Morgunblaðið - 06.06.1987, Síða 34

Morgunblaðið - 06.06.1987, Síða 34
34 T8GÍ IHÖl. .9 JIUOAaflAÖUAvI .GKÍAItTHUDflOM MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1987 Knarrar- ósviti lagfærður Gaulveijabæ. FRÍSKAÐ hefur verið upp á Knarrarósvita utan sem innan en viti þessi stendur 5—6 km austan við Stokkseyri. Húsið var sandblásið og hreins- að að utan, og gluggar lagaðir. Síðan voru veggir kústaðir með sterku þéttiefni. í september á síðasta ári kom rafmagnsheim- taug og rafmagn frá almenning- sveitu. Áður var keyrð dísilraf- stöð. Að sögn Tómasar Sigurðssonar deildarstjóra var skeljasandurinn utan á húsinu orðinn talsvert mosavaxinn og vitinn farinn að láta á sjá vegna seltu og veð- runar. Ljóshús var lagfært og ýmislegt betrumbætt innandyra. Nú síðast var sökkull styrktur og stéttar steyptar upp á nýtt. Dísilr- afstöð fer nú sjálfkrafa í gang ef rafmagn fer. Áður var gas vara- afl. Vitinn hefur þjónað sæfarend- um hér um slóðir í 47 ár. Hann er 22 metra hár og 30 metra yfir sjó. Þannig að hér er enginn hálf- viti. Setur hann sinn svip á flat- lendið hér í Flóanum og er útsýni mikið úr honum. Vitavörður er Sigurður Pálsson á Baugsstöðum. —Valdim.G. Morgiinblaðið/Valdim. G. Knarrarósviti eftir andlitslyftingu, sökkull og stéttar voru endur- steyptar. Anna Gulko ein í fyrsta sæti Egilsstöðum. STAÐAN í 1. riðli á opna Austur- s 1 1 eftir fjórar umferðir. 1. sæti Anna Gulko 4 vinningar 2.-4. sæti Dan Hansson 3 vinningar Antti Pyhala 3 vinningar Sævar Bjamason 3 vinningar 5.-7. sæti Pálmi Pétursson 2V2 vinningur Flestar versl- anir lokaðar í dag VERSLANIR í Reykjavík verða lokaðar í dag og framvegis á laugardögum til 1. september næstkomandi. Samkvæmt kjarasamningi Kaup- mannasamtaka íslands og Verslun- armannafélags Reykjavíkur verða verslanir í Reykjavik lokaðar á laugardögum í júní júlí og ágúst. Samningamir heimila eigendum verslanna að hafa opið á laugardög- um með því skilyrði að þeir sjálfir eða aðrir fjölskyldumeðlimir af- greiði í versluninni. Keflavíkurflugvöllur: Keflavfk SÍLAMÁFUR í hundraðatali hef- ur verið aflifaður í nágrenni Keflavíkurflugvallar á undanf- örnum dögum. Fuglinum hefur verið gefið svefnlyf í æti og hann síðan rotaður. Skotvopnum var líka beitt og voru tvær skyttur við það verk. Flugumferð hefur stafað hætta af þessum fuglum og er daglegt brauð um varp- tímann að þeir lendi á flugvélum, sem leið eiga um flugvöllinn. Hverfasamtök stofnuð í Kringlunni: Reiknað með 800 bíl- um í g-egnum hverfið á hverri klukkustund Fyrst var ætlunin að reka máfinn af hefðbundnum varpsvæðum með gashvellbyssum, en frá því var horf- ið, þar sem talið var að hann myndi venjast hvellnum og kæra sig koll- óttan. Pétur Guðmundsson flugvall- arstjóri sagði að hann hefði fengið færustu sérfræðinga til að taka á þessu máli. Páll Hersteinsson veiðimálastjóri sagði í samtali við Morgunblaðið að þessi herferð hefði ekki tekist eins og menn hefðu vonað. Mun minna hefði verið af eggjum en búist var við og svo virtist sem helst tómstundaiðja margra stars- manna á flugvellinum væri að nota kaffi - og matartíma til að týna egg. Fuglin hefði því ekki sótt eins á hreiðrin, þar sem æti með svefn- lyfjum hafði verið komið fyrir. Pál sagði enn fremur að sflamáfurinn verpti þama nánast eins og „hæna“ og þeir hefðu orðið að vísa fólki frá þegar á aðgerðum stóð. Egg sfla- máfsins væru herramannsmatur og hann héldi áfram að verpa meðan að nóg æti væri að hafa. Samkvæmt upplýsingum Agnars Ingólfssonar prófessors við líffræði- deild Háskóla íslands, var sflamáfs fyrst vart hér á landi um 1920. Hann væri farfugl, sem hingað kæmi frá Bretlandseyjum og væri sflamáfurinn talsvert minni en svartbakur. Agnar sagði, að talning hefði farið fram árið 1974 í ná- grenni flugvallarins og síðan aftur í fyrra og hefði fuglafjöldinn hugs- anlega tvöfaldast á þessumárum. B.B. ÍBÚAR í Kringlunni hafa nú nýveríð stofnað með sér hverfa-samtök. Á stofnfundin- um komu fram miklar áhyggj- um vegna umferðarmála í hverfinu, en eins og kunnugt er má búast við mikilli umferð og fjölda fólks til að versla þarna. Guðrún Eyjólfsdóttir var ein . þeirra sem þátt tók í undirbúningi að stofnun samtakanna og situr nú í stjóm þeirra. Hún sagði í sam- tali við Morgunblaðið að margir hefðu verið famir að hafa áhyggj- ur af allri þeirri umferð sem augljóslega ætti eftir að verða á þessu svæði eftir að Hagkaups- húsið nýja yrði opnað, og því myndu umferðarmálin verða ofar- lega á dagskrá samtakanna til að byija með. „Við fengum þau Katrínu Fjeldsted, borgarfulltrúa, Þórarinn Hjaltason, yfírverkfræðing um- ferðamefndar borgarinnar, og Gunnar Inga Ragnarsson, umferð- arráðgjafa Hagkaups, til að koma á stofnfundinn og Qalla um þetta mál,“ sagði Guðrún, og benti á að búist væri við að um 800 bflar færu í gegnum hverfíð á klukku- stund, en ekki beint út á Miklu- braut eða Kringumýrarbraut. „Við höfðum ekki gert okkur grein fyrir þessu fyrr en þetta kom fram í máli Gunnars Inga á fundin- um,“ sagði Guðrún, „og því teljum við mjög brýnt að einhverjar ráð- stafanir verði gerðar." „Fýrir- hugað er að breikka Listabrautina, en hún liggur fram hjá Borgarleik- húsinu og í átt að Háleitisbraut, og á fundinum kom Þórarinn Hjaltason fram með þá hugmynd að brautin yrði þrengd. Okkur líst vel á allar hugmyndir sem horfa til bóta á þessu máli og viljum leggja okkar að mörkum svo hægt sé að fínna hentugar lausnir. Þama er verið að skipuleggja frá grunni íbúða-og verslunahverfi, og það hlýtur að vera mjög spennandi, og um leið eftirsóknarvert, að leysa það svo vel fari,“ sagði Guðrún að lokum. Einnota umbúð- um sé ekki fleygt á víðavangi O' INNLENT NOTKUN einnota umbúða, t.d. plastflöskur, ál og plasthúðarar, pappaumbúðir og áldósir, fyrir gos, öl og svaladrykki, hefur stór- aukist á undanfömum misserum. Bæði er hér um að ræða vömr sem framleiddar em hér á landi og innfluttar vörur. Með tilkomu pökkunarvéla fyrir öl og gos- drykki í áldósir hér á landi má gera ráð fyrir að notkun slíkra umbúða stóraukist á næstunni. Ekki er ólíklegt að árleg sala á gosdrykkjum verði um 25 milljón- ir áldósa, sem samsvarar um 300 tonnum af áli. Talsvert ber á því að neytendur fleygi umbúðum þessum á víðavangi. Hollustuvemd ríkisins, Náttúru- vemdarráð og Landvemd beina þeim Þröstur Ámason 2V2 vinningur Lárus Jóhannesson 2V2 vinningur í 2. riðli eru efstu menn eftir fjór- ar umferðir: 1.-2. sæti Páll Á. Jónsson Branko Lovric 4 vinningar 4 vinningar 3.-9. sæti Þráinn Vigfússon 3 vinningar Haraldur Baldursson 3 vinningar Bjami Einarsson 3 vinningar Sverrir Gestsson 3 vinningar Rade Lovric 3 vinningar Amar Ingólfsson 3 vinningar FriðgeirHólm 3vinningar í dag, 6. júní, hefst keppni kl. 14.00. — Björa Herferð gegn sílamáf tilmælum til allra landsmanna að ganga vel um landið og fleygja ekki slíkum umbúðum né öðru rusli á víðavangi. Einnig er þeim tilmælum beint til framleiðenda og innflytjenda að þeir geri sér í ríkara mæli ljósa ábyrgð sína í þessu máli, meðal annars með því að ganga vel um landið og fleygja ekki slíkum umbúðum né öðru rusli á víðavangi. í flestum nágrannalöndum okkar hafa verið settar reglur um notkun einnota umbúða, endumýtingu þeirra og t.d. hvaða efni megi nota í slíkar umbúðir. Áldósir em t.d. alfarið bannaðar í Danmörku, sem öl- og gosdrykkjaumbúðir. Hér á landi em engar reglur um fram- leiðslu né notkun einnota umbúða fyrir umrædda vömflokka. Skólablað MR komið út SKÓLABLAÐ Menntaskólans í Reykjavík, annað tölublað 62. árgangs kom nýlega fyrir augu lesenda. Blaðið er sjötíu og fimm síður að stærð. Gefur þar að lita úrval af smásagna og ljóðagerð nemenda auk greina um margvísleg efni. í blaðinu em viðtöl við Söm Wachenheim skiptinema, Wil- helm Emilsson nema, Baltasar Kormák nema, Kristínu Guð- mundsdóttur þverflautuleikara og Guðrúnu Indriðadóttur leir- kerasmið. Ritstjórar Skólablaðsins vom Kristinn Pétursson, Margrét H. Blöndal og Melkorka Thekla Ólafsdóttir. GENGIS- SKRÁNING Nr. 104 - 5. júní 1987 Ein.Kl. 09.15 Kr. Kaup Kr. Sala Toll- gengi Dollari 38,760 38,880 38,990 Stpund 63,353 63,549 64,398 Kan.dollari 28,855 28,945 29,108 Dönskkr. 5,6937 5,7113 5,6839 Norek kr. 5,7839 6,1441 5,8018 5,7699 Sænskkr. 6,1631 6,1377 Fi.mark 8,8151 8,8424 8,8153 Fr.franki 6,4024 6,4222 6,4221 Belg. franki 1,0330 25,8193 1,0362 1,0327 Sv.franki 25,8993 26,7615 Holl. gyllini 18,9953 19,0542 18,9931 V-Þ. mark 21,4014 21,4676 21,3996 Ítlíra 0,02954 0,02963 0,02962 Austurr. sch. 3,0460 0,2747 3,0554 3,0412 Portescudo 0,2755 0,2741 Sp.peseti 0,3072 0,3081 0,3064 Jap.yeu 0,27051 0,27135 0,27058 trektpund 57,309 57,486 57,282 SDR (Séret.) 49,9936 50,1480 44,5273 50,0617 ECU, Evrópum. 44,3899 44,3901

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.