Morgunblaðið - 06.06.1987, Síða 54

Morgunblaðið - 06.06.1987, Síða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1987 Hvítasunnumáltíð Nú þegar nálgast hásumarið skulum við nota hvert tækifæri til útivistar. Hvítasunnuhelgina nota margir til þess að fara inn til heiða og ganga á fjöll og jökla. Vonandi verður þeim, sem ganga á Snæfellsjökul, að ósk sinni um að'vera þar á hábungu í sól og blíðu og horfa norður yfír spegil- sléttan Breiðaflörðinn til hvítra fjalla Vestfjarðakjálkans og snúa sér síðan til suðurs og horfa í Faxaflóaspegilinn með blárri Reykjanesumgjörð. En hvar sem við erum, eða hvert sem við förum, skulum við líta til fugla, segja bömunum hvað þeir heita og að þá megi þekkja af lit þeirra og fluglagi og þeim hljóðum sem þeir gefa frá sér. Mikið vantaði í sumarið ef ekki heyrðist í fugli. Nú er sá tími er flestar fuglategundir liggja á eggjum sínum og við skulum fara með gát þar sem við vitum um hreiður. Stelkur hafði gert sér hreiður við vegbrúnina heim að kofa okk- ar hjónanna í Garðaholti. Einn daginn er við komum þangað, voru þrír ungar skriðnir úr eggj- um — Htið gat var komið á það fjórða og það tísti innifyrir og hátt lét í foreldrunum. Við flýttum okkur að kofanum, sem var í um 60 metra fjarlægð og höfðum hægt um okkur það sem eftir var dags. Við sólsetur, þegar hugað var að hreiðrinu, voru ungamir þrír horfnir ásamt foreldrunum, en eggið fjórða óbrotið og hljótt inni fyrir. Foreldramir höfðu talið hyggilegast að koma þeim þrem- ur, sem skriðnir voru úr egginu, úr návist manna, en falið þann fjórða örlögunum. Eitt faliegasta hreiðurstæði, sem ég hefi séð var hjá spóahjón- um. Þegar beygt er af Landbrots- veginum inn á afleggjarann til Seglbúða, er hraungrýtishleðsla undir girðingunni meðfram vegin- um, og þama í hleðslunni höfðu þau byggt sinn bæ með útsýni bæði til norðurs og suðurs, og þó þau gætu ekki speglað sig f haf- fletinum, þá eru Landbrotshólam- ir vinalegir og stutt í mýramar meðfram Skaftá og svo er Gren- lækur skammt undan. Víðast hvar er ennþá fermt til sveita á hvítasunnu og gaman hefði verið að vera við fermingu í Prestbakkakirkju og gleðjast með þeim bömum, sem staðfesta þar skímarheit sitt. Þótt við séum víðs fjarri, leitar hugur okkar þangað þann dag. Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON -gfllillll1ll 'lll ^180 DÝRLEGT kemur sumar meS sól og blóm, senn fer allt að vakna með lofsöngsróm, yængjaÞytur heyrist i himingeim, hyrnar yfir iandi’af Þeim fuglasveim. Th Fr. Forréttur Pönnukökur með grænmeti 12 radísur nokkrar steinseljugreinar 3 eggjarauður 'Atsk salt 2 dl hveiti 2>/2 dl mjólk 1 msk matarolía 3 eggjahvítur nokkur graslauksstrá 1 msk kapers (má sleppa) 1 meðalstór blaðlaukur 1 stór rauð og önnur græn paprika 1 stór gulrót 30 g smjör til að sjóða græn- metið í örlítið salt á grænmetið nýmalaður pipar á grænmetið 1. Byijið á að skera þunnt upp í radísumar eins og sýnt er á meðfylgjandi mynd. 2. Leggið radlsumar síðan í ísvatn. Setjið í kæliskápinn og látið vera þar í 3 klst. 3. Þeytið eggjarauðumar með salti. 4. Setjið hveiti og mjólk út í og hrærið saman. 5. Setjið matarolíu út í og hrær- ið saman. 6. Þeytið hvítumar og setjið út í. 7. Meijið kapersið með gaffli. Klippið graslaukinn. Setjið þetta út í pönnukökusoppuna. 8. Hitið pönnukökupönnu og bakið 6 þykkar pönnukökur úr deiginu. Staflið þeim upp. Setjið síðan álpappír yfir og haldið heit- um. 9. Kljúfíð blaðlaukinn. Skerið síðan í sneiðar. 10. Takið steinana úr papr- ikunum og skerið í sneiðar. 11. Skafið gulrótina, skolið en rífið þá gróft á rifjámi. 12. Hitið smjörið í potti. Setjið blaðlauk, papriku og gulrót út í og sjóðið við hægan hita í 15 mínútur. 13. Setjið salt og pipar út í og hrærið vel í. 14. Skiptið grænmetinu jafnt á pönnukökumar, vefjið upp og skerið í tvennt. Setjið síðan 2 helminga á forréttardisk. 15. Leggið steinseljugrein og 2 radísur á hvem disk og berið fram. Aðalréttur: Svínaliindir með app- elsínusósu og sveppum Handa 4—5 1 kg svínalundir IV2 tsk salt nýmalaður pipar 15 gsmjör + 1 msk matarolía safi úr 2 appelsínum rifínn börkur af 1 appelsínu 1 dl vatn 1 msk ijómaostur án bragðefna 1 dl ijómi 250 g ferskir sveppir 15 g smjör til að steikja svep- pina í Vs tsk salt */8 tsk karrý 1. Þerrið lundimar, takið af þeim fitu ef einhver er. 2. Hitið pönnu þar til rýkur úr henni. Bregðið lundunum á pönn- una og snúið á allar hliðar þannig að kjötið lokist. Minnkið hitann, setjið smjör og olíu á pönnuna og brúnið lundimar. 3. Stráið salti og pipar yfir kjö- tið. 4. Setjið 15 g smjör í pott ásamt karrý og salti. 5. Þerrið sveppina vel, þvoið ekki. Skerið síðan í sneiðar. Sjóð- ið sveppasneiðamar í smjörinu í 5—7 mínútur. 6. Setjið sveppina ásamt þeim vökva sem er á þeim á pönnuna, setjið síðan appelsínubörk, app- elsínusafa, tjómaost og ijóma út í og jafnið soðið vel. Ef ykkur finnst þetta of þunn sósa, er hægt að setja ögn af hveitihristingi eða sósujafnara út í. Meðlæti: Soðnar eða bakaðar kartöflur og appelsínu/lauksalat sem uppskrift er af hér á eftir. Appelsínu/lauksalat 4 appelsínur 1 stór rauðlaukur 1 dl matarolía safi úr 1 stórri sítrónu 1 msk hunang V2 tsk paprikuduft V2 tsk sinnepsduft l/i tsk salt salatblöð 1. Afhýðið appelsínumar með hníf, þannig að hvíta húðin fari með. Skerið appelsínurnar síðan í örþunnar sneiðar. Takið úr þeim steina. Setjið appelsínusneiðarnar í skál. 2. Afhýðið laukinn, skerið hann einnig í örþunnar sneiðar. Losið síðan hringina í sundur. Setjið saman við appelsínumar í skálina. 3. Setjið matarolíu, sítrónusafa, hunang, paprikuduft, sinnepsduft og salt í aðra skál. Þeytið saman með þeytara þar til þetta þykkn- ar. Hellið þá yfir appelsínumar og laukinn í skálinni. Blandið sam- an með tveimur göfflum. Setjið plastfilmu yfír skálina og látið standa í kæliskáp í minnst 2 klst. fyrir notkun. Þetta má geymast til næsta dags. 4. Raðið salatblöðum á grunna skál eða fat. Takið síðan app- elsínusneiðamnar og laukinn úr leginum og setjið á miðju fatsins. 5. Takið löginn sem situr eftir og ausið honum með skeið yfír salatblöðin, sem standa út fyrir appelsínumar/laukinn. Súkkulaðiábætisréttir 200 g suðusúkkulaði, 2 pk. 6 eggjarauður IV2 tsk duftkaffi 1 msk sjóðandi vatn 3 eggjahvítur 1 peli ijómi 3 msk romm (má sleppa) nokkrar makkarónukökur 1. Hitið bakaraofninn í 80°C. Setjið súkkulaðið í einfalda röð á eldfast fat. Setjið fatið í ofninn. Súkkulaðið bráðnar á 7 mínútum. Takið þá úr ofninum og látið standa í 5 mínútur á eldhúsborð- inu. 2. Hrærið eggjarauðumar vel. Athugið, það er enginn sykur sett- ur í þær. 3. Setjið súkkulaðið varlega út \ eggjahræruna, og hrærið vel saman. 4. Leysið kaffiduftið upp í vatn- inu, kælið örlítið en setjið þá út í eggja/súkkulaðihræruna. 5. Setjið rommið út í, ef þið notið það. 6. Þeytið eggjahvítumar stífar. Setjið síðan út í hrærana. Setjið skálina í kæliskáp og látið kólna vel. Um 1 klst. 7. Þeytið ijómann. Takið ská- lina úr kæliskápnum. Setjið helming ijómans saman við hrær- una. Skiptið síðan í 6 skálar. Sprautið því sem eftir er af ijó- manum ofan á. 8. Stingið makkarónukökum ofan í skálamar og berið fram.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.