Morgunblaðið - 06.08.1987, Síða 18
Uppi á felli og inn til dala..
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1987
Þegar ég var barn söng
ég oft texta eftir Kristínu
Guðmundsdóttur, þar sem
sagði: „Uppi á felli og inn
til dala augað margt eitt
fagurt sér.“ Þetta er lýsing
á landslagi í Kjósinni. En
við þurfum ekki að vera
bara upp í Kjós, þó þar sé
fallegt, til að sjá fegurð
umhverfísins. Mörg rækt-
um við blóm og tré í
garðinum okkar. Víða má
sjá fugla á flugi, lömb í
haga og hesta á spretti.
Allt þetta gleður augað. í
gönguferð um daginn
stoppaði ég oft og skoðaði
sveppina sem þar var að
sjá. Þeir voru bæði stórir
og smáir. Sumir voru rauðir
en aðrir brúnir. Til eru
margar tegunda sveppa.
Suma sveppi borðum við en
aðrir eru eitraðir og því
óhæfir til átu, en það er
gaman að sjá þá og skoða.
Annað var það einnig
sem ég staldraði við í
gönguferðinni. Það voru
kóngulóarvefír. Mörgum
þykja kóngulær fremur leið-
inleg dýr, en því er ekki að
neita að vefímir sem þær
búa til eru hreint ótrúlega
vel gerðir og fallegir.
Næst þegar þú ferð í
gönguferð athugaðu þá
hvort þú sérð ekki eitthvað
fallegt. Þið gætuð skrifað
Bamasíðunni og sagt frá
einhveiju skemmtilegu og
fallegu sem þið sjáið á
þannig ferðum.
*✓*- *
55 »5
5h:o
0ÍV.
5'
.»p\'
IO Ai
»2
v?
>
•vl
Vo. 3*IV/}S. * . * .
* 3*7 Zí
38 37 3l°
Hver er í felum?
Hvaða dýr skyldi leynast á myndinni? Dragðu strik á milli
talnanna frá 1 til 56 og vittu hvaða dýr er þama.
Búðu tíl krana
Ef þig langar til að búa til þennan krana
skaltu nota lítinn pappakassa. A báðar hliðar
hans býrðu til göt og stingur blýanti í gegnum
þau. Um blýantinn bindur þú síðan bandið sem
fest er við krókinn. Búðu til lítið gat á botn
kassans, eins og sést á myndinni, og þræddu
bandið þar í gegn. Armar kranans eru klipptir
út úr stifum pappa og síðan límdir við kass-
ann. Smáspýtu er stungið í gegnum endann á
kranaörmunum. Búðu til krók úr pípuhreinsara
eða þunnum stálþræði, þið getið einnig notað
hámál eða blómavír. Nú getur þú híft krókinn
eða látið hann síga með því að snúa blýantin-
um. Ef þú vilt hífa eitthvað upp sem þú getur
ekki sett krókinn beint í, þá getur þú búið þér
til hálfgerðan kassa til að lyfta í úr strimli eins
og sýndur er á myndinni.
Pennavinur
Bamasíðan fékk bréf frá 10
ára stelpu, sem gjaman vill eign-
ast pennavini. Hún heitir Rakel
María Ajcelsdóttir og á heima á
Lokastíg 9, 101 Reykjavík.
Áhugamál hennar eru: Hestar,
tónlist, bamapössun og sveita-
dvöl. Hún vill skrifast á við krakka
sem em 10—12 ára.
Hvað er þetta?
Héma er hlutur sem við þekkjum öll. Hvað heldur þú
að þetta sé? Ef þú veist svarið sendu það þá til Bama-
síðunnar. Heimilisfangið er:
Barnasiðsn,
Morgunblaðinu,
Aðalstræti 6,
101 Reykjavík.
Ingvar Hreinsson í
Mosf ellss veitinni
sendiokkur þessa
skemmtilegu mynd