Morgunblaðið - 06.06.1987, Síða 60
jr __ ** ___ __
IÞROTTIR UNGLINGA UMSJÓN/Andrés Pétursson
Knattspyrnuskólar
• Allur hópurlnn hjá iK.
FLEST félög reka nú svokallaöa
knattspyrnuskóla fyrlr krakka og
unglinga. Þaö voru nokkur
Reykjavlkurfólög sem riöu á vaðið
með þetta fyrirkomulag og varð
fljótlega mjög vlnsælt. Þess má
geta að nú eru að koma upp í
meistaraflokka félaganna fyrstu
leikmennimir sem tóku þátt f
fyrstu knattspyrnuskóiunum.
Flestir þáttakendurnir í þessum
skólum eru á aldrinum 6-12 ára.og
ennþa ' mun fleiri strákar en stelp-
ur. Venjulega eru þaö útlærðir
íþróttakennarar sem sjá um
kennsluna en þeim til aðstoðar eru
oft leikmenn úr meistaraflokkum
viðkomandi félaga. Unglingasíöan
leit inn á æfingu hjá þremur félög-
um á höfuöborgarsvæðinu. Á
Fífuhvammsvelli var knattspyrnu-
skóli ÍK í fullum gangi og ræddum
viö þar við þrjár stúlkur sem taka
þátt í sínu öðru námskeiði. Á Fram-
vellinum var mikið um að vera og
var þar rættt við tvo unga og efni-
lega markmenn. Á KR-vellinum við
Frostaskjól var glatt á hjalla og
tókum við þar tali fjóra unga KR-
inga.
Hvergi bangnar
Á Fífuhvammsvelli í knatt-
spyrnuskóla (K hittum við að máli
þær stöllur Jónu Pálsdóttur, Hrund
Sverrisdóttur og Sigurborgu Reyn-
isdóttur. Þær eru allar úr Kópavog-
inum og er þetta í fyrsta skipti sem
þær fara í knattspyrnuskóla hjá ÍK.
Hinsvegar hafa þær farið á nám-
skeið hjá Breiðablik og Fylki áður.
Hrund og Sigurborg æfa líka knatt-
spyrnu hjá Breiðablik þar sem ÍK
er ekki með kvennaknattspyrnu
innan sinna raða ennþá. Þærsögð-
ust vera miklar áhugamanneskjur
um knattspyrnu og ekki æfa neina
aðra íþrótt. Uppáhaldsfélag
íslenskt er að sjálfsögðu ÍK en þær
sögðust ekki halda með neinu sér-
stöku félagi í útlöndum. Námskeið-
ið hjá þeim stendur yfir í tvær vikur
og sögðust þær ekki vera bangnar
þó að þær væru miklu færri en
strákarnir.
Friðrik er bestur
Viö Framheimilið var mikið um að
vera og voru tveir hópar yngri og
eldri að spila af fullum krafti. A
grasbalanum við Fram heimilið
voru hinsvegar markmennirnir
tveir Tómas Ingason og Gunnar
Sveinn Magnússon með sóræf-
ingu. Þeir gáfu sér smá tíma til að
ræða við blm. Þeir hafa báðir æft
mark í tvö ár og uppáhaldsleik-
maður þeirra beggja er að sjálf-
sögðu markvörður meistaraflokks-
ins Friðrik Friðriksson. Af
útlendum leikmönnum heldur
Gunnar mest upp á markvörð Bay-
ern Munchen Jean Marie Pfaff en
Tómas upp á lan Rush. Þeir voru
svona hæfilega bjartsýnir á gengi
meistaraflokks Fram í sumar og
sögðu að erfitt væri að fyila upp í
skarð Guðmundana tveggja í
framlínunni. Þeir spáðu því Fram
2.-3. sæti en ef heppnin væri með
þeim myndu þeir ná að verja meist-
aratitilinn.
KR verður meistari
Þeir félagarnir Jónas Haraldsson,
Indriði Sigurðsson.Árni Hrafn
Gunnarsson og Einar Dagur voru
sannfærðir um að KR-ingar yrðu
íslandsmeistarar í ár. Þeir sögðu
að tími væri til kominn og nú þeg-
ar uppáhaldsleikmaður þeirra
Pótur Pótursson væri genginn yfir
í raðir þeirra KR-inga hlytu þeir að
verða meistarar. Þeir sögðu að
mjög gaman væri í skólanum enda
var þetta í annað skiptið sem þeir
taka þátt í honum. Nema Indriði
sem er að taka þátt í fyrsta skipti
enda ekki nema 5 ára. Hinir allir
eru 7 og 8 ára. Þeir sögðust allir
ætla á leikinn um kvöldið til aö
styðja ísland.
Morgunblaöið/Andrós Pétursson
• Stúlkurnar hjá ÍK: Jóna Pálsdóttir, Hrund Sverrisdóttlr og Sigur-
borg Reynisdóttir.
- • KR-ingarnir knáu, Jónas, Indriði, Árni og Einar.
• Frfður hópur ungra KR-inga
• Yngri hópurinn hjá Fram.
• Það verður að kunna að skalla.
• Fram-markverðirnir Tómas Ingason og Gunnar Sveinn Ingason.