Morgunblaðið - 06.06.1987, Side 61

Morgunblaðið - 06.06.1987, Side 61
ÍÞRÓTTIR UIMGLINGA 9 „Hvað unnum við eiginlega?" gœtu þessir ungu KR-ingar verið að segja. Mikil ánægja og leikgleði á Víkingssvæðinu: KR-ingar sigruðu á 7. flokks móti Víkings Fimmtudaginn 28. maí, upp- stigningardag, var haldið á vegum nýstofnaðs foreldrafólags yngri flokka Víkings 7. flokks mót í knattspyrnu. Það er víst ekki ofsögum sagt að þetta hafi verið ein ánægjulegasta knattspyrnu- keppni sem biaðamaður hefur sóð lengi. Ánægjan og leikgieðin hjá þessum ungu knattspyrnu- mönnum mætti vera eldri og leikreyndari spilurum til eftir- breytni. Einnig var ánægjulegt að sjá hve margir foreldrar fylgdust með og tóku þátt f gleði og sorg leikmannanna. Að sögn þeirra Vfkinga hefur sjaldan verið eins mikill gestagangur f Vfkings- heimilinu eins og þennan dag. Á sama tíma og keppnin fór fram hólt foreldrafélagið kaffisölu til að safna peningum fyrir ferð 6. flokks á Tomma-mótið í Vest- mannaeyjum seinna í þessum mánuði. Heppnaðist allt þetta með sóma og er það í ráði hjá foreldra- félaginu að gera þetta 7. flokks mót, þ.e. drengja 7 ára og yngri, að árlegum atburðí. Ef við snúum okkur nú að mót- inu þá tóku 16 lið þátt í mótinu frá 10 liðum. Þau voru Breiðablik, Fylkir, ÍK, FH, ÍR, ÍBK, Stjarnan, Hveragerði, KR og svo gestgjaf- arnir, Víkingarnir. Liðunum var skipt í fjóra riðla og voru þar marg- ir hildir háðir. Að lokum stóðu KRJR.IBK og Breiðablik uppi sem sigurvegarar sinna riðla. I undan- úrslitum sigruðu síðan KR-ingar Breiðablik 3-1 og ÍR sigraði IBK 4-2. í leiknum um 3 sætið sigraði síðan ÍBK lið Breiðabliks 4-1. Þá var komið að úrslitaieiknum og reyndust þar KR ofjarlar ÍR-inga og sigruðu örugglega, 4-1. Það var Þýsk-íslenska verslun- arfélagið sem gaf öll verðlaun til keppninnar og voru þau verðlaun svo sannarlega vel þegin af hinum ungu keppendum. En myndirnar segja meira en mörg orð og við látum þær því tala. • Ber er hver að baki nema sór bróður eigi. Skot og markl (KR - ÍR) Uppskeruhátíð hjá FH-ingum í LOK keppnistfmabilsins heldu FH-ingar uppskeruhatfð yngri flokka fólagsins. Góður árangur náðist f flestum flokkum og þurfa þeir Hafnfirðingar engu að kvfða um framtíðina ef rótt er á spilum haldið. Uppskeruhátíðin var haldin í veitingahúsinu Gaflinum en sá staður hefur verið mikið notaður af FH-ingum sem samkomustaður þar sem þeir eiga ekki sinn eigin samkomustað. Þar voru þeir ein- staklingar verðlaunaðir sem náðu bestum árangri í yngri flokkum fó- lagsins. I 6. fl. var Jónas Stefáns- son valinn leikmaður órsins, í 5. fl. Auðunn Helgason, í 4. fl. Guð- bjartur Hafsteinsson og í 3. fl. Olafur Magnússon. Hjá stúlkunum var Halldóra Eiríksdóttir valin best í 4. fl. en í 3. fl. Erla Óskarsdóttir. • Verðlaunahafar FH, frá vinstri: Jónas Stefánsson, Guðbjartur Hafsteinss., Olafur Magnúss., Erla Oskarsd., Halldóra Eirfksd., og Auðunn Helgason.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.