Morgunblaðið - 06.06.1987, Page 64
Fróóleikur og
skemmtun
fyrir háa sem lága!
Ferðaslysa
' trygging
LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 60 KR.
Morgunblaðið/Kr.Ben.
Éta úrlófa og
fá klapp á bakið
Lúðueldið, sem íslandslax stendur að, í samvinnu við
Hafrannsóknarstofnun, gengur vel. í gær var Sigurður
Alfreðsson „lúðupabbi" að gefa stærstu lúðunum, en þær
eru svo gæfar, að þær éta loðnu úr hendi hans og fá síðan
klapp á bakið um leið og þær þakka fyrir sig með
sporðakasti.
Drög að lagafrumvarpi um lífeyrissjóði:
Iðgjöldin fjár-
magni lífeyris-
greiðslur alfarið
SAUTJÁN manna nefnd fulltrúa helstu aðila vinnumarkaðarina,
samtaka lífeyrissjóða og ríkisins skilaði i gær drögum að frumvarpi
til nýrra lífeyrissjóðslaga til fjármálaráðherra. í drögunum er gert
ráð fyrir þvi að löggjöf um hina ýmsu lífeyrissjóði verði samræmd
og að sérstakri stofnun, „Lífeyrissjóðaeftirliti", verði komið á lagg-
imar, er hafi reglubundið eftirlit með starfsemi lifeyrissjóðanna.
Við það er miðað í þessum drög-
um, að lífeyrissjóðimir geti staðið
undir skuldbindingum sínum með
iðgjaldstekjum sínum, þ.a. þær tekj-
ur og skuldbindingamar standist
á. í þessu skyni er lagt til að lág-
marksiðgjald verði 10% af öllum
greiddum launum, en ekki eingöngu
af dagvinnutekjum eins og áður
hefur verið. Beinar greiðslur vinnu-
veitanda verði því aflagðar.
Gert er ráð fyrir því að ábyrgð
ríkis og sveitarfélaga á lífeyrisrétt-
indum, svo sem er hjá lífeyrissjóð-
um opinberra starfsmanna,
starfsmanna sveitarfélaga og
bankamanna falli niður, tii sam-
ræmis við aðra sjóði.
Fulltrúar BHMR stóðu einir
nefndarmanna gegn tillögum þess-
um og skiluðu álitsgerð, þar sem
ofangreindum tillögum var mót-
mælt.
Sjá nánari frásögn á bls. 7.
Hrossin sjö frá
Þverá fundust dauð
Skinnastað.
HROSSIN sjö, sem hurfu frá
Þverá í Oxarfirði f janúarbyrjun
og mikið hefur verið Ieitað að,
fundust f gær. Fundust þau öll
dauð í fjalli skammt austan við
bæinn.
Gunnar Bjömsson, bóndi í Sand-
fellshaga, fann hrossin, er hann var
að huga að fé sínu eftir hádegi í
gær. Fundust þau í skriðu norðan-
til í Sandfelli, bröttu Ijalli skammt
austan bæjanna. Svo virðist sem
þau hafi klifrað allhátt upp í fjallið
og hrapað til dauða í hóp. Er helst
haldið að þau hafi lent fram af
snjóhengju eða jafnvel í snjóskriðu.
Nánar er ekki vitað um afdrif hross-
anna enn sem komið er.
Umfangsmikil leit hafði verið
gerð að þessum hrossum og þótti
hvarf þeirra dularfullt. Höfðu
spunníst um það ýmsar sögur víða
um land. Sigurvin
Konurí
meirihluta
stúdenta
Góður skriður á stjórnarmyndunarviðræðum:
Skattamál og tekjuöfhin ríkis-
sjóðs helztu ágreiningsmál
GOTT hljóð var í viðræðunefndarmönnum I stjórnarmyndun-
arviðræðunum að fundi loknum í gær. Ljóst er af máli manna
að mestir erfiðleikar munu verða í viðræðunum að ná sam-
komulagi um skattamál, aðgerðir í ríkisfjármálum og tekjuöfl-
un ríkisins, en þó telja menn ekki að erfiðleikamir séu
óyfirstíganlegir. Þá herma heimildir Morgunblaðsins að and-
inn í viðræðunum í gær hafi verið góður og að vilji framsókn-
armanna til þess að reyna myndun svona ríkisstjómar sé
ekki síðri en alþýðuflokks- og sjálfstæðismanna.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins, kemur ekki til greina af
hálfu Sjálfstæðisflokksins að
ákveða hækkun tekju- og eigna-
skatts, sem Alþýðuflokkurinn mun
leggja til. Sjálfstæðismenn telja
að aðgerðir í peningamálum til að
slá á þensluna eigi að vera með
þeim hætti að halda óbreyttri
gengisstefnu, þ.e. að gengið verði
áfram fast, og framsóknarmenn
munu einnig vera þeirrar skoðun-
ar. Sjálfstæðismenn telja að hækka
beri vexti á ríkisskuldabréfum og
spariskírteinum ríkissjóðs. Jafn-
framt vilja þeir aðgerðir til þess
að takmarka erlendar lántökur.
Líklega ber mest á milli í ofan-
greindu atriði, en ágreiningurinn
er einnig mikill i landbúnaðarmál-
um. Viðræðuaðilar telja að það
muni skýrast nokkuð um helgina,
hvort þessi stjómarmyndunartil-
raun tekst eða ekki og það eigi
að geta legið fyrir alveg skýrt, eigi
síðar en um miðja næstu viku.
Sjá frétt af viðræðunum í gær
á bls. 16.
Skólaárið 1985-1986 braut-
skráðust 1.647 stúdentar hér á
Iandi, þar af 962 konur en 685
karlar. Samsvarandi tala skóla-
árið 1984-1985 var 1.593, þar af
929 konur og 664 karlar. Fleiri
konur hafa brautskráðst stúdent-
ar en karlar, allar götur siðan
skólaárið 1977-78, samkvæmt
aprilhefti Hagtiðinda 1987.
Sem hlutfall af tvítugum íslending-
um útskrifuðust 43,3% kvenna sem
stúdentar skólaárið 1985-86 en
30,2% karla. Samsvarandi tölur
skólaárið 1084-85 vóru 42,3% kvenna
en 28,4% karla.
Fjöldi skipa til viðhalds
og breytinga erlendis
ÞRJU isiensk fiskiskip a.m.k. eru nú i slipp í Þýskalandi til við-
halds, breytinga og viðgerða. Liklegt má telja að um 5 skip til
viðbótar komi til Þýskalands í sömu erindagjörðum á næstu mánuð-
um. Auk þess hafa fleiri skip farið til annarra landa til viðgerða.
Börkur NK og Sveinn Jónsson
GK eru nú til viðhalds og viðgerða
í skipasmíðastöð Pohl & Joswiak í
Hamborg, og Hrafn GK er í Brand-
werft við Weser. Tilboð frá þýskum
skipasmíðastöðvum eru nú talin hag-
stæð skipaútgerð á íslandi. Skipa-
smíðaiðnaður í Þýskalandi hefur
barist í bökkum vegna verkefna-
skorts síðustu misseri og því er
reynt að fala verkefni til að halda
starfseminni gangandi. Mikil um-
ræða hefur verið um það hvemig
styrkja megi skipasmíðastöðvamar
og fá þær nú fjárstyrki frá þýska
ríkinu og Evrópubandalaginu til
nýsmíða a.m.k.