Morgunblaðið - 27.06.1987, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1987
Þeyttist út
af vegi á 120
km hraða
BIFREIÐ gjöreyðilagðist þegar
hún endastakkst út af Vestur-
landsvegi á Kjalarnesi á fimmtu-
dagskvöld. Einn piltur var í
bifreiðinni og slapp hann með
nokkur meiðsli.
Pilturinn fékk ökuréttindi fyrir
einum mánuði. Eitthvað hefur hann
lært fræðin sín illa, því hann ók
norður eftir Vesturlandsvegi á um
120 kílómetra hraða. Við Skraut-
hóla á Kjalamesi, upp af Hofsvík,
missti hann stjóm á bifreiðinni, með
þeim afleiðingum að hún þeyttist
út af veginum og endastakkst 4-5
sinnum. Loks stöðvaðist bifreiðin
upp á einum hólnum. Hún er gjör-
ónýt, „ekki nýtanleg skrúfa í
henni", eins og lögreglumaður orð-
aði það. Ökumaðurinn ungi þykir
hafa sloppið furðu vel frá óhappinu.
Sjólastöð-
in festir
kaupá
Karlsefni
SJÓLASTÖÐIN hf. f Hafnar-
firði hefur fest kaup á skuttog-
aranum Karlsefni RE 24.
Kaupsamningurinn var undir-
ritaður síðastliðinn fimmtudag.
Sjólastöðin gerir út skuttogar-
ann Otur HF 16, sem er um 451
tonn. Fyrirtækið seldi í fyrra bát-
inn Reka og hefur að sögn
Haralds Jónassonar fram-
kvæmdastjóra um nokkurt skeið
verið að svipast um eftir nýju
skipi. Auk útgerðar hefur Sjóla-
stöðin með höndum alhliða físk-
vinnslu, en leggur þó mest upp
úr frystingu. Haraldur kvaðst
gera ráð fyrir því að togarinn
yrði gerður út frá Hafnarfírði.
Karlsefni er 731 tonn að stærð.
í samtali við Morgunblaðið
sagði Ragnar Thorsteinsson
framkvæmdastjóri Karlsefnis hf.,
að sala togarans kæmi ekki til
vegna erfíðleika í rekstri, hins
vegar er ekki ákveðið hvort fyrir-
tækið verði sér út um annað skip.
Ekki var unnt að fá uppgefíð
kaupverð togarans.
Morgunblaðið/Kr.Ben.
Frá fyrstu útskipun laxaseiða hjá Silfurgen hf. i Höfnum á Suðumesjum. Flutn-
ingabill með 10 kör ekur undir rör, sem tengist körunum inni i stöðinni og
um það renna seiðin milli húss og bíls. Á innfelldu myndinni fylgist Júlíus
B. Kristinsson, framkvæmdastjóri, með mælingu á súrefnisinnihaldi vatnsins
í einu karinu.
Suðurnes:
Laxaseiðum fyrir um 18
milljónir króna skipað út
Norðmenn að kaupa upj) ársfram-
leiðsluna af laxaseiðum Islendinga
Grindavík.
ÞESSA dagana er verið að skipa út tæplega 200.000 laxaseiðum
frá Suðumesjum, en þau hafa verið seld til írlands og Noregs.
Verðmæti seiðanna er um 18 milljónir króna. Fyrir skömmu
samdi íslandslax hf. i Grindavík um sölu 160.000 seiða til Nor-
egs að verðmæti um 11 milljónir króna og Silfurgen hf. í
Höfnunum er að ljúka við gerð samninga á sölu allra sinna seiða
þangað. Mikil hörgull er á laxaseiðum í Noregi og em Norð-
menn um þessar mundir að kaupa upp ársframleiðslu íslendinga
af seiðum í gegnum Landssamband íslenzkra fiskeldisstöðva.
í Höfnunum var á sama tíma
verið að skipa út hjá Silfurgen
hf. 120.00 seiðum til Noregs að
verðmæti 12 milljónir króna í
Njarðvíkurhöfn. Stöðin var tekin
í notkun um miðjan maí, þegar
þangað var ekið 150.000 seiðum
frá Silfurlaxi hf. til að sjóvenja
þau. Að sögn Júlíusar B. Kristins-
sonar, framkvæmdastjóra, verður
stöðin fyllt aftur um helgina, en
í vor á að sjóvenja í stöðinni
400.000 seiði. Mikið af því er
þegar selt og er verið að ljúka
við samninga um sölu á því, sem
eftir er. Nærri lætur að heildar-
verðmæti sölusamninganna sé um
40 milljónir króna.
Kr.Ben.
Hjá íslandslaxi hf. var í gær
verið að skipa út síðasta farmin-
um, sem seldur var til írlands í
vetur, alls 70.000 gönguseiðum í
norska skipið Böe-Junior að verð-
mæti um 6 milljónir króna. Að
sögn Jóns Þórðarsonar, fram-
kvæmdastjóra, tókst fyrir
skömmu að ná samningum um
sölu á því, sem eftir var af um-
fram seiðum fyrirtækisins til
Noregs, alls 160.000 seiði og
verður þeim skipað út á næst-
unni. Þessi samningur er að
verðmæti 12 milljónir króna og
lætur nærri að alls selji fyrirtæk-
ið seiði fyrir 40 milljónir króna á
þessu ári.
Japanar borga 36 kr
fyrir lambakjötið
Norðmenn vilja hætta að kaupa íslenskt lambakjöt
Kjötmiðstöðin
hf. í samningum
við Júgóslava um
útflutning á kjöti
LOKIÐ er gerð samnings nm sölu á 1.800 lestum kindakjöts tíl Jap-
an. Fyrir farminn fæst nm 51 miiyón kr. Framleiðnisjóður á tæplega
helming kjötsins. Þriðjungur kjötsins er innan fullvirðisréttar og
er þvi á ábyrgð ríkisins en afgangurinn er kjöt sem bændur fá ekki
greitt fyrir. Japanar borga á bilinu 15-36 krónur fyrir hvert kíló
af kjötinu komnu nm borð f skip. Kíló af söguðum og úrbeinuðum
dilk f fyrsta flokki kostar um 260 krónur f smásöluverslun á höfuð-
borgarsvæðinu.
Áætla má að rikið þurfí að greiða
rúmlega 150 milljónir króna í út-
flutningsuppbætur fyrir þann hluta
farmsins sem framleiddur var með
fullvirðisrétti. Það er þrisvar sinn-
um hærri upphæð en nemur sölu-
verðmæti japanska kjötsins í heild.
Fyrir þær rúmu 800 lestir sem
Framleiðnisjóður landbúnaðarins
ætlar að selja úr landi greiddi sjóð-
urinn um 155 milljónir. Hér er um
ærkjöt að ræða og fyrir hvert kíló
af því greiða Japanar 15 krónur,
eða 12 milljónir króna alls. Þær 300
lestir sem bændur fá ekki greitt
fyrir gætu gefíð af sér um 10 millj-
ónir króna.
Sú stefna var tekin í þessum við-
skiptum að selja meira magn úr
landi en gert var ráð fyrir í búvöru-
samningi. Að sögn Jóhanns
Guðmundssonar fulltnía í land-
búnaðarráðuneytinu gefur sölu-
aukning mjólkur umfram það sem
áætlað var, svigrúm til þess að
nota hluta af fé sem ætlað var til
niðurgreiðslu á mjólkurvörum í
þessu skyni.
Enn er ekki ljóst hvað mikið af
kjöti fer til Noregs á þessu ári.
Norðmenn skuldbundu sig til að
kaupa árlega um 600 lestir af ís-
lendingum í gömlum millirikja-
samningi. Vilja þeir nú gjaman
losna undan honum þar sem birgðir
hlaðast upp á heimaslóðum.
Sú tillaga hefur komið fram að
Norðmenn greiði fyrir 1.200 lestir
eða tveggja ára kvóta f einu lagi
og losni síðan undan frekari kvöð-
um. Þetta samkomulag er ekki
frágengið.
HRAFN Bachmann, fyrir hönd
Kjötmiðstöðvarinnar hf. f
Reykjavík, hefur undanfama
mánuði staðið í samningum við
Júgóslava um kaup á íslenskum
afurðum, fiskimjöli, kjöti o.fl. í
desember voru send þangað 30
tonn af skreið og f maí fór hann
til Júgóslavfu með kokk og túlk
og sýndi Júgóslövum hvemig
matreiða mætti fslensku afurð-
iraar. Hrafn sagði f samtali við
Morgunblaðið að þetta mál væri
enn f biðstöðu og erfitt að segja
fyrir um útkomuna en hann efað-
ist ekki um að hún yrði jákvæð.
Það gerði þó málið mun erfíðara,
en það ætti að þurfa að vera, hversu
vont væri að fá nauðsynlega fyrir-
greiðslu á íslandi. Kerfíð ynni
frekar gegn þeim sem væru að
reyna að flytja út heldur en með
þeim. „Þetta sem ég hef verið að
gera er kannski meira af hugsjón
en ágóðavon, maður hefur verið að
reyna að sýna að þetta sé hægt á
einhveijum öðrum grundvelli en nú
er,“ sagði Hrafn. „Sölulaunin sem
maður fær fyrir þetta duga ekki
einu sinni til þess að standa undir
útlögðum kostnaði. Auðvitað ætti
að byggja upp slíkt kerfí að þeir
sem reyna að afla markaða erlend-
is fyrir íslenskar vörur verði styrkt-
ir. Þetta mætti gera með t.d.
styrkjum til markaðsfræðinema er-
lendis og möguleikum á skattafrá-
drætti fyrir útflytjendur auk
annarrar fyrirgreiðslu."
Skemmt á
skrifstofum
BROTIST var inn í skrif-
stofur Ríkisspítalanna
aðfaranótt föstudagsins.
Engu var stolið, en talsverð-
ar skemmdir voru unnar á
hurðum.
Tilkynnt var um innbrotið
til Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins um kl. 6.30 í gærmorgun.
Einhverjir höfðu farið um
húsakynni Ríkisspítalanna á
Rauðarárstíg 31 í Reykjavík
og eyðilagt hurðir með því að
sparka þeim upp. Tjónið nem-
ur nokkrum tugum þúsunda,
en í gær var talið að engu
hefði verið stolið.