Morgunblaðið - 06.06.1987, Page 59

Morgunblaðið - 06.06.1987, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1987 59 VELVAKANDI SVARAR f 8ÍMA 691100 KL. 13-14 FRÁ MÁNUDEGI I TIL FÖSTUDAGS Skráning bifreiða: > Astæðulaust að leggja niður umdæmisskráningarkerfið Til Velvakanda Á síðasta starfsdegi Alþingis voru samþykkt ný umferðarlög. Um þessi lög má vissulega margt segja, en hér langar mig til að staldra við einn þátt þeirra þ.e. skráningu bif- reiða. Þingmenn efrideildar höfðu ákveðið að tekið yrði upp nýtt skráningarkerfí þar sem númerin skyldu fylgja bílunum alla tíð og landið allt yrði eitt umdæmi. En í neðrideild var flutt breytingartil- laga um þetta efni, og var samþykkt að halda áfram með núverandi skráningarkerfi, umdæmisskrán- ingu. Við þetta brugðust nokkrir þingmenn efrideildar ókvæða við og hefur sjálfsagt fundist óþarfí af neðrideild að hafa aðra skoðun á þessum málum og a.m.k. einn þeirra Karl Steinar Guðnason, Al- þýðuflokki, tilkynnti að hann myndi flytja breytingatillögu strax í haust. Nú er ekkert við það að athuga að gerðar séu breytingar á lögum um þetta sem annað, séu þær til bóta, en þær breytingar sem gera átti á skráningakerfinu eru það alls ekki. Það er einna lfkast því að þær systur öfund og afbrýði, í garð þeirra sem hafa haft „lág eða falleg" númer, hafi ráðið þama mestu um, eins og heyra mátti á umræðum í efrideild á lokadegi þingsins. Það hefur verið talað um að spara í þessu sambandi. Varla getur verið átt við þá bifreiðaeigendur sem hafa kosið að greiða 4.000 krónur fýrir þá þjónustu að halda bílnúm- eri sínu þegar þeir skiptu um bfl. Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef aflað mér þá kostaði núgild- andi kerfi um 20 milljónir fýrir ríkið siðastliðið ár en það var hið lang- mesta bflainnflutningsár sem hér hefur komið. En þetta sama ár hafði ríkið 78 milljónir króna tekjur af þessu sama kerfi svo hagnaður- inn hefur verið tæpar 60 milljónir króna. Meiri hluti þessara tekna var greiddur af bílaeigendum af fúsum og fijálsum vilja fyrir það eitt að fá að halda sínu gamla bflnúmeri, sem þeir hafa jafnvel haft áratugum saman. Nú er það svo, að skylda er að skipta um númer sé bfll seldur á milli umdæma og kostaði það 1100 krónur á síðasta ári. En ef skipt var um númer innan sama umdæm- is kostaði það 4000 krónur sem þeir þurftu að greiða sem vill halda gamla númerinu sínu. Þá er og skylda að láta skoða bflinn við eig- endaskipti. Leggja má til að hætt verið að innheimta fyrmefnda gjaldið en hækka það síðamefnda sem því nemur, og greiddu þannig aðeins þeir sem vilja halda í gamla númerið sitt. Ég tel það vera rétt að bflar verði áfram skoðunarskyldir við númera- skipti. Það leiðir til þess að gamlir, lélegir bflar, sem oft eru jafnvel orðnir hættulegir í umferðinni, og gjaman ganga orðið oft á milli eig- enda, eru fyrr teknir úr umferð en ella. En ef biðröðin við Ártúns- brekku þar sem Bifreiðaeftirlitið er til húsa verður of löng fyrir fram- sóknarþingmenn að austan og væntanlega fleiri, þá mætti sjálf- sagt hætta að skoða bfla við númeraskipti, enda hafi þeir þá áður verið skoðaðir fyrir yfirstand- andi ár. Það gæti sparað einhveijar krónur en ekki fækkaði „druslun- um“ á götunum við það. Sumir þingmenn efrideildar sök- uðu kollega sína í neðri deild um „hégómagimd“ í þessu máli og sögðust sjálfir hafa látið hagsýni og skynsemi ráða sínum gjörðum. Hvemig sú hagsýni og skynsemi fyrir ríkisins hönd lýsir sér skil ég ekki. En ætli þingmennimir skilji það? Þeim hagnaði, væntanlega tugum milljóna króna, sem ríkið hefur af þessari „hégómagimd" bfleigenda ætti að veija til að auka öryggi í umferðinni og ættu þá all- ir að geta unað glaðir við sitt. Ég vil að lokum minna þessa sömu þingmenn efri deildar á þau orð forseta íslands sem hún sagði í ræðu er hún hélt yfir þingheimi á lokadegi þingsins er hún sleit Al- þingi — að menn skyldu virða skoðanir annara, tii að geta lifað saman í sátt og samlyndi og varð- vett hið dýrmæta lýðræði. Sjómaður Um morðið á Olof Palme Til Velvakanda. Það var kvöld eitt í febrúar, fyr- ir rúmlega ári, að maður að nafni Olof Palme og hans frú vora að koma úr kvikmyndahúsi einu í Stokkhólmi og um það sem síðar skeði þarf ég sjálfsagt ekki að skrifa um. En eitt er klárt og það er að það var morð og sá sem var myrtur var ein hvít friðardúfa. Nú er morðinu á Olof Palme líkt við morðin á Kennedy og Martin Luter King og var hann ekki minni maður en þeir, að mínu áliti. En mun morðgátan leysast eða þurfum við alltaf að lifa við orðin af hveiju? Gæti verið að einhver sem veit meira en aðrir komi fram í dags- ljósið og segi eins og er — kannski í von um að hljóta þau verðlaun sem heitið hefur verið þeim sem komið getur með upplýsingar sem leysi málið? Pyrir nokkrum mánuðum vora verðlaunin hækkuð úr 500.000 sænskum krónum í 5.000.000, sem eru um 30 milljónir íslenskra króna. Hafi Palme verið að stöðva vopna- smygl til íran frá Svíþjóð held ég að við fáum aldrei að vita sannleik- ann og verðum að láta okkur nægja ágiskanir í blöðum og sjónvarpi. Þann 15. janúar síðastliðinn féll Carl Algernon sem var „krigsmat- erielinspektör" fyrir lest og lést samstundis. Ekki var vitað hvort um slys, morð eða sjálfsmorð var Olof Palme að ræða. En nú segja yfirvöld að hann hafi framið sjálfsmorð. En hvers vegna framdi hann þá sjálfsmorð? Það virðist enginn vita. Hann var vanur að yfirgefa skrif- stofu sína kl. 17.00, en snemma þennan dag var hann með fund eftir skrifstofutíma og var fundur- inn aðeins 15 mínútur. Þegar Algemon yfirgaf skrifstofu sína, sögðu vinnufélagar hans að hann hefði verið mjög undarlegur og rauður í andliti. Hvað rætt var um þessar fimmt- án mínútur veit ég ekki, Algemon Carl-Fredrik Algernon var vanur að taka lest heim, en að þessu sinni gerði hann það ekki, hann féll fyrir lestina sem kom kl. 17.15 og lést samstundis. Getur verið að hann hafi verið kominn á sporið um vopnasmygl og hafi ef til vill verið farinn að vita meira en gott var fyrir hann sjálfan? Við verðum víst að sætta okkur við að fá seint eða aldrei úr þessu skorið. En ef við eigum að lifa góðu lífi, verðum við sjálf að standa sam- an og fá kerfinu breytt svo atburðir sem þessir þurfi ekki að gerast. Trausti Björgvinsson Morgunblaðið/KGA Sýnir að Vesturgötu 17 ELÍAS B. Halldórsson opnar Sýningin er opin til kl. 17.00 málverkasýningu í Galleri virka daga og kl. 14.00-18.00 um íslensk list, Vesturgötu 17, í dag, helgar fram til 21. júní. laugardaginn 6. júni kl. 15.00. Vatnsholt við Til sölu sumarbústaðalönd á nýskipulögðu svæði i landl jarðar- innar Vatnsholts við Apavatn í Grímsnesi. 90 km frá Reykjavík, þar af 80 km bundið slitlag. Seldir eru hálfir hektarar (5000 fm) eða stærra. í Apavatni er mikið af silungi og er það talið eitt besta veiðivatn landsins skv. skýrslum Veiðimálastofnunar. Veiðileyfi fylgja ekki en eru fáanleg ef vill. Apavatn er kjörið fyrir seglbrettasport og siglingar, fyrir utan silungs- veiðina. Verslun, sundlaug, banki og félagsheimill (Aratunga) eru í Reykholti, Blsk. (8 km); verslun og heilsugæslustöð i Laugarási (8 km) og verslun, sundlaug, sauna, banki. seglbretta-, báta- og hestaleiga (Miðdal) á Laugarvatni (22 km). Að Skálholti eru 6 km. Jarðvegur er er mjög góður til skógræktar. Fjallasýn er stórkostleg frá Vatnsholts- landi, og sést m.a. til Kerlingaríjalla. Kjörlð gönguland. Upplýsingar: Ingþór Haraldsson, Hrafnkell Ásgeirsson, hrL, Ármúla 1. S:. 84845. Strandgötu 28. S.: 50318. Blaðburöarfólk óskast! VESTURBÆR AUSTURBÆR Fálkagata Laugavegur 1 -33 o.fl. Dunhagi Leifsgata Hjarðarhagi Gnoðarvogur Nesvegurfrá 40-82 )K»9mdUiihih

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.