Morgunblaðið - 27.06.1987, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1987
49
Fréttabréf úr Breiðuvíkurhreppi:
Nítján sumarbústaðalóðum
úthlutað við Hellnahraun
Laugarbrekku, Breiðuvíkurhreppi.
TÍÐARFAR hefur verið með ein-
dæmum gott þetta vor og sumar
sem af er og muna menn varla
eftir svo góðu vori sem nú. Klaki
fór snemma úr jörð og flýtti það
mjög fyrir gróðri.
Sauðburði er nú lokið og flestir
búnir að sleppa í úthaga. Sauð-
burður gekk mjög vel hjá flestum,
en nú tíðkast það almennt að ær
eru látnar bera í húsi og vaktaðar
allan sólarhringinn.
Matthías Björnsson, bóndi á
Gíslabæ á Hellum, er búinn að selja
jörð sína. Það voru hjón frá
Reykjavík sem keyptu hana og eru
þau flutt. Einnig fluttu á Gíslabæ
ung hjón frá Siglufirði.
Við Arnarstapa austan við
Hellnahraun er búið að úthluta
nítján lóðum undir sumarbústaði
og eru einhvetjir á biðlista. Verið
er að leggja nýja vatnsleiðslu ofan
á Stapapláss og er vatnið tekið úr
uppsprettulind sem kemur undan
Hellnahrauni við svokallaða Grenja-
snoppu í Hellnalandi.
Þá er verið að úthluta lóðum
undir árshús á Amarstapa og eru
það §órar eða fímm lóðir. Af þessu
má ráða að miklar byggingafram-
kvæmdir standa fyrir dyrum við
Amarstapa og þá fólksfjölgun í
sveitinni.
Mikil trillubátaútgerð er nú frá
Amarstapa. Höfnin er yfírfull af
bátum og standa vonir til að fé
fáist áður en langt líður til frekari
framkvæmda við höfnina sem sjó-
menn telja mjög áríðandi. Afli
bátanna hingað til hefur verið góð-
ur og mun vera komið á land milli
sex og sjö hundmð tonn frá áramót-
um. Hátt á þriðja tug báta leggja
upp afla á Amarstapa og er fiskur-
inn verkaður í salt, bæði hjá Bjarná
Einarssyni og Ingjaldi Indriðasyni.
Nokkrir bátar sem gerðir em út
frá Hellnum em geymdir þar vegna
þrengsla í Amarstapahöfn.
Vegir hér á nesinu em sagðir
slæmir, t.d. er útnesvegur mjög
grýttur og telja sumir vegfarendur
hann illfæran. Vegaverkstjóri tjáði
fréttaritara nýlega að fljótlega yrði
vegurinn lagfærður.
Hjörleifur Kristjánsson, Amar-
felli, Arnarstapa, sem rekur ferða-
mannaþjónustu og hefur veitingar
í Arnarbæ hefur nú opnað fyrir
ferðafólk. Hann hefur hlaðborð,
kaffi, öl og sælgæti. Einnig er boð-
ið upp á gistingu.
Nú stendur yfír málverkasýning
í Amarbæ og sýnir þar Soffía Þor-
kelsdóttir frá Bjargi á Amarstapa.
— Finnbogí.
Guðspjall dagsins:
Lúk. 14.: Hin mikla kvöld-
máltð.
mauu.
jfflpssuc “
á morgun
ARBÆJARPRESTAKALL: Guðs-
þjónusta í Árbæjarkirkju kl. 11.00
árdegis. Organleikari Jón Mýrdal.
Sr. Guðmundur Þorsteinsson.
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta og alt-
arisganga kl. 11.00. Fermdir
verða bræðurnir Hálfdán Þór
Hilmarsson og Hilmar Þór Hilm-
arsson, Borás, Svíþjóð. P.t.
Stóragerði 10. Sr. Árni Bergur
Sigurbjörnsson.
BUSTAÐAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11.00. Organisti Oddný
Þorsteinsdóttir. Sr. Ólafur Skúla-
son.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.00.
Sr. Sören Lodberg Hvas dómpró-
fastur í Haderslev á Jótlandi
prédikar. Sr. Þórir Stephensen
þjónar fyrir altari. Nýir kirkjugrip-
ir verða teknir í notkun: messu-
hökull og stóla. Einnig bókarstóll
(biblíustatíf). Leikið verður á org-
el kirkjunnar í 20 mínútur fyrir
messu. Sr. Þórir Stephensen.
' FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11.00. Organisti
Guðný Margrét Magnúsdóttir.
Hreinn Hjartarson.
FRÍKIRKJAN í REYKJAVÍK:
Messa og altarisganga kl. 14.00.
Ræðuefni „Skundum í fagnaðinn
þótt seint sé“. Söngstjóri og org-
anisti Pavel Smid. Sr. Gunnar
Björnsson.
Sumarferð Fríkirkjusafnaðarins
er heitið að Strandakirkju 5. júlí
nk. Lagt verður af stað frá kirkj-
unni kl. 12.00 á hádegi. Upplýs-
ingar og skráning í síma 15880
á kvöldin og í síma 26606 á dag-
inn.
GRENSÁSKIRKJA: Messa kl.
11.00. Organisti Árni Arinbjarn-
arson. Vinsamlegast athugið að
þetta er síðasta messa fyrir sum-
arfrí. Sr. Halldór S. Gröndal.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl.
11.00. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
Þriðjudag: Fyrirbænamessa kl.
10.30. Beðið fyrir sjúkum.
LANDSPÍTALINN: Messa kl.
10.00. Sr. Jón Bjarman.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl.
11.00. Sr. Tómas Sveinsson.
KÓPAVOGSKIRKJA: Messa kl.
11.00 árdegis í Kópavogskirkju
(altarisganga). Sr. Árni Pálsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja
Guðbrands biskups. Guðsþjón-
usta kl. 11.00. Organisti Jón
Stefánsson. Prestur sr. Sig.
Haukur Guðjónsson. Sóknar-
nefndin.
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11.00. Orgel- og kórstjórn: Reyn-
ir Jónasson. Sr. Guðmundur
Óskar Ólafsson. Miðvikudagur
I. júlí: Fyrirbænammessa kl.
18.20. Sr. Guðmundur Óskar
Ólafsson.
SELJASÓKN: Guðsþjónusta í
Ölduselsskólanum kl. 11.00 ár-
degis. Altarisganga. Síðasta
gúðsþjónusta fyrir sumarleyfi.
Sr. Valgeir Ástráðsson.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 11.00. Organ-
isti Sighvatur Jónasson. Prestur
Solveig Lára Guðmundsdóttir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Morgunsöngur kl. 11. Sr. Gunn-
þór Ingason.
AKRANESKIRKJA: Messa kl.
II. 00 við lok vinabæjamóts. Org-
anisti Jón Ólafur Sigurðsson.
Síðasta messa fyrir sumarleyfi.
Sr. Björn Jónsson.
HflNS PETERSEN HF
Bankastræti, Austurveri og Glæsibæ
Fyrsta myndavélin með
þrenns konar sjálfvirkri
fókusstillingu:
• Venjulegur sjálfvirkur
fókus.
• Vélin „eltir“ myndefnið
og heldur því í fókus.
• Vélin er stillt þannig
að þegar myndefnið
kemur í fókus smellir
vélin sjálfvirkt af.
Yashica 230-AF myndavélin er nýjung
frá Yashica, fyrsta myndavélin sem býr
yfir þrenns konar sjáifvirkri fókusstillingu,
auk hinnar handvirku. Þessir eiginleikar, meðal
annarra, gera Yashica 230-AF að sérlega fjölhæfri myndavél.
Nýlega dæmdi breska tímaritið Camera Weekly Yashica 230-AF bestu vél
sinnar gerðar á markaðnum, úr hópi átta reflex-myndavéla með sjálfvirka
fókusstillingu.
Yashica 230-AF hefur nýja gerð af innbyggðu leifturljósi sem tekur aðeins
2,5 sekúndur að endurhlaða.
Yashica 230-AF hleður sig sjálfvirkt, færir filmuna sjálfvirkt áfram og til baka
og hefur innbyggt rafdrif.
Betri kaup eru því vandfundin.
Verð kr. 30.206 (miðað við 50 mm linsu).
YASHICA KYNNIR
VASHICA
V4J
SÆNSK
VÖRUKYNNING
SCANIA HÚSINU, SKÓGARHLÍÐ 10
DAGANA 23. - 27. JÚNÍ
OPIN:
VIRKA DAGA KL. 14 - 22
LAUGARDAG KL. 10 - 19
ÍSAGA h.f.
HF.OFNASMIflJAN @
SÓL
SAAB
UMBOÐIÐ
GÍSLI J.JOHNSEN SF
n
KASSAGERÐ REYKJAVÍKUR HF.
HAÞRÓUÐ TÆKNI — GÓÐ ENDING — FAGURT IIANDHKAGI)