasölu Bandaríkjastjórnar til íran og leynilegan stuðning við kontra-skæruliða f Nicaragua hefur afráðið að Oliver North ofursti verði undanþeginn máls- sókn. Nefndin er skipuð fulltrú- um beggja deilda þingsins og var þessi ákvörðun tekin til að skylda North til að bera vitni. Oliver North, sem talinn er einn höfuðpaurinn í vopnasölumálinu, hefur neitað að svara spumingum þingnefnda og borið fyrir sig stjóm- arskrárákvæði sem heimilar mönnum að neita að bera vitni ef það getur leitt til sakfellingar þeirra. Nefndin hefur ákveðið að North verði yfírheyrður fyrir lukt- um dyrum þann 15. júní. Almenn- ingur mun aftur á móti ekki fá tækifæri til að heyra hvað North hefur fram að færa fyrr en í fyrsta lagi þann 16. júlí. Lawrence Walsh, sérlegum rannsóknardómara í vopnasölumálinu, mun því gefast tækifæri til að safna saman sönnun- argögnum gegn North ef ákæra verður birt á hendur honum. Albert Hakim, sem hafði milli- göngu um leynleg viðskipti Banda- ríkjastjómar við stjómvöld í íran sagði að North ofursti hefði lagt Oliver North mikla áherslu á að fá gísla í Líban- on leysta úr haldi áður en gengið var til kosninga til beggja deilda Bandaríkjaþings þann 4. nóvember síðastliðinn. Sagði Hakim að til- gangur Norths með þessu hefði verið sá að styrkja stöðu Ronalds Reagan Bandaríkjaforseta fyrir kosningaranar. Demókratar, and- stæðingar Reagans, sigruðu í kosningunum og náðu meirihluta í báðum deildum. Hopkins, sem er varaforstjóri CDC, alríkisstofnunar til baráttu gegn sjúkdómum, sagði á alþjóð- legri alnæmisráðstefnu í Washing- ton í vikunni, að margir, sem óttuðust að vera smitaðir, væru hræddir við könnun vegna þeirrar skelfínga sem tengdust sjúkdóms- heitinu í hugum fólks og einnig vegna hættunnar á niðurlægjandi meðferð samfélagsins á sjúkling- unum. Leikkonan Elizabeth Taylor, sem hefur unnið að §ársöfnun til aukinna rannsókna, lét sömuleiðis í ljósi andúð á skyldukönnun. A blaðamannafundi sagði hún að sjálfviljugar kannanir, þar sem farið væri með niðurstöður sem trúnaðarmál, gætu orðið til að hefta framgang alnæmis en aðeins ef gengið yrði úr skugga um að kannanimar væru áreiðanlegar, sjúklingum ekki mismunað og þeir Sovétríkin: ekki beittir félagslegu harðrétti. A ráðstefnunni kom fram að ekki yrði mögulegt að útiloka al- gerlega hættu á smitun með blóðgjöfum. Enn fremur var upp- lýst að samkvæmt könnun á bandarískum vændiskonum væru 12% þeirra sýktar alnæmi. Flestar þeirra voru taldar hafa smitast af fíkniefnasprautum en ekki kyn- mökum. Lennart Wetterberg frá Karol- inska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi sagði alnæmi hafa fætt af sér nýja tegund geðræns sjúkdóms, alnæm- isótta. Sífellt fleiri koma í bráða- deildir sjúkrahúsanna til að fá ERLENT Flugmaður dæmd- ur í 15 ára fangelsi Moskva, Reuter. SOVÉSKUR flugmaður var ný- lega dæmdur í 15 ára fangelsi fyrir að hafa reynt að lenda farþegavél blindandi. Flugmaðurinn, Klyuyev að nafni, ákvað í samráði við aðstoð- arflugmann sinn að reyna að lenda blindandi til að prófa flugmanns- hæfíleika sína. I 400 metra hæð lét hann hylja rúður vélarinnar, sem var af Topulev-gerð og tók um 80 farþega. En hann misreikn- aði hæð og fallhraða hennar. Vélin brotlenti, valt og loks kviknaði í henni. Tugir manna létu lífíð, þar á meðal þtjár flugfreyjur og aðstoð- arflugmaðurinn, sem fékk hjartaá- fall þegar hann reyndi að bjarga farþegum úr flaki vélarinnar. Samkvæmt reglum má aðeins reyna að lenda vél blindandi á sérstökum æfíngasvæðum með reyndan leiðbeinanda við hlið sér. Á Vesturlöndum eru þessar æfing- ar nú gerðar í sérstökum flug- hermum enda er það í senn ódýrara og hættuminna. Bára er fullkomin þvottavél, sér- hönnuð fyrir íslenskar aðstæður. Bára tekur inn á sig bæði heitt og kalt vatn. Bára hefur 18 fullkomin þvotta- kerfi og íslenskar merkingar. Sérhver Bára er tölvuprófuð fyrir afhendingu. Bára vindur bæði 400 snúninga á mínútu og sparnaðarrofa. bára GÆÐAVÉl Á ÓTRÚLEGU VERÐI og 800 er með Verð 29470,' Eiöistorgi 11 - sími 622200 Amm 691140 BiTT 691141 Með einu símtali er hæqt að breyta innheimtuaðferðinni. Eftir það verða áskriftargjöld in skuldfærð á viðkomandi greiðslukortareikning mánað- VERIÐ VELKOMINI ---- GREIÐSLUKORTA- VIÐSKIPTI.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.